Þjóðviljinn - 25.04.1954, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.04.1954, Blaðsíða 5
Sunnudagnr 25. april 1954 — ÞJÓÐVTLJINN — (5 ÖI£um álilaspum þess hsundið Franska setuliöiö í Dienbienphu gerði í gær ítrekaöar tilraunir til aö ná aftur á sitt vald norðvesturvirkinu, sem siálfstæðisherinn tók í fyrradag, en þær báru ekki árangur. Talsmaður frönsku stjórnar- innar sagði í París í gær, að franska setuliðið í Dienbienphu ætti nú mjög í vök að verjast og munu það orð að sönnu. Sjálfstæðisherinn hefur nú bú- ið þannig um sig á flugbraut- inni, þangað sem liðstyrk hef- ur hingað til verið varpað úr flugvélum til varnarliðsins, að það má heita ókleift lengur. Hins vegar fékk setuliðið nokkrar vistir á þanti hátt í gær, en þáð verður einnig erf- iðara með hverri stundinni sem líður. Fyrri part dags i gær var lítið barizt í virkisbænum, en þegar leið á daginn hóf sjálf- stæðisherinn stónskotahrið á stöðvar Frakka og búizt er við nýju áhlaupi hans. Frakkar fara aJlg stðar halloka Sjálfstæ'ðisherinn náði tveim öðrum virkjum Frakka í Indó Kína á vald sitt í gær. Annað um 100 km fyrir sirnnan Hanoi og hitt miðja vegu milli Saigon og hins í suðurhluta Viet Nams. Liði stefnt til Dienbienphu. Franskur herflokkur er nú á leið gegnum frumskóginn frá Laos í átt til Dienbienphu, en franska herstjómin hefur þegar tilkynnt, að hann muni ekki gera tilraun til að rjúfa um- sáturshringinn, en eigi hins veg ar að gera bakliði umsáturs- hersins sltráveifur. Sveit ó- þreytts liðs úr sjálfstæðishern-, um nálgast einnig Dienbienphu úr norðri. Regntiminu að hefjast. Regntíminn er að hefjast í Indó Kína. í Dienbienphu er nú barizt í forarvilpu og gerir það Frökkum erfiðara að beita þungum fallbyssum og stríðs- vögnum. Ibúum jarðarinnar fjölg aði iim 30.000.000 á ári Verða orðnir helmingi íleiri en nú eítir 7 0 ár Á miðju ári 1952 var íbúatala jaröarinnar áætluö 2.469.000.000 og hafði þá aukizt um 30.000.000 frá sama tíma árið áður. Heimildin aö þessum tölum eru Mann- talsskýrslur Sameinuöu þjóöanna (Demographic Year- book) fyrir árið 1953, sem nýlega eru komnar út. Samkvæmt áætlun hagfræð- inga Sameinuðu þjóðanna f jölg- ar mannkyninu um l-lx/2% árlega. Með sama áframhaldi munu því ekki líða 70 ár þar til. íbúatala jarðarinnar 'hefur tvöfáldazt. íbúatala heimsins er eitt af meginverkefnum, sem tekin eru fyrir í þessari fimmtu útgáfu Manntalsskýrsla SÞ, sem að þessu sinni fylla 280 blaðsíður. Manntalsskýrslur og töflur þar að lútandi eru birtar frá flest- um löndum heims. Meðal ann- ars eru töflur er sýna fæðing- ar, dauðsföll, giftingar og skiln aði hjóna og áðrar töflur er sýna hve aldurshámark manna hefur hækkað mikið síðan um síðustu aldamót. Mæður yngri en áður tíðkaðist. Það virðist svo af skýrslun- um, áð fæðingum fari fjölgandi hjá ungum konum, en fari ört fækkandi hjá konum, sem komnar eru af léttasta skeiði, eða sem eru á miðjum eða síðari hluta barnsburðaraldurs. Frjó- semi kvenna jókst til muna á árunum eftir síðustu heims- styrjöld, en nú virðist vera að (komast á jafnvægi á ný í þeim efnum. Enn eru fæðingar þó fleiri en þær voru síðustu árin fyrir heimsstyrjöldina. í fleiri og fleiri löndum fer dauðsföllum sífelt fækkandi í hlutfalli við fæðingarnar. Mis- mimur milli þjóða, þar sem tiltölulega mikill hluti íbúanna er aldrað fólk og hinna, þar sem yfirgnæfandi meirihluti fólksins er imgt, kemur greini- lega fram í skýrslum um dauðs föll og dauðaorsakir. Meðal hinna öldruðu eru krabbamein og hjartabilun enn aðal dauðaorsakirnar. Það er mjög athyglisvert að sjá, að dauði af völdum berklaveiki er mun minni nú á dögum en var fyrir aðeins nokkrum árum. Árið 1950, segja manntals- skýrslur SÞ, var meðalaldur manna, eða væntanlegur .há- marksaldur, hæstur hjá konum í Bandaríkjunum, 72,4 ár. Mesta aldurshámark manna í heiminum frá því um aldamót verður ef til vill bezt lýst me'ð tölum frá Austurríki, þar sem meðalaldur, sem nýfætt mey- bam gat vænzt var 41 ár, 1901, en hafði hækkað upp í 67 ár 1951. Það eru 26 ár við- bót. Oísóknir í Kenya Ný ógnaröld er að Iiefjast í Kenya. í gær lögðu 8000 menn úr ný- lendulögreglu Breta til atlögu við 30.000 íbúa Kíkújúhverfisins í liöfuðborginni Nairobi. Ætlunin er :að „yfirheyra" hvern cinasta íbúa liverfisins og komast að raun um hvaða liug hann ber til nýlendukúgar- anna. í gær höfðu 5000 manns verið „yfirlieyrðir“ og er 3.700 grunsemda um að þeir séu hlið- hollir þjóðfrelsishreyfingu Kíkú- júmanna. Stjörnur hers- i höfðingjans lenfu hjá r ■ Fyrir nokkrum dögum gerði franslca herStjórnin Christian de Castries, sem stjórnar franska liðinu í hinu umsetna vii-ki Dien- bienpliu í Indó Kína, að hershöíðingja. Eins og öðrn til setuliðsins varð að varpa sllfurstjörnimum sem tákna hershöfðingjatign de Castr- ies niður í fallhlíf og með var látinn f.vlgja hundrað lítra kútur með koníaki svo að hershöfðingiiui nýbakaði gæti skálað við undirfor- ingja sína þegar þeir óskuðu honum til hamingju með tignarmerkín. En það er þröngt um Frakka í DLen- bienphu og eins og svo margir aðrir fallhlífarböggl- ar harst sá sem geymdi stjörnurnar og koníakið fyr- ir vindimun yfir í skotgraf- ir f jandniannanna, sjálfstæð- ishers landshúa. V.____________________________✓ Hinar lin.sæiu kvikmymlaleildionur Deborah Kerr og Audrey Ifepum tóku um daginn þátt í útvrarpsdagskrá frá stöð SÞ {rar sem lýst var starfi Alþjóða bamahjálparsjóðsins fyrir bág- staddar mæður og börn. Fyrir þá sem ekki sækja kvikmyndir skal það tekið fram að {>að er Kerr, seni er við hljóðnemann á inyndinni til vinstri. Eldfjöllum er aBdrei að j treysta fil fulls j Geta gosið íyrr en varir þótt þau haíi lengi legið í dvala Eldfjöllum ber að treysta varlega, jafnvel þótt þau hafi ekki láta á sér kræla lánga hríö. Visindamenn í Kanadd hafa gengið úr skugga íim það með tilraunum að humrar geta lif- að í sjö mánuði án þess að nær- ast — og þó haldið fullu fjöri. Það er engin trygging fyrir því að þau geti ekki tekið til að gjósa allt í einu og spú ösku og lirauni yfir nágrenni s~~~ Kvennadeiid Slysawarng- félagsiíis í Reykjavik heldur afmælisfund sinn með sameiginJegri ka ffidrykkju mánudaginn 26. apríl kl. 8 í Sjálfstæðishúsinu. TIL SKEMMTUNAR: Upplestur: Baldvin Halldórsson leikari Leikþáttur: Frú Emilía Jónasdóttir o. fl. Gamanvísur: Jóhannes Guðmundsson Einsöngur og kórsöngur. Dans. Gestir á fundinum verða konur sem eru fulltrúar á lands þinginu. — Félagskonur eru vinsamlega beðnar að vitja aðgöngumiða sem fyrst í Verzl. Gunnþórunnar Halldórs- dóttur. NEFNDIN. SÓFA- SETT og einstakir stólar, margar gerðir. Húsgagnabólsti'un Erlings Jónssonar. Sölubúð Baldursg. 30, opin kl. 2—6, vinnustofa Hofteig 30, sími 4166. Deildarstjóri í nýlenduvöniverzlun og bifreiðastjóri á sendiferðabíl óskast um næstu mánaðamót. Upnlýsingar í skrifstofu (ROI Skólavörðustíg 12 sitt með þeirri eyðileggingu, sem sliku fylgir. En það er rétt, að því lengur sem eldfjall hefur verið óvirkt því minni líkur eru til að það gjósi. Með aðstoð vísindamanna geta menn nú á dögum sagt fyrir með nokkurri vissu hve- nær búast má 'úð gor;i. En hitt hefur engum visindamanni tek- izt enn að finna ráð til að stöðva eldgos þegar þess tími er kominn. Þetta, sem að framan er sagt, er haft eftir hollenzkum -jarðfræöingi, Dr. S.W. Tromp að nafni, sem hefur undan- farið dvalið l E1 Salvador á vegum Sameinuðu þjóðanna. Það var hlutverk herra Tromps að segja E1 Salvador búum á hvern hátt þeir gætu bezt notfært sér gæði náttúr- unnar með því að beizla afl heits vatns sem þar finnst í jörðu. E1 Salvador er mikið eldfjallaland. Tromp jarðfræð- ingur leggur til í skýrslu sinni til Sameinúðu þjóðanna, að rannsóknir verði gerðar í eftirfarandi tilgangi: a) Til þess að ákveða hvar öruggast sé fyrir fólk að byggja sér bæi og gera akra sína nálægt eldfjöllum. b) Til þess að hægt verði að aðvara fólk gégn yfirvof- andi eldgosum með stöðugum rannsóknum á hátastigi og með jarðskjálftamælingum í eldfjöllunum og c) Til að komast að á hvern hátt megi á liagkvæmas'an hátt nota gufu til rafmagns- framleiðslu; efni í hverum til lækninga og til að hæna að ferðamenn; og brennistei.us- efni til framleiðslu á áburði ásamt öðrum efnum i hraun- um, t. d. söltum. Læknar við ríkisspítala einn í Preston í Bretlandi hafa ákveðið að snerta ekki við mat þeim, sem fyrir þá er borinn á spítalanum, þar sem þeir telja hann því sem næst óætan. Þeir matreiða nú sjálfir handa sér og munu gera það þar til úrbót fæst.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.