Þjóðviljinn - 23.06.1977, Síða 16

Þjóðviljinn - 23.06.1977, Síða 16
IJOÐVUJINN Fimmtudagur 23. júni 1977 Aðalsimi Þjóðviljans cr 81333 kl. 9-21 mánudaga til föst,u- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægtað ná i blaðamenn og aðra starfs-1 menn blaðsins i þessum simum. Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. Einnig skalbent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i sima- skrá. „Kítlandi að takast á við þetta verkefni” Sagöi Fridrik sem gefur kost á sér sem forseta FIDE A fundi með fréttamönnum i gær kunngerði Friðrik ólafsson stórineistari, að hann hygðist gefa kost á scr sem forseta FIED, alþjóðaskáksambands- ins. „Það er aldrei auðvelt að taka slika ákvörðun og þvi tók ég mér góðan umhugsunarfrcst áður en ég tók endanlega ákvörðun. Það sem mér finnst svona í fljótu bragði verði mér erfiðast, nái ég kjöri, er hinn pólitiski hráskinnaleikur og mál, sem varða skákmennina sjálfa og skáklistina litlu.~Ég vona aðeins að mér takist að sigla milli skers og báru 1 þeim málum. Raunar er alls ekki vist að ég nái kjöri sem formaöur. Nú er þegar ljóst að a.m.k. tveir aðrir frambjóðendur verða um embættið, þeir Raoul Mendes frá Puerto Rico og júgóslav- neski stórmeistarinn Svetozar Gligoric. Það er heldur ekki vist, hvort orö þau, sem Euwe lét falla, að hann gæti tryggt mér meiri hluta i kosningunum, séu á rökum reist, einkum eftir að Gligoric kom inni myndina, en Euwe mun hafa leitað til Friðrik Ólafsson á blaðamannafundinum I gær. Við hliö hans situr Einar S. Einarsson forseti Skáksambands tslands. — Ljósm. — eik. Gligorics i upphafi en fengið neikvæð svör. Tilkynning sú sem júgóslavenska skáksam- bandið gaf út um framboð Gligoric kom eftir að Euwe tal- aði við mig.” Einvfgið Fischer-Karpov Friðrik sagði á fundinum, aö eins og sakir stæðu væri hann ekki alveg búinn að ákveða hver yrðu sin helstu baráttumál. Þar væri vissulega af nógu að taka. Þar mætti nefna að koma yrði skákmönnunum meira inni störf Fide. Einnig finnst honum skorta mjög alvarlega allar reglur á skákmótum um framkvæmd þeirra og jafnvel keppnisreglur. Friðrik sagðist myndu gera allt sem i'sinu valdi stæði til að koma á einvigi tveggja langsterkustu skák- manna heims, þ.e. Karpovs og Fischers. Allir skákmenn hlytu að fagna sliku einvigi, en ljóst Frá Sandgerðisfundinum; mælar eða hemlar? SUÐURNESJAMENN Deila um sölu á heita vatninu Persónu- frádráttur hjóna 235 þús. kr. Persónuafsláttur við útreikning á skatti i ár verður 235 þús. krón- ur fyrir hjón, en 157 þúsund fyrir einhleypa. Kemur þetta fram i fréttatil- kynningu frá rikisstjórninni i gær um bráðabirgðalög um breytingu skattstiga tekjuskatts, sem út voru gefin i samræmi við fyrir- heit stjórnvalda vegna kjara- samninga. Breytingin er fyrst og fremst fólgin i þvi að 40% skattur kemur nú á mun hærri tekjur en áður, þar eð tekið er upp skatt- þrep með 30% skatti. Kekkonen kemur i ágúst Forseti Finnlands, herra Urho Kekkonen, mun koma i opinbera heimsókn til islands i boði forseta islands, dr. Kristjáns Eldjárns, dagana 10. og 11. ágúst 1977. Að hinni opinberu heimsókn lokinni fer Finnlandsforseti i lax- veiði i boði rikisstjórnarinnar i Laxá i Kjós áöur en hann heldur aftur til Finnlands 14. ágúst. Upp er kominn ágreiningur um hvort vatnið frá Hitaveitu Suðurnesja skuli selt eftir mæl- ingu eða að notaðir verði svonefndir hemlar. Opinber fund- ur var nýlega haldinn I Sandgerði um málið og þar var samþ. meö 23 atkv. gegn 6 tillaga, sem fól I sér að vatnið skyldi selt samkvæmt mælum. Blaðið háfði samband við Alfreð Alfreðsson, sveitarstjóra Miðneshrepps, og innti hann nánari fregna um þennan ágrein- ing. Alfreð Alfreðsson kvað hita- veitustjórnina hafa frá upphafi gert ráð fyrir, aö hemlar yrðu notaðir en ekki mælar, og sú ákvörðun hefði verið tekin samkvæmt ráðleggingum þeirra, sem hitaveitustjórnin leitaði ráða hjá. Siðan kom upp óánægja i Garðabæ meö þessa ákvörðun og hún hefur eitthvað gripið um sig. Garðbæingar og þeirra skoðana- bræður telja, að vatnið verði dýr- ara séu hemlar notaðir. Hinsveg- ar veit ég ekki betur, sagöi Alfreö Alfreðsson, en að það sé sam- róma álit allra sérfræðinga, sem að hitaveitumálum starfa, aö hemillinn sé hagstæðari bæði not- endum og hitaveitunum. Nú eru 15 hitaveitur starfandi i landinu, sagði Alfreð. Af þeim eru 13meö hemla. Sú 16. er á leiöinni, Hitaveita Akureyrar, og aö þvi er ég best veit er búið að teka ákvörðun um að nota hemla þar. Aðeins tvær hitaveitur á landinu selja vatnið eftir mælum: Hita- veita Reykjavikur, með sina anga i Kópavogi og Hafnarfirði, og Framhald á bls. 14. mætti vera, að enginn hægöar- leikur væri að koma þvi i kring. Þar ylti allt á skákmönnunum sjálfum, og eins og staðan er i dag er útlitið ekki alltof gott. „Mun tefla áfram” Hvað skákferli sjálfs min við- vikur, veröi ég kosinn forseti, mun ég reyna, eftTr þvi sem timi vinnst til, að tefla i alþjóðlegum kappmótum. Þetta ætti þó ekki við um heimsmeistarakeppnina sjálfa; þátttaka i henni yrði mér að sjálfsögðu útilokuð. „Þáttur ríkisins” Islenska rikisstjórnin hefur heitið stuðningi við framboð Friðriks. Ekki er ljóst hversu mikill fjárstyrkur kæmi til, en hún myndi vinna að kynningu á framboði Friðriks, undirbúningi á aðstöðu hér heima, (Aðal- stöðvar FIDE myndu að sjálf- sögðu flytjast hingað til lands.) og allri fyrirgreiðslu i sambandi við fjarskipti. Þess má geta að staða forseta FIDE er að méstu leyti ólaunuð virðingarstaða, þannig að tryggja yrði fjárhagslega vel- ferð Friðriks. Reyndar mætti gera breytingar á þessu eins og svo mörgum atriðum varðandi alþjóðlega skáksambandið. Alþjóðlega skáksambandið var stofnað 1925. Fyrrum forsetar þess voru Alexander Rub Júgóslaviu 1925—49 og Folke Rogárd Sviþjóð 1949—70. Max Euwe tók við forsetaemb- ættinu 1970, en þess má geta að Raoul Mendes, sem nú er i framboði, bauð sig einnig fram þá. —hól. Sumarferð Alþýðu- bandalagsins 3. júlí: LÁTIÐ SKRÁ YKKUR STRAX! Sumarferð Alþýðubandalagsins i Reykjavik verður farin um Reykjanes. Mikill fjöldi fólks hef- ur undanfarin ár farið i sumar- fcrðina, cnda hefur mjög verið vandað til leiösagnar. Til að auðvelda allan undirbúning og skipulag er fölk hvatt til að láta skrá sig strax og sækja miðana. Farið fyrir fullorðna kostar 1900 kr., fyrir börn 1100 kr., en fyrir aldraða og öryrkja, sem hafa ekki aðrar tekjur en bætur almanna- trygginga, 1300 kr. Skrifstofa Alþýðubandalagsins að Grettis- götu 3 (simi 17500) er opin alla virka daga fram aö ferðinni kl. 11—21, en á laugardag kl. 11—16. MOSKVU 22/6 Reuter — Samtök um sjóð, sem sovéski rithöfund- urinn Alexander Soltsénitsin stofnaöi til hjálpar fangelsuðum sovéskum andófsmönnum og fjöl- skyldum þeirra, skoruðu i dag á Carter Bandarikjaforseta að veita hópnum aðstoð til þess aö hægt væri að halda áfram að starfrækja sjóðinn. Telur tals- maður sjóð^ms að öruggasta að- ferðin til þess sé að koma þvi til leiðar að sovésk stjórnarvöld við- urkenni sjóðinn sem löglega stofnun. I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I i ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ ; j ,i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.