Þjóðviljinn - 05.06.1974, Qupperneq 11
Miðvikudagur 5. júni. 1974 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Sjúkralistinn
erfiður baggi
Keflvíkingar eiga í erfiðleikum vegna
sjúkralistans, en sigruðu þó Akureyringa 3:0
Keflvíkingar eiga um
sárt að binda um þessar
mundir. Tveir bestu menn
liðsins eru meiddir, þeir
Einar Gunnarsson og
Guðni Kjartansson. Það
sást enda á leik þess gegn
Akureyringum, þótt vissu-
lega verði slök frammi-
staða ekki afsökuð með
mannfalli einu saman.
Það er e.t.v. ekki rétt að tala
um slaka frammistöðu liðs, sem
sigrar andstæðinga sína 3:0. En
einhvern veginn er það svo, að
maður gerir meiri kröfur til ÍBK
en annarra liða sökum hinnar
glæsilegu frammistöðu á siðasta
keppnistimabili. Engum dylst,
sem horft hefur á lið Keflvíkinga i
vor, að það er ekki eins vel undir-
búið og I fyrra. Allur leikur þess
er oft á tiðum ráðvilltur og litt
hugsaður, en það, sem kemur þvi
til bjargar eru góðir einstakling-
ar, sem með einkaframtaki færa
liðinu mörk og stig. Einstakling-
arnir eru sist lakari nú en áður,
en heildin kemur ekki eins vel út,
meiri samæfingar er þörf.
Haukar
sóttu tvö
stig til
ísafjarðar
Haukarnir frá Ilafnarfirði, sem
ekki viröast standa of vel að vigi
eftir að hafa misst marga af sin-
um bestu leikmönnum frá I fyrra,
sóttu sér tvö mjög dýrmæt stig til
isafjarðar um siðustu helgi. Þeir
sigruðu ÍBl 2:1.
Hætt er við að ísfirðingar lendi I
fallbaráttunni i sumar, en þeir
komu uppúr 3. deild i fyrra og
virðast ekki eftir fyrstu leikjun-
um að dæma vera með sterkt lið.
Mörk Haukanna skoruðu Arnór
Guðmundsson og Guðjón Sveins-
son, en mark tsfirðinga Ragnar
Guðmundsson.
Eins og markatalan gefur til
kynna var leikurinn heldur jafn,
en þó var meiri broddur i leik
Haukanna, og sigur þeirra var
verðskuldaður.
Sigur Keflvikinga i leiknum
gegn Akureyringum var þó aldrei
i hættu og fyllilega sanngjarn. En
leikurinn olli vonbrigðum, hann
var leiðinlegur á að horfa og bauð
ekki einu sinni upp á falleg mörk,
nema það fyrsta, sem Hörður
Ragnarsson skoraði stórglæsi-
lega.
Hann fékk háa fyrirgjöf Karls
Hermannssonar frá endamörkum
og skallaði frá vitapunkti ofar-
lega I vinstra markhornið — gull-
fallegt mark og illverjandi fyrir
Samúel markvörð.
Aðeins minútu siðar fékk Stein-
ar svipaða fyrirgjöf, og aftur
þurfti Samúel að horfa á eftir
skallabolta i netið, en Steinar var
dæmdur rangstæður og markið
þvi ógilt.
27 minútur voru liðnar af leikn-
um og staðan 1:0 fyrir heima-
menn, sem sóttu áfram, og annað
mark lá i loftinu.
Það kom siðan á 40, min. Stein-
ar fékk þá boltann eftir hörmuleg
varnarmistök, og þegar Steinar
stendur einn og óvaldaður á
markteig þarf ekki að spyrja um
afleiðingarnar.
2:0 var staðan þvi i leikhléi. I
siðari hálfleik kom fjörkippur i
norðanmenn, sem sóttu nokkuð
og áttu ágæt tækifæri, sem nýtt-
ust þó ekki. Sóknarmönnum gekk
illa og svo virtist, sem uppgjöf
kæmist i liðið og Keflvikingar
juku sóknarþungann, ekki vegna
aukins styrkleika sins liðs, heldur
fyrst og fremst vegna vanmáttar
andstæðinganna.
Síðasta markið kom á 40. min,
siðari hálfleiks. I eitt skipti af
mörgum var vörn Akureyringa,
með Gunnar Austfjörð sem lang-
besta mann, leikinn nokkuð grátt,
Ólafur Júliusson fékk boltann á
Fádæma ruddaskapur
dómara í leik Þróttar og Breiðabliks
Framkoma Einars Hjartarsonar, dómara leiks Breiðabliks og
Þróttar, sem lauk með 0-0 jafntefli, er svo fádæma ruddaleg, að ekki
veröur hjá þvi komist að segja frá. Einar hefur löngum haft orð á
sér fyrir tillitsleysi i garð leikmanna, þjálfara, áhorfenda og ann-
arra, þ.e.a.s. ef illa liggur á honum.
En þannig var hann einmitt skapi farinn fyrir þennan leik og lét
það svo sannarlega bitna á leikmönnum og áhorfendum, sem virt-
ust honum til mikils ama.
Látum vera þótt boltinn hafi legið i neti Þróttara þrisvar sinnum,
þrátt fyrir frábæra markvörslu, og Einar hafi dæmt þau öll af. Lát-
um vera þótthonum hafiyfirsést eina vitaspyrna. Slikt er mannlegt
og allir reiðubúnir að fyrirgefa slikt. En framkoma Einars við
leikmenn Breiðabliks og þjálfara fyrir leikinn var ámælisverð, og
verður nánar sagt frá þvi iblaðinu á morgun. —gsp
Hörður Ragnarsson skorar fyrsta mark
GSP)
Völsungar
skell gegn
IBK gegn ÍBA (Ljósm.
fengu
FH
Völsungar frá Húsavik komu til
Hafnarfjarðar sl. laugardag og
léku þar gegn FH og fengu heidur
betur á baukinn. FH sigraði 6:0,
stærsti sigur sem unninn hefur
að
Selfyssingar koma
enn á óvart-
sigruðu Ármann 4:2 í 2. deildarkeppninni
Sennilega hefur ekkert
lið f 2. deild komið jafn
mikið á óvart það sem af
er keppninni og lið Selfoss.
Þetta lið hefur staðið mjög
tæpt í 2. deild sl. tvö ár, en í
bæði skiptin sloppið naumt
við fall. Nú aftur á móti
virðist liðið blómstra og
hefur unnið tvo mjög at-
hyglisverða sigra og báða
sannfærandi, gegn Völs-
ungum, og nú síðast um
helgina gegn Armanni.
Selfyssingar sigruðu Armann
4:2, greinilega engin tilviljun sá
sigur. Hinn snjalli markakóngur
þeirra Selfyssinga, Sumarliði
Guðbjartsson, skoraði þrennu i
leiknum, en 4.markið fyrir Selfoss
skoraði Kristinn Ásgeirsson.
Mörk Armanns skoruðu þeir Sig-
urður Leifsson og Jens Jensson,
kunnari sem handknattleiksmað-
ur með Armanni.
Það er ljóst eftir fyrstu leikina i
2. deild, að Armann verður ekki
með i toppbaráttunni með Þrótti,
FH og Breiðabliki, en hinsvegar
sýnist manni sem Selfyssingar
geti blandað sér i þá baráttu, eða
alla vega sett strik i reikning
„stóru” liðanna.
verið i tslandsmótinu fram
þessu I ár.
Það er alveg greinilegt að lið
FH hefur vart verið sterkara i
mörg ár en það er núna og það er
af fróðum mönnum talið mjög lik-
legt til að vinna deildina i ár, en
helstu keppinautar þess eru
Breiðablik og Þróttur.
Menn höfðu búist við miklu af
Völsungunum eftir mjög góða
byrjun i mótinu, en sjálfsagt
verður þessi skellur til að draga
úr vonum áhangenda liðsins um
að það verði með i toppbaráttunni
i sumar.
Mörk FH i þessum leik skoruðu
Leifur Helgason þrjú, Ólafur
Danivalsson tvö og Gunnar
Bjarnason eitt.
Skarðsmótið
Siðasta skiðamót þessa
kcppnistimabils fór fram um sið-
ustu helgi, en það var Skarðsmót-
ið sem fram fer árlega um hvita-
sunnuna á Siglufirði. A morgun
munum við birta úrslit mótsins,
auk mynda sem teknar voru við
verðlaunaafhendinguna.
f®
Helgi
alvarlega
meiddur
Helgi Helgason, hinn snjalli
miðvörður Vikings, meiddist
all-alvarlega I leik Vikings og
KR sl. föstudagskvöld, og
verður liann ekki með Vik-
ingsliðinu sennilega i nokkrar
vikur, þar eð liðbönd i fæti
hans slitnuðu. Varð að fiytja
hann á sjúkrahús þar sem
hann var settur I gips.
Þetta kemur sér afar illa
fyrir Vikinga þar sem Helgi er
einn besti varnarlcikmaður
liðsins.
markteig og renndi honum i hálf-
tómt markið.
Lokatölurnar urðu þvi 3:0 sigur
Keflvikinga, sem áttu hann fylli-
lega skilið. Akureyringar ná sér
ekki almennilega upp, en það er
þó alls enginn mælikvarði á
frammistöðuna i sumar, þvi æf-
ingaleiki hefur liðið enga fengið,
heldur kemur það gjörsamlega
leikreynslulaust inn i Islandsmót-
ið að þessu sinni sem oftar. í
fyrra var siðari umferðin mun
betri helmingur mótsins fyrir
IBA, og ég er ekki frá þvi, að svo
verði einnig i ár. Liðið á marga
mjög skemmtilega leikmenn, en
æfingu og reynslu vantar enn.
—gsp
— staðan /»V
Staðan eftir leikina um sið-
ustu helgi er nú þessi i 1. deild,
en þess skal getið að leikurinn
sem fram fór i gærkvöld, Vik-
ingur—Fram, dæminu: er ekki með i
ÍA 3 2 1 0 6:1 5
KR 3 2 0 1 3:2 4
ÍBK 3 2 0 1 5:2 4
ÍBV 3 1 1 1 3:3 3
Valur 3 0 2 1 2:3 2
ÍBA 3 1 0 2 1:7 2
Vikingur 2 0 1 1 2:3 1
Fram 2 0 1 1 3:5 1
Markahæstu menn:
Matthias llallgrimsson ÍA 3
Steinar Jóhannsson ÍBK 3
Teitur Þórðarson tA 2