Þjóðviljinn - 25.10.1956, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 25. október 1956
■j^ Islenzkur ritstjóri sem
var í efnishraki greip eitt sinn
til þess ráðs að hefja ritdeilu
við sjálfan sig. Lét hann tvö
dulnefni eigast við í blaði
sinu og skrifaði undir báðum;
var þetta löng deila og hörð
og veitti hvorugum betur.
Svo er að sjá sem ritstjóri
Alþýðublaðsins telji þennan
fyrirrennara sinn í blaða-
mannastétt mikla fyrirmynd;
að minnsta kosti hefur hann
löngum reynt að forðast að
láta persónulegar skoðanir
flækjast fyrir sér, hann hefur
Gashverfilsbíll úr plasti
Það hafa ekki komið fram
neinar <sérstakar nýjungar á
þeim bílasýningum sem haldn-
ar hafa verið úti í löndum á
þessu hausti, hvorki á hinni
miklu haustsýningu í París né
á sýningunni sem opnuð var í
Earl’s Court í London í síðustu
viku. Búizt hafði verið við því,
að hinn nýi bíll Fergusons
myndi sýndur í London, en
er á öllum hjólum, en það er
heppilegasta fyrirkomulagið
þegar um er að ræða léttan en
kraftmikinn vagn. Um afköst
og eldsneytisnotkun vagnsins
segja verksmiðjumar eftirfar-
andi: Á 100 km hraða á klukku-
stund fer hann '5 km á lítra,
og hann getur komizt upp í
100 km hraða á 10,5 sekúnd-
um.
verið reiðubúinn til að verja
hvern þann málstað sem otað
hefur verið að honum, hvort
sem rúm liefur boðizt á síðum
Tímans, Varðbergs eða Al-
þýðublaðsins. Þannig hefur
ritstjórinn orðið einstaklega
samvizkulipur, en í staðinn
hefur hann orðið að farga
skoðunum og afstöðu; því
verður málflutningur hans
einatt hávaðinn einber og
orðaglamur.
■jf- Undanfarið hefur rit-
stjóranum verið falið að verja
leynimakk Jóns Axels Péturs-
sonar og Kjartans Thors við
brezka útgerðarmenn, þar sem
íslenzk landhelgisréttindi voru
boðin ef takast mætti að selja
óverkaðan þorsk á brezkum
uppboðsmarkaði. Auðvitað
veit ritstjórinn að þetta er
herfilegur málstaður og ekki
samboðinn neinum ærlegum
manni. Engu að síður er penni
hans falur eða ritvélin, hvort
verkfærið sem hann kann að
nota. í gær er málflutningur-
inn á þessa leið: „Það nær
engri átt að rjúfa þjóðarein-
inguna í landhelgismálinu að
ástæðulausu". Sterlingspunda-
eining þeirra Jóns Axels Pét-
urssonar og Kjartans Thors
er þannig allt í einu orðin
Framhald á 11. síðu
Cíashverfilsbíll Kovers er glæsilegur og sterklegur á að Hta.
hann hafði ekki komið á sýn-
inguna þegar síðast fréttist.
Það er kannski of mikið
sagt að engar merkar nýjung-
ar séu á sýningunni í London.
Roververksmiðjurnar brezku
sýna þar nefnilega v.agn, sem
hlýtur að vekja athygli. Þessi
vagn hefur gashverfilshreyfil og
yfirbyggingin er þar að auki úr
plasti.
Vagninn er ekki sérlega stór,
en hann er glæsilegur og yf-
irbyggingin er með greinilegu
ítölsku sniði. Hreyfillinn er aft-
an til í vagninum.
Þetta er ekki fyrsti gashverf-
ilsbíllinn frá Roververksmiðj-
unum, þær hafa frá stríðslok-
um gert miklar tilraunir með
slíka vagna. Enginn þeirra hef-
ur reynzt heppilegur til fjölda-
framleiðslu, en talið er að þessi
vagn, sem nefnist T 3, muni
reynast hæfur til þess og myndi
hann þá verða fyrsti gashverf-
ilsvagninn, sem kemst í al-
menna notkun.
Undirvagn og yfirbygging
vagnsins eru sérstaklega smíð-
uð fyrir gashverfilsvagn. Drif
Bygging vagnsins er öll mið-
uð við að nýta sem bezt kosti
gashverfilshreyfilsins fram yf-
ir sprengihreyfilinn, og má þar
sérstaklega nefna lúnn 'litla
þunga hreyfiMns miðað við af-
köst hans og það, að engin þörf
er fyrir kælikerfi, tengsli og
gírkassa.
Maður rekst á ýmsar óvenju-
legar tölur þegar athugaðar
eru tæknilegar upplýsingar um
þennan hreyfil. Snúningafjöldi
þéttisins er 52.000 þegar af-
köstin eru 110 hestöfl, og hit-
inn kemst þá upp I 830 stig.
Hreyfillinn er ræstur af 12
volta rafhreyfli, sem kemur
þéttisásinum af stað, en hreyf-
illinn stöðvast sjálfkrafa, þegar
þéttingin er orðin nógu mikil.
Frá þeirri stundu þarf ökumað-
urinn aðeins að stjórna tveim
fótstigum, hraðastillingunni og
hemlinum, en þar að auki er
að sjálfsögðu handhemill og
afturgírsstilling. Önnur stjórn-
tæki eru hitamælir, snúnings-
teljari, hraðamælir og mælir,
sem sýnir eldsneytisbirgðir.
olíuþrýsting og rafhleðslu.
Þetta er stærsti og dýrasti vagn Renault-verksmiðjanna, Fre-
gate. Hann verður ekki ódýrari við það, að þessi yfirbygging
hans er sérstaklega smíðuð á örfáa bíla. En fallegur er hann.
Aðdragandi
Framhald af 5. síðu.
í meðan þessu fór fram, sat
framkvæmdanefnd Vei’ka-
mannaflokksins á fundi. Hún
hafði komið saman á fund strax
um morguninn, bæði til að
hlýða á skýrslu þeirra Gerös
og Hegediis um viðræðurnar í
Belgrad og til að fjalla um á-
standið heima fyrir. Eftir því
sem bezt er vitað, kom fram
krafa á fundinum um að Nagy
yrði aftur falið embætti for-
sætisráðherra og það án tafar.
Allt bendir til þess að þessi
tillaga hafi mætt mjög harðrí
andstöðu.
En nú dró til tíðinda á göt-
um höfuðborgarinnar. Fundir
og hópgöngur dagsins liöfðu
farið stillilega fram þrátt fyrir
hinn mikla mannfjölda sem tók
þátt í þeim. Fólkið söng ætt-
jarðarsöngva og frelsisljóð úr
sjálfstæðisbaráttu ungversku
þjóðarinnar og auk þess al-
þjóðasöng verkamanna og söng
frönsku stjórnarbyltingarinnar.
Ungverskir fánar voru dregnir
að hún og bornir í fylkingar-
brjósti ásamt rauðum fánum,
en ekki bar á óspektum af
neinu tagi.
Það er enn óljóst með hvaða
hætti óeirðirnar hófust. Frétt
sem barst í gærkvöld frá Bel-
grad hermir þó, að lögreglan
hafi átt upptökin að þeim, og
er skýrt nánar frá því annars
staðar í blaðinu. Líkur eru á
því, að óeirðirnar hafi liafizt
fyrir klukkan 7 í fyrrakvöld
eftir íslenzkum tíma, því að þá
rofnaði allt símasamband milli
Búdapest og landa í Vestur-
Evrópu. Um níuleytið var
fréttasending Búdapestútvarps-
ins skyndilega rofin og hljóm-
plötur leiknar í staðinn. Á mið-
nætti sendi ungverska frétta-
stofan út fyrstu fréttina um að
til átaka hefði komið á götum
höfuðborgarinnar, og að lier-'
menn, lögreglumenn og óbreytt-
ir borgarar hefðu beðið bana í
þeim,
Snjórinn kominn — Snjókast — Rúðubrot — Snjó-
kerlingar skapaðar — Hættulegur leikur
— Skíðasleðarnir
HÚRRA, húrra, kominn snjór,
sungu krakkamir á mánudag-
inn, þegar fór að fenna. Svo
hnoðuðu þau snjóbolta og inn-
an skamms hófst æðisgengin
skothríð um allar götur, svo
að hvar sem maður fór, gat
maður átt á liættu „að fá kúlu
í hausinn“. Sum bömin voru
þó ekkert hernaðarlega sinnuð,
og þau hófu þegar að búa til
ýmiskonar fólk úr snjó, bæði
karla og kerlingar, og það er
miklu hættulausari leikur en
snjókastið; snjókúlumar lenda
nefnilega stundum í einhverju
allt öðru en því, sem þeim var
ætlað að hitta. T.d. kemur það
oft fyrir að kúla, sem átti að
fara í einhvem strákinn, lend-
ir í gluega og brýtur rúðu, og
þá verður annað hvort hin sein-
heppna skytta sjálf, eða for-
eldrar hennar, að draga upp
pyngjuna og borga tjónið.
Kannski reynir einstaka dreng-
ur að bjarga sér á flótta í
slíkum tilfellum, hleypur ems
og fætur toga í hvarf og þyk-
ist svo aldrei hafa brotið rúðu
með snjókúlu. Sem betur fer
held ég þó að færri börn séu
þannig gerð; hin eru fleiri, sem
koma heiðarlega fram og vilja
bæta skaðann sem þau ollu.
— En snjókastið getur verið
býsna hættulegur leikur; t.d.
er mjög illa gert, þegar börn
eru að leika sér að því að
kasta hörðum snjókúlum í bíl-
rúðumar. Bílstjórunum getur
hæglega orðið bilt við, og þeir
misst stjórn á bílnum augna-
blik, og af því getur leitt stór-
slys. Þess vegna á að banna
börnunum þetta mjög ákveðið
og ganga ríkt eftir að þau
hlýði banninu. Og núna, þegar
hált er orðið á götunum, byrja
börnin aftur á hinum stór-
hættulega leik að hanga aftan
í bílum, sem eru á ferð, og láta
þá draga sig eftir götunum. Á
þennan „leik“ hefur oft verið
minnzt hér og bent á hættuna,
sem af honum stafar. Og það
er sannarlega ekki bömunum,
sem þennan lífshættulega „leik“
stunda að þakka að ekki hljót-
ast oftar slys af, og ekki gæti
ég ásakað bílstjórana, þótt slys
hlytist af þessari fíflsku. Og óð-
ar en snjórinn kom, tóku börnin
fram þau leikföng, sem til-
heyra vetri og snjó, og þó fyrst
og fremst skíðasleðana. Á
þriðjudaginn var bókstaflega
ekki hægt að komast um sum-
ar götur bæjarins fyrir skiða-
sleðum. Allir hljóta þó að sjá,
að gatan er ekki heppileg til
skíðaferða, sízt þar sem sleð-
unum stýra oftast smákrakk-
ar, sem ráða ekkert við þá og
hafa enga stjóm á þeim. Heim-
ilisfaðir einn í Smáíbúðahverf-
inu kom að máli við Póstinn
og kvað nauðsynlegt, að lög-
reglan bannaði sleðaferðir
barna um Tunguveginn,
sem er nú orðin mikil umferð-
argata. Þar er einmitt ákjós-
anleg sleðabrekka og er óspart
notuð; en það verður að banna
sleðaferðir um miklar umferð-
argötur. Og ef ekki er talið
fært að framfylgja slíku banni,
þá verður bókstaflega að taka
skíðasleðana „úr umferð'1, með-
an börnin hafa ekki annan
leikvang en götuna. Það er ó-
forsvaranlegt skeytingarleysl
að smábörn skuli vera látin
leika sér á sleðum, sem þau
hafa enga stjórn á, á miklum
umferðargötum.
Amerískiir
Mdirktimður
jög glæsilegt árval
Undirkjólar, verð írá 98,00
Buxur, verð frá 29,00
Hafnarstræti 5