Þjóðviljinn - 22.06.1963, Blaðsíða 5
Laugardagur 22. júní 1963
HðÐVILIINN
SÍÐA g
Golfkennsla
Golfkennslan á Grafarholts-
vellinum er nú byrjuð aftur.
Pöntunum á tímum veitir Kári
Elíasson mótt. kl. 10—11 f.h.
mánudaga til föstudaga í síma
10375 og einnig er haegt að
tala við kennarann sjálfan í
síma 14981 daglega kl. 15—15,30.
Þeir sem ekki eiga kylfur geta
fengið þær lánaðar ókeypis hjá
félaginu.
Kennsla fyrir unglinga er á
miðvikudögum kl. 17—20. Er þá
öllum séð fyrir nauðsynlegum
áhöldum og kennslu án end-
urgjalds.
(Frá Goifklúbb Reykjavíkur).
Framlag
Hringsins orðið
6. millj. kr.
Kvenfélagið Hringurinn hélt
aðalfund sinn 30. maí síðastlið-
inn. Fyrst minntist formaður 2ja
félagskvenna sem látizt höfðu á
árinu, en þær voru frú Ólöf
Bjömsdóttir og frú Sigríður
Fjeldsted. Fundarkonur vottuðu
minningu þeirra virðingu sína
með því að risa úr sætum.
Næst fóru fram venjuleg aðal-
fundarstörf. Stjómarkosning fór
fram að þessu sinni, en samkv.
lögum félagsins fara þær fram
annaðhvort ár. Formaður var
kosin frú Sigþrúður Guðjóns-
dóttir, en aðrar í stjórn frú Mar-
ía Bemhöft, ritari. frú Lára Bier-
ing, gjaldkeri, frú Dagmar Þor-
láksdóttir og frú Hólmfríður
Andrésdóttir. 1 varastjórn voru
kosnar þessar konur: frú Anna
Hjartardóttir, frú Björg Thorodd-
sen. frú Ragnheiður Einarsdóttir
og frú Steinunn Sigurðardóttir
(Sívertsen).
í fjáröflunarnefnd voru kosnar:
frú Sigríður Jónsdóttir, Bólstað-
arhiíð 25, frú Bryndís Jakobs-
dóttir, frú Ida Daníelsdóttir, frú
Sigríður Jónsdóttir Hrefnugötu
10, frú Eufemía Georgsdóttir. frú
Guðbjörg Birkis og frú Ágústa
Sigfússon.
Nefnd var kosin til þess að sjá
um innkaup og allan útbúnað á
Barnadeildina, og er frú Guðrún
Hvannberg formaður þeirrar
nefndar. Tekjur Barnaspítalasjóðs
á árinu voru rúmar 850 þúsund
krónur. 1 desember síðastliðnum
var afhent 1 milljón króna til
byggingar Bamaspítalans, og
nemur þá framlagið til hans sex
milljónum króna. Eignir spítala-
sjóðs eru ávaxtaðar í verðbréf-
um og í sparisjóðsbókum. Reikn-
ingar sjóðsins og félagsins eru
endurskoðaðir af löggiltum end-
urskoðendum, og verða þeir birt-
ir í B-deild Stjómartíðinda. —
Á kosningadaginn síðasta efndi
félagið til merkjasölu í Reykja-
vík, og söfnuðust þá um 110
búsund krónur. Fyrir alla þá
rausn og velvild. sem félagið
hefur notið hjá öllum almenn-
ingi, svo og fyrirtækjum og ein-
staklingum sem gefið hafa stór-
fé', vill það færa sínar inni-
legustu þakkir. Vonir standa til
að Bamadeildin geti tekið til
starfa næsta ár.
'filja stöðva út-
breiðslu kjarna-
vopna
LONDON 2176 — I dag birtist
grein eftir Harold Wilson, for-
mann brezka verkamannaflokks-
ins, í blaðinu Daily Herald, og
skýrir hann þar frá heimsókn
sinni til Sovétríkjanna og við-
ræðum sínum við Krústjoff for-
sætisráðherra. Honum segist
meðal annars svo frá að sovézku
leiðtogamir hafi skýrt sér frá
því að Kínverjar myndu ákaft
krefjast kjarnavopna af Sovét-
ríkjunum ef Vestur-Þjóðverjar
yrðu aðilar að kjarnorkuher Atl-
anzhafsbandalagsins.
Wilson segir ennfremur að
i-áðamenn í Spvétríkjunum hafi
samþykkt tillögur sínar um
samningaviðræður milli austurs
og vesturs í því skyni að ná
samkomulagi um að stöðva út-
breiðslu kjamavopna og séu
beir mjög áfjáðdr í að slíkur
samningur verði gerður hið
skjótasta.
I. deild
KR vann Fram 2:0
Framarar töpuðu fyrsta leik sínum í íslands-
mótinu er þeir mættu KR-ingum á fimmtudags-
kvöldið. Er sigur KR-inga fyrsti sigur þeirra í
mótinu til þessa. Framarar hafa þó enn hreina
forustu ef-tir 4 leiki en Akranes og Valur eru
ekki langt á eftir.
Fyrri hálfleikur 0:0
Fram átti heldur meira í
fyrri hálfleik en ekki tókst
þeim að skora frekar en fyrri
daginn. Björn Helgason gerði þó
heiðarlega tilraun á 5. mín. er
hann skallaði fast í þverslá og
Hrannar fékk knöttinn, en það
fór á sömu leið, knötturinn
vildi ekki í netið og smaug
yfir þverslána.
Um miðjan hálfleikinn varði
Heimir glæsilegt skot Baldvins
af markteig en þar skall hurð
nærri h.æum.
KR-ingar fengu tækifæri litlu
síðar og það ekki af verri end-
anum. Geir var hlaupinn úr
markinu og Gunnar Fel. lék
lausum hala inn í vítateignum.
En Fram-vömin stillti sér upp
í markinu og skallaði Gunnar
í einn þeirra sem bægði hætt-
unni fá.
Síðari hálfleikur 2:0
KR-ingar mættu ákveðnir i
síðari hálfleik og náðu fljót-
lega tökunum á leiknum. Á
12. mín. kom fyrra markið, en
það var Jón Sigurðsson sem
skallaði glæsilega föstum bolta
£ netið. Geir gerði enga til-
raun til vamar en átti þó
góðan möguleika á að verja.
Fram-liðið varð fyrir því ó-
láni að Guðjón Jónsson varð .
að yfirgefa leikvöllinn þegar
18 mín. voru liðnar af síðari
hálfleik, eftir samhlaup við
Sigþór og töldu fróðir menn
að um sprungu í fólegg gæti
verið um að ræða. Léku Fram-
arar því aðeins 10 það sem eft-
ir var leiksins.
Annað mark KR setti Gunn-
ar Felixson með glæsilegu ská-
skoti af stuttu færi efst í mark-
homið. Mark þetta kom nokk-
uð á óvart því Gunnar var í
fremur erfiðri stöðu og svo átti
Geir að geta lokað markinu.
En Gunnar skoraði engu að
síður.
Þorgeir Lúðvíksson komst í
dauðafæri á 32. mín en var
gróflega hindraður af nýlið-
anum Ársæli Kjartanssyni. Á-
horfendur voru á einu máli um
að hér hefði átt að dæma víta-
spyrnu, en dómarinn Haukur
Óskarsson var á öðru máli.
Leiknum lauk með réttlátum >
sigri KR-inga, en ekki var
Gunnar Felixson skorar síðara mark KR (Ljósm. B.B.).
Þróttarblaðið
ný komið úf
Félagsblað Knattspyrnufé-.
lagsins Þróttar er komið út og
er það hið myndarlegasta að
vanda. Fjöldi greina er í blað-
inu ásamt fjölda mynda. Með-
al efnis í blaðinu er handknatt-
leiks- og knattspymuannálar.
Sjósund, grein eftir sundkapp-
an Eyjólf Jónsson um sjósund
frá aldamótum. Bessastaða-
sundið, grein um þá fjölmörgu
er það hafa synt ásamt fjölda
mjmda er prýða þessar grein-
ar. Dómaraþáttuf, i léttum
dúr. Hver er félaginn? Grein
um einn af forustumönnum
Þróttar. Skotlandsferðin, rituð
í þjóðsögu-„stíl“. Reykingar
unglinga, grein um skaðsemi
sígarettunnar.
★
Ýmislegt fleira efni er að
finna í blaðinu skopmyndir,
skrítlur og ýmsan fróðleik.
Dreifing á blaðinu í verzlanir
er þegar hafin.
hægt að sjá það á leik liðanna
hvort þeirra skipaði efsta sæt-
ið í deildinni.
Liðin.
KR-ingar hugðust nota Garð-
ar Ámason í þessum leik en
Garðar var ekki vel heill í fæti
og gat því ekki leikið með.
Gunnar Guðmannsson tognaði í
fyrri hálfleik og varð að fara
útaf en inn kom Theodór
Guðmundsson. Hörður Felixson
réði ekki við hraða Baldvins en
þó virðist Hörður liðkast með
hverjum leiknum sem líður.
Bezti maður framlínunnar var
Gunnar Felixson hann var oft
hættulegur upp við markið.
Sveinn og Ellert sluppu ágæt-
lega frá leiknum. Heimir í
markinu átti rólega kvöldstund.
1 liði Fram tekur Björn
Helgason mestum framförum en
hann samlagast nú betur lið-
inu með hverjum leiknum sem
líður. Hrannar kemur líka til
með meiri æfingu. Annars var
Fram-liðið líkt og áður nema
það að „heppnin" var ekk; með
þeim að þessu sinni.
S T A Ð A N
L. V. T. J. st. M.
Fram 4 3 1 0 6 3:2
lA 3 2 1 0 4 5:5
Valur 2 1 1 0 2 3:1
ÍBK 3 1 2 0 2 4:5
IBA 3 1 2 0 2 5:6
KR 3 1 2 0 2 3:5
Guðmundur Gislason, sundkappi
Glæsilegt íslandsmet í
200 m flugsundi karla
Nýlega fór fram hér a
landi fyrsta úrtökukeppn-
in fyrir meistaramót NorS-
urlanda í sundi, sem háð
verður í Osló í ágústmán-
uði næst komandi. Á mót-
inu voru sett tvö íslands-
met, í 200 metra flugsundi
karla og fjórsundi kvenna.
Þar voru að verki þau
Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir og Guðmundur
Gíslason. Þetta er fyrsta
skipti sem keppt er í fjór-
sundi kvenna hérlendis.
Afrek Guðmundar í 200
metra flugsundinu er sér-
lega glæsilegt, en hann
bætti tímann í þeirri grein
úr 2.40,3 í 2.28,6 og vann
sér þar með rétt til þátt-
töku í Norðurlandmótinu,
en ákveðinn lágmarkstími
hefur verið settur í hverri
grein, sem skilyrði fyrir
þátttöku.
Breiðablik vann
Reyni með 5:2
Á miðvikudagskvöldið léku
Breiðablik í Kópavogi og Reyn-
ir í Sandgerði í 2. deild og
lauk leiknum með yfirburða-
sigri Breiðabliks, 5:2. Breiða-
bliksmenn skoruðu öll sín
mörk á undan Reynismönnum.
Beztur árangur náðist í eftir-
töldum greinum á hessu úr-
tökumóti:
200 m flugsund:
Guðmundur Gíslason, IR
2.28,6 (Isl. met. Lágmarkstími
til þess að fá rétt til keppni
á Norðurlandamótinu í þessari
grein er 2.32,0).
200 m bringusund kvenna:
Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
ÍR 3.03,3. (Lágmarkstími til
þátttöku 3.00,0).
Fjórsund kvenna:
Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
IR 6.39,8.
Þetta er £ fyrsta skipti, sem
keppt er i þessari grein hér
á landi og er timi Hrafnhild-
ar þvi Islandsmet. Lágmarks-
timi til þátttöku i Norðurlanda-
mótinu er hins vegar 6.05,0. —
Davíð Vaigarðsson, ÍBK synti
400 metra skriðsund karla á
4.59,4, en lágmarkstími til
þátttöku í þeirri grein er 4.45,0.
Nýkomið
Sorplúgur.
Cempexo
mólning
SAMBAND
ISLENZKRA
BYGGINGAFÉLAGA
LAUGAVEGf 105 SÍMI - 17992
i
I
I
I
>