Þjóðviljinn - 17.08.1962, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 17.08.1962, Blaðsíða 3
*,•■■■■■■■■•■■•■■■■■■»•■■■■■•■■■•■■■«■■••■ ■■■■■■•■•■^■■■‘•■■■■m ■■■■■■■■■■•■■■■•■■•■•••■•■■■■■■■■■■■••■■■■■■■■■■■••»• ■•■•■••■•••■•■^■■■•••■■■■■••■•2 ‘í ■ - ' • '• ^ ;<• • ■’■' - _ íslenzk sveit send ó olympíumótið í skák Skáksamband íslands send- ir keppendur á fimmtánda Ol- ympíumótið.' í skák, ■ sem haldið verður í borginni Varna, Búlgaríu, við Svarta- haf. Mótið hefst 15. sept n. k., og því lýkur 10. okt., hafa 34 ■' þjóðum þegar ■ tilkynnt þátttoku. Þetta ér sveitakeppni, og eru fjórir aðalmenn í hverri yngsta sveit, sem íslending- ar hafa sent á Olympíuskák- mót. Allir eru þetta þó reynd- ir skákmenn. Friðrik er skák- meistari íslands í ár, Arin- björn stóð sig með ágætum í Olympíuskákmótinu í Leip- zig 1B60, en þar var hann taplaus. Jón Pálsson varð þriðji á skámóti Norðurlanda á s.l. ári, Björn er annar maðu.r í landsliði íslands í ár, en Jónas varð í fimmta sæti í landsUðskeppninni og Jón Kristinsson í sjötta. Fararstjóri verður Friðrik Ólaf-sson. Ríki og Reykja- víkurborg veittu fjárstuðning tvl fararinnar, og verður flog- ið til Lúxemborgar, en þaðan tekur við tveggja daga ferð með járnbraut. sveit og tveir varamenn. Lið íslands verður þannig skipað, að á fyráta borði teflir Friðrik Ölafsson, stórmeistari, öðru bor"'i. Arinbjörn Guðmunds- son, á þriðjá borði Jón Páls- son, og á fjórða borði Björn Þorsteinsson. — Fyrsti vara- maður er Jónas Þorvaldssm, en annar er Jón Kristinsson. Skákmenn þessir eru ungir að áru.m, meðalaldur er 25 ár, og mun þetta vera ein Jón Pálsson Friðrik Ólafsson Alþjóðleg sveitakeppni í skák var fyrst haldin í Lond- on 1927, en það er ekki fyrr en 1930 í Hamborg, sem Is- lendingar voru fyrst þátttak- endu.r. Keppni þessi hefur síðan verið haldin á tveggja ára fresti, og hafa fslending- ar tekið þátt í nokkur skipti, oft með eftirtektarverðum árangri, og mun mörgum minnisstætt, er islenzka sveit- in sigraði í B-flokki úrslita- keppninar í Buenos Aires 1939. ★ Næsta Olympíumót verður haldið 1964 í ísrael. (Frétt frá Skáksambandi íslands). Sparfs jéíur Hveragerðis' tekur tl! starfa í dag I dag, föstudag, verður Spari- sjóður Hveragerðis opnaður í vistlegum húsakynnum að Breiðu- mörk 19, Hveragerði. Sparisjóðurinn var stofnaður á síðastliðnum vetri og voru á- byrgðarmenn 40 talsins. Tilgang- ur sjóðsins er fyrst og fremst sá, að auka sparnað yngri og eldri og greiða fyrir almennum pen'ngaviðskiptum á staðnum og í nágrenninu, segir í fréttatil- kynningu frá sparisjóðsstjórn. en hún er þannig skipuð: Formaður Stefán J. Guðmundsson hrepp» stjóri, Bragi Einarsson garðyrkju- maðu.r og Rögnvaldur Guðjóns-f son verkstjóri. Starfsmenn sparisjóðsins verð* fyrst um sinn þau Ragnar G. Guðjónsson sparisjóðsstjóri o® Brynhildur Baldvins. ÁkveðiS hefur verið að sjóðurinn verði opinn fjórum sinnum í viku. á mánudögum, miðvikudögum o§; föstudögum kl. 5—6.30 síðdegiS og á laugardögum kl. 11—12 á.r« degvs. Fara þá fram öll venjule^ sparisjóðsviðskipti. Kennurum á Isafirði ? greiddar launauppbæfur Svik borgqrstiárnaríhaldsins: HEFUR DREGIÐ BYGGINGU BARNAHEIMILIS I TVÖ ÁR Á borgarstjórnarfundi í gær vísaöi íhaldsmeirihlut- inrij á bug tiliögu Öddu Báru Sigfúsdóttur um aö tafar- laust yröu hafnar framkvæmdir við byggingu dagheim- ilis viö Grænuhlíð, sem borgarráö samþykkti fyrir tveim árum, aö hefjast handa um. Á fundinum bar Adda Bára fram eftirfarandi fyrirspurn: Hvers vegna hefur útboð á bygg- ingu dagtheimi'.is við Grænuihlíð ekki enn farið fram? Sagði hún i framsöguræðu, að 13. septem- ber 1960 hefði verið lagður fram á borgarráðsfundi upp- dráttur Bárðar Daníelssonar að fyrirhuguðu dagheimili við Gi’ænuhlíð og þá samþykkt að liáta bjóða út framkvæmdir og Innkaupastofnuninni falið að annazt útiboðið. Jafnframt upp- lýsti hún, að síðan 1960 hefði á fjánhagsáætlun verið veitt fé til þessara framkvæmda. Þrátt fyrir iþetta hefði útboðið ekki farið fraim enn. Á borgarstjómarfundi á fyrra mánúði hefði borgarstjóri sagt að það yrði gert í næstu viku en gíðan hefði ekkert frek- ar , um það heyrzt. Borgarstjóri kvað útboðið væntan’.egt næstkomandi þriðju- dag. Ástæðan fyrir því, að dreg- izt hefði í tvö ár að hefja fram- kvæmdir við dap'heimilið væri fyrst O'g fremst fjárskortur. Fjár- veiting til þessara framkvæmda hefði verið alit of lág og hefði framlagiö verið látið renna til byggingar vcggustofu Tihorvald- sensfélagsins við Hlíðarenda. Væri nauðsyniegt að afla við- bótarfjármagns ti’. þess að geta byggt heiimilið í einum áfanga cg væri nú u.nnið að útvegun iþess. Adda Eára yitti slnnu’eysi borgarstjórnarmeirihlutans i iþessu mali. Berjti hún á,- að 'þótt b.vgging vöggustofu.nnar 'hefði verið nauðsynleg fram- k'væmd, hefði bæjarfélaginu ve'r- ið enn meiri þörf á dagiheimili og þess vegna vafasamt að taka fé frá V>ví lil vöggustofunnar. Fjár til hennar hefði Reykja- Framhald á 10. síðu Sökum alvarlegs kennaraskorts við Barnaskóla Isafjarðar og Gagnfræðaskólann á Isafirði samþykkti bæjarstjórn Isafjarðar j 14. þ.m. samhljóða að greiða' öll- um kennurum téðra skóla staðar- uppbót næsta skólaár. Auka- greiðslur þessar eru kr. 750,00 til hvers kennara á starfsmánuð, — þ. e. í 9 mánuði, eða til hvers kennara kr. 6.750,00 yfir skólaár- ið. — Enfremur eru nokkrar stöður lausar við ísfirzku skól- ana. Samþykkt bæjarstjórnarinnar í þessu efni er byggð á samhljóða ósk fræðsluráðsins á ísafirði, en á fundi þess 13. þ. m. var samþ. svohlóðandi tillaga með atkv. allra fræðsluráðsmanna: „Þar sem barnaskólinn hefir undanfarið búið við svo alvar- legan kennaraskort, að ekki hefir tekizt, — þrátt fyrir mikla auka- vinnu kennaranna, — að halda uppi lögboðinni fræðslu samkv. námsskrá, og þar sem enn hefir engin umsókn borizt um aug- lýstar kennarastöður við skól- ann, svo og með tilvísun til þess að allar líku.r benda til að ennþá alvarlegra vandamál í þessum efnum sé að skapast i Gagn- fræðaskólanum verði ekkert að- hafst í málinu samþykkir fræðsluráðið að beina þeirri á- kveðnu osk til bæjarstjórnar ísa- fjarðar, að samþykkt verði að I bæjarsjóður greiði kennurum tyðra skóla staðaruppbót á laun j skólaárið 1962—1963, sem hér segir: a) skólastjóra barnaskólans kr. 1000,00 pr. starfsmánuð. b) kennurum skólanna kr. 750,00 pr. starfsmánuð. Greiðslur þessar miðist við fullt kennslustarf. Þeir kennarar, sem ekki gegna fullu starfi fál staðaruppbætur í hlutfalli viði starf sitt. 1 sambandi við ofanritaða sam* þykkt vill fræðsluráðið minna á» að á s.l. sumri barst engin um- sókn um stöðu skólastjóra Gagn» fræðaskólans fyrr en bæjarstjórn samþykkti að greiða skólastjór- anum launauppbætur, — en þ4 bárust fimm umsóknir enda þótt umsóknarfresturinn væri þá að- eins fáeinir dagar.“ Ennfremur samþ. fræðslurá® Isafjarðar samhljóða eftirfarandl tillögu á fundi sínum 13. ágúst sl.: „I tilefni af hinum alvarlegar kennaraskorti beinir fræðsluráð ísafjarðar þeim ákveðnu kröfurn til ríkisvaldsins, að launakjöp kennara verði sem allra fyrst hækkuð svo verulega, að kenn- arastarfið verði eftirsótt og þann- ig á raunhæfan og varanlegari hátt ráðin bót á því ófremdar- r.standi, sem nú ríkir í þessun* efnum. — Jafnframt vill fræðsluráðið vekja athygli allra hlutaðeigandi aðilja á því, að það telur að ekkL verði hjá því komizt að greiða staðauppbætur til kennara úti á landi, og minnir í því sambandl á lau.nagreiðslu fyrirkomulag varðandi héraðslækna." Tvö innbrot í fyrrinótt voru framin tviF innbrot, annað hjá J. Þorlákssort ig Norðmann við Skúlagötu og hitt í Prónastofuna Snælduna sem er í næsta húsi við J. Þor- láksson og Norðmann. Á fyrr- nefnda staðnum var stolið 5* tveggja króna peningum en engii á síðari staðnum. Tjónið af togaraverk- fallinu er ómetanlegt Togararnir koma nú af Grænlandsmiðum með ágætan afla, sumir með fullfermi og aðrir með mjög gott. 1 þessari viku hafa 5 skip landað, Þor- kell máni 339 tonnum (full- fermi), Haukur 328 tonnum (fullfermi), Fylkir 280 tonnum og Þormóður goði 300 tonnum. Þessi skip voru öll við A- Grænland. Askúr var á heimamiðum og landaði 189 tonnum. 1 dag eru vætanlegir frá Grænlandi Víkingur með 450 tonn (fullfermi) og Júpíter með góðan afla. Allt er þetta karfi. Ekki er ástæða til að ætla að allur þessi karfi hafi flykkzt á Grænlandsmið ein- mitt um það leyti, sem ís- lenzku togararnir voru að láta úr höfn eftir 4 mánaða stopp. Það sannast því af þessari miklu veiði að stirfni útgerð- armanna í deilunni við tog- araháseta hefur valdið þjóð- inni óbætanlegu tjóni. Tjóni, sem ógerningur er að meta til fjár. Og ríkisstjórnin verður að fá útlendinga til að ljúga að landslýðnum að „viðreísnin" hafi tekizt vel. Föstudagur 17. ágúst 1962 — ÞJÖÐVILJINN —

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.