Þjóðviljinn - 13.03.1960, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 13.03.1960, Blaðsíða 11
Sunnudagur 13. marz 1960 — ÞJÓEÍVILJINN — (11 Útvarpið Skipin Flugferðir □ 1 dag er sunnuclagurinn 13. marz — <3. dagu.r ársins — Maeedonius — Tunjfl í há- suSri kl. 0.23; Tunglmyrkvi; fullt tungl kl. 7.26 — Ardegis- iiáflæði ki. 5.31. Síðdegishá- flæði kl. 17.47. Næturvarzla er í Ingólfsapóteki vikuna 12.— 18. marz. tJTVARPIÐ í I?AG: 8.30 -Fjörleg tónlist fyrsta hálf- tíma vikunnar. 9.35 Morguntónleikar: a) „1 Babýlon við vötnin ströng", mótettc, eftir Palestrina. b) „Te deurn" eftir Bruckn- er. c) Tvö lög fyrir strengja- sveit eftir Grieg: a) „Hjarta- sár‘‘ b) „Vorið“. — d) Rap- sódía op. 53 eftir Brahms e) Rapsódia fyrir selló og píanó eftir Bela Bartok. f) „Drottinn er vor sól og skjöldur", kantata eftir Bach. 11.00 Messa i Dómkirkjunni. 13.15 Erindi: Um heimspeki Al- freds North Whiteheads; II (Gunnar .RagnarsSon). 14.00 Miðdegistónleikar: „Óperan „Boris Godúnoff“ eftir Múss- orskij. (Aðalsöngvarar: Bor- is Kristoff, Eugenia Zareska og Nicolai Gedda. Hljóm- sveit útvarpsins í París leikur. Stjórnandi: Issay Dobrowen. — Þorsteinn Hannesson óperusöngvari f'ytur skýringar). 15.30 Kaffitíminn: a) Boston pr.omenade hljómsveitin leik- ur létt lög. b) Lög úr Vín- aróperettum. 16.30 Endurtekið efni: a) Vísna- þáttur Páls Bergþórssonar frá 4. þ.m. b) Frá tónleik- um austurríska píanóleikar- ans Walters Klien s.1. vor. 17.30 Barnatími (Heiga og Hulda Valt.ýsdætur). 18.30 Hliómplötusafnið (Gunnar Guðmundsson). 20.20 Tónleikar: Einar Vigfússon og Jórunn Viðar leika són- ötu í g-moll op. 65 fyrir splló og píanó eftir . Chopin. 20.55 Spurt og spiallað í útvarps- sa’. —- Þátttakendur: Sigurð- ur Ólason hæstaréttarlög- maður. Sveinn Jónsson bóndi íl Egiísstöðum. Sveinn Valfells forstjóri og Valde- mar Kristinsson viðskipta- fræðingur. Sig. Magnússon fulltrúi stjórnar umræðun- um. 22.05 Danslög til kl. 24. 13.15 Búnaðarþáttur: Klipping trj la og hirðing innijurta (Óli Valur Hansson ráðu- nautur). 18.30 Tónlistartími barnanna (Fjölnir Stefánsson). 18.55 Framburðarkennsla r dönskK. 20.30 Hljómsveit R'kisútvarpsins leikur. Stjórnandi er Hans Antolitsch. a) ,,Tancred“- forleikurinn eftir Rossini. b) „Pas de Six“, ballett- músik úr óperunni „Vil- hjálmur Tell“ eftir Rossini. c) Þættir úr ballettinum „Amor gaidrakarl“ eftir de Falla. 21.00 Verzlunarþættir; I: Frum- herjar innlendrar verzlunar á Eyrarbakka (Giiðni Jóns- son prófessor). 21.25 Blásturmúsík: Kvartett fyrir tvo trompeta, horn og bás- únu eftir Maurice Karkoff. 21.40 Um daginn og veginn (Vil- hjá.mur S. Vilhjálmsson rit- höfundur). 22.20 ís'enzkt mál (Dr. Jakob Benediktsson). 22.35 Kammertónleikar: Strengja- kvartett í cis-moll op. 131 eftir Beethoveh. Hvassafell er á Akur- eyri. Arnarfell er í Árósum. Jökwlfell er í Vestmannaeyjum. Dísarfell ,er væntan- legt til Ilornafjarðar á morgun. Litlafell er í olíufiutningum í B',c.xaflóa. Helgafell er í Þorláks- höfn. Hamrafell fór 7. þ.m. frá Reykjavlk áleiðis til Aruba. Drangajökull fór frá Ventspis 10. þ.m. á leið hingað til lands. Langjökull fór frá Vestmannaeyjum i gærkvöld á leið til Ventspils. Vatnajökull er í Reykjavík. Hekla er væntanleg kl. 7.15 frá New York. Fer til Oslóar, Gautaborgar, Kaup- mannahafnar og Hamborgar kl. 8.45. Leifur Ei- ríksson er væntanlegur kl. 22.30 frá Amsterdam og Glasgow. Fer tii New York. kl. 24. Hjúkrunarkonur hafa kaffisölu í Sjálfstæðishúsinu 13. marz kl. 2 e.h. Giftingar Sðsíalista r, skattur, frv. — 2. umr. Ef leyft verður. Nc<ðri deild að loknum fundi í sameinuðu þingi: Jarðræktarlög frv. — 2. umr. Ef leyft verður. ‘ Aðalfundur Sósíalistafélags Akraness verður haldinn í baðstofunni i dag og hefst kl, 2 síðdegis. Dagskrá: Venjuleg aðal- fundarstörf. Kosning fulltrúa á 12. þing Sósíalistaflokksins. Stjórnin. Sa aa ® Félagar! Málfundahópurinn. heldur áfram á mánudagskvöldið kl. 9 í Digra- nesskólanum. Mætið stundvíslega. Fræðs: unefndin Síðacta srindið Siðasta erindið í erindaflokki Félags róttækra stúdenta verð- ur haldið annað kvöld, mánu- dag, í IV. kehnsiustofu Há- skóla Isiands kl. 9. Jón Böðv- arsson fjpHnr um timabilið eft- ir 1950. Öilum er heimill að- gangur. Dagskrá Alþingis mánudaginn 14. marz 1960. Efri deild að loknum fúndí í sameinuðu þingi: 1. Fram- leiðsluráð landbúnaðarins o.fl. frv. — Frh. 2. umr: 2. Sölu- Félags.heimilið er opið alia daga kl. 3—5 og 8—12. Drekkið miðdegiskaffið í hinu vistlega félagsheimili ÆFR — Stjórnin Menningarprógramm í Félags- heimili ÆFR — Brechtkynning. Kynning á verlcum þýzka skálds- ins Bertolt Brecht verður í ÆFR- salnum sunnudagskvöldið 13. þ.m. klukkan 9. — Stutt erindi: Björg- vin Salómonsson. — Upplestur: Kvæði og sögukafli. — Sönglög af plötum úr leikritinu Mutter Cour- age og Túskiidingsóperunni. — Eysteinn Þorvaldsson kynnir lög- in. — Komið og kynnist verkum eins hins mesta meða,l róttækra skálda síðari tíma. SIÐAN LA HUN STFINDAUÐ 26. dagur x Vinnustofa dr. Blows var ekki eins og vanalega, hugsaði prófessor Manciple. Og svo ótt- aði hann sig á því, að í fyrsta skipti í á að gizka tuttugu ár hafði verið tekið til á skrifborð- inu. f stað bóka stóð þar vönd- ur af eilífðarþlómum í glæsi- legum silfurvasa, hann vissi að það stóð vanalega á horn- hillu í andyrinu, beint fyrir.of- an daguerreoljósmynd af afa doktorsins, hinum fræga Steele- útgefanda. Auk þess hafði ver- ið settur aukastóll inn í her- bergið, það logaði á rafmagns- arninum og inni var ilmur af iavendilgólfbóni. Dr. Blow var klæddur fötum, sem Manciple hafði ekki fyrr séð og lavendil- ilmurinn yfirgnæfði mölkúlu- iyktina, þar til komið var alveg að honum. Manciple hafði sjálf- ur skartað með því að festa orðuband í hnappagatið. Það var einhver grísk orða, sem hann hafði eitt sinn meðtekið vegna ritgerðar sinnar um mynt í Trójuborg. En ekker.t af þessu stóðst samjöfnuð við fjólubláa vara- litinn hennar ungfrú Fisk. Hún var með klessu af honum á vísifingrinum og hann litaði frá sér yfir á allt sem hún snerti við. Hún hafði heilsað gömlu mönnunum með handa- bandi og hún hafði fengið lit á tebolluna sína og sömuleiðis á nefið á sér. Eftir auglýsing- unum að dæma átti liturinn að standast hverja raun, meðal annars áköf ástaratlot; það kæmi svo á daginn seinna, hvort doktornum tækist að ná honum af eintaki sínu af Rit- safni Butlers (1749). Eins og margar aðrar hefð- arkonur hafði ungfrú Fisk þjálfað sig í þeirri list að inn- byrða mikið magn af tei og brauði án þess að láta það hindra sig í að stjórna sam- ræðunum. — Já, þökk fyrir. kannski svo sem hálfan bolla, sagði hún, til þess að skola niður þessari indælu tebollu. Karl- menn framreiða alltaf beztu tebollurnar, það hef ég alltaf sagt. Ekki svo að skilja að ég fari oft út með karlmönnum, það megið þið ekki halda. En presturinn er svo hrifinn af tebollum. Og meðal annarra orða — því að mamma mín sagði alltaf; — Maður á ekki að hrósa matnum of mikið, það er . .næstum eins, óheflað og minhast ekki á hann — já, þökk fyrir, kannski agnarlitla í viðbót — en ég verð að fá að segja yður, hvað þér lituð vel út við líkskoðunina, dr. Blow! Hann var svo tigulegur; herra prófessor! Ég held bara að líkskoðarinn hafi farið hjá sér yfir bólunum framan í sér. — Það er sjálfsagt hviml'eitt fyrir líkskoðara að vera með nabba í andlitinu. En ég sá yður ekki við líkskoðunina, ungfrú Fisk. — Þegar lögreglan sagði mér að ég ætti ekki að bera vitni, varð ég hrædd um að þeir myndu ekki hleypa mér inn; en ungi lögregluþjónninn sem fékk blóðnasir og ég varð hrædd um, hann hleypti mér inn. Það var svo undarleg' til- hugsun að síðast þegar ég hafði séð hann, hafði ég hald- ið potthlemmi upp að nefinu á honum — það var svona dálít- ið náið! — Það var vinsamlegt af yð- ur, sagði dr. Blow. En að öðru leyti mjög ópersónuleg athöfn. Til þess að hægt sé að kalla slíkt náið, verða vissar til- finningar að liggja að baki. En hér erum við víst kómin inn á svið. sem við erum ekki sér- lega vel heima í, eða hvað Manciple? — Við skulum halda ung'- írú Fisk utan við það, sagði prófessor Manciple. Ilann varð dálítið rauðbleikur í framan. . — Mér fannst annars lík- skoðarinn býsna ósvífinn, sagði Blow. Svarið bara spurning- unum, sagði hann í sífellu, rétt eins og ég væri með einhverja útúrdúra. Ég er alveg viss um að ég er ekki síður önnum kaf- inn en hann og hef engu meiri tíma aflögu, — Ég held hann hafi ekki gert sér ljóst sambandið milli ljóða Samúels Butlers og' líks frú Sollihulls. — Bersýnilega ekki; þeim mun fremur- var ástæða til þess að hann leyfði mér að Ijúka við tilvitnunina. Og svo krafðist hann þess að ég' kall- aði frú Sollihull „Cuttle sál- ugu“._ Það ruglaði mig í rím- inu, það verð ég að segja. Þeg-^ að kallað er á vitni, ætti það að vera til að gera málið ljós- ara en ekki til að flækja það enn meir. — Að minu áliti sýndir þú mikinn virðuleik og háttvísi. — Ég var að minnsta kosti orðvar. Eí ég hefði verið sá heimskingi að' segja frá' öllu sem við Manciple höfum upp- götvað. . . . — Blow, kæri vinur. það er dýrmætt að yera orðvar. Það kynni að vera hvimleitt fyrir ungfrú Fisk ef við færum að segja henni öll okkar leyndar- mál. — Nei, engan veginn, herra prófessor. Ég er líka afskap- lega orðvörö. Ég er þög'ul eins og gröfin, það segja allir sem þekkja mig. — Ágætt. Ungfrú Fisk, ég er viss um að dr. Blow hefur ekkert á móti því að ég segi yðar eitt: Við erum a5 komast til botns í rúmdýnumálinu. — Nú skil ég ekki almenni- lega hvað þér eruð að fara, Manciple prófessor. -— Ha! sagði dr. Blow. En við höfum rakið slóð yðar, góða mín. Frá Arundel til High Barnet, frá Fowey til Vestur- heiðar! — Enda - þótt þessi ósvifni y*"r k'rni mætavel heim við þá staðreynd að þér smyrjið tebollurnar með smjörlíki. og hvort tveggja stafar víst al þvi að þér vitið ekki hvornig siðað fólk á að haga sér, þá i'innst mér samt framkoma vð- Effit Kenneth Hopkins ^

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.