Þjóðviljinn - 10.03.1954, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 10.03.1954, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓíjVILJTNN — Miðvikudagur 10. marz 1954 Hann lét stafinn ríða á íslendingum Löregluþjónarnir vorú útbúnir með heljarmikinn staf, sem þeir notuðu til að berja á mönnum með. Og Hendrichsen sparaði þnð e&ki. „Hann lét stafinn ríða á íslendingum, þá er þeim sló saman við Danl“, segir Gröndal um hánn. . . Hinn 13. marz 1844 sendir Óiafur nokkur Ólafsson kæru til bæj- arfógeta og ber sig illa. Segist hann hafa verið að taka út vör- ur hjá Siemsen. og þá hafi hann r. sent sig til D. Thomsen að taka eitthvað út þar. Síðan segist bann hafa beðið Thomsen að láta sig fá í stauþinu, en þá hafi hann rokið upp og barið sig, fyrst með hnefanum og svo með kvarða. Síðan hafi Thom sen stokkið ftam yfir ' búðar- borðið, þrifið í hálsklút sinn og dregið sig með tilstyrk annarra út úr búðinni og hent sér fram af tröppunum, svo hann féll. Og sein Ólafur er nú að standa upp, ber þar að Hendrichsen lögregiuþjón. Hann hafði engin orð um, en réðst á Ólaf og barði hann með stafnum, fyrst á hand- legginn og svo á herðarnar, svo að við beinbroti lá. Spurði Ólaf- ,ur þá, hví Iögreglan réðist á sig, en Hendrichsen svaraði cngu en espaði sig því meir og lét högg- in ríða á Ólafi. Taldi Ólafur, að tvö höggin hefðu verið svo mikil að þau hefðu riðíð sér að fullu, . ef hann hefði ekki getað skotizt undan þeini. Var hið seinna höggið svo mikið, að þá er staf- urinn kom í jörð brotnaði neð- an af honum.. (Árni Óla: Fortíð Reykjavíkur) Ha, ha! Hann þolir alls ekki jass i,k 1 dag er mlðvikudagurinn 10. ^ mara. Imbrudagar. — 69. dagur ársins. — Sólarupprás kL 7,06. Sóiarlag kl. 18.13. — Sælu- vika. Eðla. — Tungl í hásuðri kL 17.35. — Árdegisháfiæði kl. 9.00. Síðdeglsháflæði kl. 81.30. Dagskrá Alþingis miðvikudaginn 10. marz kl. 1:30. Sameinað þing Fyrirspurnir: a) Vernd hugverka ofL b) Sementsverksmiðja. c) Greiðslugeta atvinnuveganna. Handrit, skjöl og forngripir. Jöfn laiin karla og kvenna. Bátagjaldeyriságóði tll hlutarsjó- manna. Friðunarsvæði fyrir Vestfjörðum. Jarðvinns’.a og meðferð búvéla. Sjónvarp.. Næturvarala i er í Ingólfsapóteki þessa vlku. Sími 1330. Gengisskráning Eining Söiugengi Sterlingspund. 1 45,70 Bandaríkjadollar 1 10,32 Kanadadoilar 1 16.94 Oönsk króna 100 236,30 Norsk króna 100 228,50 Sænsk króna 100 315,60 Finnskt mark 100 7,09 Franskur franki 1.000 46,63 Belgiskur franki 100 32,67 Svissn. franki 100 874,50 Gyllini 100 430,35 Tókknesk króna 100 226,67 Vestutþýzkt mark 100 390,65 bíra 1.000 26,12 Gullverð ísl. kr.: 100 gullkrónur = 138,95 pappírskrónur. Heimilisritið hefur borizt. Þar er fremst saga eftir O’Henry: Ósigur stórborgarinnar. Pá er efniságrip af óperunni Fidelio, eftir Verdi. Síðan „sönn“ frásaga: Iák fleipra ekki. Svo eru ástarsögur, fram- haíd fræðslugreinarinnar Illir andar, lyf og læknar. Bridgeþátt- ur, Dægradvöl, ýmiskonar ráðllegg- ingar, danslagatextar — og guð má vita hvað fleira er í þessu blaðb 1 sama pakka var oss sent Karl- mannablaðið, og stendur á bak- síðu að ekki sé „þó svo að skilja, að hér sé eingöngu um gríniblað að ræða“. Þar er ritgerð um .timb- urmenn, sagan af því er Frúin lærir frönsku, upphaf framhalds- sögunnar Sjúkar ástir (muna eftir nafni blaðsins), óg svo er um einhverjar stúlkur er „voru lygi- lega duglegar“ og fe’.lur það von- andi í kramið hjá kar.þjóðinni Ritstjóri er Skúti Bjarkan, en af- greiðsla er í Helgafelli Veghúsa stig. 'ZQ uqSuuH 'uosS[D -xv anuuno 3o \z 3I91JOH ’Jjjjopsjioa -jOíI sipjpfH njj -Stm ’buis unjoinjj ngiuaquido Snp.ne -ánnt uuipnjSBpis Kvöldbænir í Hallgrímsklrkju á hverju Virku kvöldi, nema mið- vikudaga, kl. 8. Á miðvikudögum kl. 8.15 eru föstumessur. Hafið passlusálma með í kirkjuna. Basar Hinn árlegi basar Góðtemplara- reglunnar verður í dag kb 2 í Góðtemplarahúsinu. Síðasti dagur 1 kvöld kl. 23 lýkur málverkasýn- ingu Sveins Björnssonar í Lista- mannaskálanum. Hefur sýningin fengið hina beztu dóma og marg- ar myndir selzt. 18.00 Islenzkuk. I. fl. 18.30 Þýzkuk. II. fl. 18.55 Tóm- stundaþátturinn (J. Pálsson). 19.15 Þingfréttir. Tón- leikar. 20.20 Föstumessa í Fri- kirkjunni (Séra Þorsteinn Björns- son). 21.20 Isllenzk tón’.ist: Lög eftir Sigfúg Halldórsson pl. 21.35 Erindi: Fangahjálpin á Islandi (Oscar Clausen rithöfundur). 22 20 Útvarpssagan Sallca Vaíka eftir Ha’ldór Kiljan Laxness; XVI. (Höfundur les). 22.45 Dans- og dægurlög: Biily May og hljóm- sveit hans leika (pHötur). 23.00 Dagskrárlok. mannahöfn. Fríkirkjan Föstumessa í kvöld kl. 8.20. Þorsteinn Björnsson. Lauga rneski rk ja Föstuguðsþjón- usta í kvöld kl. 8:20. Séra Garðar Svavarssoh. Hallgrimsklrkja Föstumessa S kvöld kl. 8:15. Lítanía sungin. Séra Jakob Jónsson. Islenzk. tóalistaræska efnir til kammertóríleika í Aust- urbæjárbíói kl. 7 í kvöld. Egill Jónsson, Björn Guðjónsson, dr. Victör Urbancic og strokkvartett Björns Ólafssonar leika. Það ætti ekki að vera af neinum boðið að sáekja þéssa tónleika og styrkja ágætt framtak ungs fólks. Allt um Evu Mætustu menn ljúka miklu lofs- orði á kvikmyndina Allt um Evu er Nýja bió sýnir um þessar mundir. Aðalhlutvei'kið leikur. Bette Davis — og er hún ein af hinum tiitölulega fáu raunveru- iegu leikkonum í leikborgínni miklu( Ho’.livúdd. Nafn hennar er trygging fyrir góðum leik. Gullfaxi, flugvél Flugfélags ís’.ands, er væntanlegur til Reykjavíkur um kl. 19 i kvöld, frá Prestvík og Kaup- - Hettkla, flugvél Loftleiða, var væntanleg til R- víkur klukkan tvö í nótt og átti að halda áfram eftir skamma við- dvöl til Stafangurs og Kaup- mannahafnar. Mogginn hefur það eftir élnhverjum Bretum í gær að „auðvelda þurfi ferðalög Evrópu- búa tll Ameríkú’. Hvernlg værl nú að Mogginn hefðl forgöngu imi það að tll dæmls ísienzktr sjó- menn fengju þann aðgang að þessu landi fyrirheitslns-, sem taliim er sjálfsagður hvarvetna ánnarstaðar i heiminum, þar á meðal í því vonda Rússlandi? Ef Mogginn sér um sjómennina ís- lenzku munu aðrir moggar sjá um táristana í Bretlaudi sem blaðið er áhyggjufyllst út af í gær. Ég segi nú bara si-svona. Bókmenntagetraun Vísurnar i gær voru eftir Magn- ús Jónsson prúða sem uppi var um 1525 til 1591. Hér kemur nýrri skáldskapur: Það lcviknaði eldur á efstu hæð í einu húsi við Laugaveginn. Og því vérður ekki irieð orðum lýst, hvað allur sá lýður varð harmi sleginn. Það tókst þó að rilökkva þann s’.óttuga fant, því slökkviliðið var öðrum megin. Og því verður ekki með orðum iýst, hvað allur sá lýður varð glaður og feginn. En seinna um daginn, á sömu hæð, í sama húsi við Laugaveginn, þá kviknaði eldur í einni sál, í einni sál, sem var glöð og fegin. Og enginn bjargar og enginn veit, og enginn maður er harmi sleg- inn, þó brenni eldur með ógn og kvöl í einu hjarta við Laugaveginn. Ttá hómínni ð Eimskip Brúarfoss fer frá Rotterdam í dag áleiðis til Hull og Rvikur. Dettifoss fór frá Hamborg í gær áleiðis til Rotterdam og RvikUr. Fjallfoss fór frá Rvik í fyrradag til Patreksfjarðar, Isafjarðar, Siglufjarðar, Húsavíkur, Akureyr- ar og þaðan til Rvikur. Goðafoss fór frá N.Y. 3. þm. fF.eiðis til R- víkur. Gullfoss kemur að bryggju í Rvík kí. 8 árdegis í dag. Lagar- foss fer frá Ventspiels 15. þm. áleiðis til Rvíkur. Reykjafoss er á Austfjörðum. Selfoss er í Rvík. Tröllafoss fer væntanlega frá Norfolk í dag til N.Y., þaðan held- ur sklpið til Rvíkur. Tungufoss fer væntan’.ega frá Rio de Janeiro áleiðis til Santos, Receife og R- vikur. Skipaútgerð rfldsins. Hekla er á Vestfjörðum á nörður- leið. Esja verður væntanlega á Akureyri í dag á vestur.’eið, Herðubreið er á Austfjörðum á norðurleið. Skjaldbreið er í Rvdk og fer þaðan kl. 26 i kvöld vest- ur um lahd til Akuréýrar. , r Sambandsskip Hvassafeil er á Skagaströnd. Arn- arfdll er á Akureyri. Jökulfell er í New York. Dísarfe’J er vænt- an’egt til Þórshafnar í kvöld frá Amsterdam. Bláfell er í Brernen. Hviiíiynda konan Leikfélag Reykjavík sýnir Hvik- lyndu konuna i sáðasta sinn í kvöld. Krossgáta. nr. 317 Lárétt: 1 ráð 4 timabil 6 kall 7 forskeyti 9 tjón 10 fornafn 11 svei 13 atvorð 15 skst. 16 álíta. Lóðrétt: 1 númer 2 fauti 3 eins 4 kehndin 6 stofnunar 7 dýr 8 ieysing 12 biblíunafn 14 atvo. 15 ending. Lausn & nr. 316. Lárétt: 1 nefna 4 bú 5 ná 7 arg 9 upp 10 ópa 11 ill 13 ar 15 EA 16 Ólafi. Lóðrétt: 1 nú 2 for 3 an 4 bauna 6 átaka 7 api 8 gól 12 lóa 14 ró 15 ei. Það virtist sem hún sæti og svæfi yfir brennivínsglasi sínu. En allt í einu tók hún Íítlnn disk upp úr vasa sínum. Uglu- spegill sá hvar hún. reikaði betlandi um salinn, og nokkrir góðhjartaðir menn gáfu hénni gyiiin t>g denar. Ugluspegill sneri aftur til ,húss Jóns Sápu- millasonar. Stúlkan stóð í glugganum. Hún brosti til hans og drap tittlinga framan í hann. Hún var ögurlega töfrandi. En svo vissi Ugluspegiíl ekki fyrri til en jsú . gamla hrseðilega kerling æpti að honum. Það þaut í Ugluspegil yfir þessu, svo hon- um varð það fyrir að taka á rás út göt- urnar og hrópa: Eldur! Eldur! Það blikaði voveiflega á rúðurnar í húsi Jakobs Pét- urssonar hakara, .og þykkur reykur steig af hrísi bakaraofnsins. Mannfjöldinn safnaðist framan við húsið j og hrópaði a’veg eins og Ugluspegill; >að j>- brennur! Það brennur! Og vörðurinn í Kapellu vorrar frúar þeytti básúnu sina a!Ut: hvað af tók> en djákninn hringdi vá- ■ klukkunni af öllum kröftum. 1 Miðvikudágm': 10. marz 1954 — ÞJ ÓÐVILJINN — (3 Farþegar við afgreiðslu Loftleiða í Reykjavik. — Til vinstri: Flugmenn- irnir Kristinn, Alfreð og Sigurður við fyrstu Grummanvél Loftleiða. ioftleiðir eru 10 ára í dag Keppir nu á erlendum fiugleiðum - Hyggst fá leiiina T okio-Reykjavík Flugfélagið Loftleiðir er 10 ára í dag. Félagiö hefur nú eina skymasterflugvél — Heklu — í förum og hefur leigt aðra samskonar flugvél og ætlar eftir næstu mánaöamót að fjöiga ferðum á leiðinni Hamborg, Kaupmannahöfn, Stafangur, Reykjavík, New York í tvær á viku, og síðar 3 á viku. Ennfremur vinnur félagið aö þvf að kaupa stóra og 1..H1________ Tir< Stjóm Loftleiða hefur skyTt blaðamönnum frá eftirfarandi um sögu og starf íélagsins: Síðari hhita ársins 1943 komu þrir ungir flugmenn heim til íslands frá Kanada, þar sem þeir höfðu dvalizt um hríð við nám og störf. Þeir höfðu kej'pt sér litla Stinson sjóflugvél og voru ráðnir í að hefja flugstörf hér heima. Upp úr áramótunum 1943—1944 var hafinn undir- búningur að stofnun nýs flug- félagsins og 10. marz 1944 var félagið Loftleiðir h. f. stofnað. í fyrstu stjóm þess voru flug- mennirrdr þrír, Alfreð Elíasson, Kristinn Olsen og Sigurður Ólafsson, en auk þeirra Ólafur Bjamason og Kristján Jóhann Kristjánsson, sem varð formað- ur og gegndi hann þeirn starfa um langt árabíl. Fyrsta áœtlunarflugið var hafið með Stinsonvélinni 7. april 1944, en þá var haldið til Vest- fjarða. Eftir það var haldið uppi reglulegum áætlunarferðum þangað. Síidarflug var hafið sumarið lí>44 og var bækistöð- in þá við Mikiavatn í Fljótum. Fljótlega kom í Ijós, að fleiri flugvéla vár þörf, og næstu ár- in voru keyptar vegna innan- landsflugsins allmargar Stinson- Grumman-, Douglas-, Dakota-, Anson- og Catalinavélar. Nýjar flugleiðir innanlands Áætlunarferðum var fjölgað, unz haldið var uppi föstum ferð- um milli Reykjavíkur og 15 flugstöðva víðsvegar á landinu. Starfsmenn félagsins áttu frum- kvæði að flugvallargerð í Vest- mannaeyjum og hófu Loftleiðir fyrstu éætlunarflugin þangað. Féiagið varð einnig fyrst til að hefja áætlunarferðir til Vest- fjarða, en með því átti félagið mikilsverðan þátt í að rjúfa einangrun dreifbýlisins og bæta samgöngumar innanlands. Þá annaðist félagið einnig síldar- leit, flutti sjúklinga og margvís- legan vaming meðan innan- landsfluginu var haldið uppi: I Fyrsta skymasterflugvél íslendinga Þáttaskíl urðu í sögu innan- landsílugs Loítleiða 1. febrúar árið 1952, en þá hafði flugleið- unum innanlands verið skipt milli flugfélaganna með þeim hætti sem Loftleiðir töldu óvið- unandi, og var þá ákveðið að leggja innanlandsflug nlður,. a. m. k. um stundarsakir, og selja flugvélamar, sem einkum höfðu verið notaðar til þess. Eftir það hafa Loftleiðir eingöngu haldið uppi ferðum landa í milli. Fyrsta áætlunarferðin til út- landa var farin 17. júni 1947, en þá £6r „Hekia“ til Kaup- mannahafnar. Var Hekla fyrsto Skymasterflugvél íslendlnga. MiIHIandaflugstjórar Loftleiða Bandarísk áhöfn var á flug- vélinni fyrstu ferðirnar, en smám saman íjölgaði þeim ís- Ienzku starfsmönnum félagsins, sem fóngu réttlndi til flug- stjórnar á henni, unz áhöfnin var orðin alíslenzk. Hafa fimm flugmenn nú réttindi til flug- stjómar á Skymaster\rélum, en þeir eru: Alfreð Elíasson, Krist- inn Olsen, Smári Karlsson, Magnús Guðmundsson og Jó- hannes Markússon. Önnur Skymasterflugvéi keypt Árið 1948 keypti félagið aðra Skymasterflugvél, „Geysi“, en skömmu áður hafði félagið feng- ið réttindi til þess að halda uppi áætlunarferðum til Banda- ríkjanna. Eftir það hefur félag- ið haldið uppi föstum ferðum milli meginlanda Evrópu og Norður-Ameríku. Auk áætlunarferðanna hafa margar leiguferðir verið famar. Um tíma voru farþegar fluttir í leiguferðum milli Suður-Evrópu og Suður-Ameríku. Margar ferð- ir voru farnar til Grænlands, aðallega vegna leiðangra þeirra Dr. Lauge Koch og Dr. Poul Emile-Victor. Óhöpp — Ný sókn Árið 1950 varð félagið fyrir því óhappi að önnur millilanda- vélin ónýttist á Vatnajökli og síðar brann hin flugvélin suður á Ítalíu, en þar var hún í vörzlu erlends flugfélags. Ný Skymast- erflugvél er félagið keypti, nýja „Hekla“, hóf ferðir sínar í mai 1952 og hefur hún síðan verið i förum víða um heim. Nokkru áður en nýja „Hekla’* var keypt gerðu Loftleiðir samn- ing við norska flugíélagið Braathen’s SAFE um gagn- kvæma leigu á flugvélum. Braat- hen hélt uppi föstum áastl- unarferðum milli Noregs og Kína og höfðu félögin þannig sameiginlega flugleiðina Hon’g- Kong—New York. ViIJa kaupa stóra og fullkomna millilandaflugvél Næsti áfangi á þróunarbraut íélagsins verður vitanlega aukn- ing millilandaflugsins. Nauðsyn þykir bera til þess að félagið eignist sem fyrst flug\'él af fullkomnustu gerð og cr unnið að undirbúningi kaupa á vél áf tegundinni DC 6, er taka frá 60—80 farþega. Tveggja ára bið- timi er á afgreiðslu slíkra flug- véla, en allt það fé ekki fyrir hendi, sem greiða þarf í því sambandi. Ákvað félagið þvi að leigja strax Skymastervél og fjölga ferðunum yfir Atlanzhaf- ið í vor, en þannig verður aflað aukinnar reynslu og væntanlega nokkurs fjár, svo að betur verði búið í haginn þegar til þess kemur að fest verða kaup á flugvél af þeirri gerð, sem æski- lcgust væri. FIug\él lcigð — Ferðuin fjölgað Loftleiðir hafa nú tekið Sky- masterflug\-éi Braathen’s á leigu og er afráðið að hún verði ásamt „Heklu“ Loftleiða notuð til þeirrar aukningar, sem félagið hefur nú afráðið á ferðunum yf- ir Atlanzhafið. Ákveðið hefur verið að ílug- vélunum verði haldið við í Staf- angri, en þar hefur Braathen’s SAFE mjög fullkomið verkstæði. Jafnframt hefur allmörgum ís- lenzkum flugvélavirkjum verið tryggður þar réttur til vinnu. Það skilyrði var sett af hálfu Braathen’s SAFE fyrir leigunni á ílugvélinnii, að einhverjum norskum flugliðum yrði tryggð vinna við að fljúga henni. Loftleiðaflugvél hér 6 daga í viku Þá hefur verið ákveðið að gera gagngerar breytingar til bóta á innréttingu flugvélanna beggja, „Heklu“ og norsku leiguvélarinnar og allt það gert, sem hugsanlegt er bæði til þess að auka öryggi og þægindi far- þeganna. Fer „Hekla” væntan- lega í þessa endurnýjun til Kaupmannahafnar í dag á af- mælisdag Loftleiða og verður í 26 daga fezð Framha’d af 12. síðu. aítur, en það þýðir ekki að Or- )of ætli að sleppa af þeim hend- inni og yfirgefa þá í París held- ur mun Orlof sjá þeim er óska íyrir skipsferð eða flugferð heim, og greiða fyrir öðrum er kynnu að vilja aðrar leiðir. Þá er skylt að geta þess að allar 3 máltíðir dagsins, ásamt ferðalögum, gistingu og aðgangs- eyri að söfnum og skemmtistöð- um er innifalið í því verði sem þátttakendur greiða Orlofi. Frekari upplýsingar um ferð þessa fá menn hjá ferðaskrif- stofurmi Orlof. sex vikur, en þá verður byrjað á að breyta norsku vélinni, Er ■ J - • þessi breytmg svo gagnger, að segja má, að nýsmíði sé fremur en endurnýjun á innréttingunni. Ferðunum verður fjölgað upp í tvær á viku eftir næstu mán- aðamót en eftir 27. maí er ákveðið að fara þrjár ferðir. í viku yfir Atlanzhafið og verð- ur þá flugvél Loftleiða sex daga vikunnar hér á austur- eða vesturleið yíir Atlanzhafið. Komið verður við á sömu stöð- um og fyrr, Hamborg, Kaup- mannahöfn, Stafangri, Reykja- vík og New York, en auk þess verða teknar upp vikulegar ferðir milli fslands og Gauta- borgar og einnig verða ferðir Framhald á 11. síðu „Sovétskí sport64 um íslenzkar íþróttir Aðalmálgagn íþróttasambands Scvétrikjanna Sovétskísport birtl nýlega ýtarlega grein um íþrótt- ir á íslandi, Er fyrst rakin i aðaldráttum saga íþróttastarf- semi hér á landi en meginefnl greinarinnar er um íþróttalíf siðasta áratuginn, rifjuð upp keppni íslendinga á erlendum vettvangi og árangur hennar. Skýrt er frá glímunni sem þjóð- aríþrótt íslendinga. Höfundur greinarinnar er Stefán Þorleifsson íþróttakennarl í Neskaupstað, en hann var einrt í æskulýðssendinefndinni sem fór til Sovétríkjanna í haust. Greininni fylgir vinsamlegur inngangur frá blaðsins hálfu. Ríkisábyrgð Framhald aí 1. síðu. skipa. Einar benti einnig á ýmis atriði, sem nauðsyn vaeri til aö gengið yrði tr>’ggik-ga frá, ef þessum einkaaðilum \*rði gefinn einokunaraðstaða til olíuflutninganna. Gils og Hanníbal tóku í saraa streng. Umræðu varð lokið, og mál- inu \nsað til 2. umr. og fjár- hagsnefndar. NýT|ar hjiikr- unarkoeiur í byrjun þessa mánaðar voro eftirtaldar hjúkrunarkonur brautskráðar frá Hjúkrunar- kvennaskóla íslands: Ásdís Ólafsdóttir frá Víðigerði, Biskupstungum. Aslaug Sigurbjörnsdóttir frá Reykjavík. Erla Jóhannsdóttir frá Borgar- nesi. Guðrún Sveinsdóttir frá Reyr.i f Mýrdal. Hjördís Ágústsdóttir frá Akur- eyri. Hrefna Jóhannsdóttir frá Reykja- vík. Jóhanna Kjartansdóttir frá Hraðastöðum, Mosfellssveit. Jónína Nielsen frá Seyðisfirðj. Magnea Ema Auðunsdóttir frá Reykjavík. Ólöf Ásthildur Þórhallsdóttir frá Vogum, Mývatnssveit. Ragna Þorleifsdóttir frá Hrísey á Eyjafirði. Sigríður Bílddal frá Siglufirði. Sigríður Jóhanna Jóhannsdóttir frá Akureyri. Svanhildur Sigurjónsdóttir frá Reykjavík.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.