Þjóðviljinn - 11.11.1954, Page 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 11. nóvember 1954
# ÍÞRÓTTIR
RlTSTJÓRl FRtMANN HELGASOI9
Frá franskri knattspyrnu
í dag fer fram í París knatt-
spyrnuleikur, sem í gamni hef-
ur verið nefndur „aukaúrslit" i
heimsmeistarakeppninni. Leik-
ur þessi er milli Frakklands og
Belgíu, en bæði þessi lönd hafa
unnið það sér til ágætis að
sigra sjálfa heimsmeistarana.
Belgíu 2:0 í Briissel og Frakk-
land 3:1 í Hannover. Hætt er
samt við að þýzka landsliðið
gefi ekki titilinn eftir til sig-
urvegarans í París í dag.
Sigur þeirra í Sviss er
söguleg staðreynd. Þessi tvö
töp þeirra verða þó alltaf
nokkur frádráttur, enda nokk-
ur undirstrikun á þeirri al-
mennu skoðun að H.M.-titillinn
hafi ekki farið til bezta liðsins.
Leikurinn í París er í tilefni af
vopnahlésdegipum eftir stríðið
1914—’18.
Frakkar töpuðu fyrir
Norður-Afrikubúum
að hann, eftir 6 ára fjarveru
frá landsliðinu keppti með
Frökkum í Hannover. Ben
Barek varð þó að yfirgefa völl-
inn vegna meiðsla þegar 26
mínútur voru af leik. Það, ef
svo mætti segja, einkennilega
skfeði að mínútu eftir að hann
fór útaf setti sá er kom í hans
stað Foix frá suðurfranska fé-
laginu St. Etienne, f. rsta
markið. Hann gerði líka næsta
Framhald á 11. síðu.
Oetrannaspá
33. lfiikvika. Jæikir 13
Arsenal-Huddersfield
Burnley-Aston Villa
Cardiff-Sheff.Wedri
Chelsea-Tottenham
Everton-BIackpool ....
Leioester-Sunderland .
Manch.City-Portsmouth
Newcastle-Chariton
Preston-Wolves.....
Sheff.Utd-Manh.Utd ..
WBA-Bo'ton ..........
Birming-ham-Blackburn
Kerfi 82 raðir.
nóv. 1954.
2
. i
. i
. i (x)
. i 2
. (i) 2
. i (X)
(x) 2
2
. i 2
2
Fjórar erlendar knattspymuheim-
sóknir ráðgerðar á næsta snmrí
Vahir býðuz ezlendu liði í lok maí. en KR
um miðjan júlí — Auk þess koma hingað
tveiz ezlendiz unglingaflokkaz
Fyrir leikinn við Þjóðverja
í Hannover efndu Frakkar til
keppni milli landsliðs þeirra og
landsliðs Norður-Afrikubúa.
Var hann að öðrum þræði til
þess að herða franska landsliðið
og að hinu leytinu til ágóða fyr-
ir þá sem illa höfðu orðið úti í
jarðskjálftunum í Orleansville. I
leik þessum töldu Frakkar sig
fá staðfestingu á því hve
frönsk knattspyrna væri léleg,
því Norður-Afrikumennirnir
réðu öllu um gang leiksins og
unnu 3:2 og annað markið
sem þeir gerðu var úr mjög
vafasamri vítaspyrnu. Þessi
leikur hafði þau áhrif að liðið
gegn Þýzkalandi tók miklum
breytingum.
„Svarta perlan“ Ben Barek
lýsir aftur.
Ein breytingin var sú, að
Ben Barek sem oft er nefndur
Bvarta perlan var settur í lið-
ið. Hann hafði leikið með Norð-
ur-Afrikuliðinu og var bezti
maður liðsins. Það eru nú lið-
in 16 ár'síðan hann lék fyrsta
leik sinn í landsliði Frakka og
er hann nú 37 ára. Sapat var
hann látinn í svo þýðingar-
mikla stöðu sem staða innherja
er. Ben Barek byrjaði sem
knattspyrnumaður í Marokko,
heimalandi sínu. 1938 gekk
hann í Olympique í Marseille
og sama árið fór hann í lands-
liðið franska.
Eftir stríðið gekk hann í
Parísarfélagið Stade Francais
og hjálpaði því til að komast
í I. deild. Síðasta landsleik, þar
til nú, lék hann með franska
landsliðinu 1948 í leik við
Tékkóslóvakíu og vann lið
Frakka 4:0 sem þótti ótrúlega
góð frammistaða. Næstu fjögur
árin lék Ben Barek með Atlet-
ico í Madrid og varð þar
epænskur meistari.
1 fyrra kom hann aftur til
gamla félagsins síns Olympi-
que.
Síðan í byrjun þessa keppn-
istímabils hefur hann verið
hezti maður liðs síns, með
þessum árangri sem fyrr segir
Aðalfundur Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur var haldinn s. 1.
föstudagskvöld í Félagsheimili
KR.
Fúndinn sátu fulltrúar allra
knattspyrnufélaganna fimm í
Reykjavík. Formaður ráðsins,
Sigurður Magnússon, flutti
skýrslu ráðsins yfir starfsemi
þess á s. I. ári, en Starfið hefur
eins og undanfarin ár verið
mjög umfangsmikið.
KRR varð 35 ára i maí s. 1. og
í tilefni þess voru ýmsir for-
ystumenn knattspyrnunnar í
Reýkjavik, bæði fyrr og síðar,
heiðraðir.
í vor tók ráðið upp þá ný-
breytni, að gangast fyrir útgáfu
á skrá yfir alla kappleiki í knatt-
spyrnumótum allra flokka, ásamt
leikstað, leiktímá og dómara
hvers leiks. Var þetta mikið verk
og vandasamt, en til mikils hag-
ræðis fyrir alla hlutaðeigandi
aðila, og verður þessi háttur á
hafður í framtíðinni, að skipu-
leggja alla leiki, bæði innlend
mót og erlendar heimsóknir með
góðum fyrirvara.
Reykvísk félög sáu ekki um
neina heimsókn erlendra knatt-
spyrnuliða, en hér léku á s. 1.
sumri 3 erlend lið, norska lands-
liðið, úrval áhugamanna frá
Hamborg á vegum Akurnesinga
og úrval frá Þórshöfn í Færeyj-
um, á vegum ísfirðinga. Utan
fóru 3 flokkar frá Reykjavík,
meistaraflokkur Víkings, sem
lék í Danmörku, 2. fl. Vals, sem
lék í Þýzkalandi, og 3. fl. KR
sem lék í Danmörku og Svíþjóð.
Fyrir þessum aðalfundi liggur
tillaga um nýskipan á heimsókn-
um erlendra liða á vegum ein-
stakra félaga. Skiptast félögin 5
á að bjóða upp eitt sér hingað
erlendum knattspyrnuliðum, og
býður Valur hingað upp erlendu
liði í lok mai, en KR býður hing-
að upp erlendu liði í miðjum
júlí. Að auki er síðan einnig
von á 2 erlendum unglingaflokk-
um næsta sumar, KR býður hing-
að upp dönskum 3. flokki, og
Valur býður upp þýzkum 2.
flokki.
Eins og að undanförnu er að-
alstarfsemi ráðsins framkvæmd
allra knattspyrnumóta í Reykja-
vik, og starfa nú 2 undirnefndir
að þeim málum á vegum þess.
Alls fóru fram 21 mót í sumar,
og var leikjafjöldi þeirra 167,
en þar að auki léku félögin 53
leiki, gegn erlendum liðum, er-
lendis og úti á landi. Enn eru 2
mótanna óútkljáð, en af hinum
19, hefur KR unnið 9, Valur 8,
Fram 1 og Akurnesingar 1.
Úr stjórn KRR gengu nú Sig-
urður Magnússon, Gunnlaugur
Lárusson, Kristvin Kristinsson
og Sveinn Zöega, sem átt hefur
sæti í því í 13 ár, og er það
lengur en nokkur annar. Formað-
ur fyrir næsta ár var kjörinn
Haraldur Gíslason, frá KR, en
með honum í stjórn verða Jón
Guðjónsson frá Fram, Páll
Guðnasón, Val, Ólafur Jónsson,
Víking, og Óskar Pétursson,
Þrótti. (Frá KRR).
Enska deildakeppnin
I . deild:
Félafc L U T J Mörk S
Wolves 16 9 4 3 36-19 22
Sunderland 16 7 7 2 29-19 21
Manch. Utd 16 9 3 4 41-32 21
Portsmouth 16 8 4 4 30-18 20
Manch. City 16 8 4 4 31-30 20
Everton 16 8 3 5 26-22 19
Huddersfield 16 8 3 5 27-22 19
Preston 16 8 2 6 42-21 18
Charltpn 16 8 2 6 32-29 18
Bolton 16 6 6 4 31-26 18
W.B.A. 16 8 2 6 36-35 18
Cardiff 16 5 6 5 26-32 16
Chelsea 17 5 6 6 27-28 16
Aston Villa 16 5 4 7 28-36 14
Burnley 16 5 4 7 15-25 14
Newcastle 16 5 3 8 36-40 13
Arsenal 16 5 2 9 27-27 12
Sheff. Utd 17 5 2 10 25-40 12
Tottenham 16 4 3 9 26-38 11
Blackpool 16 4 3 9 24-28 11
Leicester 16 3 5 8 29-38 11
Sheff. Wedn 16 4 2 10 25-39 10
II. deild.
Blackburn 16 11 2 3 54-26 24
Fulham 16 10 2 4 43-29 22
Stoke City 17 8 4 5 22-16 20
Middlesbro 16 5 1 10 20-39 11
Plymouth 16 2 5 9 23-34 9
Ipswich 17 4 1 12 29-38 9
Amerískir kjólar
NÝKOMNIR
EROS
Vezzlunin cnuo Haínazst. 4
Sími 3350.
Rússneskunámskeið
er að hefjast. Kennt veröur eitt kvöld í viku, 2
tíma í senn frá kl. 8.30.
Fyrir framhaldsnemendur miövikudaga.
Fyrir byrjendur fimmtudaga.
Upplýsingar í skrifstofunni, Þingholtsstræti 27,
klukkan 5 til 7.
M í R
v,
HIN FRÆGA LITKVIKMYND
ÉG Sfl DÝRÐ HANS“
mun veröa sýnd í Bæjarbíói, Hafnarfiröi, laugar-
daginn 13. nóv. kl. 5 síðdegis. Aögöngumiðar og
skýringar á myndinni fást í Bæjarbíói.
AÐGANGUR ÓKEYPIS. — Börn fá því aðeins
aðgang að þau séu í fylgd meö fullorönum.
I > Ba n ri
: :
!
■ við zjúpnadzápi í landi Hafnazfjazðazkaupstaðaz \
! !
■ ■
■ j
Hér með tilkynnist aö allt rjúpnadráp er bann-
! :
: að í landi Hafnarfjarðarkaupstaöar og varðar ■
! :
: sektum, ef útaf er brugöiö.
! - !
Bæjarstjórinn í Hafnarfiröi 10. nóv. 1954
! !
Stefán Gunnlaugsson.
SÖNGSKEMMTUN
Kristinn Hallsson
heldur söngskemmtun í Gamla bíói í dag, 11.
nóvember, klukkan 7.15.
Undirleikari: FRITZ WEISSHAPPEL.
Aögöngumiöar hjá Eymundsson, Blöndal og
Bókaverzlun Kristjáns Krisjánssonar, Bankastr. 7
Andspyrnu-
hreyfingin
hefur skrifstofu í Þingholts-
stræti 27. Opin alla virka
daga kl. 7—9 síðd., sunnud.
kl. 4—6.
Komið og takið áskriftalista
og gerið skiL