Þjóðviljinn - 19.01.1955, Blaðsíða 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 19. janúar 1955
^ ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI FRlMANN HFLGASON
Hverfakeppnin á sunnudagskvöld
I kvennallckki vann VesEurbær úthverfin
12:4 en í karlafl. vann Vesturbær Lang-
holt 29:26 og Austurbær Hlíðar 21:18
Kvennaleikurinn var of ein-
hliða. Sókn af hálfu kvenna
Vesturbæjarins sem notuðust
skotin vel og áttu þær hægara
með að skapa opnur í vörn
mótherjanna, en Úthverfingum
sem virtust alltaf komast í
hálfgerð vandræði er þær kom-
ust upp að marki mótherjanna.
1 hálfleik stóðu leikar 5:1 fyr-
ir Vesturbæ. Síðari hálfleik
lauk 7:3 fyrir Vesturbæ.
(12:4).
Næsti leikur var af mörgum
talinn úrslitaleikur keppni þess-
arar og leikurinn í heiid var
jafn og spennandi frá upphafi
til enda og ekki vantaði að
mörk væru sett, því næstum
á mínútu hverri söng knött-
urinn í netamöskvum mark-
anna. Þó var það svo að meira
örvggi og festa var í leik Vest-
urbæjarmanna. í byrjun leiks-
ins komust Langhyltingar yfir
í mörkum. Á 6. mínútu höfðu
þeir 3:2. Á 7. mínútu jafnar
Vesturbær 3:3 og á 9. mín.
taka þeir forustu og halda
henni leikinn út nema hvað
Langhyltingar náðu jafntefli
á 10. mín. 4:4'og svo á 8. mín.
í síðari hálfleik 17:17. Eftir
það dró sundur með þeim
(21:18) en aftur verður þó
staðan 21:20. Dró nú heldur
af Langhyltingum og endaði
leikurinn með þriggja marka
mun 29:26. Vesturbær fékk 5
mörk úr 5 vítaköstum en
Langhyltingar úr 4. Flest
mörk settu í liði Vesturbæjar
Karl Jóh. 13 alls og Þórir Þor-
steinsson. Þóri má benda á í
fullri vinsemd að það er ekki
talinn snotur háttur af svo
snjöllum íþróttamanni að kasta
knetti langar leiðir ef honum
fellur ekki úrskurður dómara.
Aftur á móti setti Gunnar
Bjarnason flest mörk fyrir
Langhyltinga eða 7 en Sigurð-
ur Jónsson setti 6.
Leikur Hlíða- og Vesturbæj-
ar var ekki eins tilþrifamikill
og sá fyrri, hraði var töluverð-
ur til að byrja með og stund-
um meiri en við réðist og virt-
ist stundum ruglingslegur.
Hlíðar byrja að skora. Á 8.
mín. eru leikar jafnir 2:2.
Lerða Austurbæingar nú sokn
og á 20. mín standa leikar 7:4
fyrir þá en á 25. mín. höfðu
Hlíðamenn jafnað 7:7. Á 27.
mín. er eiin jafnt 8:8. Hálf-
leikurinn endaði 10:9 fyrir
Austurbæ.
Um miðjan hálfleik eru
Hlíðamenn komnir jdir 15:13
en Austurbæjarmenn virðast
hafa betra úthald, jafna og
halda áfram að skora og lauk
leiknum með 10:9 fyrir Aust-
Framhald á 11. síðu.
Enska deildakeppnin
I. deild
; Ármerniingar ná
< góðum árangri í
1 hástökki
Fyrir stuttu síðan efndu Ár-
menningar til keppni með sér
í hástökki, með góðum árangri.
Gísli Guðmundsson stökk nú
1.82 m sem mun vera aðeins
3 sm frá innanhússmeti Skúla
Guðmundssonar og er það ó-
neitanlega góður árangur. Þá
stökk Þorvaldur Búason 1.75
m og er það gott af svo ung-
um manni (17—18 ára). Sig-
urður Lárusson, líka kornungur
maður kominn hingað frá
Borgarnesi, stökk að þessu
sinni 1.72 m en hefur þó áður
gert betur (1.75 m). Virðast
Ármenningar eiga þarna ágæt
hástökkvaraefni.
L U T J Mörk S
Sunderland 26 10 13 3 44-33 33
Wolves 26 12 8 6 58-39 32
Charlton 25 13 4 8 52-39 30
Manch.Utd 25 13 4 8 55-44 30
Che’sea 26 11 8 7 51-40 30
Everton 26 12 6 8 41- 37 30
Portsmouth 25 11 7 7 49-33 30
Huddersfield 25 10 9 6 43-36 29
Manch. City 26 11 6 9 46-49 28
Burnley 26 10 7 9 32-36 27
WBA 25 10 6 9 49-52 26
Freston 24 10 5 9 56-35 25
Newcastle 25 10 4 11 57 56 24
Cardiff 25 9 6 10 42-48 24
Sheff.Utd 26 10 3 13 43-58 23
Bolton 24 7 & 9 36-40 22
Aston Villa 25 8 6 11 36-50 22
Arsenal 26 8 6 12 43-46 22
Tottenham 26 8 6 12 41-50 22
Blackpool 26 7 6 13 36-46 20
Leicester 26 5 8 13 44-61 18
Sheff. Wedn. 26 4 6 16 38-64 14
II. deild
L U T J Mörk S
Blackburn 26 16 2 8 84-51 34
Luton 25 15 3 7 58-36 33
Notts Co 26 14 4 8 49-42 32
Leeds 26 14 4 8 42-38 32
Stoke 25 12 6 7 38-27 30
Botherham 26 14 3 9 69-47 31
Fulham 25 12 6 7 55-48 30
Birming'ham 22 11 5 8 48-26 27
Middlesbro 26 12 3 11 43-49 27
Bury 26 9 8 9 49-46 26
Swansea 25 10 6 9 63-50 26
West Ham 25 10 6 9 46-50 26
Bristol 25 11 4 10 50-43 26
Liverpool 25 10 4 11 53-57 24
Hull City 25 8 7 10 29-34 23
Lincoln 26 i9 5 12 44-52 23
Noth. Fol>est 26 9 4 13 33-29 22
Doncaster 24 9 2 13 36-59 20
Port Vale 25 6 8 11 28-44 20
Derby 25 6 5 14 37-62 17
Plymouth 26 4 7 15 37-56 15
Ipswich 26 6 2 18 40-64 14
EDHVBORGARHÁTlÐIIV
I*essi lipra stúlka á myndinni
er frönsk og heitir made-
moiselle Rayne
672 kr. fyrir 5 rétta
Eins og komið hefur fram
af fréttum af veðurfari á
Bretlandi um helgina, reynd-
ist ekki unnt að heyja nema
fáa knattspyrnukappleiki af
þeim sem ráðgerðir voru á
laugardag. Hinir fórust fyrir
vegna snjókomu, og var það
41 leikur sem frestað var, ogi
af þeim voru 6 leikir á 2.1
getraunaseðlinum. Urslit leikj-
anna urðu:
Blackpool 0 Wolves 2 2
Bolton Huddersfield frestað
Cardiff Chelsea frestað
Charlton Manch. Utd frestað
Everton 1 Burnley 1 x
Manch. City 2 Leicester 2 x
Newcastle Preston frestað
Portsmouth 1 Aston Villa 2 2
Sheff. Wedn 1 Sunderland 2 2
Tottenham 0 Arsenal 1 2
WBA Sheff. Utd —
Port Vale Stoke City —
Koma aðeins 6 úrslit til
greina, og var bezti árangur
5 réttir, sem komu í 27 röð-
um. Er vinningur aðeins
greiddur fyrir 5 rétta vegna
f jölda raða með 4 og 3 rétta.
Hæsti vinningur var 672 kr.
fyrir seðil með 5 réttum í 8
röðum.
1. vinningur 84 kr. fyrir 5
rétta (27 raðir).
Ungverjar leika
við Norðurlöndin
fjögur í maí
Frá ungverskri fréttastofu
hefur borizt skrá yfir lands-
leiki Ungverja í knattspjTnu í
ár. Ber skráin með sér að þeir
ætli að keppa við öil Norður-
löndin nema íslands í maí n.k.
Alls eru þetta 12 leikir og eru
þeir við þessi lönd:
24. apríl: Austurríki í Vín
8. maí: Noregur í Osló.
11. maí Svíþjóð í Stokkhólmi.
15. maí Danmörk í K.höfn.
19. maí: Finnland í Helsingfors.
1. júní: Skotland í Búdapest.
1. sept.: Sviss í Bern.
25. sept.: Sovétríkin í Búdapest
2. okt.: Tékkóslóvakía í Prag.
15. okt.: Austurríki í Búdapest.
13. nóv. Svíþjóð í Búdapest.
20. nóv. ítalía í Búdapest.
Getrannaspá
3. leikvika. Leikir 22. janúar
1955. — Kerfi 32 raðir..
Aston Villa-Blackpool 1
Burnley-tNewcastle (x) 2
Ghelsea-Manch. City 1 (x)
Huddersfield-Cardiff 1
Leicester-Everton x (2)
Manch. Utd-Bolton 1
Preston-WBA 1 (x)
Sheff Utd.-Arsenal 2
Sunderland-Portsmouth 1
Totténharn-SHéff W 1
Wolves-Charlton 1
Liverpool-Blackbum 1 (2)
Framhald af 7. síðu.
allt, sem fram á að fara á Edin-
borgarhátíðinni hverju sinni,
hjá Ferðaskrifstofu ríkisins, og
sér maður þá einnig um leið
verð allra aðgöngumiða á sýn-
ingarnar og hljómleikana, frá ó-
dýrustu sætum og upp úr, og
er það allverulegur munur á
verði. Ætli maður að fara á
hátíðina, er sjálfsagt að panta
miða mörgum mánuðum fyrir-
fram, til þess að tryggja sér
það, sem manni hentar bezt,
bæði fjárhagslega og á annan
hátt. Einnig er þarna að fá
allar upplýsingar um verð á
gististöðum, á öllu verði, og
geta menn þá reiknað út með
nokkurri vissu, hve mikið ferð-
in by;;fti að kosta þá, ef til
kæmi. Það er t. d. mikið af
smá gististöðum, sem leigja út
herbergi, ef til vill aðeins 4—6
herbergi í allt, og er þá venju-
lega innif alinn morgunmatur.
Ég geri ráð fyrir að verðlag sé
nokkuð misjafnt, en það er
hægt að búa á ágætum stöðum,
nálægt miðbænum, sem sparar
manni peninga í strætisvagna,
fyrir ca. 12 shillinga á sólar-
hring. Einnig getur maður
keypt stakar máltíðir víðsvegar
í bænum fyrir mjög lágt verð.
Af þessu má sjá, að ekki þarf
að kosta svo ákaflega mikið að
fara á Edinborgarhátíðina, ef
vel er hugsað fyrir öllu fyrir-
fram.
Ekki er mér kunnugt um
hve margir íslendingar sóttu
Edinborgarhátíðina í sumar, en
sjálf vissi ég aðeins um einn,
herra Sigurð Grímsson, hdl.,
sem ég af tilviljun hitti fyrir
utan Botanic Gardens, en við
vorum bæði að bíða eftir að
garðarnir væru opnaðir, á
sunnudagsmorgni, daginn eftir
að Edinborgarhátíðinni lauk.
Annars var það áberandi
hve mikið var þarna af út-
lendingum, og sérstaklega Ame-
ríkumönnum og Indverjum, einn
ig mjög mikið af mönnum af
negraættum, af öllum litbrigð-
um — frá ljósbrúnu niður í al-
svart, og voru það að sjálf-
sögðu einnig Ameríkumenn. Lít-
ið bar hinsvegar á Skandinöv-
um, sjálf hitti ég aðeins ein
sænsk hjón og einn sænskan
námsmann, en enga frá hinum
Norðurlöndunum. Einnig furð-
aði mig á því, í Danmörku, er
það kom til tals, hvert ég ætl-
aði í heimleiðinni, að fæstir virt-
ust nokkurtíma hafa heyrt nokk-
nokkurn tíma hafa heyrt nokk-
uð um Edinborgarhátíðina. Mig
furðaði mjög á þessu, ekki sízt
þar sem þeirra ágætu sinfóníu-
hljómsveit, undir stjórn Erik
Tuxen, var falið að opna hátíð-
ina, eins og það er kallað.
Hér á landi býst ég við að all-
flestir viti einhver deili á þess-
ari ppiHþi hátíð, enda hafa bæði
bjöð og útvarp látið sér . tíð-
rætt um hana.
í þeirri von, að sem flestir
listelskir íslendingar eigi eftir
að njóta þess, sem Edinborgar-
hátíðin hefur upp á að bjóða
í framtíðinni, læt ég svo þessu
lokið.
Útsala — Útsala
AIIs konar barnafatnaður
Alls konar nærfatnaður.
Andlitspúður frá 2 kr.
Varalitur frá 8 kr.
Þvottaefni kr. 2.75
Dömuskór kr. 75.00
Afsláttur af öllum vörum.
Vörum&rkaðimnn
Hverfisgötu 74 og
Framnesveg 5.
Jólamarkaðurinn
Ingólfsstrœti 6.
Við sknlum ekki undrast
Framhald af 6. síðu.
þriðja, gengislækkanir síðustu
ára, og er sú aðferðin einna
áhrifadrýgst. Enda rejmdist
svo þegar síðasta gengislækk-
un var framkvæmd að bændur
rumskuðu við, sést þar lika
ljósast viðhorf ráðamanna til
bænda.
Ef borin eru saman viðhorf
og uppbygging tveggja at-
vinnugreina, það er landbún-
aðar og iðnaðar, báðar nota til
framleiðslu sinnar að þó nokkru
leyti innflutt hráefni, sýnist
eðlilegast að gengislækkunin,
hefði svipuð áhrif á fram-
leiðsluverð beggja atvinnugrein-
anna. Sú varð þó ekki raunin,
bændum var meinuð af lög-
gjafarvaldinu öll hækkun á
framleiðslu sinni þó innflutt
hráefni hækkuðu allt að helm-
ing. Aftur á móti fengu iðn-
rekendur að leggja alla þá
hækkun á framleiðslu sína. En
þess ber jafnframt að geta að
iðnrekendur leggja sig yfirleitt
ekki til erfiðisvinnu, sitja
gjarnan á löggjafarþingi þjóð-
arinnar, og taka að sér ýms
störf sem löggjafarvaldið legg-
ur þeim á herðar við góð laun.
En sem allir vita eru bændur
ennþá uppteknir sextán stund-
ir hvers sólarhrings að afla sér
nauðþurfta.
Af því sem að framan grein-
ir mætti hverjum vinnandi
manni vera ljóst hvar skórinn
kreppir mest að í hagsmuna-
baráttu alþýðu. 'En það er að
löggjafarvaldið sýnir hagsmun-
um hennar fullan fjandskap.
Og hlýtur því baráttan að bein-
ast að því fyrst og fremst að
ná þessu. valdi úr höndum auð-
stéttarinnar.
Nú virðist djarfa fyrir því
að vinnandi menn séu að gera
sér þetta ljóst, bendir margt
til þess, meðal annars það að
samstarf hefur tekizt milli full-
trúa alþýðu í bæjarstjórnum og
hreppsnefndum víða um land,
og síðast en ekki sízt á því al-
þýðusambandsþingi sem nú ný-
lega hefur lokið störfum. Hlýt-
ur það því að vera ófrávíkjan-
leg krafa alþýðunnar til sjáv-
ar og sveita að fulltrúar henn-
ar hefji samstarf um raunhæf-
ar umbætur á lífskjörum henn-
ar. En þá fyrst er hægt að bú-
ast við árangri og endurbótum,
að löggjafarvaldið sé ekki
fjandsamlegt hagsmunum hins
vinnandi fjölda.