Þjóðviljinn - 05.06.1976, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 05.06.1976, Blaðsíða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. júní 1976. UPPgjöf Framhald af bls. 20. kenningar á 200 milna reglunni og þar með loka-sigurs islendinga i landhelgismálinu telja þingflokk- ur og framkvæmdastjórn S.F.V. að samkomulaginu beri skilyrðis- laust að hafna. 1 stað þess að semja nú við breta hefði rikis- stjórnin þannig átt að standa við marggefnar yfirlýsingar úm að fella úr gildi samninginn við vest- ur-þjóðverja, og koma þannig i veg fyrir að sá samningur verði það haldreipi Efnahagsbanda- lagsins bretum til handa, sem þeir nú mæna á til áframhaldandi rányrkju á íslandsmiðum.” Áskrillarsíini 175 05 íþróttir Framhald af 15. siðu. á alls ekki að sjást i 1. deildar knattspyrnu. Þar með voru úrslit leiksins ráðin. Ekki horfir gæfulega fyrir ungt en máttlitið lið Þróttar sem hefur ekki fengið stig eftir heilar fimm umferð- ir. Hætt er við að uppskeran verði ekki mikil i sumar ef veruleg breyting verður ekki á. Það vantar ekki að sumir strákanna séu liprir en þeir eru vita kraftlausir og margir hverjir alltof þungir á sér af ekki eldri knattspyrnu- mönnum áð vera. FH-ingar voru snarpir fyrir hlé en vindur úr þeim flestum i seinni hálfleik. Bestir voru þeir Olafur Danivalsson og Jó- hann Rikharðsson sem skapaði sér góð tækifæri og nýtti eitt þeirra. Dómari var Ragnar _Magnússon. — gsp F.Í.B. Framhald af bls.2 0. Einnig tekur Gufunes-radio við skilaboðum i sima 22384, tal- stöðyabifreiðar sem eru margar á ferð um þjóðvegi landsins geta einnig komið skilaboðum áleiðis og hlusta viðgerðarbilarnir á rás- um 2790 khz og 27185 mhz. F.l.B. vill minna bifreiðaeig- endur á að hafa meðferðis helstu varahluti i bifreiðum sinum t.d. platinur, kerti, kveikjulok, viftu- F r amkvæmdastj óri Stjórn Félagsstofnunar stúdenta auglýsir lausa til umsóknar stöðu framkvæmda- stjóra stofnunarinnar frá og með 1. sept. n.k. Félagsstofnun stúdenta er sjálfseignar- stofnun með sjálfstæðri fjárhagsábyrgð og rekur nú eftirtalin fyrirtæki. 1. Barnaheimilin Efrihlið og Valhöll. (Daglegur rekstur hjá Barnavina- félaginu Sumargjöf). 2. Bóksölu stúdenta. 3. Ferðaþjónustu stúdenta. (Daglegur rekstur hjá Ferðaskrifstofunni Land- sýn). 4. Háskólafjölritun. 5. Hjónagarða. 6. Hótel Garð. 7. Kaffistofur i Háskólanum, Árnagarði og Lögbergi. 8. Matstofu stúdenta. 9. Stúdentagarðana, Gamla og Nýja Garð. 10. Stúdentaheimilið (Félagsheimili stúdenta). 11. Stúdentakjallarann. Launsamkv. 25. launafl. BHM. Menntun á háskólastigi nauðsynleg. Frekari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri stofnunarinnar. Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf þurfa að berast Félagsstofnun stúdenta fyrir 20. júni n.k. Félagsstofnun stúdenta, Pósthólf 21, R. Simi 16482. i ......................................... Minningarathöfn um bróður okkar, Guðna ólafsson apótekara, fer fram i Dómkirkjunni þriðjudaginn 8. júni kl. 13.30. Jarðsett verður frá Eyrarbakkakirkju kl. 16. Bíll veröur við kirkjuna fyrir þá sem vilja fara austur. Magnea ólafsdóttir Sigriður ólafsdóttir Arni ólafsson Gfsli Ólafsson Sigurjón Ólafsson reim og góðan varahjólbarða. Félagsmenn F.Í.B. fá viðgerð i 1/2 klst. án endurgjalds og eftir 1/2 klst. greiða þeir 1500,- pr. klst. Félagsmenn skulu framvisa félagsskirteinum. Utanfélags- menn greiða lágmarksgjöld kr. 3.000.- og er sama verð pr. klst. Félagsgjald i F.l.B. fyrir árið 1976 er kr. 2.000.- Listahátið Framhaldaf bls. 11. Kammersveit Reykjavikur annast tónlistarflutning. önnur sýning á þvi verki er á þriðju dagskvöld. Sama kvöld eru aðrir Bet- hoventónleikar MSrkl-strengja- kvartettsins þýska i Bústaða- kirkju. Fjölskyldan spilar. Á þriðjudagskvöld bætist Listahátið liðstyrkur frá Dan- mörku: Michala-flaututrióið. í þvi eru Michala Petri, ungur heimsfFægur blokkflautu- leikari, bróðir hennar, David Petri (cello) og móðir þeirra, Hanna Petri (sembal). Þau leika bæði gömul og ný verk fyrir blokkflautu, og eru nokkur þeirra skrifuð fyrir Michölu. Hún er 17 ára, en er þegar orðin svo þekkt að hennar er getið á siðum alfræðiorðabóka. Michala Petri hefur haldið hljómleika viða i Evrópu auk Norðurlandanna, og eftir Islandsdvölina heldur hún i tón- leikferð til Hollands og Þýska lands. Michala fær nær daglega með póstinum tónverk samin fyrir hana sérstaklega eða fyrir trióið i heild, og eitt tónskáld- anna i „safni” hennar er t.d. Skúli Halldórsson. David Petri er ,,bara 14 ára”, en eins og Michala búinn óvenju miklum tónlistarhæfileikum. 1 Háskólabiói eru Islenskir p o p p t ó n 1 e i k a r ' 'á þriðjudagskvöld. Spilverk þjóð- anna, Paradis og' fleiri flytja frumsamda tónlist. Einhamar Framhald af bls. 2. byggja stærri Ibúðir, sem þyngri væru I sölu en þær minni. Hann kvaðst telja að lögmál framboðs og eftirspurnar skyldi ri'kja á þeim markaði sem þarna opnað- ist sem og annars staðar i islenskri kaupsýslu.. Kristján Benediktsson var greinilega sam- máia Magnúsi, enda þótt hann brysti hæfileikann til að koma að þvi jafn hreinskilningslegum orð- um og Magnús. SigurjónPétursson varaði aftur eindregiö við þvi að láta skamm- timasjónarmið ráða, þegar ákvaröanir vværu teknar um skipulag, sem varöaði lif og heill margra komandi kynslóða. Ein- hamar hf væri að visu áaætt fyrirtæki sem byggthefði ódýrt, en bað breytti engu hér um Nokkrar umræður urðu einnig varðandi lögfræðilega stöðu Einhamars hf ef fyrirtáekið skilaði aftur þeim lóöum sem þvi hafði verið úthlutað. Töldu andófsmenn lágmarkskvaðar- innar jafnvel, að borgin kynni að vera skaðabótaskyld gagnvart fyrirtækinu.efþað hætti viö fyrir- hugaðar framkvæmdir, en Guðmundur Magnússon, Alþýðu- flokksmaður, kvaðst hafa orð lög- fræöings fyrir þvi að slikt væri af og frá. Sigurjón Pétursson sagði af þessu tilefni undarlegt, þegar menn kæmu með slikar órök- studdar fullyrðingar, án þess að hafa fyrst ráðfært sig við sann- fróða löglærða embættismenn borgarinnar. Um umræðuna i heild veröur það að segjast að lokum, að hinn nýi borgarstjórnarmeirihluti var einhuga um, aö draga ætti lær- dóma af þeim mistökum sem gerð heföu verið i skipulagi eldri Breiðholtshverfa og nýta þá reynslu til að fara að málum með meiri forsjá en gert hefði verið þá. Er sú niöurstaða einna mikil- vægust af öllu þvi sem þarna kom fram. ráa Jón Miili Framhald af 7. siðu. blaðs-skáldsins um skorinorta mannréttinda-yfirlýsingu, og rústandi fordæmingu á kreml verjum. Eða beitti Árni kannski áhrifum sinum á bak við tjöld- in? — hann er handgenginn Moskvukommúnistum og sendi- ráði þeirra hér, að þvi er fyrr nefnt skáld segir. Eða er Helsinkisamkomulagið kannski ekki alveg út i hött? — ja — hver veit nema að postular detente séu nú loksins búnir að ná undir- tökunum. En hvað um það, — Davið karlinn fær að heimsækja heittelskaðan son sinn, — og öll- um léttir loksins. Og þó, — hvað um móður Vladimirs Askenasi? fær hún ekki að koma lika? Sjálfur sagði pianistinn i blaðaviðtali hér á landi fyrir nokkrum árum, að móður sinni ætti hann mest að þakka, — er hann nú búinn að gleyma henni? Það held ég að Rönku i Brennu hefði þótt snefs- in kurteisi ef ég hefði barist fyrir þvi i átta ár að fá Árna frá Múla i heimsókn, en aldrei minnst á að hún mætti koma lika ef hún vildi, — þá held ég að mamma hefði sagt ú-u-vv-ff. En það hafa margir fleiri en við Vladimir átt mæður, t.d. EKH og Arni Bergmann að ekki sé nú minnst á Matthias, — lika Geir Hallgrimsson og Einar Agústsson að ógleymdum sendi- herra okkar i Moskvu, og sumir segja Brésnef lika. Væri nú ekki ráð að við mömmudrengirnir allir tækjum saman höndum og létum flytja gömlu frú Askenasi hingað heim? Enn er timi til stefnu — samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsritstjór- ans er Vladimir suður I Grikk- landi um þessar mundir (hann hefst þar við i sumarbústað sem hann smiðaði fyrir afganginn þegar Gjaldheimtan var búin að tékka hann, — i þeirri heimtu eru réttsýnir menn og sanngjarnir, eins og við laun- þegar vitum, — en það er nú annar handleggur) og ætlar ekki að koma hingað heim fyrr en I haust að taka á móti pabba. Og ekki þurfum við strákarnir að óttast einangrun i þessu nýja hugsjónamáli, — konur eiga sér lika og ekki siður mæður — ekki mun standa á liðveislu þeirra: Kvenréttindafélagsins og Mæðrafélagsins, Slysavarna- félat?c Kvenna og Kvennakórs suðurnesja húsmóðir i vestur bænum, Sambands tsl. Tengda- dætra og Kvenréttindasiðu Þjóðviljans (þegar hún er búin að afgreiða vandamál kynlifs- ins) — óhætt mun sem sagt að reikna með stuðningi alls kven- líÞJÓÐLEIKHÚSIfi Listahátíð í Reykjavík: LISTDANSSÝNING Helgi Tómasson og Anna Aragno ásamt tslenzka dans- flokknum. Laugardag kl. 20. Sunnudag kl. 20 (hvitasunnu- dag). IMYNDUNARVEIKIN 2. hvitasunnudag kl. 20. Miðvikudag kl. 20. Siðasta sinn. Litla sviðið: LITLA FLUGAN þriðjudag kl. 20.30. Siðasta sinn. Miðasala 13,15-20. Simi 1-12000 LEIKFÉLAG aí» REYKJAVlKUR SAGAN AF DATANUM eftir Stravinski og C.F. Ramuz. Þýðing: Þorsteinn Valdimarsson. Tónlist: Félagar úr kammersveit Reykjavikur. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Leikmynd: Jón Þórisson. Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson. Frumsýning 2. hvitasunnu- dag, — Uppselt. 2. sýning þriðjudag kl. 20.30. Blá áskriftarkort gilda. SAUMASTOFAN miðvikudag kl. 20.30; næst-sið- asta sinn. SKJALDHAMRAR laugardag kl. 20.30; næst-sið- asta sinn. Miðasalan I Iðnó er lokuð laugardag og sunnudag, opin 2. hvitasunnudag kl. 14—20.30. Simi 1-66-20. kyns, — það er að segja þeirra kvenna sem eru nógu göfugar til að unna mannréttindum, frelsi og lýðræði á borð við okkur Matthias. Söfnum nú liði piltar og syngjum i haust: móðir kona meyja meðtak lof og pris, — en vel á minnst, — veit nokkur hvað móðir Askenasis heitir? JMA cybusturstræti Á BÖRNIN1 SVEITINA Heklupeysur Heklubuxur Denimsett Ullarhosur Strigaskór Stígvél Styðjum íslenzkan iðnað

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.