Þjóðviljinn - 25.10.1956, Qupperneq 6
fi)
ÞJÓÐVILJINN — Fmuntudagur 25. október 1956
fUÉÐUIUINN
Útgefandi:
t Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
„Sama þróun” leysir ekki
vandann
Tlíorgunblaðið í gær ber Jó-
hann Hafstein fyrir þeim
ummælum á Alþingi að með
sömu þróun og verið hafi í
byggingamálum sé hægt að
! 'útrýma húsnæðisskortinum á
| næstu 3 árum. Þetta er
hraustlega mælt, en ekki að
sama skani af staðgóðri þekk-
ingu eða raunsæi á þessu
vandasama úrlausnarefni.
Það er að vísu rétt að mikið
af íbúðarhúsum er í bygg-
ingu hér í Reykjavík en fæst
þeirra eru reist með það fyrir
augum að leysa vandamál
þeirra sem verst eru settir og
hafa orðið að sætta sig við
lélegt eða óhæft húsnæði af
efnahagsástæðum. Ekkert al-
mennt átak hefur heldur ver-
ið gert til að leysa húsnæð-
isvandamál unga fólksins sem
er að stofna heimili en hef-
ur lítið fé handa í milli.
Þær íbúðir sem eru í bygg-
ingu á vegum sjálfs bæj-
arfélagsins koma ekki heldur
févana fólki að gagni að ó-
breyttum kjörum. Til þess er
krafizt of hárrar útborgunar
og of illa séð fyrir lánum til
að fullgera íbúðirnar. Það
verður því fremur fjárhags-
getan en þörfin sem ræður
úrslitum um hverjir verða
bæjaríbúðanna aðnjótandi.
Þeir sem verst eru settir, eins
og fátækar barnafjölskyldur
og einstæðar mæður með börn,
sitja því á hakanum.
/~kg fjárhagsstuðningur hins
” opinbera við allan þann
fjö’.da sem er að basla við að
bvggja yfir sig er svo sein-
virkur og af svo skornum
skammti að fólk ýmist býr
við neyðarkjör svartamark-
aðsiána eða gefst hreinlega
upp og missir hús sín og íbúð-
ir i hendur braskaranna.
Margar íbúðir bíða hálfbyggð-
ar árum saman og því erfiður
baggi á því dugmikla fólki
sem varið hefur svefntíma
sínum og öllum frístundum í
þeirri von að komast í eigið
húsnæði í stað þess að þurfa
að búa við húsnæðisskort.
Það sem Jóhann Hafstein
flaskar á er einfaldlega
það. að það eitt leysir ekki
vandann að byrjað sé á svo
og svo mörgum íbúðum held-
ur þarf jafnframt að gera
fólki kleift að ljúka íbúðum
sínum og skapa því þau láns-
kjör að venjulegt fólk geti
búið í íbúðunum án þess að
greiðslugetunni sé ofboðið.
Einnig þarf að koma til raun-
hæft átak af hálfu hins opin-
bera til skjótrar útrýmingar
bragganna og annars heilsu-
sþillandi húsnæðis svo og til
lausnar á húsnæðismálum unga
fólksins. Þessi verkefni hafa
yeriö vaarækt a£ valdhöfum
ríkis og bæjar fram að þessu.
Það eru því hrein öfugmæli
að „sama þróun“ leysi hús-
næðisvandamálið þannig að
viðunandi sé. Hér þarf einmitt
að koma til nýtt átak og ný
stefna í byggingarmálum.
Föst iðja
T*egar líður á síðari hluta
* kjörtímabils bæjarstjórn-
armeirihlutans í Reykjavík,
draga íhaldsfulltrúarnir Bláu
bókina út úr hirzlum sínum
og athuga hversu inikið hafi
verið svikið af loforðum þeim
sem birt voru fyrir næstu
kosningar á undan. Er þar
æfinlega um að ræða obbann
af fyrirheitum Bláu bókarinn
ar. Þessi loforð eru síðan birt
á nýjan leik, sagt að nú þurfi
að gera ósköpin öll á flest-
um sviðum bæjarlífsins, nú
þurfi að semja „generalplön“
um framkvæmdir eins óg
Gunnar Thoroddsen orðar
það. Síðan eru gömlu loforð-
in endurprentuð í nýrri Blárri
bók, og það er hægt að nota
sömu myndirnar að verulegu
leyti, og það þarf ekki ann-
að en umsemja gamalt les-
mál. Allt er þetta til mikils
hægðarauka og hagræðis.
¥vessi fasta iðja bæjar-
* stjórnaríhaldsins er nú
hafin af fullu kappi. Á hverj
um fundi rifjar borgarstjóri
upp gömul fyrirheit og segir
að nú þurfi að fara að vinna
að því að hugsa til að fram-
kvæma þau. En því miður
fyrir borgarstjóra og hans
lið er þessi iðja farin að fá
á sig spaugilegan blæ hjá
bæjarbúum. Almenningur sér
nú orðið fullvel að málefna-
upptalningar Gunnars Thor-
oddsens eru skrá yfir svik
og vanrækslu þess meirihluta
sem fyrir löngu er staðnaður
og stirðnaður á öllum svið
um.
8 U £) I N G A R
HELMINGI
ÓDVRARI
en sambærilegir útlendir 'búðingar.
10 tegundir.
Biðjið um
Rekord búðing
í næstu
matvörubúð.
'fippákcdd gIAcl faaÁJhSL
M
Utvarpstíðindi
j/
„Hvað segirðu í fréttum?"
„Ég segi allt gott“. „Mér þyk-
ir þú segja fréttir". — Dytti
nokkrum í hug að orða þessar
setningar þannig: „Hvað lestu
í fréttum?" „Ég les allt gott“.
„Mér þykir þú lesa fréttir?“
— Nei, það á að segja fréttir,
ekki lesa. Til að komast hjá
löngum útskýringum á jafn
einföldu máli vil ég benda á
flutning þingfrétta: Helgi
Hjörvar segir fréttir af þingi,
les þær ekki.
Sama hátt ætti að hafa á öll-
um fréttaflutningi í útvarp:
segja fréttir. — Einhver
kynni að berja því við,
að lengri tíma taki að
segja fréttir en lesa þær. Það
fer nú raunar eftir því hvort
þulurinn er vel eða illa læs,
en annars er við þessu einfalt
ráð: velja fréttirnar betur:
taka aðeins það sem máli
skiptir — þá þyrfti ekki að
lengja fréttatímana um eina
sekúndu hvað þá meira, mætti
jafnvel stytta þá.
Baldur Bjarnason magist-
er er persðnulegur fyrir-
lesari, og segi ég það þá ekki
honum til lofs einvörðungu:
Erindi hans um Kyrjálaland
var með sömu einkennum og
fyrirlestrar hans flestir: laus-
tengd alþýðleg fróðleiksbrot
sem vel mætti hugsa sér hann
tíndi saman milli kaffis og
kvöldmatar, endursegði síðan
á 20 mínútum þegar hann
væri búinn að borða.
Það er mikil leikaratízka
hér að lesa ljóð með titrandi
viðkvæmni eins og ætlunin sé
að gera mann alveg sturlaðan:
skilja hlustandann eftir með
hjartað fullt af sorg, eins og
hann hafi verið leiddur inn í
hús þar sem bezti vinur hans
var að skilja við. Ljóðalestur •
Ingibjargar Stephensen erj
viðkunnanlegur alla jafna.J
ekki sízt vegna þess að hún1*
er blessunarlega laus við
þennan ofurklökkva. En nú
brá svo við 1 fyrrakvöld, að
hún gaf sig háskalega á vald
þessari húskveðjulist, og má
kannski segja að Sonetta Kilj-
ans hafi gefið nokkurt tilefni
til þess.
Með „Þriðjudagsþættinum"
má segja að ríkisútvarpið nái
fyrst þeirri andans reist sem
marga ágætis menn vora hafði
lengi dreymt um að það næði,
Að þessu sinni ætla ég aðeins
að samfagna þjóðinni vegna
heimkomu Ingibjargar Þor-
bergs frá Ameríku. Það mátti
ekki minna vera en átt væri
við Hana viðtal eftir hvorkl
meira né minna en sex vikna
útivist. Eins og við var að bú-
ast var samtalið einkar upp-
byggilegt og til þess fallið
að glæða bjartsýni manns og
trú á glæsta framtíð hinnar
kjarnmildu íslenzku menning-
ar, einkanlega ef fleiri dægur-
lagasöngvarar íslenzkir gætu
átt kost á svo sem sex vikna
forfrömun meðal amerískra
sem eru sjónvarpstækir alveg
niður að mitti, sbr. upplýsing-
ar ungfrúarinnar um Elvis
Presley. E.B.
1936
1956
B A G S K E Á:
Sameiginleg kaffidrykkja
og fjölbreytt
skemmtiatriði
(Nánar auglýst síðar)
ÞIÓÐVILIINN
20 ára
20 dra afmælishdtíð
Þjóðviljans verður haldin að
Hótel Borg miðvikudaginn 31. oktöbér
(afmœlisdaginn)
AÐGÖNGIT-
M I Ð A K :
Aðgöngumiða
má panta
1 síma 7500 og 7510.
irn' ■1
c v
: .ö.
“r
c.