Þjóðviljinn - 24.12.1938, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 24.12.1938, Blaðsíða 6
6 PJÓÐVILJINN Sterkari en karlmenn. (Frh. af 5. síðu). Það er hugsunin um krakkana náttúrlega, sem rekur hana á- fram, — krakkana, barniðy drenginn Jóhann Axel —. Hann kastaði til höfðinu og snöggur hamingjustraumur hitaði hon- um öllum. Pað var í nótt, sem, það átti að gerast, að hugsa sér í nótt! — kraftaverk. ** Á næsta augnabliki gerðist eitthvað. Ekki kraftaverk, meið- arnir einungis skruppu út af steini, stefnan vitlaus eða hvað? — Hann steyptist blindaður og flæktur i sleðanum fram af þriggja metra hengju á rjúk- andi lerð, — kastaðist með ægilegu braki á kofagafl Höllu. Hann raknaði við í bendu brotinna spelka og boginna sleðameiða og fálmaði ásjálf- rátt uppi húfuna. Ég verð að hlaupa, hlaupa, hugsaði hann og spratt upp. Hann datt og æpti af kvöl. Honum fannst vinstri fóturinn allur í eldi, ekki Iengur fótur, heldur brennandi kjötstykki. Hann skreið fáeina metra og dró löppina eins og helskotið dýr, en varð að gef- ast upp. Hann stundi hátt af! sársauka og bræði. Ekkjan kom út með staf í hendi og lýsti með lukt fram- undan sér. ,,Hver er þar?“ spurði hún með mjóu, syngj- andi röddinni. Skjaldmann lyfti augli i sínu frá jörðu. ,,Fljótt!“ hrópaði hann. „Hlauptu út í Elínarborg! eftir lækninum. Konan mín ætl- ar að eignast barn í nótt“. „Það er svo“, sagði hún, „það eruð þér, Skjaldmann. Eruð þér mikið mtiddur?“ „Nei, nei“, hrópaði hann á- fram titrandi af óþolinmæði, „en stökkvið til Elínarborgar, stökkvið, stökkvið, segi ég —.“ Halla þagði og steig spor aft- lur á bak. Drykklanga stund hélt hún áfram að líta niður á manninn. Hann skreið nær henni eins og kvikindi, stundi og bað. Sá hún ekki hvernig (Frh. á bls. 15). gxxxxxxx>c<xxxxx>oo<xxx>oo<x Gleðíleg jól! Brynja XXXXXXXv'rfXXXXXXXXXXXÆOOC X Hl i Gleðileg jöl! Naffr', taf* m íí'll^ u u u | Gleðileg jól! u u u u u u u u u n ö u • u Verzlunarmannafélagið ^ n n :x>ooo<xxxxxxxxxxxxx Gleðileg jól! Bókbindarafélag Reykjavíkur xxxxxx>ooooooo<xxxx

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.