Þjóðviljinn - 27.03.1955, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 27.03.1955, Blaðsíða 12
Frá frumsýningu japanska dansflokksins í Þjóðleikhúsinu í fyrrakvöld. Japanskur listdans: Friimsýning í fyrrakvöld Á föstudagskvöld var fyrsta sýning hins heimsfræga japanska dansflokks, sem nú er gestur Þjóðleikhússins. Stjórnandi flokksins og aðal- dansmær er Miho Hanayagui, hin merka listakona, en auk hennar fimm dansmeyjar og tveir dansmenn. Sýningin tekur rúma tvo tíma. Efnisskráin er ótrúlega f.iölbreytt og veitir, að því er ætla má, furðugóða hug- mynd um hin fornu og glæsilegu leikmennt Japana; auk dans- Samþykkt var á síðasta bæj- aráðsfundi að leyfa Hesta- mannafélaginu Fák afnot af beit í Breiðholtslandi og Geldinga- nesi um eins árs skeið, á sama anna sjálfra léku undirleikar- arnir einleik á hin sérkennilegu, gömlu japönsku hljóðfæri, sham- isen og koto. Þjóðleikhúsið var alskipað og forsetahjónin meðal gesta. Á- horfendur virtust framan af nokkuð á báðum áttum, en fögn- uðurinn óx jafnt og þétt er á leið sýninguna og var listafólkið mjög hyllt að lokum, en dans- meyjarnar vörpuðu blævængj- um sínum út i salinn til leik- gesta, að japönskum sið. Dans- flokkurinn sýnir í dag kl. 3, en næsta sýning er kl. 8 annað hátt og verið hefur. Félagið sótti hins vegar um að fá afnotarétt . kvöld. Þessa merka listviðburðar til tíu ára. | verður nánar getið síðar. Búlganín fagnar orðum Eisen- howers um stórveldafund Búlganín, forsætisráðherra Sovétríkjanna, sagði í gær að sovétstjórnin væri hlynnt þeirri tillögu Eisenhowers Bandaríkjaforseta að athugaðir verði möguleikar á fundi æðstu manna stórveldanna. Eisenhower sagði við frétta- menn á miðvikudaginn, að þeg- ar búið væri að fullgilda samn- ingana um hervæðingu Þýzka- lands teldi hann rétt að hafn- ar yrðu viðræður embættis- manna stórveldanna til að ganga úr skugga um, hvort ár- angurs væri að vænta ef æðstu menn þeirra kæmu saman. —- Bæru þær viðræður árangur sagðist hann vera fylgjandi því að haldinn yrði fundur æðstu manna stórveldanna. Búlganín sagði blaðamönnum í gær, að sovótstjórin fagnaði þessum ummælum Eisenhowers, enda hefði hún ætíð verið fylgj- and' því að stórveldin héldu með sér fundi til að draga úr viðsjám á alþjóðavettvangi, og hefði hannig nýlega lagt til að haldinn yrði fjórveldafundur til að binda endi á deiiuna um friðarsarnninga við Austurriki. Fréttaritarar vekja athygli á því. að Búlgnnín minntist ekki á það skilvrði, sem Eisenhower setti, að fvrst yrði að ganga endanlega frá fullgildingu Par- ísarsamninganna. Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins sagði í gær, að þessi ummæli Búlganíns væru mjög athyglisverð og gætu bent til þess að sovét- stjórnin væri fús til að ganga að he;m skilyrðum fyrir stór- ■ .................— ___________ veldafundi, hefði sett. sem Eisenhower Fullirúaráðs- 09 trún- aðarmannafundur í Sósíalistafélagi Reykjavíkur verður nk. þrið.judagskvöld kl. 8:30 eh. í Baðstofu iðn- aðarmanna. Dagskrá: Vinnudeilurnar. Öllum flokksmönnum heimill aðgangur meðan húsrúm le.yfir. — Stjórnin. Hin tvö verkin sem Sinfóníu- sveitin flytur að þessu sinni eru Engar strætis- vagnaferðir í dag í dag falla allar ferðir stræt- isvagnanna niður, og er það gert til þess að spara eldsneyti. Á morgun verða ferðirnar aftur með sama móti og verið hefur hndanfarið. Rannsóknarnefndin hélt fyrsta fund sinn í gær Skúli Guðmundsson var kjörinn formaður Nefnd sú sem Alþingi hefur kjöriö til þess a'ö rannsaka okurstarfsemi hélt fyrsta fund sinn í gær. A fundinum skipti nefndin með sér verkum. Var Skúli Guð- mundsson kosinn formaður nefndarinnar með þremur at- kvæðum; Björn Ólafsson fékk tvö. Ritari var kosinn Gylfi Þ. Gíslason. Auk þeirra sem taldir hafa verið eru í nefndinni Karl Guðjónsson og Einar Ingimund- arson. Rannsóknarnefnd slík sem „Við sjóinn“ heitir þessi mynd og er á málverkasýningu Sigur- þessi hefur ekki verið kjörin af Alþingi síðan 1911, en þá kusu báðar deildir þingsnefndir til báðar deildir þingsins nefridir til rannsóknar á íslandsbanka- málinu. Orusta mn Saigon að hefjast? Ngo Dinh Diem, forsætisráð- herra Suður-Vietnams, hafnaði í gær úrslitakostum, sem sértriiar- flokkarnir þrír í iandinu höfðu sett honum. Leiðtogar flokkanna sögðu þá að hann bæri einn alla ábyrgðina á því, sem nú kynni að gerast, Búizt er við því, að trfi- arflokkarnir, sem hafa um 40.000 menn undir vopnum, muni reyna að ná höfuðborginni Saigon á sitt vald. Stjómarherinn í borginni er um 12.000 manns. Bach Tragískur forleikur, eftir Brahms, og Sinfónía nr. 5 í e- moll eftir Tjæ- kofski. Stjórn- andi sveitar- innar á þess- . um tónleikum verður Kiel- land, þeir verða haldriir í ... Þjóðléikhús- inu og hefjast kl. 7. Eins og les- endur sjá er hér einungis böðið upp á dýra tónlist þriggja méist- ara; og ber þetta verkefnaval enn vitni því að Sinfóníusveitin kýs fremur að færast stóra hluti í fang en smáa. Það sýnist einnig vera stefna hjá stjórnendum hljómsveitar- innar að reyna hina ýmsu með- ila hennar við flutning þungra verkefna, í stað þess að hafa alltaf sömu mennina í eldinum. Fyrir skömmu lék Þorvaldur Steingrímssoií einleik með sveit- ■inni í fyrsta sinn, og nú koma fram tveir fiðluleikar er ekki munu heldur hafa leikið einleik með hljómsveitinni áður.. Ætti slík þolraun að getá orðið þeim enn til aukins þroska, og því fagna allir tónlistarunnendur. Iðnnemar, monið íundinn Það er í dag kl. 2 sem fundur Iðnnemasambandsins hefst í Tjarnarkaffi. Til um- ræðu eru kjaramál iðnnema og afgreiðsla iðnskólafrum- varpsins á Alþingi nú fyrir skömmu. Iðnnemar, fjölsæk- ið þennan fund um hags- munamál ykkar. KvikmyndaMs eða Templarahöll? Háskólarektor hefur skrifað bæjarráði og óskað eftir því að Háskólanum verði gefinn kostur á að reisa nýtt kvikmyndahús á horni Eiríksgötu og Barónsstígs. Hingað til hefur verið .gert ráð fyrir að Templarahöll risi á þessu svæði. Undrast hve seint gengnr að semja Selfossi. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Sjóveður hafa verið góð und- anfarið og afli oftast milli 10 og 20 tonn í róðri svipað á Stokkseyri, Eyrarbakka og Þor- lákshöfn, lítur því út fyrir góða vertíð. Af verkfalli er ekkert að frétta hér austan fjalls, ann- að en það að mönnum þykir ganga seint að semja. Verkfallinu í Finnlandi lokið Verkfalli opinberra starfsmanna og verkamanna hjá rikisfyrirtækj- um lauk í Finnlandi í gær. Sam- björns Kristinssonar í Listamannaskálanum. Aðsókn að sýning- þykktu deiluaðiljar málamiðiunar- unni hefur verið góð og 15 myndir hafa selzt. Sýningin er opin írf sí’út;in<-fnd * Fa verkamemi verulegar kjara- til mánaðamóta, daglega frá kl. 13 til 22. bætur og um helming þeirrar kauphækkunar, sem þeir höfðu krafizt. Verkfallið hafði staðið í 10 daga og lamað allar járnbrautarsam- göngur í landinu. Um 40 skip biðu eftir afgreiðslu í Helsinkihöfn í gær. Reykjavíkurflug- völlur sýndur Eins og Þjóðviljinn hefur áður skýrt frá hefur Flugmálastjórn- in boðið drengjum, 8—16 ára gömlum að skoða Reykjavíkur- flugvöll á sunnudögum updir leiðsögn starfsmanna vallarins. Hefst þessi starfsemi i dag, kl. 10 f.h. og kl. 2 e.h. Inngangur á flugvöllinn verður aðeins frá Miklatorgi og er ekki heimilt að fara inn á völlinn annarsstaðar. Verða afhent númer við inn- ganginn frá Miklatorgi. Þjóð- viljinn hefur verið beðinn að brýna fyrir drengjunum að þeir þurfi að vera vel klæddir. blÓÐVILJINM Sunnudagur 27. • marz 1955 — 20. árgangur — 72i tölublað Siníóníutónleikar á þriðjudagskvöld: Ingvar Jónasson og Jón Sen leika tvíleik í Bach-konsert Sinfóníuhljómsveitin heldur tónleika á þriðjudagskvöldið; og ber það helzt til nýlundu að þeir Ingvar Jónasson og Jón Seit leika tvíleik í Konsert fyrir tvær fiðlur og strengjasveit eftir Baeh.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.