Þjóðviljinn - 28.07.1970, Blaðsíða 6
g SÍÐA — ÞJÖÐVELJTNN — 'Þriöjudaigtr 28. júM 1970.
Hnúðlax er veiddur undan strdnd Kamsjatka-skaga en það er haft strangt eftirlit með þeim veiðum til þess að vernda stofninn
Hlutverk fiskiðnaðar
í nútíma þjóðfélagi
Á Sjómannasíðu Morgun-
blaðsins 18. j-úlí er skrifað um
fiskiðnað og eðli hans eftir
þeim skilningi sem höfundurinn
hefur á málinu. Höfundurinn
segir, að þegar talað sé um
fiskiðnað, þá sé oftast átt við
frystiiðnaðinn og að hann geri
það í sinni grein. Náttúrlega
er það alrangt hjá höfundi
Morgunblaðsgreinarinnar að
orðið fiskiðnaður spanni aðeins
yfir frystiiðnaðinn og nægir þar
að nefna saltfiskþurrkun og
niðursuðu, sem hvort tveggja
eru miklu eldri iðngreinar á
þessum vettvangi.
Ég vil þó hér þafcka höfundi
Morgunblaðsgreinarinnar fyrir
að hafa gefið mér sérstakt
tilefni til að ræða um frysti-
iðnaðinn í þessum þætti Fiski-
mála. En áður en ég sný mér
að því verkefni, þá vil ég koma
lítillega inn á þá hlið Morgun-
blaðsgreinarinnar sem snýr að
sölu á nýjum fiski á erlendum
mörkuðum í>að gæti aldrei
,orðið ofan á í því máli sem
nein lausn, að flytja fisk í
stórum stíl óunninn á erlenda
markaði eins og við gerum nú
með söluferðum togaranna á
brezkan og þýzkan markað.
Hitt er ekki ótrúlegt að á næstu
árum verði þróun þessara mála
sú að flutningur fiskflaka,
hrogna, nýrrar lifrar og fleiri
slíkra hálfunninná fiskafurða
ófrosinna fari vaxandi. Þessi
þróun hefur nú þegar hafizt í
næstu löndum við ökkur, svo
sem Noregi og Danmörku. En
þó þessi starfsemi auikist nokk-
uð í framtíðinni, þá eru henni
takmörk sett og hún gæti aldreí
orðið þess umkomin að leysa aí
hólmi í neinum teljandi mæli
þær greinar í fiskvinnslunni
sem rúmasf innan orðsins „fisk-
iðnaður".
Hugtakið iðnaður, það merkir
vinnslu á vöru fyrir neytenda-
og notendamarkaði. Það er
kallaður trjávöruiðnaður, þegar
tré sem hafa verið höggvin
upp í skóginum eru söguð niður
til margvislegra nota. Eins er
það kallaður fiskiðnaður, þegar
nýjum fiski er breytt í marg-
vislegar afurðir fyrir neytenda-
markaði 1 því tilfelli er það
nýi fiskurinn sem er hráefnið.
Elf við tökum hraðfrystiiðn-
aðinn þá er frumstig þess iðn-
aðar, að fiskurinn er fiakaður
og flölkin fryst. Hástig þess iðn-
aðar er hins vegar fulTkomin
matreiðsla fisksins, þar sem
hann er alveg tilreiddur á borð
neytandans. En til þess að
koma honum þangað, þá er
hraðfrystiaðferðin notuð sem
geymsluaðferð. Hver treystir rér
t. d. til að afneita því sem
iðnaði, þar sem hráefnið er
fiskur, þegar Findusfyrirtækið
í Hammerfest og Vinnsluverk-
smiðja Frionor í Þnándlheimi
breyta hraðfrystum fiskiblokk-
um í meira en 100 tegundir af
fiskiréttum sem þeir síðan selja
á mörkuðum f jölda landa? Eða
þegar fiskhryggjum sem venju-
lega eru notaðir í fiskimjöl, er
breytt í margar gerðir af flski-
súpum fyrir neytendamarkaði í
fjöldaframleiðsilu? Bf þetta við-
urkennist ekiki sem iðnaður, þá
gætum við sitrikað það orð burt
úr málinu.
I kínverskri menningu, gegn-
um þróun árþúsunda, var mat-
reiðslan talin til listgiredna og
svo er enn. FuUkomin mat-
reiðsla er líka algjör undirsitaða
góðs fiskiðnaðar á hæsta stigi
og það skilja þeir líka sem að
þessari framleiðslu vinna, því
að þar eru það matreiðslu-
mennimir sem vinna efcki hvað
þýðingarmánnsta hlutverkið, að
grundvalla bnaigð og útlft hinnar
héþróuðu fiskiðnaðarvöru fyrir
markaðina. Það er efcki hægt
að fullkominn matvælaiðnað
nema með vinnu matreiðslu-
meistara.
í hraðfrystiiðnaði skortir
okkur þetta hástig fiskiðnaðar-
ins hér á landi. En okfcur ber
tvimælalaust að vinna að þvi
öllurn árum, að við stöndum
ekki lengur að baki kep>pinaut-
urn ökkar á fiskmörkuðunum á
þessu sviði. Svo lengi sem við
gerum það, þá erum við efcki
fullkomlega samfceppnisfærir.
I Noregsferð mdnni í marz-
mánuði s. 1. féldc óg að vita,
að eina árið sem Findusfyrir-
tækið sýndi tap var 1968, og
það tap var ókki talið fyrst og
fremst tilkamið vegna verðfalls
á marfcaði frosinna fiskblokka,
heldur vegna þoss, að fyrir-
tækið sfcorti fólk til að fiull-
vinna fislcblokkir í tilbúna
fiskrétti fyrir markaðina. Þetta
segir sína sögu af því, hvað
fullvinnslan, hástig fiskiðnaðar-
ins, hefur mikið að segja um
afkomu eins fyrirtækis. Það er
ekki lægsti tilkostnaður sem er
eftirsóknarverðastur í fiskfram-
leiðslunni, heídur fullfcomið ör-
yggi um gegnumgangandi sörrau
gæði framleiðslunnar, þannig að
aldrei komi kvörtun á vöruna,
sagði framleiðslustjóri hjá Fin-
dusfyrirtæfcinu við mig, þegar
hann var að útskýra hvaða
gildi það hefði í matvælafram-
leiðslu að láta vinna á vöktum
ag útiloka yfirvinnu, sem hann
taldi skaðlega fyrir öryggið.
Því míður skilja öf fáir þenn-
an sannleika hér á Islandi. Það
er talið skaðlegt að maður und-
ir álhrifum áfengis aki bifreið,
vegna þess að hann er efcki
dómbær á ástandið. Nákvæm-
lega hliðstætt öryggisleysi sfcap-
ast í háþmuðum fiskiðnaði, þeg-
ar þreyttur maður er látinn
vinna störfin; þetta sagði hinn
vel menntaði framleáðslustjóri
hjá einu fullkomnasta fiskiðn-
aðarfyrirtæki heims þeigar ég
ræddi þessi mál við hann.
Höfundur greinarinnar á Sjó-
mannasíðu Morgunblaðsins tal-
ar um að hraðfrystingin sem
geymsluaðferð rýri gæði nýja
fisksins. Hann segir orðrétt: „I
frystiiðnaðinum gerist ekkert
nema fiskbragðið dofnar og
fisifcurinn rýristt að gæðum“.
Sannleikurinn er sá, að engin
geymsluaðferð hefiur ennþá ver-
ið uppfiundin, sem faer sé um
að varðveita eins vel nýja-
bragð fisksins eins og hrað-
frystingin. Hraðfrystitækni hef-
ur líka stórlega tfileygt fram á
síðustu árum, svo að hún er
efcki sambærileg við það sem
hún var í upphafi. Sé glænýr
fískur, sem áður hetfur verið
kældiur niður í 0 stig á Celsíus,
hraðfrystur með fullkomnustu
tæfcjum þannig að hann gegn-
umfrjósi á skemmri tíma en
tveimur klukfcusibundum, þá
verða ísnálamar sem myndast
í fiskvöðvanum við frystinguna
það smáar, að þær sundra ekki
hinum fíngerðu vefúm fisk-
vöðvans, en það er eitt af und-
irstöðuatriðum góðrar hrað-
frystingar. Fisfcur sem þannig
hefiur verið meðfarinn og síðan
settur í löftþéttar umlbúðir,
hann á að halda upprunalegu
bragði um langan tifna i góðri
frystigieymslu.
Það er ékki sök hraðfirysti-
tækninnar eins og hún hefur
skilyrði til að vera fullllkomnust,
þegar fískurinn er efcki kældur
niður, fyrir frystin.gu, efcki unn-
inn og settur í frystingu á með-
an nýjabragð hans er sem
ferskast, eða hann er fírystur á
ofiön.gum tíma við lélegar að-
stæður. Slíkur fisfcur er dæmd-
ur til að missa bragð ög rýrast
að verðgildi á sama tíma sem
hinn rétt með fami fiskur heM-
Framhald á 9. síðu.
Stríðsrekstur samkvæmt áætlun
Hinn þekkti bandaríski háðfugl, Art Buch-
wald, fjallar í eftirfarandi pistli um efni sem
er reyndar ekki oft haft í flimtingrum: ástand-
ið í Austurlöndum nær.
Ætla Bandaríkin að selja
Israelsmönnum þær 125 or-
ustuflugvélar sem þeir hafa
beðið um? Enginn veit það
með vissu. En orðrómur geng-
ur um það í Washinton, að
menn vilji ekki afhenda Isra-
elsmönmun nýjar flugvélar til
viðbótar þeim sem fyrir eru.
Hins vegar muni menn reiðu-
búnir til að láta þá hafa
filugvélar í stað þeirra sem
skotnar eru niður fyrir þeim.
Ef þetta er rétt, getum við
búizt við allt öðru orðbragði
en því sem nú hljómar dag-
lega frá Tel Aviv og höfuð-
borgum Araba.
Líklega verða fréttirnar ,þá
eitthvað á þessa leið:
TEL AVIV 10. júlí. Talsmenn
ísraelska flughersins tilkynntu
í dag að ráðizt hefði verið á
ísraelskar fflugvélar yfir Súez-
skurði og hefðu 27 þeirra
verið skotnar niður, en 30
aðrar sneru til baekistöðva
sinna mikið laskaðar. Þetta er
mesta tjón sem Israelsmenn
hafa orðið fyrir til þessa.
KARIO 11. júlí. Stjóm
eygpzka hersins bar í dag til
baka í afdráttariausri yfirlýs-
ingu orðróm um að ísraelskar
filugvélar hefðu verið skotnar
niður yfir Súezskurði.
— Fluigmenn okkar geiguðu
langt hjá markimu, sagði
Gamal Emer hershöfðingi.
— Við ráðum yfir ljós-
myndum, tefcnum úr lofti,
sem sýna að allar ísraelsku
flugvélamar sneru heálar á
húfi til bækistöðva sinna án
þess að kæmi á þær skotgat,
hvað þá meir.
Emer henshöfðingi bætti því
við, að hann hefði orðið fyrir
miklum vonbrigðum með
rússnesk flugskeyti af SAM-
gerð, sem ekki hefðu getað
hitt hinar ísraelsku árásar-
sveitir. „Svo virðist sem það
sé alveg vonlaust, að við get-
um nókkum tíma skotið nið-
ur ísraelska vél“.
HAIFA, ísrael, 15. júlL Haft
er eftir heimildum, sem tald-
ar eru áreiðanlegar að skyndi-
árás Israelsmanna við landa-
mæri Sýrlands hafi mistekizt
gjörsamlega. Ylfirherstjómin
hefur viðurkennt, að flugher
Sýrlands hafi slcotið niður 23
orustuflugvélar Israelsmanna.
Þar með hafa ísraelsmenn
tapað 50 flugvéílúm á einni
viku. Eftir þessa ósigra hefiur
Moredkai Rashnik hershöfð-
ingja verið viikið úr sitöðu
sinni.
DAMASKUS 16. júlí. Til-
kynningar um að sýrlenzkar
orustuflugvélar hefðu leitað
uppi og skotið niður 23 ísra-
elskar fluigvélar yfir Golan-
hæðum leiddu í dag til heift-
úðlegra mótmælaaðgerða.
A fjöldafundi á Damaskus-
torgi leiddu leiðtogax arab-
ískra þjóðemissinna fjölda
sýrlenzkra flugmanna til vitn-
is. Allir vom þeir á einu máli
um það, að þeir hefðu snúið
við um leið og þeir komu
auga á eina ísraelska flugvél.
— Við börðumst alls efcki
við þær, sagði Abdulah Jafed
liðþjálfi hinum æsta múgi.
Þessi zíonistasvín misstu efcki
eina einustu flugvél. Þeir
skutu hins vegar niður fimm
af okkar vélum.
Orðum þessum var tekið
með miklum fögnuði. Kröfu-
gönigunni lauk með því að
sendiráð Jórdaníu var brennt.
TEL AVIV 25. júlí. Golda
Meir forsætisráðherra harm-
aði það í sjónvarpsræðu í
dag, að 30 ísraelskar flug-
vélar hefðu verið skotnar nið-
ur í dag yfir Líbýu af Mirage-
þotum, smíðuðum í Frakk-
landi. Gerðist þetta í lengstu
árásarferð Israelsmanna til
þessa. Með því að sýnt var
fram á það eftir útsendinguna
að Frafckar hefðu enn ekki
afihent Líbýu Mirage-þötur
leiðrétti frú Meir ummæli sín:
Mér urðu á mistök, sagði hún.
Flugvélar okkar urðu bensín-
lausar.
AMMAN, Jórdaníu 26. júlí.
Hússedn konungur fór þess á
leit í dag vift Sameinuöu
þjóðimar að þær taakju að
sér að telja þær ísraelskar
fflugvélar sem farast í bardög-
um. Konungur sakaði Israel
um fláræði og sagði: Það
verður aldrei komið á friði
hér í Austurlöndum nær með-
an Israelsmenn halda ófram
að missa flugvélar sem þeir
, hafa aldrei átt.
KAIRO, Egyptalandi 1. ágúst.
Það kemur fram í sameigin-
legri yfirlýsingu frá Nasser
forseta og sovézkum hemað-
aryfirvöldum, að öllum flug-
vélum Araba hefur verið
bannað að fljúga og þá hefur
loftvarnaliðinu verið skipað
að beita ekki byssum sínum
þar til annað verður ákveðið.
Er með þessum hætti reynt
að koma í veg fyrir að Israel
tdlkynni meira flugvélatjón.
EINHVERS STAÐAR I NEG-
EVEYÐIMÖRKINNI 2. ágúst.
Erlendir fréttamenn heimsóttu
í dag leynilega ísraelska her-
bækistöð í Negev-eyðimörk-
inni. Þar höfðu áður aðsefur
sitt 45 orustuþotur. I dag er
engin eftir.
Art Buchwald
Er spurt var, hvað hefði
orðið af þeim, svaraði ísra-
elskur ofursti á þessa leið:
Við misstum þær allar í
mörgun. Þær voru skotnar
niður með rifflum yfir Dauða-
hafinu.
Þegar athygli hans var vak-
in á því, að á þrem vikum
hefðu Israelsmenn misst 125
flugvélar — nákvæmlega
jafnmargar og þeir höfðu
beðið Bandaríkjamenn um.
svaraði ofurstinn: Æ, þetta er
vist það sem kallað er hunda-
heppni.
t
t
i
i
4