Þjóðviljinn - 09.01.1955, Blaðsíða 3
Sunnudagur 9. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Trá aígreiðslu fjárhagsáætlunarinnar:
Ihaldið fjandskapast enn
við hraðfrystihússmálið
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar bæjarins kom íhaldið
í veg fyrir að samþykkt yrði tillaga sósíalista um undir-
búning að byggingu stórvirks hraðfrystihúss. Er þetta
í fjórða skiptið sem íhaldsmeirihlutinn fellir tillögu frá
sósíalistum í hraðfrystihússmálinu.
Þá felldi íhaldið einnig breyt-
ingartillögu frá sósíalistum við
fjárhagsáætlunina þar sem gert
var ráð fyrir 3,2 millj. kr. fram-
lagi í Framkvæmdasjóð, er nota
mætti til byrjunarframkvæmda
við byggingu hraðfrystihússins.
I framsöguræðu sinni sýndi
Guðmundur Vigfússon fram á
nauðsyn þess að bærinn hefði
forgöngu um eflingu atvinnulífs-
ins og þá ekki sízt sjávarútvegs
og fiskiðnaðar. Taldi hann enga
ofrausn að ætla uppbyggingu at-
vinnulífsins í bænum röskar 3
milljónir kr. þegar afgreidd væri
fjárhagsáætlun upp á 120 millj.
Hitt gegndi meiri furðu að engin
slík fjárveiting til undirstöðuat-
vinnuvegs bæjarbúa skyldi finn-
ast í frumvarpi meirihlutans og
sýndi takmarkaðan skilning á því
vandamáli að sjá öllum Reykvík-
ingum fyrir arðbærri og gagn-
legri atvinnu í stað þess að
hrekja mörg hundruð bæjarbúa
suður á Keflavíkurflugvöll.
Jafnframt lagði Guðmundur á-
herzlu á að hér væri fyrst og
fremst um stefnuyfirlýsingu að
ræða en þetta framlag gæti þó
orðið góður stuðningur við byrj-
unarframkvæmdir. Hitt væri
ljóst að leita yrði jafnframt eftir
lánum til byggingar hraðfrysti- ,
hússins.
Eins og fyrr segir felldi íhaldið
tillöguna um undirbúning frysti-
hússbyggingarinnar. Allir full-
trúar andstöðuflokkanna greiddu
henni atkvæði. íhaldið felldi
einnig framlagið til fram-
kvæmdasjóðsins. Fimm bæjar-
fulltrúar greiddu því atkvæði en
Þjóðvarnarmaðurinn og annar A1
þýðuflokksmaðurinn sátu hjá!
Alþýðublaðið flytur rógsgrein til að
spilla atvinnu pólitísks andstæðings
Svaxgiein til Alþýðubl. frá Gunnari M. Magnúss
Það var grein í Alþýðublaðinu
í morgun með þriggja dálka
fyrirsögninni: '„Rekur Gunnar
M. Magnúss hasarblaðabúð?“, og
virðist svo sem nokkurn reka
hafi þar með borið upp á fjörur
blaðsins. Greinin er þess eðlis,
að ég tel rétt að svara henni
strax, það er svo margt ósatt
í henni, of auðsætt, að hún er
skrifuð til þess að reyna að
gera mér skaða, þótt svo sé látið
líta út sem blaðið hafi verið
viðþolslaust af menningaráhuga.
Alþýðublaðið segir: „Meðan
umræðurnar um hasarblöð og
önnur sorprit stóðu sem hæst
á Alþingi á dögunum, beindist
athygli Bústaðahverfisbúa að
bókaverzlun hverfisins, en í
henni hafa um skeið verið seld
amerísk hasarblöð.
„Menningarpostuli" að verki.
Flestir íbúar hverfisins kann-
ast við afgreiðslumann verzlun-
arinnar. Er hann allþekktur hér
í bæ undir nafninu Gunnar M.
Magnúss, enda hefur hann um
langt skeið haldið uppi skeleggri
„menningarbaráttu“ og þó eink-
um barizt gegn hinum „siðspill-
andi bandarísku áhrifum“, og
'þá líklega þar á meðal sölu
bandariskra hasarblaða hér á
landi.“ Því næst koma dylgjur
um mig og bókaverzlunina, sem
ég hirði ekki um að svara á
þessum vettvangi.
Bóksalafélag íslands samþykkti
s.l. haust að veita mér bóksala-
réttindi í Bústaðahverfi og ná-
grenni. Opnaði ég bóka- og rit-
fangaverzlunina í nóv. s.l. Ég
hef fengið bækur útgefenda inn-
an Bóksalafélagsins og frá mörg-
um öðrum útgefendum, einnig
hef ég selt dönsk og þýzk blöð.
En til þessa dags hefur ekki
verið selt í verzluninni eitt ein-
asta amerískt hasarblað, svo sem
Alþýðublaðið sakfellir mig fyrir.
Ég skora því á Alþýðublaðið að
mæta með sögumann sinn eða
þann, sem segist hafa keypt
amerísk hasarblöð í bókaverzlun
minni, þriðjudaginn 12. jan. n.k.
kl. 5—6 síðdegis, með þau blöð
sem hann segist hafa keypt hjá
mér, og sanna að svo hafi verið.
Hins vegar hef ég selt þýzk
myndablöð, sem fást í flestum
bókaverzlunum bæjarins, það eru
myndasögur, sem viðurkenndar
hafa verið af þýzka kennslumála-
ráðuneytinu, svo sem Ugluspegill
og Tarzan, samskonar og blöðin
birta hér daglega.
Ég hef ekki haft í bókabúðinni
,Sök‘, ,Afbrot‘ og ,Lögreglumál‘,
en hinsvegar vikublöðin og mörg
tímarit og blöð, m. a. hafði ég
Alþýðublaðið til sölu fyrsta hálf-
an mánuðinn, en seldi þann tíma
aðeins 2—3 blöð alls, — enginn
vildi kaupa Alþýðublaðið, þó að
ég auglýsti það með því að
hengja það á snúru út í glugga.
En sökum þess, að Alþýðublað-
ið er gripið slíkum mennnigará-
huga í sambandi við min störf,
er ekki fráleitt að minnast á
menningarfyrirtæki Alþýðu-
flokksins, M. F. A. — Menningar
og fræðslusamband alþýðu, sem
rekur myndablaðasölu í Alþýðu-
húsinu. Ég hef það fyrir satt, að
það hafi ekki fengið bóksölu-
réttindi hjá Bóksalafélaginu, en
það selur hins vegar „hasarblöð“,
„Afbrot“, „Sök“, „LögreglumáT'
o. fl. Það mætti því spyrja:
Hversvegna beindist ekki athygl-
in að menningarfyrirtæki Al-
þýðuflokksins, M. F. A., þegar
rætt var um hasarblöðin og sorp-
ritin?
Ég hef eignazt marga við-
Framhald á 4. síðu.
Hvar eru vísurnar?
Þótt ég stingi niður penna,
til þess að geta hér bókar,
sem ég las núna um jólin, þá
get ég því miður ekki sagt,
eins og karlinn sem sagðist
hafa vit á flestu, heldur geri
ég það mér til hugarhægðar,
en hvorkþ mér til lofs né
frægðar. Þessi bók er nefnilega:
Einn á ferð — og oftast ríð-
andi, eftir Sigurð frá Brún.
Eg hló stundum upp úr lestr-
inum og hef ég alltaf talið það
góðs vita —, en þó er ég ekki
ánægður. — En það getur nú
verið af því að ég er enginn
hestamaður.
Sigurður skrifar sérkennileg-
an stíl og varla verður það
sagt með sanni, að mörg séu
þar orð útlend að ætt. Það
leynir sér heldur ekki að mað-
urinn er hestamaður, meira en
að nafni. Allt efni bókarinnar
er að heita má um hesta. Og
út af fyrir sig er ekkert nema
gott um það að segja, og sér-
staklega þegar vel og frumlega
er frá sagt. En mér dettur í
hug karlinn, sem var að tala
við prestinn sinn, og gegndi
fram í þegar húsfreyjan var að
bjóða prestinum meira kaffi:
„Öllum má nú ofbjóða".
Sigurður hefði átt að hafa
það í huga, að hér býður hann
til borðs fleirum en Abraham,
ísak og Jakob. Að borði hans
dragast ýmsar kenjakindur og
vandræðagripir, sem ekki gera
sig ánægða með tómt hrossa-
kjöt, þótt vel sé framreitt og
gott með öðru góðu. Og sér-
staklega þegar þeir vita að
hann á fleira gott til í búrinu.
Og það hreinasta sælgæti, sem
að þeirra dómi hefði „krydd-
að“ allt matborðið, því löngum
hefur það þótt eiga vel saman
og jafnvel óaðskiljanlegt, vís-
an, hesturinn og pelinn.
Þarna finnst mér Sigurði
hafa orðið á í messunni, þessi
þrenning hefur fylgt mörgum
AtLT
FYRIR
KjÖTVERZLAMÍR
þórSu, KTcitiiOn GrcttiJJÓtu 3, J.ff. 60360.
manninum og þjóðinni um ald-
ir og þess vegna óaðskiljanleg-
ir hlutir jafnt í lífi og bók-
menntum. Og einhvers staðar
stendur, að það sem guð hefur
samtengt, má maðurinn ekki
sundur skilja.
Þótt ég þekki Sigurð lítið,
þá veit ég svo mikið um hann,
að hann er ekki síður vísna-
maður en hestamaður og kann
ógrynni af vísum sem vel gátu
átt við efni bókarinnar. Og ó-
trúlegt er það, ef hann hefur
aldrei gert vísu á öllu þessu
ferðalagi, sem hann lýsir í
bókinni.
Og grunur minn er sá, að
fleiri sakni þess en ég, að Sig-
urði skyldi verða það á, þegar
hann gaf út bók, að láta vanta
af sér annan helminginn.
Svipall.
Ánægjiilcgur jóla-
trésfagnaður
Borgarnesi.
Frá fréttaritara Þjóðviljans
Um langt árabil, og nú síð-
ast á þrettándanum, hefur Kven-
félag Borgamess haft jólatrés-
fagnað fyrir börn og aðstand-
endur þeirra.
Var þetta hin ánægjulegasta
skemmtun með söng, hljóðfæra-
leik og viðeigandi jólasveinum,
Þar voru fram bornar miklar og
góðar veitingar fyrir f jölda fólks.
Skemmtunin stóð 5 klst., en þá
voru yngstu borgararnir fluttir
heim eftir mikið starf, tilhlökk-
un og gleðistundir.
Fram að þessu hefur jólatrés-
fagnaðurinn verið haldinn í sam-
komuhúsinu, sem að ýmsu verð-
ur að teljast ónothæft, miðað við
það, að fullkomin húsakynni e*ru
til á staðnum.
Við undirbúning á byggingu
hins fullkomna barnaskóla
Borgarnesi, en leikfimissalur hans
er 9x18 metrar, voru rædd við
fræðslumálastjóra ýmis not
slíkrar byggingar. Lagði fræðslu
málastjóri áherzlu á að skólinn
og leikfimissalurinn yrði notaður
fyrir samkomur barnanna, slík
væri gert í nágr'annalöndunum
— Verður að vænta þess að
skólanefnd bæti úr 5 ára van
rækslu og bjóði jólatrésfagnað
æskunnar í nýju húsakynnin
næsta ári.
Orðsendmg írá
Andspyrauhreyíingunni
Fulltrúar félaga, sem eru innan Andspyrnu-
hreyfingarinnar, og a'ðrir peir hernámsandstæð-
ingar í Reykjavík, sem tekið hafa hjá Andspyrmi-
hreyfingunni eða undirrituðum undirskriftalista
varðandi uppsögn herstöðvasamningsins, eru
beðnir að skila listunum sem allra fyrst. Telcið
verður á móti undirskriftalistum í Þingholts-
stræti 27. II. hæð á morgun, mánudag, 10. jan. og
þriðjud. 11. jan. á sama tíma. Áríöandi er, að allir
skili listum, er peir hafa tekið á móti, enda pótt
undirskriftasöfnun sé ekki lokið. Undirskriftalist-
ar verða jafnframt afhentir á sama tíma áhuga-
mJönnum, sem vilja taka pátt í nýrri sóknarlotu í
byrjun ársins.
F.h. stjómar Andspyrnuhreyfingarinnar
GUNNAR M. MAGNÚSS.
Ef þér hafið
hug á að
eignast miða
í
VÖRUHAPP-
drhh
s
A
I
B
s
er enn tækifæri
til að kaupa.
DREGIÐ Á
MORGUN
7000
vinningar
að f járhæð
Ki: 2.800.000,00
Hæsti vinningur
í hverjum flokki
er
50 til 150 þús. kr
Skattfrjálsir
vinningar.
Verð endurnýjunarmiða
er 10 krónur.
Arsmiði 120 krónur.
Umhoðin í Reykjavík
og Hafnaifiiði vexða
opin til kl. 22 í dag
(sunnudag) og til há-
degis á moigun (mánu
daginn).