Þjóðviljinn - 26.03.1965, Qupperneq 10
1Q SÍÐA
MÓÐVILIINN
Föstudagur 26. rnarz 1963
UNDIR
MÁNASIGD
Skáldsaga eftir M. M. KAYE
á eftir sér annan vænginn og
glennti upp gogginn.
— Glæsilegt skot, hrópadi
Conway, sem kom aðvífandi.
Snúðu hana úr hálsliðnum, ann-
ars stingur hún af. Þær eru
skollanum lífseigari ......
Hann beygði sig, en Vetra varð
fyrri til. Hún lyfti stóra fugl-
inum í fang sér og hörfaði frá
honum. Andlit hennar var ná-
fölt og ótti og skelfing undan-
farinna mánaða var uppmáluð
í augum hennar, stórum og
hræðslulegum.
— Komdu með hana, sagði
Conway. Þú getur ekki : kálað
henni. Það þarf krafta til.
— Komdu ekki nálægt henni!
Rödd hennar var skerandi. Hún
er bara særð. Hún deyr ekki.
Þú mátt ekki drepa hana!
— Hvaða fíflalæti eru þetta!
Legðu hana frá þér undir eins!
Hann teygði sig í áttina til
hennar, en hún stökk til hliðar
og flýði með særða fuglinn í
fanginu. Heitur hálsinn á gæs-
inni lá yfir öxl hennar og særði
FLJÚGUM
ÞRÍÐJUDAGA
FIMMTUDAGA
LAUGARDAGA
FRÁ RVÍK KL. 9.30
FRÁ NORÐFIRÐI KL. 12
F L U G S Ý N
SÍMAR: 18410 18823
Smurt brauð
Snittur
við Óðinstorg
Sími 20-4-90
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugavegl 18, III hæð (lyfta).
SÍMI 24 616.
P E R M A
Garðsenda 21 — SÍMI 33 9 68
— Hárgreiðslu- og snyrtistofa
D Ö M U R !
Hárgreiðsla við allra hæfl —
TJARNARSTOFAN — Tjarnar-
götu 10 — Vonarstrætismegin
— SÍMl 14 6 62.
Hárgreiðslustofa
Austurbæjar
Maria Guðmundsdóttir Lauga-
vegi 13 — SÍMI 14 6 56 NUDD-
STOFAN er á sama stað
vængurinn náði næstum niður á
jörð.
Oddinn var bugðóttur. Hátt
grasið náði upp að neðstu grein-
um trjánna. Vetra æddi af stað
í blindni, gagntekin óskiljanlegri
hræðslu og örvílnun. Hún sá
ekki Alex fyrr en hún hljóp
beint í flasið á honum.
65
Alex hafði staðið við bugðuna
á oddanum, en hann hafði skotið
með hangandi hendi. Hann hafði
verið að hugsa um annað. Hann
hafði allt í einu áttað sig á til-
gangi þessarar stórkostlegu veiði-
ferðar. Hann var svo nærtækur,
að honum var ráðgáta að hann
skyldi ekki hafa skilið það sam-
stundis. En nú var það um sein-
an. Hann hefði átt að hindra
þetta. En hvemig? Barton hefði
aldrei leyft það. En kannski —
gæti þetta snúizt við. Svona ein-
falt var það, og hann hafði ekki
komið auga á ástæðuna fyrr.
Alex skaut eftir einstökum
fugli. Hann féll niður særður
framar á oddanum. Niaz gaf frá
sér vanþóknunarhljóð og Alex
fleygði til hans byssunni: Fjand-
inn hirði fuglinn! Hann gekk
eftir oddanum og rótaði í vös-
um sínum eftir sígarettu, þeg-
ar Vetra kom beint í flasið á
honum.
Alex greip um axlir henni og
hélt henni fastri og starði inn
í óttaslegin, örvílnuð augun.
Hún hafði reynt að slíta sig
lausa en hafði þá séð að það
var Alex sem hélt henni.
— Alex .... Alex, ekki drepa
hana! Láttu hann ekki ..........
Hún rétti honum þungan fuglinn
og langur, slappur hálsiim dingl-
aði máttleysislega.
— Hún er dauð, vina mín,
sagði hann rólega og tók af
henni gæsina.
— Nei! Nei! Hún er ekki
dauð. Bara særð. Grái búningur-
inn hennar var allur ataður í blóði
að framan, svo að það hefði mátt
ætla að hún sjálf hefði orðið
fyrir skoti. Alex fylltist skyndi-
legum ótta; það var eins og
hjarta hans herptist saman.
Hann lét gæsina síga niður í
grasið og Vetra greip 1 hand-
legg hans eins og hún ætlaði
að taka hana. En allt í einu
hallaði hún sér upp að öxl
hans og fór að gráta.
Alex stóð grafkyrr og hélt
um hana. Hann fann hvemig
grannvaxinn líkami hennar
titraði og skalf í fangi hans.
Það var daufur lavendililmur úr
hári hennar eins og kvöldið í
virkinu f Delhi. Hinar ólíkustu
tilfinningar hrærðust með hon-
um. Hann langaði til að hrinda
henni frá sér og hann langaði
til að þrýsta henni að sér, en
hann stóð kyrr og hélt henni
blítt og varfæmislega í fangi
sér. Þessi skerandi grátur nfsti
hjarta hans og andlit hans var
afmyndað af reiði og hörku.
Ekki núna. Ó, guð minn góður,
ekki þetta! hugsaði Alex. Ég af-
ber það ekki. Sólin brenndi axl-
ir hans og býflugumar suðuðu
Ietilega milli blómaima á kikar-
trjánum; skothvellimir virtust
langt í burtu. Loks hljóðnaði
gráturinn og hætti. Hann sleppti
henni varlega.
Hún gerði enga tilraun til að
fela útgrátið andlitið. Hún leit-
aði að vasaklút og dró upp lít-
inn, næfurþunnan bleðil, atað-
an blóði. Alex tók upp sinn
eigin klút og rétti henni. Taktu
heldur þennan, sagði hann
hressilega. Hann er stærri og
talsvert hreinni. Hann virti hana
i fyrir sér með innilegri blíðu,
meðan hún þerraði vot augun og
snýtti sér, án þess að hafa á-
hyggjur af útlitinu; honum flaug
í hug að það væru víst ekki
margar konur sem hefðu ekki
skammazt sín fyrir að láta sjá
sig svona; flestar hefðu víst
snúið sér frá til að fjarlægja
vegsummerkin.
Vetra braut saman vasaklút-
inn og dró djúpt andann. Fyrir-
gefið mér, sagði hún. Ég skil
ekkert í hvað gekk að mér.
Hún stóð sundarkom og hugs-
aði málið. Ég held það hafi staf-
að af því að ég var að enda við
að fagna þessum fagra og frið-
sæla morgni og svo komu skot-
in og eyðilögðu allt saman. Svo
féll særða gæsin alveg við fæt-
uma á mér. Conway hafði skot-
ið hana .... og hann ætlaði að
drepa hana og ....
— Það var ég sem særði hana,
sagði Alex.
— Þér? Hún leit undrandi á
hann og hnyklaði brýnnar.
— Já, ég sá hana falla og var
á leið eftir henni.
— Ó. Hún stóð kyrr og horfði
niður í grasið.
— Gerir það nokkum mun?
Hún leit upp og mætti augna-
ráði hans. Já. En ég veit ekki
hvers vegna.
— Er það betra? .......... Eða
verra?
Hún svaraði ekki, og Alex
Iyfti hendinni og strauk fingur-
gómunum yfir enni hennar.
Hrukkið ekki ennið, vina mín.
Svo þungbært getur það naum-
ast verið. Fáið mér vasaklútinn.
Hann tók klútinn,. gekk að
vatninu og kom til baka með
blautan klútinn. Hann þvoði
blóðið af fötum hennar og róaði
hana með því að þau myndu
fljótlega þoma í sólskinmu. Og
komið nú og reynið að skjóta
önd. Þér hafið aldrei handleikið
veiðibyssu.
Það fór hrollur um Vetru og
hún leit á hann logandi augum.
Alex mætti rólegur augnaráði
hennar. Yður finnst þetta hrana-
legt og hörkulegt eftir það sem
gerzt hefur? En þetta er heil-
brigð skynsemi, skal ég segja
yður. Rétt eins og það er skyn-
samlegt af byrjanda sem dettur
af hestbaki að setjast strax á
bak aftur. Hafið þér ekki orðið
fyrir því? Þér munuð komast að
raún um að það þarf æfingu og
.leikni ,til að hitta mark sem er
á hreyfingu, það er allt ekki eins
auðvelt og þér haldið. Og það
gerir talsverðan mun.
— Ég kæri mig ekkl um að
drepa .... alls rftki. Ef ég hitti
fugl, myndi ég kannski aðeins
særa hann, eins og gæsina þama.
Alex hleypti viljandi hörku í
rödd sína: Hvað haldið þér að
verði um dýrin þegar þau eld-
ast? Níu af hverjum tíu þeirra
deyja kvalafullum dauða. Þetta
á líka við um tamin dýr hér á
landi. Ég átti í gær leið fram-
hjá uxa sem hafði dottið í skurð
og fótbrotið sig á tveimur fót-
um. Krákumar voru búnar að
kroppa úr honum augun og
flækningshundar voru að glefsa
í hann. Þetta var skammt frá
þorpi og að minnsta kosti tutt-
ugu manns gengu framhjá á
hverjum klukkutíma, en engum
datt í hug að binda enda á
þjáningar hans.
Vetra tók andköf. Drápuð þér
hann?
— Já, reyndar, og fékk ákúr-
ur hjá bramínanum á staðnum,
góðvini mínum, en ofstækisfull-
um í trú sinni. Að skjóta endur
er í rauninni ekki dráp. I fyrsta
lagi eru þær matur og fara ekki
til spillis. 1 öðru lagi útheimtir
það leikni. Yður langar kannski
ekki til að reyna, en það væri
hollt fyrir yður að líta á málið
frá öðru sjónarmiði. Sem móteit-
ur gegn tilfinningasemi.
Hæðnistónninn hafði sfn áhrif.
Það var einmitt þetta sem hún
þurfti með. Hún elti hann hik-
andi. Alex rétti henni byssu og
gaf henni nokkrar leiðbeiningar.
— Munið að hreyfa yður með
fuglinum og ætla á um hraðann.
Nú eru nokkrar urtendur að
koma þama frá vmstri.-Nú....!
Vetra skaut. Fuglamir þrír juku
hraðann og hurfu. Ekki nógu
langt fyrir framan þá. Reynið
aftur.
Hann lét hana skjóta æ ofan
f æ og eftir fyrstu þrjár, fjórar
tilraunimar hvarf ótti hennarog
andúð og hún hugsaði aðeins um
kenninguna og beindi allri at-
hygli sinni að hinum flöktandi
skotmörkum'. Stundarfjórðungi
síðar tók -Alex af henni byssuna
og skaut tvo fugla með metra
millibiH og hún fann ekki leng-
ur til skelfingar, aðeins áhuga
Vetra var setzt í grasið, þar
sem sólin skein gegnum lauf-
þykknið. Jæja, sagði Alex. Nú
líður yður betur, er ekki svo?
— Jú. En ég kæri mig samt
ekki um að skjóta.
— Það skiptir engu máli. En
það getur verið gott að rækta
með sér vissa tilfinningu fyrir
hlutföllum. Hann lagði byssuna
frá sér og settist í grasið við
Uppreimoðír
strigaskór
Gúmmískór
með hvítum
sólum
CONSUL CORTINA
bllalelga
magnúsar
skipholtl 21
slmar: 21190-21185
^ eltaukur <§u&mundóóon
HEIMASÍMI 21037
S KOTTA
Æ, Jói grímudansleikurinn er anpað kvöld, í kvöld er árshátíðin.
í yðar þjónustu alla daga
Hjólbarðaverkstæðið
HRAUNHOLT
fyrir neðan Miklatorg (gegnt
Nýju sendibílastöðinni).
ír Eigum ávallt fyrirliggfandi
☆ flestar stærðir af hjólbörðum
☆ og felgum.
Opið alla daga frá kl. 8 til 23. — Sími 10-300.
BLAÐADREIFING
Þjóðviljann vantar nú þegar olaðbera í.
Seltjamames L Skúlagötu.
Tjamargötu. Skipholt.
ÞJÓÐVILJINN — Sími 17-500.
Auglýsið i ÞJÓD VILJANUM