Þjóðviljinn - 23.06.1944, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 23.06.1944, Blaðsíða 8
 Kveðjur og^árnaðaróskir í tiI- efni af lýðveldisstofnuninni Næturlæknir er í læknavarðstof- unni, sími 5030. Næturvörður er í Reykjavíkur- apóteki. Næturakstur: B. S. R., sími 1720. Útvarpið í dag: 19.25 Hljómplötur: Harmoníkulög. 20.30 Erindi: Eru íslendingar óþjóð- ræknir (Árni Jónsson frá Múla). 20.55 Strokkvartett útvarpsins: 21.10 Upplestur. Ferðafélag íslands fer skemmtiför til Gullfoss og Geysis næstkomandi sunnudag. Ekið austur Hellisheiði að Gullfossi og Geysi. Sápa látin í Geysi og reynt að ná fallegu gosi. Þá verður komið að Brúarhlöðum og í bakaleið ekið upp með Sogi aust- an Þingvallavatns og á Þingvöll en þaðan til Reykjavíkur. Lagt af stað kl. 8 árdegis. Farmiðar seldir í skrifstofu Kr. O. Skagfjörðs, Tún- götu 5 í dag og til hádegis á morg- un. Vesturvígstöðvarnar £ Framhald af 1. liðu. Sunnar í Normandí, á „vinstra fylkingararmi“ Bandamanna, nálgast Bandaríkjamenn St. Lo, en Bretar og Kanadamenn heyja enn harðar orustur hjá Caen og Tilly. Hafa litlar breyt ingar orðið á þessum vígstöðv- um. — Barátta Breta og Kan- adamanna er þó afar mikil- væg, því að þeir halda þar meg inher Þjóðverja föstum ásamt skriðdrekaliði þeirra. Stimson hermálaráðherra Bandaríkjanna benti á þetta í gær og sagði hina hröðu sókn landa sinna á Cherbourgskaga mikið því að þakka, að Þjóð- verjar hefðu verið þar varaliðs lausir, og það væri aftur að þakka baráttu Breta og Kan- adamanna. Veður fer nú batnandi í Nor- mandí. ALLSHERJARÁRÁSIR FRANSKRA SKÆRULIÐA. Bráðabirgðastjórn Frakka í Al- gier gaf í gær út tilkynningu um hernaðaraðgerðir franska leyni- liersins. — Hann hefur byrjað allsherjarárásir á Þjóðverja og sambandslínur þeirra um allt Frakkland. t frönsku Olpunum. Jurafjöll- um og Vogesafjöllum standa .yfir orustur og hafa Þjóðverjar beðið mikið manntjón. - Skæruliðar hafa rofið símalínur frá París og Lyon, Calais og Mar- seilles. Á Bretagne hafa þeir aukið mik- ið árásir sínar. Víða uni Frákkland liafa þeir tekið alla stjórn í sínar hendur í þorpum og bæjum. Franski leyniherínn hefur gcrt sáttmála við ítölsku skæruliðana á Norður-ítah'u um gagnkvæma aðstoð. S JÓSÓKNARBANNIÐ. Sjósóknarbann það, sem Banda- menn hafa nú haldið uppi á Norð- ursjó í 2 vikur, hefur nú verið framlengt um eina viku tjl. Skátamót'ð á Þingvðllum Framh. af 1. síðu. Skátarnir hafa skoðað Þingvelli undir leiðsögn Benedikts Sveins- sonar. Regn hefur verið öðru hvoru á Þingvöllum, en líðan skátanna góð. Mótið verður opið ahnenningi n.k. sunnudag. KVEÐJUR HAFA ÞESSIR SENT í TILEFNI AF LÝÐ- VELDISHÁTÍÐINNI Frá Bandaríkjunum: íslend- ingafélagið í New York og há- tíðarnefnd þess, Grettir Eggerts son, Hannes Kjartansson, Gunn ar Magnússon, Vilhjálmur Stef- ánsson og frú' og frú Guðrún Camp, Lt. Mann og kona hans, frú Binna Berndsen Mann, Kristín Guðmu'ndsdóttir, Hall- dór Sigurjónsson, Skúli Peter- sen, Sigurður Ingólfsson og Kristján Kristjánsson, er fögn- uðu lýðveldinu að heimili Mann hjónanna í Shawnee, Oklohama, Árni Helgason og kona hans, Chicago, Hjálmar Björnsson og íslendingar í Minnesota, ís- lendingadagsnefndin í Vanc- ower, Andrés Daníelsson forseti og Albert E. Kristjánsson rit- ari, íslendingafélagið í Vanc- ower og forseti þess A. Krist- jánsson, Isafold og Magnús El- íasson í Vancower, Islendinga- félagið í Chilago og Egill And- erson formaður þess, Gunnar Bergmann og íslendingar í Los Angeles, Jakobífta Johnson, Seattle, íslendingar í Boston og William H. Wurts í New Yörk. Frá Kanada: íslendingadags- nefndin í Winnipeg, Kirkjuþing íslenzkra safnaða í Ameríku, haldið í Winnipeg. Frá Bretlandi: íslendingar í London, Stefán sendiherra Þor- varðsson og frú, íslendingar í Edinborg og Leith, Jón Eiríks- son skipstjóri og skipshöfn hans, Sigursteinn Magnússon ræðismaður og fjölskylda hans og C. R. Nasmith amerískur ræðismaður fyrir hönd ræðis- mannafélags Edinborgar. Frá Ástralíu: Prófessor Lode- wyckz, Melbourne. Frá Svíþjóð: Ragnar Lund- borg, prófessor Ahlmann. íslendingafélagið í London hefur ákveðið að gefa íslenzku þjóðinni ljósmyndanir af ís- lenzkum handritum, þeim sem til eru í bókasöfnum LondQn og Oxford, til minningar um 17. jijní. Fyrstu myndirnar verða af eiginhandriti Gottskálks í Glaumbæ af Sópdyngju hans. Ósk félagsins er að Landsbóka- safninu verði falið að geyma ljósmyndanir þessar. í fagnaði þeim, er dr. Helgi P. Briem aðalræðismaður og frú hans höfðu á Henry Iludson hótelinu í New York á laugardagskvöld, las aðalræðismaður upp báðar orð- sendingar forsætisráðherra. Að tillögu Garðars Gíslasonar | stórkaupmanns var þetta svar samþykkt: „ísleridingar samankomnir á Henry Iludson hóteli í New York til þess að fagna endurreisn lýð- veldis íslands þakka ríkisstjórn- inni kærkomna kveðju og heilla- óskir í tilefni þessa merkisdags þjóðarinnar. Einhuga sendum vér hjartfólgnar óskir um framför og blómgun liins íslenzka lýðveldis um ókomnar aldir þjóðinni til gæfu og blessunar. Vér strengjum þess heit, að efla lieill og heiður íslands í hvívetna, hvort sem vér dveljum lieima eða erlendis. Lengi standi liið íslenzka lýð- veldi!“ Grettir Eggertsson, formaður íslendingafélagsins stakk upp- á svohljóðandi svari við ávarpi rík- isstjórnarinnar til Vestur-Islend- inga, og var það samþykkt: „Vestur-íslendingár meta mikils góðar kveðjur og munu halda á- fram stuðningi sínum og trúnaði við ísland. Þeir samfagna yður yf- ir endurreistu Iýðveldi“. Sérstakar kveðjur hafa borizt frá blöðum íslendingá í Winnipeg: „Kveðjur til stjórnar og þjóðar með alúðarhamingjuóskum til yngsta lýðveldisins frá elzta ís- lenzka vikublaðinu. IIeimskringla“. „Einlægar hamingjuóskir til hins endurborna íslenzka lýðveldis. Guð blessi framtíð þjóðarinnar. Einar P. Jónsson, ritstjóri Lögbergs“. Frá flestum löndum heims hafa borizt heilla- og árnaðaróskir ein- staklinga og félaga, og verður þeirra síðar getið nánar. Gönguferð Æ. F. R. og Sósíalistafélag Reykjavíkur efna til gönguferð- ar næstkomandi sunnudag 25. þ. m. tíengið verður á Hengil, sem er eitt af einkennilegustu fjöllum landsins. Farið verður frá Skólavörðu- stíg 19 kl. 8 á sunnudagsmorg- un. Væntanlegir þátttakendur verða að tilkynna þátttöku sína í síðasta lagi fyrir hádegi á laugardag á skrifstofu félag- anna eða afgreiðslu Þjóðviljans. Ferðanefndirnar. Finnlandsvígstöðvarnar Framh. af 1. síðu. 2. Meðan á því stendur er r.auða hernum frjálst að fara um Finn- land. 3. Rauði flughcrinn fái aðgang að flugvöllum í Mið-Finnlandi á meðan verið' er að sigra Þjóðverj- ana. í Stokkhólmi er almenn undrun yfir því, hvað skilmálarnir eru vægir. EFTIR ÞJÚ ÁR. I gær var birt í Moskvu yfirlit yfir stríðið á austurv.ígstöðvunum síðast liðin þrjú ár. Telja Rússar Þjóðverja liafa misst 7800000 menn fallna, særða og fanga. — Sjálfir segja Rússar manntjón sitt 53000000. Þjóðverjar eru sagðir liafa misst um 70000 skriðdreka og 50000 flugvélar. — Rússar hafa misst 49000 skriðdreka og 40000 flug- vélar. Rússar hafa náð aftur 1.5 millj. ferkílómetra lands og sótt fram lengst 2000 km., frá Volgu til Pól- lands. DIXIE Amerísk músikmynd í eðlilegum litum BING CROSBY DOROTHY LAMOUR MARJORIE REYNOLDS BILLY de WOLFE Sýning kl. 5, 7 og 9. IÍAUPIÐ ÞJÓÐVILJANN Laodsfundur kvenna Frh. af 1. síðu um, fulltrúar frá félögum með hin ólíkustu stefnumið, guðlaus ar konur og trúkonur, pólitísk- ar konur úr öllum flokkum og ópólitískar. Það má því nærri geta að þarna mætast margs- konar kröfur og skoðanir sem erfitt er að sameina, en kon- urnar koma þarna til þess að reyna að finna einhverja leið til samvinnu um hin sérstöku réttindamál kvenna. Fundir þessir, sem oftast hafa verið haldnir fjórða hvert ár, hafa áreiðanlega haft geysi- mikla þýðingu fyrir kynningu kvennanna innbyrðis og skiln- ing þeirra- á málum hverra ann arra. Fulltrúarnir á Landsfund hafa hingað til verið kosnir án tillits til afstöðu félaganna til kvenréttindamálanna og hafa öll kvenfélög haft rétt til að senda fulltrúa. En héðan í frá verða það eingöngu kvenrétt- indafélög og þau önnur kvenfé- lög er sjá sér. fært að koma á fót kvenréttindanefndum innan sinna vébanda er geta sent full- trúa. í hinum nýju lögum Kven réttindafél. íslands er gert ráð fyrir að félagið hefji þegar frsfeðslustarfsemi um hina þjóð- félagslegu afstöðu konunnar-og réttindamál hennar eyda komu fram einróma óskir um það á fundinum að hefja slíka starf- semi (Löggjöfin um samvinnu kvenréttindafélagsins og kven- félaganna, mun síðar verða birt í Kvennasíðunni). í fyrrakvöld flutti Bjarni Benediktsson erindi fyrir fund- arkonur um stjórnarskrármál- ið, og er ég hvarf af fundi í gær voru umræður að hefjast um það mál. Af samtölum við fundarkonur virtist mér, sem í því máli mundu konurnar einn- ig verða nokkurn veginn sam mála, og mun fundurinn áreið- anlega gera einhverjar ráðstaf- anir til þess að vilji kvennanna verði tekinn til greina er stjórn arskráin verður endurskoðuð og frá henni gengið. í kvöld kl. 8,30 hefst svo op- inn fundur í Iðnó og eiga þar að koma fram konur frá ýms- um atvinnustéttum kvenna, og ræða þær allar um atvinnu- og réttindamál kvennanna. Mun xtm bíé Ættjörðin Bmfram allt („This above All“) Stórmynd með TYRONE POWER og JOAN FONTANE Sýnd kl. 6,30 og 9. Cherlock Holmes og leynivopnið Spennandi leynilögreglu- mynd með: BASIL RATHBONE NIGEL BRUCE Sýnd kl. 5. Börn yngri en 12 ára fá ekki aðgang. Hátíðahöld í Kanada í tilefni lýðveldis- stofnuninnar Meginþáttur hátíðahaldanna í Kanada, í tilefni af lýðveldisyfir- lýsingu íslands, var hálfrar stund- ar útvarp, þar sem Maekenzie King, forsætisráðherra, Grettir Jó- liannsson, ræðismaður íslendinga í Winrtipeg, og W. J. Lindal, dómari, fluttu ræður. 17. júní var blóm- sveigur lagður að minnisvarða J'óns Sigurðssonar, sem stendur á svæðinu fyrir framan þingbúsið, en 50 manna blandaður kór söng íslenzka þjóðsönginn og önnur í's- lenzk þjóðlög. Á fundi Þjóðræknisfélagsins flutti Valdimar J. Eylands' ræðu og komst þá svo að orði: „íslend- ingum fylgja hcillaóskir og sam- hugur allra frjálsra þjóða, er þeir taka þetta þýðingarmikla skref. En enginn hópur manna utan ís- lands hefur frekari ástæðu til þess að gleðjast yfir þessu, en einmitt vér Vestur-lslendingar. Þó að vér höfum nú um margra ára skeið verið ríkisborgarar annars lands, þá finnst oss sem allt, er varðar j ísland, snerta oss, og ekkert hefur { verið oss meira gleðiefni, en það, að ísland er aftur fullvalda og frjálst Iýðveldi“. Á þessum sama fundi flutti Skúli Johnson, prófessor, stutt en mjög fræðandi yfirlit yfir sögu hins íslenzka fullveldis. Jón Bíldfell tók einnig til máls og ræddi um bókmenntir íslend- inga og hið endurheimta fullveldi. | I Lögbergi birtist ritstjórnar- 1 grein eftir Einar Pál Johnson. Þar er komizt svo að orði: „Á þessnm tímamótum í sögu fósturjarðar vorrar, hugsum vér Vestur-íslend- ingar hreyknir og glaðir til hins mikla sigurs, sem þjóðin hefur unnið. Þessi sigur er sérstæður í sögu mannkynsins, því liann ■ fékkst án þess að nokkru blóði væri úthellt. Sigurinn er grund- vallaður á réttlætistilfinningu og þcirri liugmynd, að allar þjóðir, jafnt fámennar scm fjölmennar, eigi rétt á að stjórna sér sjálfar, án afskipta annarra þjóða“. það fróðlegt að heyra málið rætt frá svo mörgum sjónarmið- um og ættu allar konur yngri sem eldri að fjölmenna á fund þenna. Fulltrúi. I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.