Þjóðviljinn - 28.06.1962, Qupperneq 5
MESSINA, Sikiley — Réttar-
höidunum gegn munkunum
íjórum frá Mazzarino á Sik-
iley sem sakaðir voru um
margháttaða glæpastarfsemi
er lokið og dómar liafa ver-
ið kveðnir upp. Enda þótt ó-
yggjandi sannanir hefðu ver-
íð Iagðar fram fyrir sök
líiunkanna voru þeir allir
sýknaðir!
Sýknudómarnir eru byggð-
ir á þeirri forsendu að g’æpi
sína hefðu munkarnir, bróðir
Agrippino, bróð.r Venanzio,
bróðir Carmelo og bróðir Vitt-
orio, ekki framið af frjáls-
um vilja, heldur verið til
þeirra neyddir af garðyrkju-
manni klaustursins. Lo Bart-
olo, sem var handtekinn á-
samt þeim, og lézt með vo-
veiflegum hætti í fangelsinu,
áður en tími ha.fði gefizt t:'l
að yfirheyra hann.
Það hafði komið greiniiega
í Ijós í réttarhöldunum að
munkarnir höfðu haft nána
samvinnu við mafíuna, h'ð
alræmda sikileyska glæpafé-
lag, og Lo Bartolo í hæsta 1
lagi verið mil’.isöngumaður
milli hennar og beirra.
Dómarn.'r hafa vakið
hneykslun manna á Ítalíu, en
þó ekki neina furðu, bar sem
allir vita hve öílus maíían
er á Sikiley.
Ekki hefur bað dregið úr
hneykslun manna að hand-
bendi munkanna í glæpa-
verkunum utan klaustursins
voru dæmd í þungar refsing-
ar. Tveir hlutu 30 ára fang-
elsi hvor,- en sá briðji 14 ára
og fjögurra mánaða.
Kommúnisti formaður stúdenta í Cambridge
Brian Pollitt, sonur Harry Pollitt, sem var formaður brezka kommúnistaflokksins en nú er látinn,
var um daginn kjörinn formaður stúdentafélagsins í Cambridge. Hann er fyrsti kommúnistinn sem
kosinn cr í þá stöðu síðan félagið var stofnað fyrir 146 árum. Skömmu fyrir kosninguna var ráð-
izt á Brian og honum misþyrmt. Hann var flutt itr á sjúkrahús og þar gert að meiðslum hans.
A myndinni er Pollitt að þakka félögum sínum fyrir það traust, sem þeir böfðu sýnt honum.
MOSKVA. Moskvublaðið Pravda
birti á sunnudaginn grein um
stefnu Bandaríkjamanna gagn-
vart Atlanzhafsbandalaginu og
þá gremiu sem hún hefur vak-
ið meðal bandamanna þeirra í
Vestur-Evrópu.
Blað.'ð segir að fjögur megin-
atriðin í stefnu Kennedys séu
þessi.
1. Bandarískt herlið á að vera
um kyrrt í Vestur-Evrópu
um óákveðin tíma.
2. Bandaríkin vilja sem fyrr
ráða þvi hvenær kjarnavopn-
Sykuruppskeran
á Kúbu góð þrátt
fyrir þurrka
HAVANA — Bændur og verka-
menn sem unnið hafa við sykur-
uppskeru hafa setið á tveggja
daga ráðstefnu í Havana. Ráð-
herra sykuriðnaðarins, Alfredo
Mendez, og aðrir ræðumenn
skýrðu frá bví að vonir fjand-
manna Kúbu um að illa myndi
til takast með sykuruppskeruna
í ár hefðu brugðizt. Uppskeran
myndi nema fimm milljónum
lesta þrátt fyrir geysilega
þurrka og Kúbumenn gætu
þannig staðið vlð allar skuld-
bindingar sínar um útflutning
á sykri. Ráðstefnan ákvað að
auka sykurræktariöndin um
200.000 hektara og ársframleiðsl-
una upp í sex milljónir lesta.
um verður beitt, en banda-
menn þeirra í Evrópu e.'ga
að leggja til fallbyssufóðrið.
3. Kjarnavopn eiffa áfram að
vera staðsett í Bretlandi, en
Bandaríkjamenn skulu ráða
því hvenær þau verða notuð.
4. Halda skal áfram hervæðingu
Vestur-Þýzkalands.
Hlutur Frakklands skal vera
sá að vera vettvangur fyrir
bandarískt herlið.
Ennfremur segir blaðið að ekki1
sé unnt að segja að þessar á-
ætlan'r Bandaríkjamanna boði
mikinn fögnuð í París og Bonn.
Einkum sé andstaða de Gaulle
áberandi, en hann vill koma á
sínu eigin hernaðarbandalagi
innan Atlanzhafsbandalgsins og
vill hann að það banda.lag hafi
yfir sínum eigin kjarnavopnum
að ráða.
De Gaulle hefur samt lokað
augunum fyrir tveim staðreynd-
um. f fyrsta lagi er Vestur-
Þýzkaland öflugra en Frakkland
og hefur meiri möguleika til að
ná völdum í Vestur-Evrópu. í
öðru lagi mun Vestur-Þýzkaland
að öllum líkindum meta hernað-
arsamvinnu við Bandaríkin meir
en bandalag við Frakka.
Greinarhöfundur fullyrðir að
áætlanir hefndarsinna í Vestur-
Þýzkaland; séu byggðar á hern-
aðarbandalagi við Bandaríkin og
að Vestur-Þjóðverjar ósk; að-
eins eftir samvinnu við Frakk-
landi til þess að se.'nka því að hin
hefðbundna samvinna Frakkands
og Sovétrikjanna verði. hafin á
ný.
skeyti hefur
WASHINGTON — Mistökin, sem orð’iö hafa í bæöi skipt-
in sem Bandaríkjamenn hafa reynt kjarnasprengingu
úti í geimnum hafa vakiö mikinn ugg meöal almennings
í BandarÍKjunum, ekki sízt vegna þess aö flugskeytiö,
sem notaö var í bæði skiptin, Thor-skeyliöj hefur veriö
taliö eitt hiö traustasta sem Bandaríkin eiga.
Fréttaritari frönsku frétta-
stofunnar AFP hefur kynnt sér
málið og komizt að þeirri n.'ður-
stöðu að því fari fjarri að á
þetta flugskeyti sé treystandi,
eins og tilraunirnar yLr Kyrra-
hafi hafa reyndar gefið til
kynna.
Hann segir að „af 82 eld-
flaugum af þessari gerð sem not-
aðar hafi verið til vísindarann-
sókna hafi 72 ekki brugðizt, en
af 71 Thor-flugskeyti sem reynd
hafi verið sem vopn liafi 49 ekki
brugð!zt“. Nærri því þriðja
hvert hernaðarskeyti af Thor-
gerð hefur þannig bilað. Og
þetta eru þau flugskeyti Banda-
ríkjanna sem talin eru hvað
traustust!
Viða hefur verið á þgð bent
að engin afsökun sé fyrir því
að nota skeyti sem jafnlítið er
hægt að reiða s.'g á til tilrauna
af þessu tagi. í bessi tvö skipti
reyndist að vísu hægt að stöðva
villurás skeytanna, en geigvæn-
leg er sú hætta að slíkt kunni
að mistakast ef revnt verður í
þriðja sinn og skevtið ber vetn-
issprengjuná yfir býggt ból.'
Tvær vetnissprengjur liggja
nú á hafsbotni o.g engin trygg-
ing fyrir því að af þeim hljót-
ist ekk: voði.
ðgnun hiutleysi Laos
Á sunnudaginn lýsti liin nýjavinstrisinnaða
hlutleysingja
samsteypustjórn í Laos yfir
vopnahléi í Iandinu. Ennfremur
birti hún yfirlýsingu þar sem
segir að liðsafnaður Bandaríkja-
manna í Thailandi sé ógnun við
hiutleysi Laos.
Einnig var tilkynnt að ákveð-
ið hefðj verið að senda hinn
Um fvesiut er að velja: afvopsiuu eða sjálfsmorð
MOSKVU — Pravda liefur
birt viðtal sem b'.aðamaður-
inn Júrí Sjúkoff hefur átt við
Bertrand Russell. Hann segir
að mannkynið eigi aðeins um
tvo kosti að velja: Annað-
hvort aflsherjar afvopnun eða
þá allsherjar sjálfsmorð.
Hinn aldraðl heimsspeking-
ur minntist þess að fyrir
fjörutíu og tveimur árum,
sumarið 1920, hefði hann
heimsótt Sovétríkin o2 þá
rætt lengi við Lenín. Hann
seg'st hafa dáðst að Lenín,
gáfum hans og skapfestu, en
ekki farið dult með þá von
sína að „hinn gamli heimur
bæri sígurorð af hinum unga
og skæða keppinaut sínum,
hinu sovézka Rússlandi“.
En nú væru tímarnir aðr-
ir og þessi von hefði brugð-
izt. Hinum ungu ríkjum sósí-
alismans hefði stöðugt vax-
ið ásmegin. en hinn gamli
heimur hefði orðið að láta
undan. Orð Clausewits um
að stríð væri aðeins áfram-
hald stjórnmálabaráttunnar
fengju ekki lengur staðizt. Á
kjarnorkuöld væri ekki hægt
að ná markmiðum stjórnmála
með hernaði.
Blaðamaðurinn átti viðtal
við Russell vegna þess að
hann hefur lýst stuðningi sin-
um v.'ð friðar- og afvopnunar-
þing sem haidið verður í
Moskvu í næsta mánuði.
Russell getur ekki sjálfur
farið til Moskvu vegna
heilsubrests, en hann mun
tala ávaro inn á segulband
sem þar verður síðan flutt.
„svo að rödd min he.vrist þar,
hvað sem Gaitskell segir“.
Þar á hann vlð þá hótun for-
ingja Verkamannaflokksins
að víkja honum úr flokkn-
um ef hann afturkalli ekki
stuðning sinn við friðarþingið.
Qu!nim Pho.lsena, sem nú er ut-
anríkisráðherra, til Laosráð-
stefnunnar i stað hins hægri-
sinnaða hershöfðingja Nosavans.
Souvanna Phouma forsætis-
ráðherra fór strax eftir stjórn-
arfundinn á sunnudaginn til Par-
ísar til að • vera viðstaddur
brúðkaup dóttur sinnar. Síðan
mun hann hafdá til Gonfar til
að taka þátt í Laos-ráðstefn-
unni.
í fjarveru hans gegnir hálf-
bróðir hans, vinstri maðurinn
Souphannouvong, störfum for-
sætisráðherra.
Vopnahlésyfirlýs.'ngin á sunnu-
daginn. bindur endi á borgara-
stríð sem háð hefur verið í rúm
13 ár i landinu, en það til-
heyrði áður franska Indókina.
Kirkjukvöld
Hr. Vestergaard-Madsen Kaup-
mannahafnarbiskup flytur erindi
í Hallgrímskirkju í kvöld klukk-
an 8.30. Ingvar Jónasson leikur
á fiðlu, Páll Halldórsson leikur
á orgel og kirkjukórinn syngur.
— Allir vel'komnir. —
Jakob Jónsson.
Fimmtudagur 28. júní 1962 — ÞJÖÐVILJINN — (5