Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Blaðsíða 30
42 MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1995 Afmæli Gísli Asgeirsson Gísli Ásgeirsson, barnakennari viö Öldutúnsskóla í Hafnaríiröi, Vöröu- stíg3, Hafnarfirði, varð fertugur í gær. Starfsferill Gísli er fæddur á ísafirði en ólst upp aö Þúfum í Vatnsfjaröarsveit í Norður-ísafjarðarsýslu. Hann er stúdent frá MÍ1974 og B.Ed frá Kennaraháskóla íslands 1979. Gísli kenndi viö Iðnskólann í Hafnarfiröi 1974-75, Grunnskóla Reyðarfjaröar 1975-76, Glerárskóla á Akureyri 1979-81, Ljósafossskóla í Grímsnesi í Árnessýslu 1981-83, Vesturbæjarskóla í Reykjavík • 1 '1 1983-85 og við Öldutúnsskóla frá þeim tíma. Gísli var í sfjóm FRÍ1989-90 og hefur sinnt ýmsum nefndarstörf fyrir sambandiö frá 1988. Hann var í aðalstjórn FH1991-94 en hefur starfað fyrir félagið frá 1985, einkum nefndarstörf. Gísli stofnaðiTún- fiska sf. 1986 ásamt Matthíasi Krist- iansen. Hann hefur verið í söng- sveitinni „Björn og húnarnir" frá 1991, formaður reiðhjólafélagsins Súsa frá 1994 og yfirþjálfari skokk- hópsins „Bláa kannan" frá 1992. Gísli hefur fengist við margs kon- ar þýöingar og ritstörf, einkum þýð- ingar á myndböndum. Hann hefur ritað kennslubækur í móðurmáli fyrir Námsgagnastofnun ásamt ÞórðiHelgasyni. Fjölskylda Gísli kvæntist 6.7.1979 Margréti Sigrúnu Jónsdóttur, f. 4.2.1955, fé- lagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg: Foreldrar hennar: Jón Ólafsson, lát- inn, sjómaður, og Sigrún Bárðar- dóttir, húsmóðir, búsett í Reykjavík. Börn Gísla og Margrétar Sigrúnar: Ilmur Dögg Gísladóttir, f. 21.11.1977, nemi í Flensborg; Orri Freyr Gísla- son, f. 18.3.1980, grunnskólanemi. Systkini Gísla: Páll Ásgeir Ás- geirsson, f. 10.11.1956, blaðamaður, búsettur í Kópavogi; Hrafney Ás- geirsdóttir, f. 19.10.1958, matar- tæknir, búsett í Reykjavík; Þorbjörg Ásgeirsdóttir, f. 13.5.1961, húsmóðir, búsett í Kanada. Hálfsystur Gísla, sammæðra (dætur Ásthildar og Þór- halls Halldórssonar); Bryndís Þór- hallsdóttir, f. 1.6.1949, skrifstofu- maður, búsett á Stöðvarfirði; Björg Þórhallsdóttir, f. 1.6.1949, bæjar- starfsmaður, búsett á Tálknafirði. Hálfsystir Gísla, samfeðra (dóttir Ásgeirs og Ragnheiðar Guðmunds- dóttur); ÁslaugÁsgeirsdóttir, f. 11.8. 1953, húsmóðir, búsett á Akureyri. Foreldrar Gísla: Ásgeir Svan- bergsson, f. 4.10.1932, ættfræðingur Gísli Ásgeirsson. og ráðsmaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, og Ásthildur Pálsdótt- ir, f. 5.10.1925, húsmóöir, þau bjuggu að Þúfum til 1973 en í Kópavogi frá þeimtíma. afmælið 29. maí Bjami Guðmundsson 85 ára Hákon Þorkelsson, Arahólum4, Reykjavík. Valdemar Bjarnason, Önguisstöðum 3, Eyjafjarðarsveit 80 ára Sigríður Sigurjónsdóttir, Borgarholtsbraut 44, Kópavogi. Þorkeli Zakaríasson, Brandagili, Staöarhreppi. 75 ára Margrét Jakobsdóttir, Jökulgrunni 21, Reykjavík. Haiidóra Júlíusdóttir, Gnoðarvogi 68, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Magnús Finnbogason. Þau taka á móti gestum á heimili sínu eför kl. 20 á afinælisdaginn. Benedikt Þ. Jakobsson, Meðalholti 19, Reykjavík. 70 ára Svava Brynjóifsdóttir, Langageröi 28, Reykjavík. Sigríður Kristinsdóttir, Aflagranda 40, Reyiqavík. Valborg Þorgrímsdóttir, Kópavogsbraut 85, Kópavogi. Andrés Þ. Guðmundsson, Hauntxmgu 11, Kópavogi. 60 ára Sigurbjörn Ögmundsson, Brekkugötu7, Hrísey, Jóntna Sigríður Óskarsdóttir, Álftarima7, Selfossi. Kristín Vilbjálmsdóttir, Móabarði 28b, Hafnarfírði. Þorvaldur Ingibergsson, Blesugróf 22, Reykjavik. 50 ára Oddur Valur Gunnlaugsson, Efstasundi85, Reykjavík. Kristinn Sveinbjörnsson, Eskihlíð 16a, Reykjavík. Hjörtur Ingólfsson, Norðurvangi 8, Hafnarflrði. Kristján Ævar Arason, Víöihlíð23, Sauðárkróki. Arína Guömundsdóttir, Jörundarholti 128, Akranesi. Guðmundur Heiðar Guðj ónsson, Ystaseli 21, Reykjavík. Hanneraöheiman. Axel Axelsson málarameistari, Vallarási4, Reykjavík. Eiginkona hanserDag- björt S. Guð- mundsdóttir. Þautakaámóti gestum föstu- daginn 2.júní kl. 20 í Skipholti 70 í sal meistarafé- laganna. Guðmundur Eyjólfsson, Sogavegi 46, Reykjavík. Sigfús Traustason, Austurvegi 45, Grindavík. Sveinn IngiPétursson, Ásgarði 2, Garðabæ. Hans Agnarsson, Miðtúni 5, Reykjavik. 40ára Bergur Mekkinó Jónsson, Eskiholti2, Borgarhreppi. Jón Finnur Ögmundsson, Goðalandi 5, Reykjavík. Guðlaugur Þór Pálsson, Rauðalæk 37, Reykjavík. SkúliEinarsson, Tannstaðabakka, Staðarhreppi. Sveinn D. Kristjánsson, GóuhoIti3,ísafirði. Sigurður Pétur Eiríksson, Sundlaugarvegi 14, Reykjavík. Bjarni Guðmundsson flakari, Fjarð- arstræti 2, ísafirði, er fimmtugur í dag. Fjölskylda Bjarni er fæddur í Reykjavík en ólst upp á Þingeyri. Hann hefur unnið við fiskvinnslu á Þingeyri og ísafirði. Systkini Bjarna: Guðrún Finn- borg, f. 11.8.1948, d. 16.1.1972, hús- móðir, hennar maður var Pétur Jakob Líndal Jakobsson, f. 12.8. 1946, látinn, sjómaður, þau bjuggu á Þingeyri, þau eignuðust eina dóttur; Guðmunda Kristín, f. 30.10.1949, sjúkraliði og húsmóðir, gift Hösk- uldi Ragnarssyxú, f. 26.4.1942, sjó- manni, þau eru búsett í Reykjavík, þau eiga þrjú börn; Magnús Helgi, f. 21.11.1950, verkamaður, búsettur á Þingeyri; Sigurveig, f. 13.2.1952, sambýlismaður hennar er Sölvi Sig- urðsson, f. 21.3.1958, þau eru búsett í Reykjavík, þau eiga einn son, Sig- urveig á fiögur börn af fyrra hjóna- bandi; Gunnar Benedikt, f. 22.11. 1953, sendibifreiðastjóri, kvæntur Guðrúnu Kristínu Ingimundardótt- ur, f. 9.8.1949, þau eru búsett í Garðabæ og eiga fjögur böm; Mika- el Ágúst, f. 5.8.1956, veghefilsstjóri hjá Vegagerð ríkisins, kvæntur Steinunni Lilju Ólafsdóttur, f. 31.12. 1959, verkakonu og húsmóður, þau eru búsett á Þingeyri og eiga fjögur böm; Ingibjörg María, f. 15.3.1959, húsmóðir, gift Þráni Sigurðssyiú, f. 30.12.1956, vélvirkjameistara og sölumanni, þau eru búsett í Reykja- vík og eiga tvær dætur; Jónína Björg, f. 11.9.1961, félagsráðgjafi og húsmóðir, sambýlismaður hennar er Hnikarr Antonsson, f. 18.8.1960, vélvirki, þau eru búsett í Reykjavík og eiga þijú börn; Sigríður Gerða, f. 1.2.1966, snyrtifræðingur oghús- móðir, sambýlismaður hennar er Áskell Sigurösson, f. 13.8.1962, raf- virki, þau eru búsett í Reykjavík og eiga eina dóttur; Katrín, f. 18.5.1967, starfsmaður á Landspítalanum og Bjarni Guðmundsson. húsmóðir, Katrín á einn son. Foreldrar Bjarna: Guðmundur Karvel Sören Magnússon, f. 8.10. 1922, bóndi, og Kristín Gunnarsdótt- ir, f. 17.7.1931, húsfreyja. Þau eru búsettáÞingeyri. Bjarni er að heiman. Valgeir Hauksson Valgeir Hauksson, sjómaður á Slétt- bak EA 304, Löngumýri 32, Akur- eyri, varð fertugur í gær. Fjölskylda Valgeir ólst upp á Hjalteyri. Hann er gagfræðingur að mennt og var í 1. bekk i iðnskóla. Valgeir hefur verið sjómaður á ýmsum togurum hjá ÚA, Samherja, á Ólafsfirði og í Vestmannaeyjum. Hann er nú sjó- maður á frystitogaranum Sléttbak EA304. Valgeir kvæntist 12.8.1989 Hall- dóru Sverrisdóttur, f. 8.1.1954, mat- sveini. Foreldrar hennar: Sverrir Magnússon og Guðbjörg Ingimund- ardóttir. Þau eru bæði látin. Dóttir Valgeirs og Halldóru: Sigur- björg Rún Valgeirsdóttir, f. 23.8. 1982. Synir Valgeirs af fyrra hjóna- bandi: Gunnar FreyrValgeirsson, f. 16.11.1980; Hreiðar Bragi Valgeirs- son, f. 20.4.1982. Fósturbörn Val- geirs og börn Halldóru: Guðbjörg HuldaValdórsdóttir,f. 10.9.1972, verslunarmaður; Jóhartn Kristján Valdórsson, f. 22.12.1973, iönverka- maður; Ásdis Erla Valdórsdóttir, f. 27.11.1976, verkakona. Systkini Valgeirs: Ragnar Hauks- son, f. 14.4.1953, bifreiðastjóri; Þor- björg Hauksdóttir, f. 13.5.1954, ræstitæknir; Sigurður Rúnar Hauksson, f. 4.8.1964, verkamaöur; Herdís Hauksdóttir, f. 11.9.1969, verslunarmaður. Foreldrar Valgeirs: Haukur Þor- björnsson, f. 1.1.1931, bifreiðastjóri, og Sigrún Ragnarsdóttir, f. 4.12. Valgeir Hauksson. 1933, iðnverkakona. Þau eru búsett áAkureyri. LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA VALDA ÞÉR SKAÐA! /ÍKÍX Miðskólinn einkaskóli - grunnskóli Fríkirkjuvegi 1, Reykjavík, sími 562-92-22. Síðustu innritunardagar fyrir næsta skólaár eru þriðjudagur 30. og miðvikudagur 31. maí. Skólastjóri Sviðsljós Thor Vilhjálmsson las up úr nýútkominni Ijóðabók sinni, en hann á það til að heimsækja Pál upp aö Húsafelli og bergir þá að sögn á kraftmiklum orkulindum staðarins. DV-mynd Olgeir Helgi Lokadagur sýningar Páls á Akranesi: Tónlist og ljóðalestur Olgeir Helgi Ragnarsson, DV, Borgamesi: Staðið hefur yfir á Akranesi sýrúng Páls Guð- mundssonar, myndlistarmanns frá Húsafelli. Hann hefur getið sér gott orð fyrir list sína þrátt fyrir ungan aldur. Þegar sýningu Páls lauk formlega heimsótti hann allnokkur hópur gesta, vinir og velunnarar lista- mannsins. Meðal þeirra voru ágætir tónlistarmenn og landsþekkt skáld sem settu hátíðlegan og skemmtilegan svip á daginn með tónlistarflutningi og upplestri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.