Þjóðviljinn - 30.11.1974, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 30.11.1974, Blaðsíða 5
Laugardagur 3(L nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Vélgeng, stöðluð °g þurr kansellírödd Undanfarna daga hef ég verið að biða eftir þvi, að útvarpið flytti okkur frétt, hljóðandi eitthvað á þessa leið: „Fjölmennur fundur i Hús- mæðrafélagi Reykjavikur hefur mótmælt sihækkandi verði á vör- um og þjónustu og skorar á fé- lagskonur að hætta að kaupa kaffi, sykur og brauð”. Eða: „Konur úr Húsmæðrafélagi Reykjavikur fóru i fjölmenna mótmælagöngu til Alþingis og fylltu áheyrendapalla, til að mót- mæla sivaxandi dýrtið og krefjast úrbóta”. En ekkert slikt hefur heyrst.enn sem komið er. Mikið hafa þessar blessuðu konur sett ofan, siðan hérna um árið, þegar þær færðust i val- kyrjuham, skáru upp herör og hófu heilagt strið gegn kjöti, smjöri og mjólk. Jafnframt minnumst við hins sögulega at- burðar, þegar þær vigreifar og tindilfættar tritluðu ofan að Al- þingishúsi. En við skulum ekki rekja þá sögu lengra. 011 þjóðin þekkir framhaidið. Sem sagt: Engar fréttir hafa borist af þessum ágæta félags- skap og skulum við þvi snúa okk- ur að öðru. Eiginlega hafði ég hugsað mér, að rifja upp eitthvað af þvi, sem ég minnist enn, úr dagskrá liðins sumars. Einkum það sem kalla mætti afþreyingarefni og vandlátir vel menntaðir hlustendur leggja sig ekki niður við að hlusta á. Sumir eru jafnvel svo miklir af sjálfum sér, að þeir neita með auðheyri- legu stolti, séu þeir spurðir, hvort þeir hafi hlustað á eitthvert efni, sem flutt hefur verið i útvarpið eftir klukkan átta að kvöldi. Er sól s jónvarpsins tekur að skina Ég, sem gamall og ég held góður útvarpshlustandi, get eiginlega aldrei sætt mig við það, hvernig útvarpið lendir i skugganum, þegar sól sjónvarpsins tekur að skina yfir landslýðinn, eftir klukkan átta á kvöldin, Mér koma þá fyrst i hug kvöld- vökurnar, eða sumarvökurnar, eins og þær nefnast að sumarlagi. Ég hef alltaf gaman að þeim. Mér er hinsvegar ekki grunlaust um, að sumir telji ekki virðingu sinni samboðið að Ijá þeim eyra. Að minnsta kosti varð maður þess oft var hjá gestum Páls Heiðars i morgunkaffinu forðum tið. Ég hef jafnvel grun um, að þeir I útvarpinu kasti i þessa rusla- kistu ýmsu þvi er ekki þykir frambærilegt i aðra dagskrárliði. Til dæmis hef ég veitt þvi athygli, að óþekktum hagyrðingum er smeygt inn i kvöldvökur, en al- vöruskáldum, sem hafa fengið listamannsstimpil, eru ætlaðir sérstakir dagskrárliðir, og þá venjulega á þeim tima sem kall- aður er besti hlustunartiminn, það er að segja, áður en sjónvarp hefst. bátturinn Spurt og svarað, sem var á dagskrá i sumar, og er raunar enn, er mjög eftirtektar- verður og ber tvennt til. Þeir, sem verða til þess að svara spurningum hlustenda, eru venjulega embættismenn, eða forsvarsmenn opinberra eða hálf- opinberra stofnana. Það, sem vekur athygli hlustandans, er ekki fyrst og freinst hverju þeir svara, heldur hitt hvernig þeir svara. Þeir hafa allir sama radd- blæinn, sömu áherslurnar. Þetta er vélgeng, stöðluð og þurr kansellirödd. Maður spyr sjálfan sig, hvort það sé hið margumtalaða kerfi, sem hafi þann eiginleika, að geta breytt lifandi mönnum, sennilega meb ódauðlega sál, i sálarlaus vélmenni, að minnsta kosti, á meðan þeir eru að láta eitthvað út úr sér 1 embættisnafni. Hitt, sem er merkilegt við vél- mennin er, hverju þeir svara. Það er einnig mjög á sömu bókina lært. Svörin eru yfirleitt loðin og tvlræð, og eins og út i hött, þannig aö spyrjandinn verður venjulega litlu, eða engu nær. Svo kom Jökull aftur óvænt og fyrirvaralaust Það urðu mikil umskipti til hins betra, þegar útvarpið tók á lið- andi sumri, að flytja islensk leik- rit. Leikritin, sem flutt voru fyrri- hluta sumars voru flest nauða- ómerkileg, og það svo, að þau gleymdust nálega um leið og þeim lauk. Flest minnir mig þó, að fjölluðu um einhvers konar ástarlifsflækjur. Þó minnist ég að hafa heyrt nokkur endurflutt og voru þau öllu eftirminnilegri. Það er eins og betur hafi til tekist með leik- ritaval á árum áður en nú i seinni tið. Mikla ánægju hafði ég af þátt- um Ævars Kvarans frá vestur-is- lendingum. Þeir voru bæði fróð- legir og skemmtilegir. Aður hef ég vist minnst á þætti þeirra Jökuls Jakobssonar og Hrafns Gunnlaugssonar, og skal þvi litlu við bæta. Þó verð ég að segja það, að sið- asti þáttur Hrafns, sem fjallaði um englamorðin i Kópavogi, var svo skemmtilega vitlaus um það var hægt að hlægja að honum, en það er meira en sagt verður um aðra þætti hans frá liðnu sumri. Jökull virðist hafa tekið sér nokkurt fri siðla sumars. En svo kom hann aftur i haust, óvænt og fyrirvaralaust. Var hann þá sem endurfæddur og sagði margt snið- ugt. Einkum var honum þó uppsigað við Einar okkar Agústsson og gerði raunar fullmikið af þvi góba. Var hann búinn að gera þessum ágæta ráðherra prýðileg skil i tveim þáttum. Hefði þvi að skaðlausu mátt láta ógert að ljósta upp leyndarmálinu um tengsl ráðherrans við tvihöfðaða kálfinn. Presturinn tók upp kartöflur með vél Þátturinn: Mér datt það i hug, var fluttur á sunnudögum i sum- ar, eins og verið hefur að undan- förnu. Að þessu sinni önnuðust hann þrir rithöfundar og einn prestur. Þetta voru allt ágætir menn. Þeir töluðu um hversdagslega hluti, stundum blátt áfram um ekki nokkurn skapaðan hlut þannig að það var ósköp notalegt að hlusta á þá. Ég vil ekki gera upp á milli þessara heiðursmanna. beir bættu hvern annan upp, þannig aö einn hafði það sem annan vant- aði, og það varð til að auka fjöl- breytnina. En að öllum hinum ólöstuðum, finnst mér þó, að ég hafi haft mest dálæti á prestinum. Það hefur ef til vill komið af þvi að hann var jarðbundnari en hinir. Hann heyjaði sitt tún, smalaði fé, brytjaði mör og át blóðmör. Kannske hefur það verið lifra- pylsa. Og hann tók upp kartöflur með vél og það sem best var hann lýsti henni svo skilmerkilega aö ég og aðrir ófróðir hlustendur getum nú nokkurn veginn áttað okkur á, hvernig þetta tæknilega furbuverk er samansett og hvern- ig það vinnur. Mikið hefur verið flutt af sögum I útvarpinu á liðnu sumri. Margar þeirra hafa farið fram hjá mér, úr öðrum hefi ég heyrt nokkra kafla, en svo eru enn aðrar sem hafa vakið áhuga minn, i það rik- um mæli, að ég hef reynt að fylgj- ast með þeim, eins vel og ástæður mlnar hafa leyft. Tvær skulu hér nefndar. Hin fyrri er saga Oddnýjar Guðmundsdóttur, Svo skal böl Skúli Guðjónsson Ljótunnar- stöðum skrifar útvarps- annál Oddný Guðmundsdóttir Jökull Jakobsson bæta, hin siðari er eítir Rósu Þor- steinsdóttur og nefnist Katrin Tómasdóttir. Fyrri hlutinn af sögu Oddnýjar kom út fyrir þrjátiu árum en sið- ari hlutinn, sem ekki hefur enn verið gefinn út mun vera nýsam- inn. Sagan sem Oddný flytur er okkar saga Þetta er sveitalifssaga, en slik- ar sögur eru vist ekki i tisku nú á dögum. En hvað um það. Þetta er okkar saga, okkar, sem höfum stritað hálfa öld og stöndum svo að leiðarlokum uppi jafnsnauðir af veraldargæðum og þegar við byrjuðum. Okkar, sem höfum lif- að og hrærst i siðrómantik milli- striðsáranna, okkar, sem steyrð- um af heimskreppu og mæðiveiki, okkar, sem lifðum heimssturjöld, hernám á hernám ofan, okkar, sem höfum svo árum skiptir bar- ist við kal, hafis og öskufall. Okk- ar, sem verðum að horfa upp á þá smán, að nýrikir sunnanmenn voka eins og hrægammar yfir hverju koti, sem úr byggð losnar, reiðubúnir að hremma það, ef færi gefst. Við fylgjumst af brennandi á- huga með þeim Eyvindi og Disu, með ástum þeirra og tilhugalifi, með fátækt þeirra og búhokri á afdalakoti og svo skilur höfundur við þau i miðri kreppunni, með stóran barnahóp i fyrri hluta sög- unnar. Þegar við svo hittum þau Ey- vind og Disu i siðari hluta sögunn- ar veröum við næstum undrandi. Þá eru þau orðin gömul og útslit- in. Börnin eru öll komin að heim- an og hafa komist vel áfram. Það sem undrun okkar vekur er, að baslið hefur ekki smækkað þau. Þvert á móti hafa þau vaxið að visku, og náð fyrir guði og mönn- um, svo að notuö séu orð ritning- arinnar. Þau eru sátt við lifið og allt og alla. Og þau eru meira. Þau hafa öðlast svo mikla and- lega eðlisþyngd, að þau geta með lagni, en stundum kannske með solitlum klókindum greitt úr erf- iðum vandamálum og óvæntum uppákomum barna sinna og barnabarna. Þó að aðalerpsónur sögunnar hafi verið gerðar hér að umtals- efni, segir hún okkur miklu meira. Við sjáum i raun og veru heilt hérað og kynnumst ibúum þess um hálfrar aldar skeið. Okkur þykir vænt um þetta fólk. Það er okkar fólk. Frásagnargleði Rósu er mikil Skal þá vikið að Rósu Þor- steinsdóttur og sögu hennar af Katrinu Tómasdóttur, eða Mála Katrinu, eins og hún hefur stund- um verið nefnd. Höfundur hefur auðheyrilega „Björt eru bernsku- r • ann „Björt eru bernskuárin”, sjötta bindið I heildarútgáfu Isafoldar á barna- og unglingabókum eftir Stefán Jónsson er nú komin út. Aður hefur isafold gefið út skáldsögurnar „Vinir vorsins”, „Skóladagar” og Hjaltabækurnar þrjár: „Sagan hans Hjalta litla”, „Mamma skilur allt” og „Hjalti kemur heim”. „Björt eru bernskuárin” kom fyrst út 1948 og var fyrsta smá- lagt mikla vinnu i heimildakönn- un, áður en hann hóf ritun sög- unnar. I annan stað tekst honum, næstum með undraverðum hætti ab lifa sig inn i þá tima, sem sag- an gerist á. Vinr.ubrögð fólks, klæðaburður, mataræði og skemmtanir, standa hlustandan- um ljóslifandi fyrir hugskotssjón- um. Sibast en ekki sist kynnumst við stéttaskiptingu þeirra tima. Höfundur setur sig aldrei úr færi að sýna okkur djúpið, sem staðfest var milli rikra og snauðra, milli ættgöfugra manna og ættlausra. Frásagnargleði Rósu er mikil, svo mikil, ab listhneigðum mönn- um og bókmenntafróðum þykir um of og segja, að hún hefði getað komist af með færri orð. Okkur hina, sem hvorki erum bókmenntafróðir né iisthneigðir. hrífur hún með sér og við tökum þátt i frásagnargleði hennar af Hfi og sál. Ýmsir hafa haft orð á þvi við mig, að botninn hafi dottið úr sög- unni. En þeim hinum sömu má segja það, að þetta var aðeins fyrri hluti sögunnar. Hýðing Katrinar dró dilk, ekki alllitinn á eftir sér og fáum við vonandi að heyra þá sögu. áður en mjög langir timar liða. Munurinn á nýveiddum fiski og þeim sem lagður var i dós Þeim Oddnýju og Rósu er það sameiginlegt, að á verkum þeirra má stundum finna einhverja hnökra, jafnvel bláþræði. En þrátt fyrir það. eða öllu heldur vegna þess, er þar að finna það nýjabragð og þann ferskleika, sem við finnum ekki hjá þeim höfundum, sem fága og slipa verk sln og reyna, stundum með vafa- sömum árangri, að gera úr þeim listaverk og það þykir mörgum flnt. Munurinn á verkum þeirra Oddnýjar og Rósu, og á verkum listaverkasmiðanna, er svona á- llka og munurinn á nýjum fiski. með mörfloti útá og þeim fiski. sem hefur verið gerilsneyddur. soðinn niður. lagður i dósir um- flotinn visindalega samansettri kryddsósu og dósin siðan stimpl- uð með gæðamerki lagmetisiðn- abarins. Smekkur manna er misjafn og vafalaust kjósa margir dósamat- inn. En mér er hinsvegar engin launung á þvi, að ég kýs fremur fiskinn nýveiddan og nýsoðinn, með mörfloti útá. en þann, sem er fiskaður upp úr dós. jafnvel þótt hún sé stimpluð með gæðamerki lagmetisiðnaðarins. 11. til 14. nóv, 1974 StefánJónsson sagnasafn Stefáns fyrir unga les- endur, en áður hafði hann gefið út þrjú smásagnasöfn. t þessari nýjustu bók, sem isa- fold gefur út i bókaflokknum, eru átta sögur, sem flestir munu nú- orðið þekkja mætavel: „Lauga og ég sjálfur", „Pési”, „Knatt- spyrnumenn". „Kusi”, „Vinur nvinn Jói og appelsinurnar”, „Orsakir og afleiðingar", „Myrk- fælni”, „Litli-Brúnn og Bjössi”. Sjöunda bindi isafoldar i þess- um flokki bóka eftir Stefán Jóns- son, verður skáldsagan „Margt getur skemmtilegt skeð”.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.