Þjóðviljinn - 26.03.1965, Blaðsíða 2
/•"
) SlÐA
ÞJðÐVILIINN
Föstudagur 26. marz 1965
Ósvaldur Knudsen:
Surtur fer sunnan
Sveit milli sanda
Svipmyndir
☆i I fyrradag voru fréttamönn-
um sýndar þrjár litkvikmyndir
eftir Ósvald Knudsen, sem
Gamla b£ó tekur til sýningar í
kvöld. Eru myndimar „Surtur
fer sunnan“, er lýsir gosinu í
Surti frá upphafi og fram til
þessa dags. „Svejtin milli
sanda“, lýsing á búskaparhátt-
um og náttúru öræfasveitar
og „Svipmyndir", þar sem
brugðið er upp myndum af
nokkrum þjóðkunnum mönn-
um okkar tíma.
☆ Dr. Sigurður Þórarinsson
hefur samið og flutt texta við
tvær fyrrnefndu myndimar.
en dr. Kristján Eldjárn við
hina þriðju. Tónlist við tvær
fyrri myndimar samdi Magn-
ús Bl. Jóhannsson, en valdi
tónlist við hina þriðju.
■ir I stuttu spjalli, er dr Sig-
urður Þórarinsson flutti um
myndimar þrjár áður en sýn-
ing hófst, sagði hann að Ós-
valdur Knudsen hefði unnið
íslenzku þjóðinni ómetanlegt
gagn með töku helmildarkvlk-
mynda sinna. Hann hefði kvik-
myndað ýmsar þjóðlegar minj-
ar, búskaparhætti, siðvenjur
og byggðir, sem væru horfnar
eða væru sem óðast að hverfa
úr þjóðlífínu, og nefndi hann
sem dæmi myndina frá Horn-
ströndum og „Sveit milli
sanda“. Einnig væri „Svip-
myndir merk heimildarmynd
j *og''.eldgosainyndir hans Heklu-
gosið og öskjugosið væru heil-
legustu myndir, sem gerðar
hefðu verið hér á landi af
þeim atburðum, og síðast en
ekki sízt væri engin betri
heimild til af Surtseyjargosinu
en „Surtur fer sunnan“, enda
hefði Osvald varið öllum tóm-
stundum sinum í verk þetta,
farið tugi ferða til Surtseyjar
og tólf áinnum gengið bar á
land.
En þó höfundur semdi mynd-
ir sínar fyrst og fremst sem
heimildarkvikmyndir, leitaðist
hann ætíð við að sinna list-
rænum kröfum.
t)r „Svipmyndir” — Jón Stefánsson og fjölskylda hans.
„Surtur fer sunnan“ lýsir
sögu gossins og myndun eyj-
arinnar frá upphafi. Þetta er
stórbrotin mynd. Hinum miklu
hamförum náttúrunnar, kraum-
andi eldum, rennandi hraun-
elfunum, himinháum gosmökk-
um, sem taka á sig hinar ó-
líkustu myndir, og baráttu
þessari mynd og til að draga
fram þau áhrif, sem tónlist-
inni er ætlað að undirstrika."
Ég vil að lokum þakka for-
ráðamönnum Ríkisútvarpsins,
Vilhjálmi Þ. Gíslasyni útvarps-
stjóra, Sigurði Þórðarsyni
skrifstofustjóra og Árna Kristj-
ánssyni tónlistarstjóra fyrir
SKÁLHOLT
SKÁLHOLT
Sið-
væðingarviðreisn
Viðreisnin átti sem kunnugt
er að láta margt gott af sér
leiða í íslenzku þjóðfélagi.
Hún átti að binda endi á
verðbólguna, en reyndin hef-
ur orðið sú að dýrtíð hefur
magnazt örar en nokkru sinni
fyrr f sögu þjóðarinnar og
verðlag hækkað allt upp f
30°/0 að meðaltali á ári. Hún
átti að binda endi á uppbæt-
ur til atvinnuveganna, en
nýjum uppbótum rignir yfir
á hverju ári, nú síðast til
bátaflotans, togaraútgerðarinn-
ar og frystihúsanna.að því ó-
gleymdu að uppbætur vegna
landbúnaðarafurða verða sí-
fellt hrikalegri. Viðreisninni
var ætlað að fella niður með-
giafir með nevzluvörum úr
ríkissjóði, en þær hafa í stað-
inn bólgnað út í réttu hlut-
falli við langlífi viðreisnar-
innar. Engu að síður halda
leiðtogar stjómarflokkanna og
málgögn þeirra þvl fram af
einstæðri kokhreysti að við-
reisnin hafi tekizt eins og til
var ætlazt.
í gær minnist Morgunblað-
ið í forustugrein á enn eitt
einkenni viðreisnarinnar. Hún
átti að binda endi á „spillingu
vinstri stefnunnar”, uppræta
lögbrot, fjárdrátt og svik og
hefur að sögn blaðsins náð
miklum árangri: „Við stefh-
um í rétta átt, burt frá sukk-
inu og svindlinu, sem ein-
kenndi tímabil vinstri stefn-
unnar og til heilbrigðra þjóð-
félagshátta”. Og víst er það
rétt að árangur viðreisnar-
stefnunnar hefur ekki verið
minni á þessu sviði en þegar
verðbóiga, uppbætur og nið-
urgreiðslur eiga í hlut. Um
það eru til marks dæmin úr
þönkum og sparisjóðum;
veitingahúsum, fríhöfnum,
pósthúsum, útgerðarstarfsemi,
verktakastarfsemi og fjöl-
mörgum öðrum greinum, að
ógleymdum skattaframtölum
atvinnurekenda og fjárafla-
manna. Færi vel á því að
Morgunblaðið úthlutaði sér-
stökum siðgæðisverðlatmum
til þeirra manna sem á þessu
sviði hafa starfað dyggilegast
í anda viðreisnarinnar, þótt
vissulega yrði erfitt að gera
upp á milli þeirra Vilhjálma
og Jósafata óg Þórða sem ver-
ið hafa í fararbroddi í sið-
væðingargöngunni miklu
burt frá sukkinu og svindi-
mu. — Austrt.
„Sveit milli sanda'
lands og sjávar, sem birtast í
myndunum á léreftinu, verður
ekki með orðum lýst.
Elektrónísk tónlist Magnús-
ar Blöndal Jóhannssonar eyk-
ur að mun hin miklu áhrif
myndarinnar. En um tónlistina
lét höfundur svo ummælt á
sýningunni:
★t Tónlistin við þessa mynd
flokkast undir hina svokölluðu
„Elektrónfsku-Concret“-tónlist,
þ.e.a.s. hún er ekki framleidd
af elsktrónískum tóngjöfum,
heldur er hún flutt af hljóð-
færaleikurum og leikin á al-
geng hljóðfæri. Hljóðfærin,
sem notuð eru í þessari mynd.
eru að mestu leyti ásláttar-
hljóðfæri, þ.e.a.s. Cymbalar
(Málmgjöll) Gong, Pákur, Ví-
brafónar, klukkuspil og píanó.
1 öskugosinu eru auk þess
notuð strengjahljóðfæri og er
í því tilfelli notaður þáttur úr
„Punktum”, s^m þó er breytt
frá sinni upprunalegu mynd.
Þessu hljóðefni er svo raðað
saman og gerbreytt frá sinni
upprunalegu mynd, með ýms-
um mjög flóknum aðferðum,
sem yrði of langt mál að segja
frá hér. Með öðrum orðum, f
stað þess að „orkestrera" verk-
ið á pappír, er það orkestrað
beint inn á segulband, til þess
að skapa eina listræna heild,
þannig að útkoman verði ekki
meiningarlausir og tilviljunar-
kenndir effektar, heldur kom-
position í hljómlitum, er stuðla
að því að skapa músíkalska
heild. Það mun láta nærri að
hljómefni af hátt á 2. hundrað
segulböndum af mismunandi
hljómblöndum hafi verið bland-
að saman á mismunandi vegu
til að koma tónlistinni I það
form, sem hún hefur fengið f
þann mikla velvilja og skiln-
ing, sem þeir hafa sýnt með
því að veita þá aðstöðu, sem
með þurfti til þess að gera
þessa tónlist framkvæmanlega.
'ir, „Sveitin milli sanda“. Þar
bregður Ösvaldur upp á mjög
skemmtilegan og fállegan hátt
myndum af mannlffi og bú-
skaparháttum í öræfum og
náttúru sveitarinnar.
Tónlistina við myndina
samdi eins og fyrr segir Magn-
ús Blöndal Jóhannsson og fell-
ur hún vel við myndina. Söng-
kona í myndinni er EHy Vil-
hjálms.
ir „Svipmyndir" er safn
mynda af ýmsum þjóðkunnum
mönnum okkar tíma. Þar sjást
ýmsir kunnustu listamenn
okkar svo sem Jón Stefánsson,
Ásgrímur Jónsson, Ásmundur
Sveinsson, myndhöggvari, Ein-
ar Jónsson, en þann þátt mynd-
arinnar gerði Öskar Gíslason
og Guðmundur Einarsson frá
Miðdal. Þá bregður einnig fyr-
ir Nóbelsskáldinu Halldóri
Laxness og meistara Þórbergi.
Svo og mörgum kunnum
stjómmálamönnum.
Margir þeirra er sjást í
myndinni eru nú ekki lengur
í lifendatölu.
☆ Við þessar myndir Ösvalds
var settur tónn erlendis hjá
fyrirtækinu Colour Film Ser-
vices í London með aðstoð son-
ar Ósvalds, Vilhjálms Knud-
sen, sem stundar þar nám 1
kvikmyndatöku. Er þetta I
fyrsta skipti, sem tónn er sett-
ur í myndir Ósvalds erlendis.
TÓNLEIKAR
verða haldnir í Skálholtskirkju s unnudagi nn 28.
marz kl. 4 e.h.
■ír ☆ ☆'
Flutt verður Stabat Mater eftir Pergolesi. Flytj-
endur verða kirkjukór Akraness, ásamt strengja-
kvartett.
Einsöng annast Nanna Egilsdóttir og Guðrún
Tómasdóttir.
Organleikari og stjórnandi er Haukur Guðlaugsson.
☆ ☆ ☆
Aðgangur er ókeypis, en samskota verður leitað.
☆ ☆ ☆
Ferðir verða á sunnudag frá Bifreiðastöð íslands
kl. 10 f.h. og kl. 1.30 e.h. — Æskilegt er að far-
seðlar verði pantaðir eða teknir á laugardag.
Verkstjóm og handavinna
Kópavogshælið óskar eftir að ráða mann með
menntun á sviði uppeldis vangefinna til að ann-
ast handavinnu, verkstjóm o.fl. Kunnátta í söng
og hljóðfæraleik æskileg. Laun samkvæmt reglum
um laun opinberra starfsmanna. Umsóknir með
upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf
sendist Skrifstofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29,
fyrir 10. apríl n.k.
Reykjavík, 25- marz 1985.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Ritari óskast
Staða ritara í röntgendeild Landspítalans er laus
til .umsóknar. Laun.samkvæmt reglum um laun op-
inberra starfsmanna. Umsóknir með upplýsmgum
um aldur, menntun og fyrri störf sendist Skrif-
stoiu_tíkisspítajanna, Klaggarstíg 29, fyrir 10.tt§príl
næstkomandi. *
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Staða yfírvéistjóra
við Varastöðina við Elliðaár er laus til umsóknar.
Laun skv. launasamþykkt Reykjavíkur. — Um-
sóknir sendist rafmagnsstjóra fyrir 5. apríl n.k.
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR.
Pökkunarstúikur óskast
Mikil vinna framundan, fæði og húsnæði á
staðnum.
F R O S T h/f
Hafnarfirði — sími 50565.
Heimilishjálpin
i Kópavogi
óskar að ráða konu í fast starf nú þegar. — Upp-
lýsingar gefur frú Sigurbjörg Jónsdóttir Nýbýla-
vegi 12, í síma 41657.
4