Þjóðviljinn - 10.09.1964, Blaðsíða 4
SIÐA
ÞIÓÐVILIINN
Fimmtudagur 10. september 1964
Otgetandi:
Sameiningarflokkur alþýðu
urinn —
Sósialistaflokk-
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19,
Simi 17-500 (5 linur) Áskriftarverð kl 90,00 á mánuði
rr
Ofsagróðinn
n
jþegar núverandi ríkisstjórn og ráðherrar hennar
hafa verið að streitast við að telja mönnum trú
um það, að kaupgjald launastéttanna mætti ekki
hækka, — og sá söngur hefur oft kveðið við úr
herbúðum stjórnarinnar á valdatíma hennar, hef-
ur oft verið ’til þess vitnað, að úrtak úr skatta-
framtölum launamanna sýndu og sönnuðu stór-
bætt kjör vinnandi fólks. Fleiri og verðminni við-
reisnarkrónur, sem engan veginn hafa vegið upp
á móti dýrtíðarholskeflu viðreisnarinnar og laun-
þegar hafa orðið að afla sér með óheyrilegri yfir-
vinnu, hafa verið metnar til beinna kjarabóta af
ríkisstjórninni.
j>að er líka í skálkaskjóli skattskrárinnar sem
Mbl. birtir í fyrradag af miklu yfirlæti leið-
ara undir fyrirsögninni: „Hvar er ofsagróðinn?“
og er því þar haldið fram, að óhæfilegur gróði ein-
staklinga eða fyrirtækja þekkist naumast lengur
hér, „enda er það á allra vitorði, að tekjujöfnuð-
ur er hér meiri en líklega í nokkru öðru þjóðfé-
lagi“, segir Morgunblaðið orðréttt. Það var einkar
vel til fallið hjá Morgunblaðinu að grípa til þess
að benda á skattskrána máli sínu 'til stuðnings að
þessu sinni, þar sem niðurstöður hennar eru mönn-
um áreiðanlega í fersku minni ennþá. Það er vissu-
lega hægt að „sanna“ tekjujöfnunarkenningu
Morgunblaðsins með ótal dæmum úr skattskránni.
Málgagn hins stjórnarflokksins, Alþýðublaðið,
lýsti þessari „tekjujöfnun“ Morgunblaðsins m.a. á
eftirfarandi hátt í leiðara 5. ágúst s.l.: „Fjöldi
hinna sönnu auðmanna þjóðfélagsins greiðir ekki
meiri útsvör og skatta en miðlungs fas’tlaunamenn,
þótt þeir hljóti að hafa margfalt meiri tekjur ...
Mennirnir, sem eiga heildsölufyrirtæki og byggja
skrifstofuhallir, greiða álíka mikið af sameigin-
legum kostnaði borgar og ríkis og skrifstofumenn,
verkstjórar og iðnaðarmenn. Fólkið, sem býr í
milljónavillum og ekur Mercedes um lapdið, virð-
ist géta sloppið við að greiða meira til hins op-
inbera en allur fjöldi fastlaunamanna“.
Jjetta er sá „tekjujöfnuður“, sem er „á allra vit-
orði“ og lesinn verður á síðum skattskrárinnar.
Og Morgunblaðið getur að sjálfsögðu verið hreyk-
ið, því að það veit sem er, að markmið viðreisn-
arinnar var einmitt að breyta tekjuskiptingu þjóð-
arinnar fámennum hópi gróðamanna í hag; breyt-
ingar viðreisnarstjórnarinnar á skattalögunum
voru í upphafi miðaðar við að hygla þeim og opna
þeim leiðir til þess að stinga gróðanum undan.
Þær leiðir eru að sjálfsögðu notaðar út í yztu
æsar, en að auki eru skaftsvikin eitt helzta ráðið
til þess að fela ofsagróðann og Morgunblaðið er
að hælast um yfir þessu. þegar það vitnar í skatt-
skrána og spyr síðan: Hvar er ofsagróðinn? Því
er fljótsvarað. að hann er hjá þeim sem svíkja
mest undan skatti, og skrif Alþýðublaðsins hafa
borið það með sér, eins og vitnað er til hér að
framan, að ráðherrum og ríkisstjórn er fullkunn-
ugt um. hvar þá er að finna. Og af þeim sökum
m.a. á almenningur heimtingu á tafarlausri leið-
réttingu ska'ttaránsins í ár. — b.
Pedersen kastar 91,72 m.
Hér á myndinni sést, er Norðmaðurinn Terje Pedersen
setti heimsmetið í spjótkasti 91,72 m. í landskeppni við
Tékka nú fyrir skemmstu.
Vinnur eiðinn fyrir
8 þús. keppendur
í fimleikum, ein í Melbourne
og þrenn í Róm.
Einnig hefur fánaberi jap-
anska liðsins verið valinn, 24
ára gamall sundmaður Makoto
Fkui að nafni. Iiann vann ein
silfurverðlaun á síðustu- Ol
ympíuleikum.
Japanir hafa nú valið fyrir-
liða keppenda sinna á Olympíu-
leikunum, sem hefjast hinn 10.
október n.k„ og fellur það i
hans hlut að vinna Olympíu-
eiðinn fyrir hönd allra þátt-
takenda, sem eru yfir 8000
talsins. Nafn þessa manns,
Takashi Ono, er vel þekkt frá
fyrri Olympíuleikum. Hann er
32 ára gamall og hefur tekið
þátt i Olympíuleikunum frá
því í Helsingfors árið 1952, og
hefut unnið fern gullverðlaun
Bikarkeppni KSÍ
KRb
Breiðablik
sigraði
KR-b sigraði Breiðablik í
Kópavogi með 2:1 í fyrrakvöld.
Breiðablik setti fyrsta markið
en KR kvittaði á síðustu. mín.
i fyrri hálfleik. Sigurmarkið
skoruðu KR-ingar beint úr fri-
sparki utan vítateigs. Dómari
var Carl Bergmann.
Næsti leikur í bikarkeppn-
inni fer fram á Akureyri næsta
sunnudag kl. 4, þar msetast
ÍBA og Fram-b. Það lið sem
sigrar í þeim leik heldur svo
áfram keppni ásamt KR-b og
1. deildarliðunum.
Unglingamót
Norðurlando
Stjórn Handknattleikssam-
i bands Islands hefur ákveðið
' þátttöku í Unglingakeppni
Norðurlanda, Sem haldið verður
í fyrsta skipti í Svíþjóð næsta
sumar. Miðað er við að kepp-
endur séu ekki eldri en 18 ára.
Þá eru ákveðnir tveir lands-
leikir við Danmörku og verð-
ur hinn fyrri hér á landi í júli
næsta sumar en hinn síðari í
Ðanmörku þar næsta sumar.
Radíótónar
Laufásvegi 41 a
Drengir og ungi-
ingur ó FRI-móti
Eins og sagt var frá í Þjóðviljanum í gær verður ung-
lirigakeppni FRÍ haldin á Melavellinum hér í Reykjavík
um næstu helgi. Keppt er í fjórum aldursflokkum pilta
og einum stúlknaflokki. Hér á eftir fara nöfn þeirra
drengja og unglinga sem unnið hafa sér rétt til þátttöku.
DRENGIR:
100 m. hlaup:
Ólafur Guðmunsson, KR.
Reynir Hjartarson, IBA.
Einar Gíslasonf/KR.
Haukur Ingibergsson, HSÞ.
400 m. hlaup:
Ólafur Guðmundsson, KR.
Einar Gíslason, KR.
Halldór Guðbjömsson, KR.
Þorsteinn Þorsteinsson, KR.
800 m. hlaup:
Halldór Guðbjörnssón, KR.
Þorsteinn Þorsteinsson, KR.
/ Marinó Eggertsson, UNÞ.
Guðmundur Guðjónsson, IR.
1500 m. hlaup: \
Halldór Guðbjörnsson, KR.
Marinó Eggertsson, UNÞ.
Guðmundur Guðjónsson, IR.
Þorsteinn Þorsteinsson, KR.
110 m. grindahlaup:
Reynir Hjartarson, ÍBA.
Erlendur Valdimarsson, ÍR.
Halldór Guðbjörnsson, KR.
Haukur Ingibergsson, HSÞ.
Hástökk:
Erlendur Váldimarsson, ÍR.
Ölafur Guðmundsson, KR.
Haukur IngibergsSon, HSÞ.
Sigurður Hjörleifsson, HSH.
Langstökk:
Ólafur Guðmundsson, KR.
Einar Gíslason, KR.
Sigurður Hjörleifsson, HSH.
Haukur Ingibergsson, HSÞ.
Stangarstökk:
Erlendur Valdimarsson, ÍR.
Ölafur Guðmundsson, KR.
Valgarður Stefánsson, ÍBA.
Ellert Kristinsson, HSH.
Kúluvarp:
Erlendur Valdimarsson, IR.
Amar Guðmundsson, KR.
Ólafur Guðmundsson, KR.
Sigurður Hjörleifsson, HSH.
Kringlukast:
Erlendur Valdimarsson, IR,
Ólafur Guðmundsson, KR.
Amar Guðmundsson, KR.
Samúel Jóhannsson, IBA.
Spjótkast:
Sigurður Þ. Jónsson, HSH.
Erlendur Valdimarsson, ÍR.
Ólafur Guðmundsson. KR.
Ólafur Hjaltason, HSK.
UNGLINGAR:
100 m. hlaup:
Skafti Þorgrímssön, IR.
Kjartan Guðjónsson, Ir.
Þorvaldur Benediktsson, KR.
Bergsveinn Jónsson. HSÞ.
200 m. hlaup:
Skafti Þorgrímsson, IR.
Kjartan Guðjónsson, IR.
400 m. hlaup:
Þórarinn Ragnarsson, KR.
Skafti Þorgrímsson, IR.
Kjartan Guðjónsson, ÍR.
Þorvaldur Benediktsson, KR.
800 m. hlaup:
Þórarinn Ragnarsson, KR.
Baldvin Þóroddsson, ÍBA.
Þórður Guðmundsson, UBK.
Jón H. Sigurðsson, HSK.
1500 m. hlaup:
Þórarinn Ragnarsson, KR.
Jón H. Sigurðsson, HSK.
Þórður Guðmundsson, UBK.
Jóel B. Jónasson, HSH.
3000 m. hlaup:
Jón H. Sigurðsson, HSK.
Þórður Guðmundsson, UBK
110 m. grindahlaup:
Kjartan Guðjónsson, IR.
Þorvaldur Benediktsson, KR.
Langstökk:
Karl Stefánsson, HSK.
Kjartan Guðjónsson, ÍR.
Skafti Þorgrímsson, ÍR.
Þorvaldur Benediktsson, KR
Þrístökk:
Karl Stefánsson, HSK.
Þorvaldur Benediktsson, KR.
Sigurður Sveinsson, HSK.
Reynir Unnsteinsson, HSK.
Hástökk:
Kjartan Guðjónsson, ÍR.
Jóhannes Gunnarsson, HSK.
Gunnar Marmundsson, HSK.
Ánsæll Ragnarsson, USAH.
Stangarstökk:
Kjartan Guðjónsson, IR.
Gunnar Marmundsson, HSK.
Sigurður Kristjánsson, HSH.
Kúluvarp:
Kjartan Guðjónsson, lR.
Guðm. Guðmundsson, KR.
Gunnar Marmundsson, HSK.
Kringlukast:
Kjartan Guðjónsson. IR.
Guðm. Guðmundsson, KR.
Sigurður Sveinsson, HSK.
Spjótkast:
Kjartan Guðjónsson, IR.
Bvramhald á 7 síðu.
SCVEISIÍ
KARLMANNASKÓR
Mjög góð kaup - Mikil verðlækkun
SKÓVERZLUNIN FRAMNESVEGI 2.
S
K
Ó
Ú
T
S
A
L
A