Þjóðviljinn - 23.08.1966, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.08.1966, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 23. ágúst 1966. I T ugþraufarlandskeppnin: Valbjörn meiddist og sigur Austur- Þjó&verja varð því stærri en ella Lilja Sigurðardóttir HSG setti nýtt íslandsmet í 80 metra grinda- hlaupi og sveit KR bætti metið í 4x800 metra hoðhlaupi □ Meiðsli Valbjarnar Þorlákssonar, sem tóku sig upp áður en keppni hófst í næstsíðustu grein tugþrautarinnar, urðu þess valdandi að sigur Austur-Þjóðverja yfir íslendingum varð stærri í landskeppninni um helgina en ella. — Keppnin var lengst af mjög jöfn og höfðu þó Þjóðverjarnir forystu allan tímann. Lokastiga- tölur landskeppninnar urðu þessar: — Austur- Þýzkaland 14.061 — ísland 13.428. ' Ágætis veður báða keppnis- dagana átti hlut að góðum ár-. angri og skemmtilegri keppni. Þýzku géstirnir reyndust mjög alhliða íþróttamenn og í þeirra hópi vakti þó hinn ungi Joa- chim Kirst hvað mesta athygli, enda náði hann nú sínum bezta árangri í hverri greininni af annarri og skaut landa sínum Sigfried, Pradel, sem til þessa hefur verið beztur þremenn- inganna, aftur fyrir sig. ★ Þó að Valbjöm Þorláksson næði ekki sínu bezta nema í fáum greinum var heildarár- angur hans í þrautinni góður allt þar til meiðslin tóku að há honum í lokin. Kjartan Guð- jónsson varð hinsvegar sá fs- lendinganna, sem lengst komst miðað við fyrri árangur, aldrei frískari en nú. Kjartan hlaut nú 6933 stig, sem er 23» stig- um betri árangur en hann hef- ur beztum t?áð áður. Varð hann nú íslandsmeistari í tug- þraut í fyrsta sinn. Þá kom Jón Þ. Ólafsson á óvart með getu sinni, en hann tók auk Erlends Valdimarsson- ar þátt í meistaramótskeppn- inni ásamt landsliðsmönnunum Valbirni, Kjartani og Ólafi Guðmundssyni. Forysta Þjóðverja frá upphafi Tugþrautarlandskeppnin hófst með setningarathöfn á laugar- daginn. Keppendur gengu und- ir þjóðfánum inn á leikvang- inn, en síðan setti formaður Frjálsíþróttasambands íslands, Ingi Þorsteinsson, keppnina með stuttu ávarpi og farar- stjóri Þjóðverjanna mælti nokkur orð þar sem hann lýsti ánægju sinni yfir samskiptum íslendinga og Austur-Þjóðverja á sviði frjálsíþrótta og bauð íslenzka ‘ tugþrautarkeppendur velkomna til landskeppninnar í Dresden á næsta sumri. Þá voru þjóðsöngvar ríkjanna leiknir og hljómaði nú þjóð- söngur Þýzka alþýðulýðveldis- ins í fyrsta skipti á Laugar- dalsvelli. Fyrsta grein tugþrautarinnar olli áhorfendum nokkrum von- brigðum, þar sem íslendingarn- ir náðu ekki nógu góðum tím- um: Ólafur hljóp á 11,2 sek. og þeir Valbjörn og Kjartan á 11,4 hvor, en Pradel hljóp á 11 sek og Kirst á 11,1. Sá síð- arnefndi tryggði sér örugga forystu í keppninni fyrri dag- inn með því að sigra í næstu tveim greinum; langstökki (7,23) og kúluvarpi (14,49) og náði mjög góðum árangri í há- stökkinu (1,97). Síðari daginn tók Sigfried Pradel strax í fyrstu grein, 110 m grindahlaupinu ■ (14,8) að saxa á forskot landa sins. Valbjörn náði þennan dag einn- ig góðum árangri í grinda- hlaupinu (15,2) og stangar- stökkinu (4,40) en við mettil- raun í síðastnefndu greininni tóku meiðsli sig upp svo illi- lega, að hann varð að kasta spjótinu úr kyrrstöðu.. Má lík- legt telja að hann hefði, í fullu fjöri, náð langt með að vinna upp forskot . það sem Þjóðverjarnir þá höfðu, því að spjótkastið hefur löngum verið ein af betri greinum Valbjarn- ar. í tugþrautarlandskeppninni voru hvoru landi reiknuð stig tveggja beztu manna landanna, þannig að heildarúrslitin urðu 14.061 stig fyrir Austur-Þjóð- verja og 13.428 stig fýrir fs- lendinga sem fyrr var sagt. Árangur einstakra keppenda var þessi: stig. 7043 7018 6933 6600 6495 6420 1. Sigfried Pradel 2. Joachim Kirst 3. Kjartan Guðjónsson 4. Axel Richter 5. Ólafur Guðmundsson 6. Valbjörn Þorláksson Met í 80 m grindahlaupi kvenna Jafnhliða tugþrautarlands- keppninni fór fram keppni í þrem greinum Meistaramóts fslands í frjálsum íþróttum um helgina: fimmtarþraut kvenna, 4x800 m boðhlaupi og 10 km. hlaupi. í fimmtarþrautinni urðu úr- slit þessi: íslandsmeistari Sigrún Sæ- mundsdóttir HSÞ 3263 stig. (14,0, 7,35, 1,50, 4,64 29,0). ^ 2. Lilja Sigurðard. SHÞ 3196 3. Ólöf ’ Halldórsd. HSK 2918 4. Guðrún Gijðbjd. HSK 2884 Lilja Sigurðardóttir, mjög efnileg íþróttakona, sigraði í þrem greinum þrautarinnar, hlaupunum i báðum »og lang- stökki. í 80 m. grindahlaup- inu hljóp hún mjög vel og setti nýtt íslandsmet, 12,7 sek. Fyrra Framhald á 6. síðu. Sigfried Pradel sigraði í tugþrautarkeppninni. — Ljósn|. H.G- 1. deildin: KR vann ÍA 2:1, og ÍBK Þrótt 1:0 □ Tveir leikir voru háðir í l.-deildarkeppni íslandsmótsins í knattspymu á sunnudaginn. KR-ingar sigruðu Akurnesinga á Akranesi með 2 mörkum gegn 1 og Keflvíkingar sigruðu Þrótt í Njarðvíkum með 1 marki gegn engu. □ Öll liðin í 1. deild hafa nú leikið 8 leiki hvert og eiga 2 leiki eftir. Staðan er nú þessi í deildinni: Valur 11 stig ÍBK ' 10 stig ÍBA 9 stig KR 8 stig ÍA 7 stig Þróttur 3 stig Q Það bar til tíðinda í 2.-deildarkeppninni á sunnudaginn að Víkingur vann Fram með einu marki gegn, engu. Aukamót verBur / kvöld með þátttöku Austur—Þjóð verþ Frjálsíþróttasamband íslands efnir í kvöld, þriðjudag, til aukamóts á Laugardalsvellin- um með þátttöku austur-þýzku íþróttamannanna sem hér kepptu í tugþraut um helgina og kanadísks hlaupara sem nú er staddur hér á Iandi. Keppt verður í 100, 400 og 1000 metra hlaupum, 1500' m hindrunarhlaupi, 1000 m boð- hlaupi, 110 m grindahlaupi, 200 m hlaupi sveina, 100 m' hlaupi kvenna, langstökki, hástökki. kúluvarpi og kringlukasti. Austur-Þjóðverjarnir sýndu fjölhæfni sína á Laugardals- vellinum um helgina og góðan árangur. í því sambandi ms geta þess að Joachim Kirsl hefur stokkið 2,09 m í hástökkj og ætti því að geta orðið höré og skemmtileg keppni milli hans og Jóns Þ. Ólafssonar j þeirri íþróttagrein. Kanadamaðurinn heitir Var der Waal og er kanadískui methafi í 3.000 m hindrunar- hlaupi (8.53,0 mín.) Hann keppti í 1.500 m hlaupi s sunnudaginn og sigraði þá auð- veldlega hina íslenzku keppi- nauta sína og hljóp vegalengd- ina á 3.55,0 mín. f kvöld kepp- ir hann í 1000 m hlaupi og 1500 m hindrunarhlaupi. Mótið hgfst kl. 8 í kvöld.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.