Þjóðviljinn - 14.08.1952, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 14.08.1952, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagnr 14. ágús,t 1952 um aldarinnar, og setjast að við hinn kyi-rláta Akureyrar- poll. Höfuðstaður Norður- lands var og er einn snotrasti kaupstaður okkar, mötaður dönskum smábæjarþokka, sem erlendar kaupmannaættir höfðu flutt með sér í þessa selstöð norðan lands. Mundi 22 ára gamall menntamaður, embættislaus, Marxisti og byltingarsinni, yfirleitt geta dregið andann í þessari smá- bæjarsælu, þar sem stétta- andstæðurnar voru enn á frumskeiði og samskipti stétt- anna mörkuð að sumu leyti f öðurlegu arðráni ? Mundi fagnaðarboðskapur sósíalism- ans einga nokkurt erindi til fólks, sem byggði þennan frið- sæla reit? Verkalýðsforingi á Norðurlandi V erkalýðshreyfing Akureyr- ar var um þessar mimdir bundin við Verkamannafélag bæjarins, sem stofnað hafði verið 1906 og blaðið Vcrka- manninn, sem hóf göngu sína árið 1917, undir ritstjórn Halldórs Friðjónssonar. Svo sem oft vill við brenna um verkalýðsfélög úti á landi var Verkamannafélag Akureyrar ekki byggt á skýnnn stéttar- grundvelli, smáatvinnurek- endur hreiðra þar stundum um sig og taka jafnvel for- ustu í þeim. Þegar Einar Ol- geirsson kom aftur til Akur- eyrar var félaginu stjómað í náinni samvinnu Framsóknar og Alþýðuflokksmanna. Það var hans fyrsta verk, er hann gekk í Verkamannafélag Ak- ureyrar að treysta fylkingar Alþýðuflokksins í félaginu og bægja Ihaldinu frá áhrifum um stjórn þess. Einari var Ijós nauðsyn þess, að gefa verkalýðshreyfingunni slíkan skipulagsgrundv,öll, að hún yrði sjálfstæð og óháð borg- arastéttinni. Jafnframt stofn- að hann Jafnaðarmannafélag Akureyrar, er skyldi fyrst og fremst gegna því hlutverki að boða hugmyndir og kenningar sósíalismans. En Verkamað- urinn — blað alþýðunnar á Akureyri — varð einnig brátt málgagnið, sem Einar notaði mjög til að boða hinn nýja sið sósíalismans. Hann skrifaði undir dulnefninu K, og ein af fyrstu greinum hans birtist í Verkamanninum 25. marz 1924: Hvert stefnir? Þar segir svo m. a.: „Andmælin gegn kákinu verða að koma frá þeirri stétt þjóðfélagsins, sem raest þjáist í þessu þjóðfélagi og þess vegna á því helzt grátt að gjalda ’ og sfetti að. vera gjörnust á að breyta því — verkalýðnum. Og við andmæl- in ein má ekki sitja. Óstjóm auðvaldsins, skipulagsleysi borgaralega þjóðfélagsins, bölvun frjálsu samkeppninn- ar knýja hann til þess að hef j- ast handa og bylta af sér ok- inu, umskapa þjóðfélagið. Það er hið sögulega hlutverk hans, og þegar hann er orðinn sér þess meðvitandi, hvað hann á og verður að gera til þess að frelsa sig, þá öðlast hann og máttinn til þess, því hugsjón- imar verða að voldugu afli, þegar þær grípa fjöldann, og þær grípa hann, þegar þær samsvara þörfum hans.“ Á þessa lund túlkaði hinn ungi verkalýðsforingi fyrir norðlenzkum verkamönnum kenningu Marxismans um stöðu þeirra í söguþróuninni og hlutverk, og þræddi þar nærri orðrétt ummæli hins unga Marx. Mánuði síðar skrifar Einar í Verkamann- inn greinina: Stéttabarátta verkalýðsins og stendur þá þegar föstum fótum í íslenzk- nm jarðvegi. Hann lýsir ís- (enzkri borgarastétt þessara ára svo: „Fiskibraskarar og togaraeigendur eru nú vald- hafar hér á landi. Eru þeir verðugir arftakar þeirra yfirstétta, sem áð- ur hafa þjakað þessa þjóð, hvort heldur það nú voru ribbaldar Sturlungaaldarinn- ar, kaþólski klerkalýðurínn, 3ða embættislýður danska sinveldisins. Yfirráð þeirra 5ru grímuklædd, frelsinu er misþyrmt af frelsisglömrur- um, hræsnin er komin í stað ofstopans, óstjórnarskrá, sem aðeins veitir verkalýðnum réttmdt'ú''jþá-pþérhlhh'/ 4*stað -> -A>. '~,i V££Í Jjtié ó'isv iinriu Fuíltriiar á þingi Félags ■ - ungra jafnaðar- manna á Siglu- firði 1930. — Einar Olgeirs- son yzt til hægri í fremstu röð. opinberrar harðstjórnar. I stað einokunarkaupmaxan- anna dönsku eru komnir ís- lenzlíir braskarar, sem eru ieiknastir í þeirri list að græða í gjaldþrotum sínum. Gamli aálfdanski embættismanna- lýðurinn varð að víkja fyrir nýjum lýð, sem einkum skai’ar fram úr í sjóðþurrðum.“ Einar Olgeirsson tók sína fyrstu pólitísku eldvígslu í bæjarstjóniarkosningum á Akureyri í janúai’mánuði 1925. Fyi’ir atbeina hans bauð Álþýðuflokkui’inn fram án stuðnings Fx-amsóknar og tókst að verða næststæi’sti flokkur bæjarins. Hann túlk- aði úrslit kosninganna í Verkamanninum 10. janúar á þessa Ixmd: „Kosningar þess- ar hafa myndað hreinni línur en áður hafa verið hér á Akur eju’i. Nú er í i’aun og veru að- eins um tvo flokka að ræða, íhaldsflokkinn og. Alþýðu- flokkinn ...?*" Kosningarnar ex-u því glögg bending um, að miðflokkui’inn getur því héð- an af aðeins haft áhrif, að sá kjarni hans, sem fastast stendur saman í stjórnmála- baráttunni, samvinnumenn- imir, fylki sér Öðm hvoru megin. Héðan af era það auð- valdssinnar og jafnaðarmenn, sem leiða saman hesta sína.“ Einar Olgeirsson fylgdi brátt sigri þessum eftir á sviði skipulagsmála verkalýðsins. Hinn 26. apríl 1925 stofnaði hann ásamt Erlingi Friðjóns- syni o. fl. Verkalýðssamband Norðui’lands. Fjögur félög stóðu að stofnuninni: Verka- mannafélög Akureyrar og Siglxrfjai’ðar, Verkakvenna- fél. Einingin á Akureyri og Jafnaðai’mannafélag Akur- eyrar. Tveimur árum síðar vora félög sambandsins orðin 8 og félagatalan 900. Árið 1931, þegar Einar Olgeirsson flutti frá Norðurlandi og sett- ist að í Reykjavík, voru fé- lög í Verkalýðssambandi Norðurlands orðin 17 að tölu, en félagamir alls 1700. Þótt ekki mundi vera fyrir annað enþessaskipulagsstarf- semi meðal verkamanna í Norðlendingaf jórðungi, mundi nafn Einars Olgeirssonar lifa lengi í sögu íslenzkrar verka- lýðshreyfingar. En hver sem athugar -lítiliega starfsemi hloqqu jilniög rnxHj i: nntglól hans á þessum árum mun fljótlega reka augun í það, að hreyfing sú, er hann vakti norðanlands er með öðra yfir- bragði en raun var á um al- þýðuhi-eyf ingu annarra lands- fjórðunga. Þótt ungur væri var Einar Olgeirsson þá þeg- ar orðinn hámenntaður Marx- isti og hafði haft náin kynni af verkalýðshreyfingu Þýzka- lands, sem vaxið hafði upp í marxískum - hugsunarhætti. Viðfangsefni hans var því m. a. í því fólgið, að raddsetja lagboða marxismans við texta íslenzks þjóðfélagsveraleika. Þetta viðfangsefni var miklu erfiðara en okkur nú grunar, eftir að þaðvarleyst. Skilyrðið til að leysa þetta viðfangsefni var í fyrsta lagi einfaldlega það, að hieyfingin eignaðist fræðilegt málgagn. Árið 1926 varð Einar Olgeix’sson rit- stjói’i og eigandi Réttar, fyrsta tímarits Islendinga um þjóðfélagsmál. Þingeyskir bændur og samvinnumenn þöfðu stofnað Rétt. Tímaritið var sprottið upp af alíslenzkri rót, í skauti sjálfmenntaðrar íslenzkrar alþýðu, en hafði jafnan boðað erlendar þjóðfé- lagslegar kenningar, er horfðu til aukins réttlætis og jöfnuðar með mönnum. Þegar Einar Olgeirsson gerði Rétt að fræðilegu málgagni hinnar ungu íslenzku verkalýðshreyf- ingar, þá græddi hann erlend- an teinung á íslenzkan stofn. Frá upphafi vega var bar- átta Einars Olgeirssonar fyrir sósíaliskri verkalýðshreyf- ingu á Islandi knýtt órjúfán- legum bönduni við baráttu- erfðir 'ísTé’hzku þjoðarinnaf á liðnum öldum. Ég hygg, að þess muni fá dæmi um ungan verkalýðsforíngja í brautryðj- endastarfi, að hann hafi 1 jafn ríkum mæli og Einar Olgeirs- son sameinað heita þjóðtil- finningu og f élagslega réttlæt- iskennd. Svo fast sem Einar lifir með samtíð sinni, með baráttu verkalýðsins við auð- valdið og ánauð þess, þá er hugur hans öðram þræði jafn- an í fortíð þjóðarinnar og sögu, í baráttu þjóðarinnar við erlent vald og viðskiptum alþýðu við forna höfðingja. Vitundin um að vera sonur þjóðar, sem var í ánauð, og fulltrúi stéttar, sem er í á- nauð, hefur markað alla póli- tíska baráttu hans þeirri reisn og víðfeðmi, sem er aðall skapgerðar hans. Engum nú- lifandi stjórnmálamanni ís- lendinga hefur sem honum tekizt að gera málstað verka- lýðsins að málstað Islands. Hann hefur gert kyndil ís- lenzkrar þjóðernisbaráttu að eldingu íslenzkrar vei'kalýðs- hreyfingar. Og hverju sinni, er hann sér íslenzku þjóðfrelsi hættu búna, sker hann upp herör meðal verkamanna og kveður þá til varna í fremstu virki. Þekking Einars Olgeii’sson- ar á heimskerfi nútípiaauð- valdsins, imperíalismanum, brýndi skilning hans á þeim hættum, er steðja að íslenzku fullveldi , og sjálfstæði. Snemma benti hann á þann voða, sem íslenzku sjálfstæði er búinn af f járhagslegum og atvinnulegum áhrifum er- lendra ríkja. Vorið 1927 var hann sendur til Sigluf jarðar í erindum Verkalýðssambands Norðurlands. Eftir heimkom- una ritaði hann í Verkamann- inn 21. maí s. á. merkilega grein: 1 návígi við erlent auð- vaJd og þjóna þess. Þar farast honum svo orð: „Sjálfstæðisbaráttu vorri á stjórnfrelsissviðinu er lokíð. Útlendar þjóðir hlutast ekki lerigur til um stjórnarfar landsins, nema þeim þyki sér- stök nauðsyn bera til. En at- vinnuvegum okkar ráðum við engan veginn enn; einkum hefúr togara- og síldárútgerð- in verið háð eríendu auðmagni og sala fiskjar og síldar oft mestmegnis undir erlendum auðhringum komin.“ „Siglufjörður er hinn út- valdi staður erlenda auðvalds- ins hér á landi. Þar hyggjast sænskir fésýslumenn o. fl. safna auði úr höndmn íslenzka Ægis og af vinnu íslenzka verkalýðsins með aðstoð „ís- lenzkra“ milliliða.“ „Auðvaldið útlenda á þó ó- Kveðja frá Æskulýðsfylkioguimi Á þessum tímamótum ævi þinnar, Einar, flytur Æsku- lýðsfylkingin þér huglieilar árnaðaróskir. Við þökkum þér allt sem þú hefur verið hreyfingu okkar, þökkum þér alla baráttu þína, öll þín kraftaverk í fórn og sjálfsaf- ncitun, eldimi í skapi þínu og geði. Við þökkum þér leiðsögn þína öll þessi ár, allt sem þú h'efur talað og skrifað fyrir okkur, allt sem þú hefur kennt okkur í starfi og fræðum. Við stöndum við þig í þakkarskuld sem ekki verður metin. Við óskum sósíalismanum á fslandi þess að hann njóti enn marga áratugi starfsorku. þinnar, fórnfýsi, þekkingar og vitsmuna. Við óskum íslenzkri alþýðu þess að hún megi njóta forustu þinnar enn um Ianga hríð. Sjálfum þér óskum við þess að þú megir sjá verk þitt og draum fullkomnast: sósíalískt þjóðskspulag á íslandi. Lifðu heill, Einar. Sambandsstjórn Æ.F, ■ OI -ri'- -i I * 1)1-«- Ih’í'

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.