Þjóðviljinn - 21.11.1957, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 21.11.1957, Blaðsíða 12
~ «T>* isexariynr HúsmœSrakennaraskólanum nú œflaSur sfaSur á efsfu hæ3 Kennaraskólahússins "SSSBBN Tveir íhaldsráSherrar, Björn Ólafsson og Bjarni Bene- diktsson, þvældust fyrir byggingarmálum Kennaraskól- ans í sex ár, frá 1950 til 1956. Það var ekki fyrr en í kosningamánuðinum 1 fyrrasumar að Bjarni Ben. taldi ekki fært að liggja lengur á málinu, og gerði ráðstafan- ir til að nauðsynleg leyfi fengjust til að hefja bygging- una. Núverandi ríkisstjórn hefur fullan hug á aö' hið nýja hús verði reist á sem skemmstum tíma. Þessi atriði komu fram í|halda áfram byggingu ræðum Gylfa Þ. Gíslasonar á fundi sameinaðs þings í gær. ' Þrír íhaldsþingménn höfðu flutt tillögu til þingsályktunar um að „fela ríkisstjórninni að nys Kennaraskóla“. Talaði Sigurður Bjarnason fyrir málinu, en þegar ráðherra upplýsti að byggingunni væri haldið áfram og hefði ekker-t verið bygging- iFiining þjóða Norður-Afríku byggist á sjálfstæði Alsírs Bourguiba, forseii Túnis, kom til Marokkó til viðræðna við Múhameð konung í gær ÍBourguiba, forseti Túnis, kom í gær til Rabat, höfuö'- borgar Marokkó, til viðræöna við Múhameð konung um Alsírmálið. Bourguiba sagði við frétta- ræddi vopnasendingar Breta og ménn á flugvellinum í Túnis, að Bandarikjamanna enn á fundi tilgangur viðræðna hans við Mú- hameð konung væri að staðfesta vináttu þjóða þeirra og leggja 'grurídvöll að einingu allra þjóða 'Norður-Afriku, sem hlyti að byggjast á frelsi og sjálfstæði Alsírs. Maurice Faure, aðstoðarutan- ríkisráðherra Frakka, skýrði sér- stökum fundi frönsku stjornar- ihnar í gær frá viðræðuni Pin- éaus utanríkisráðherra við Dull- es, utanríkisráðherra Bandaríkj- ánna, í Washington. Fréttamenn segja að hann hafi flutt þær fregnir að enginn árangur hafi énn orðið í þessum viðræðum. 1 Fastanefnd Atlanzþandalagsins iJÖOVlUINN Fimmtudagur 21. nóvember 1957 — 22. árgangur — 263. tölubl. Hnsmseira- kvöld KRON Á aðalfundi Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis í vor var samþykkt að efnt skyldi til fræðslu fyrir hús- mæður innan félagsins. Nú hef- úr verið ákveðið að haldin verði húsmæðrakvöld seinni hluta móvember og í byrjun desem- Iber, með sýnikennslu í ábætis- réttum og smurðu brauði, sem Hrönn Hilmarsdóttir hús- mæðrakennari annast. Enn- fremur verður sameiginleg kaffidrykkja. Aðgöngumiðar eru afhentir í matvörubúðum félagsins, sem gefa nánari upp- lýsingar. ,. Aðgangur er ókeypis fyrir fé- iagskonur meðan húsrúm leyf- ir. sínum í gær, en þær. viðræður báru heldur ekki árangur. ■ ■ ..mm. 4 sWwBtwWfc' Leiðtogar Serkja einnig í Marokkó Um sama leyti og Bourguiba kom til Rabat komu þangað tveir af leiðtogum uppreisnar- manna í Alsír, öryggismálastjóri þeirra og hershöfðingi þeirra í Oranhéraði. Talið er líklegt að þelr muni taka þátt í viðræðum hans og konungs. Hópur uppreisnarmanna tók á móti Bourguiba á flugvellinum í Rabat og báru þeir hvita og græna fána sína. arframkvæmdum til fyrirstöðu þegar þau Signrður, Gunnar Thoroddsen og Ragnhildur Helgadóttir fluttu tillögu sína, kom Bjarni Ben til hjálpar óg reyndi hann að bera af sér óg flokki sínum aðgerðarleysið í málinu árum saman meðan þeir Björn Ólafsson voru menntamálaráðherra, en tókst það óhönduglega. Gylfi upplýsti að hann hefði í samráði við bygginganefndir Kennaraskólans og Húsmæðra- kennaraskólans tekið þá á- kvörðun að Húsmæðrakennara- skólinn skyldi verða til . húsa á efstu hæð hins nýja húss Kennaraskólans. Urðu einnig nokkrar orðahnippingar um þá ákvörðun, en húsnæði Hús- mæðrakennáraskólans hefur verið hitamál á Alþingi þing eftir þing, er tillögur hafa komið um að fl.vtja þann skóla í svo til ónotað og albúið hús- næði Húsmæðraskólans á Ak- ureyri. 17 farast í námu- slysi í Skotlandi 17 menn biðu bana þegar sprenging varð í kolanámu í Skotlandi í fyrrakvöld. Um 200 menn voru staddir í námugöng- unum þegar sprengingin varð og tóku þeir sem komust lífs af þátt í ,að bjarg'a líkum félaga sinna. Því starfi var lokið í gær. Þýzkir sósíaldemókratar vara við vígbúnaðinum Telja að fundur stjórnarleiðtoga A-banda- lagsins muni aðeins gera illt verra Flokkur sósíaldemókrata í Vestur-Þýzkalandi gaf i:gær út yfirlýsingu þar sem hann hvetur stórveldin til aö hefja viöræöur í því skyni aö koma í veg fyrir vígbúnaöarkapp- hlaup. Flokkurinn leggur ejnnig á- herzlu á að stóryeldin sjái um að fleiri ríki eignist ekki kjarn- orkuvopn en þau sem hafa þau Stassen vill ekki semja að svo siöddu Harold Stassen, ráðunautur Eisenhowers í afvopnunarmál- nm, sagði í gær að þýðingar- laust væri fyrir Bandarikin að setjast að samningaborði með Sovétríkjunum fyrr en þau Ihefðu eignast gervitungl. Kosningar eina lausn Kekkonens? Ekki eru horfur á öðru en að Kekkonen, forseti Finnlands, neyðist til að rjúfa þing og efna til nýrra kosninga. Allar tilraun- ir til að mynda samsteypustjórn hafa farið út um þúfur og í gær þilkynntu sósíaldemókratar að varla kæmi til mála að þeir mynduðu minnihlutastjórn. ÍR-ingar nr, l Fyrstu fréttir hafa nú bor- izt af handknattleiksliði iR, sem fór í síðustu viku utan til Þýzkalands í keppuisför. Tóku ÍR-ingnr þátt í hrað- keppni í Strassbourg í Frakk- landi á föstudaginn og urðu í öðru sæti. Þeir sigruðu liðið Oran frá Norður-Afríku með 7 mörkum gegn 5, og úrval úr Strassbourg með 10 markum gegn 4, en töpuðu hinsvegar fyrir þýzka liðinu Freiburg með 4 mörkum gegn 10. S. 1. mánudag munu ÍR-ingar liafa keppt við gestgjafa sína, þýzka liðið Hassloch í samnefndri borg, en fréttir um úrslit þess leiks höfðu enn ekki borizt í gær. Hæstaréttardómur í máli Þjóð- leikhúss og Lárusar Sigurbj. llæstiréttur liefur kveðið upp dóm í máli Þjóðleikliúss- ins gegn Lárusi Sigurbjörns- syni. Mál þetta reis, eins og marga lesendur mun reka minni til, út af gjöf eða af- hendingu Lárusar á bókasafni sínu til Þjóðleikhússins. Lárus var um þetta leyti ráðinn starfsmaður yið bókasafnið, en lét síðar af störfum þar og aíturkallaði bókaaflvend- ing-una og flutti bækurnar á brott. Þjóðleikhúsið liöfðaði þá mál og krafðist þess að safninu yrði skilað aftur. I dómi Hæstaréttar er talið að svo náið samband hafi verið milli ráðningar Lárusar til starfans og afhendingar bókanna, að leikhúsið eigi ekki rétt á endurheimt bók- anna nema Lárusi verði boðið starfið að nýju ineð sambæri- leguin kjörunv og áður. Verði lionum ekki boðið starfið inn- an 60 daga frá dómsupp- kvaðningu fellur tilkaíl leik- liússins til bókasafnsins niður. Þjóðleikhúsið var dæmt til Pireiðslu á málskostnaði. Hann segist telja það skyldu vesturþýzku stjórnarinnar að banna að konýð sé upp kjarn- orkuvopnum í Vestúr-Þýzka- landi. Þá s'egir í yfirlýsingunni að hinn fýrirhugaði fundur stjórn- arleiðtoga aðildarríkja Atlanz- bandalagsins og utanríklsstefna Sovétríkjanna, sem byggist á tæknisigrum þeirra að undan- förnu, geti aðeins gert illt verra, aukið yiðsjár og ótt.a nianna við að upp . úr sjóði. Bandaríkin hraða eldflaugasmíði Bandaríska landvarnaráðu- neytið hefur tilkynnt að mjög aukin áherzla verði lögð á smíði flugskeyta og séu líkur á að seint á næsta ári muni Banda- ríkin geta látið einhverja banda- menn sina fá eitthvað af meðal- drægum flugskeytum. Innanríkisráðuneytið hefur til- kynnt að framleiðsla heliums verði stóraukjn, en helíum er m. a. notað til að auðveldá elds- neytisstraum í eldflaugum. Anderson öldungadeildarmað- ur, formaður kjarnorkunefndar Bandaríkjaþings, sagði hinsveg'- ar í fyrradag, að líða mundu a. m. k. tvö ár þangað til Banda- ríkjamenn gætu sent upp gervi- tungl sem jafnaðist á við gervi- tungl Sovétríkjanna. Teikning seld á krónur Síldveiði hefur nú aftur glœðzt eftir langt hlé. Myndir pessar voru teknar um horð í Fróðakletti frá Hafnarfirði fyrr í haust. Lengst til hœgri sést hvar netin koma upp í rúlluna. Á nœstu mynd stendur skipstjórinn, Björgvin Jónsson, og tekur á móti net- unum jafnóðum og pau koma innfyrir á rúllunni, og á myndinni lengst til vinstri er stýrimaður, Guðjón Frímannsson, og hásetar; peir hafa dregið netið aftur með síðunni og slá úr. (Ljósm. Jónas Árnason). 1 gær var selt á uppboði í London 41 blað með teikning- um eftir ítalska málarann Fra Bartolomeo (1472-1517) fyrir samtals rúmlega 100.000 sterl- ingspund eða um 5 milljónir króna. Á sumum blöðunum voru teikningar báðum megin. Eitt þeirra blaða var selt á 8.400 sterlingspund (um 300.000 kr.) Ein teikning um 30 sm á hvorn veg var seld á 6 500 sterlings- pund, eða um 300.030 krónur. Brezk kjarnorku- ver seld Itöluin Brezk fyrirtæki hafa gert samninga- við itaiskt ríkisfyrir- tæki um að byggja kjarnorku- rafstöðvar á Ítalíu. Ein stöðin sem byggð verður á Norður- Ítalíu mun hafa 200.000 kílóvatta afköst. Bretar segjast komnir mun framar Bandaríkjamönnum á þessu sviði. Kjarnorkuofnar þeirra noti þannig náttúrlegt úr- aníurn, sem er mun ódýrara eldsneyti en það sem Banda- ríkjamenn nota.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.