Þjóðviljinn - 22.11.1942, Side 3

Þjóðviljinn - 22.11.1942, Side 3
Sunnudagur 22. nóv. 1942. Þ JOS VILJINN |»!ðOViyiNH| Útgefandl; Sameiningarflolckur al'pyðu — Sósialistaflokkurinn Ritstjórar: Einar Olgeirsson (áb.). Sigfús Sigurhjartarson. Ritstjóm: Hverfisgötu 4 (Víkingsprent). Sími 2270. Afgreiðsla og auglýsingaskrif- stofa: Austurstrœti 12 (l. hæð) Sími 2184 ’/'kingsprent h.f., Hverfisgötu 4 Eíníng tíl sóknar Það tókst að koma á fullkom- inni einingu innan Alþýðusam- bandsþingsins. Flestar tillögur, sem fram voru bornar á þinginu voru sam- þykktar í einu hljóði, og stjórn þess var kosin í einu hljóði. Full trúarnir fara því heim af þessu Alþýðusambandsþingi með þann langþráða gleðiboðskap, að eining sé ríkjandi innan verk lýðssamtakanna, og þau geti nú loks komið fram sem ein heild, sem samtök fjölmennustu og sterkustu stéttar þjóðfélagsins — verkalýðsins. En til hvers hefur þessi eining verið sköpuð? Til að verja réttindi verka- lýðsins, segir einhver. En rétt er að minna hvern þann er þann veg mælir á, að sókn er bezta, og þegar til lengdar lætur, eina vörnin. Vissulega eiga verklýðssam- tökin að beita þeim mætti sem einingin skapar, til að verja öll þau margháttuðu réttindi, sem verkamenn hafa öðlazt fyrir bar áttu liðinna ára. En þeir sem forustuna hafa fyrir verkalýðs- samtökin mega ekki gleyma, að þessi réttindi verða ekki varin, nema með því að hefja öfluga og víðtæka sókn á öllum vígstöðvum, hinna vinnandi stétta íslands, til sjávar og sveita. Alþýðusambandsþinginu var lokið í fyrrinótt. í dag ber hverj- um einasta verkamanni og hverri einustu verkakonu, hvar sem er á landinu, að taka þátt í sókninni fyrir framkvæmd allra þeirra tillagna, sem Al- þýðusambandsþingið sam- þykkti. í dag ber hinni ný- kjörnu stjórn Alþýðusambands- ins að skipuleggja hinn vinn- andi fjölda fyrir framkvæmd þessara tillagna, á morgun ber henni að standa í fylkingar- brjósti sókndjarfs verkalýðs, sem veit hvað hann vill, og þekkir ráð og leiðir til að fram- kvæma vilja sinn. Hvað er það þá sem verkalýðs samtökin vilja? Þrjú orð lýsa því í meginat- riðum. Þessi orð eru: Atvinna — réttlaeti — frelsi. Atvinna handa öllum, sem geta unnið, réttlát skipting arðsins, og fullkomið frelsi verkamanna og samtaka þeirra, til að berj- ast fyrir rétti sínum og fyrir heill þjóðarheildarinnar. Jafn- B Frá eífiíngarþíngi alþýðunnar Fyrir aftymnnog oryggi gegn snndrnng og f asisma Alþýðusambandsstjóminni falið að koma á bandalagi með fjöldasamtökum al- þýðunnar til vemdar hags- munum og réttindum fólksin. „17. þing Alþýðusambands íslands felur sambandsstjórn að gangast fyrir því að koma á bandalagi með öllum öðrum samtökum alþýðunnar, hvort sem um er að ræða 'almenn hagsmunasamtök, stjómmála- samtök, verkalýðsfélög, menn- ingarsamtök eða önnur til verndar hagsmunum og rétt- indum og samtakafrelsi verka lýðsins, til þess að vinna gegn dýrtíðinni í samræmi við þá stefnu, sem þingið hefur mark að, til þess að berjast fyrir margháttuðum þjóðfélagsleg- um xunbótum og framförum og til þess að hnekkja völdum afturhaldsins og gera áhrif al- þýðusamtakanna gildandi á stjórn landsins. hliða því sem verkalýðurinn sækir fram í þessari baráttu, sem stétt, verður hann að beita fyrir sig baráttu í sveitunum á vettvangi stjórnmálanna. Verka lýðurinn hefur eflt tvo stjórn- málaflokka til baráttu á þess- um vettvangi — Sósíalistaflokk- inn og Alþýðuflokkinn —. Al- þýðusamband íslands á ský- lausa kröfu til þess að báðir þessir flokkar líti á það sem sitt fyrsta og helzta verkefni, að bera fram á Alþingi stefnu þess og kröfur. Það á skýlausan rétt á að krefjast, að þeir beiti sér af alefli og án alls ágreinings, fyr- ir þeirri stefnu, sem mótuð var af Alþýðusambandsþinginu og fram kemur í ályktunum þess. Taki þessir flokkar upp eins heiðarlegt og veglegt samstarf, á öllum sviðum, eins og fulltrú- arnir á Alþýðusambandsþinginu höfðu sín á milli, um þingstörf- in, eru þeir, með verkalýðssam- tökin að baki sér, sterkasta afl- ið á Alþingi íslendinga. Þetta er staðreynd sem ekki ber að gleyma, aðeins með því að hag- nýta hana út í yztu æsar, getur einingin sem skapaðist á Alþýðu sambandsþinginu leitt til þeirr- ar sóknar og þeirra sigra, sem verkalýðurinn þráir, og sem þjóðin þarf, til bjargar skipi sínu heilu út úr brotsjóum verð bólgu og annara vandræða. Þjóðviljinn óskar hinni ný- kjörnu Alþýðusambandsstjórn til hamingju, sem stjórn eining- arinnar, en þó fyrst og fremst sem stjórn nýrrar og öflugrar sóknar þeirrar stéttar, sem með fullum rétti segir um sjálfa sig: „Vér bárum fjötra, en brátt nú hljótum, að byggja réttlátt þjóðfélag.“ Alþýðusambandsþingið lauk störfum sínum í fyrrinótt. Þetta þing Alþýðusambandsins markar tímamót í sögu þess, þar sem fullkomin eining náðist um þau mál, sem þingið hafði til meðferðar. Með þessari einingu er lagður grundvöllurinn að því, að gera verkalýðssamtökin að því valdi, sem árásir stríðs- gróðavaldsins og afturhaldsins brotna á. Þjóðviljinn birtir í dag helztu ályktanir og samþykktir Al- þýðusambandsþingsins. Næstu daga munu svo verða birtar þær samþykktir þess, sem ekki er rúm fyrir í dag. Áratuga reynsla verkalýðs- hreyfingarinnar hefur sýnt, að til þess að forða hinum vinnandi stéttum frá nýju at- vinnuleysi og nýjum hörm- ungum fátæktarinnar, til þess að forða vinnandi stéttunum frá réttleysi og kúgun, þá verð ur verkalýðsstéttin í gegn um samtök sín að taka forystu þjóðarinnar í sínar hendur í náinni samvinnu við aðrai' vinnandi stéttir landsins. * Þar af leiðandi getur verka- lýðurinn ekki sætt sig við smá vægilegar ívilnanir, heldur verður hann ásamt annarri alþýðu íslands að tryggja sér þau völd í þjóðfélaginu, er geti gert markmið verkalýðs- hreyfingarinanr að veru- leika“. Þingið felur sambands- stjórn að sameina sem skjótast verklýðsfélögin. þar sem þau eru sundruð. „17. þing Alþýðusambands Islands álitm-, að sundrung sú, sem verið hefiu- í verka- lýðssamtökunum undanfarin áratug, hafi valdið tjóni og varnað því, að samtökin vernd 1 uðu hagsmuni og frelsi verka- I lýðsins sem skyldi. j Þingið fagnar því, að flest þau verkalýðsfélög, er áður voru klofin, skuli nú hafa sam einast aftur og telur, að í nánustu framtíð verði að út- rýma vanvirðu og skaðsemi sundrungarinnar, að fullu og öllu. í fullu trausti þess, að þetta sé vilji yfirgnæfandi meiri- hluta verkalýðsins, ályktar þingið að fela hinni nýju sam bandsstjórn að beita sér fyrir sem skjótastri sameiningu verkalýðsfélagamia, þar sem þau eru sundruð“. Ályktanir þingsins í dýr- tíðarmálunum. „Með samtökum sínum hef- ur verkalýðurinn fengið mikl- ar umbætur á launakjörum sínum. Grunnlaun hafa hækk að mjög verulega. 8 stunda vinnudagur allvíðast viður- kenndur í samningunum við atvinnurekendur. Eftirvinnu og helgidagakaup hækkað j hlutfallslega. Samningsréttur- | inn viðurkenndur á ný af lög- gjafarvaldinu með afnámi kaupbindingar-ákvæðis í hin- um illræmdu gerðardómslög- um. Atvinna verkalýðsins hefur verið meiri en dæmi eru til áður í sögu samtakanna. Ýms hlunnindi hafa náðst, svo sem orlof hjá fjölda verkalýðsfé- laga, er engan slíkan rétt áttu og hjá öðrum hækkun á orð- lofstíma, svo og ýms áikvæði um bætta aðbúð á vinnu- staö o. fl. Hins vegar er ljóst, að þessi ávinningur verkalýðs- ins um bætt kjör, er í nokk- urri hættu, vegna hinnar hraðvaxandi dýrtíðar sem nú er í landinu. Ekkert má út af bera um vinnustundirnar ef tekjur eiga að hrökkva fyrir daglegum þörfum og þá j einkum bg sér í lagi hjá þeim; 1 sem hafa marga að fæða og i klæða. Auk þess setur hin hraðvaxandi dýrtíð atvinnu- ' vegina sjálfa í mikla hættu. j Það er því mikils um vert ef samtök verkalýðsins geta haft ■ varanleg áhrif á stöðvun dýr- ! tíðarinnar. En þótt svo sé talið, aö verkalýðurinn og launastétt- irnar fái dýrtíðina bætta með fullri verölagsuppbót, þá er ! yfirleitt af launastéttunum litið svo á að grundvöllur verð vísitölunnar hafi raskast launastéttunum í óhag, og mætti færa til ýms dæmi því ■ til sönnunar. Það er því nauðsynlegt, að grundvöllur vísitölunnar verði endurskoðaður jafnhliða og launþegarnir beita sér fyrir hagkvæmri lausn á dýrtíðar- málunum. Til þess að ná þessu markmiði vill 17. þing Alþýðusambands íslands leggja til að farnar verði eft- ir taldar leiðir : 1. Ríkið taki í sínar hendur allan ixmflutning á er- lendum vörum, meðan ó- friðurinn stendur, og séu nauðsynjavörur seldar eigi hærra en með innkaups- verði að viðbættum kostn- aði. 2. Tollar af nauðsynjavörum séu aftwmdir. 3. Strangt eftirlit sé haft með útsöluverði á vörum og þeim vægðarlaust refs- að, er gera sig seka um brot á hámarksákvæðum verðlagseftirlitsins. ... 4. Komið verði á föstu grunn verði landbúnaðarafurða er miöaö sé við það, að bændur njóti á hverjum tíma viðunandi líiskjara. samanborið við verka- menn og breytist verðlag- ið samkvæmt dýrtíðarvísi- tölu. Ef hagkvæmt þykir verði innlendar afurðir verðbættar úr ríkissjóði. 5. Kaupgjald verði samræmt um land allt með samn- ingum við verkalýðsfélög- in, enda hækki það þá og lækki eftir vísitölu. 6. Grundvöllur vísitölunnar vferði endurskoðaður og leiðréttur. 7. Stríðsgróðinn verði tekinn í ríkissjóð og notaður til eflingar .. atvinnuvegum landsmanna, þegar á þvi þarf að halda, eftir fyrir- fram gerðri athugan. 8. Strangar skorður verði . settar gegn hverskonar braski og okri á fasteign- um og öðrum verðmætum. 9. Samstarf verði hafið milli ríkisvaldsins og verkalýðs- samtakanna um hagnýt- ingu vinnuaflsins, til þess að tryggja nauðsynleg framleiðslustörf, húsabæt- ur, vinnu vegna ófriðar- ins o. þ. h. 10. Gengi íslenzkrar krónu verði hækkað, að undan- genginni athugun og á þann hátt að tekið sé fullt tillit til þeirra afurðasölu- samninga, sem nú eru í gildi. Sérstakur eignaskatt verði lagður á stóreigna- aukningu vegna stríðs gróða, til þess að greiða kostnað við gengishækk- unina. Ályktun um baráttu gegn fasisma. Þingið lýsir aðdáun á frels- isbaráttu Norðmanna og Sovétþjóðanna. 17. þing Alþýðusambands ísland telur að styrjöld sú. sem bandamenn heyja nú gegn fasisma og nazisma sé háð fyrir menningu og frelsi alþýðunnar í öllum löndum. j en gegn kúgun, sið'leysi, ó- menningu og ofbeldi. Fyrir því ályktar þingið að lýsa dýpstu andúö á kúgurunum. en fyllstu samúð og hluttekn- ingu sinni með baráttu Banda manna í öllum löndum, svo | og baráttu þeirra þjóða, sem j hernumdar hafa verið af ein- : ræðis og ofbeldis þójðunum. i Þingið vottar sérstaklega j hinni hetjulegu norsku verka- Framhald á 4. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.