Þjóðviljinn - 04.04.1978, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 04.04.1978, Blaðsíða 2
10 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Þriöjudagur 4. april 1978. Þriöjudagur 4. april 1978. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 11 Enska knattspyrnan: Hann tryggði Víking sigur öðru fremur með stórleik,er Víkingur sigraði Hauka23:19 CJ CJ o D Notthingham Forest heldur enn áfram sigurgöngu sinni i ensku deildarkeppninni. Um helgina lék liöiö gegn Chelsea og sigraði 3:1 og fátt virðist nú geta komið i veg fyrir sigur Forest nema krafta- verk eitt. En litum á úrslitin á laugardag: 1. deild. Arsenal—Man. Utd. 3:1 Aston Villa—Liverpool 0:3 BristolCity—Newcastle 3:1 Everton—Derby County 2:1 Leicester—WBA 0:1 Man. City—Ipswich 2:1 Norwich—Leeds 3:0 Notthingham F,—Chelsea 3:1 QPR—Middlesbrough 1:0 West Ham—Coventry 2:1 Wolves—Brimingham 0:1 TOMBÓLUVERÐ Á SKÍÐAVÖRUM r-T LJ Þessir tveir kappar, Björn Björnsson og Viggö Sigurösson voru báöir Isviösljósinu um helgina. Þegar Valur lék gegn 1R I hriít- leiöinlegum leik og Viggó og félagar I Viking mættu Haukum og unnu þýöingarnúkinn sigur Úrslitin i Skotlandi urðu þessi: Úrvalsdeild AyrUtd.—Motherwell 0:1 Celtic—Aberdeen 2:2 Dundee U td.—Clydebank f r. Hibirnian—Partick Thistle 3:1 Rangers—St. Mirren 1:1 Það leit lengi vel út fyrir að mark Tommy Langley gegn Nott- hingham Forest myndi verða eina mark leiksins og þar með mest óvæntu úrslitin á keppnis- timabilinu. En leikmenn Forest með slatta af öskrum frá Brian Clough á bakinu allan siðari hálf- leikinn létu ekki sitt eftir liggja og skoruðu þrjú mörk á siðustu 20 minútum leiksins. Og þar með heldur Forest enn forskoti sinu,en það er nú tvö stig, og hefur liðið einnig leikið þremur leikjum minna en næsta lið sem er Everton. SK. Brian Clough og Peter Taylor eru mennirnir sem gert hafa Forest aö þvi stórveldi sem þaö er nú oröiö. Nú er tækifærið komið. Hólasport verður með 'órkostlegaútsölu á skiðavörum i þessariviku og gefur 20-40% afslátt.Á boðstólum eru m.a. DYNAFIT skiðaskórnir, merkið sem allir þekkja, en á verði sem fæstir hafa kynnst áð- ur. Einnig úrval af skiðagöllum, skiðablúss- um, stökum buxum o.fl o.fl. Birgðir eru ekki ótakmarkaðar Aðeins útsala þessa einu viku Póstsendum HOLA- SPORT Hólagarði Lóuhólar 2-6 Sími 75020 Valur og IA gerðu jafn- tefli Þaö var bara þónokkur meistara- bragur á leik Vals og í A er liöin léku i Meist- arakeppni KSI i knattspyrnu á laugar- daginn. Leiknum lauk meö jafntefli, 1:1. Leikurinn var vel leikinn miðað við árstima og sáust oft skemmtilegir kaflar. Mark ÍA var skorað af Arna Sveinssyni i fyrri hálfleik. Skaut Arni þrumuskoti af 25 metra færi og knötturinn þaut i mark Vals. Valsmönnum tókst siðan að jafna leikinn i siðari hálfleik með marki Atla Eðvaldssonar. Ahorfendur voru 530 tals- ins. SK. 160 á 12 t 31. leikviku Getrauna komu fram 4 seðlar meö 12 réttum leikjum og var vinn- ingurinn fyrir rööina kr. 160.500,- Þrir af þessum seðl- um voru frá Reykjavik en sá fjórði nafnlaus. Þar sem tveir þessara seðla voru 16 raða kerfisseðlar, eru þeir einnig með 11 rétta I fjórum röðum og vinningur hvors þessara kerfisseðla kr. 182.900,-Með 11 rétta voru 49 raðir og vinningur fyrir hverja kr. 5.600,- Það hefur aöeins þrivegis komið fyrir áöur i vetur, aö fram hafa komiö seölar meö alla 12 leikina rétta. Hann varð annar í sínum flokki og setti íslandsmet. Frábær árangur hjá þeim íslensku þrátt fyrir aðstöðuleysi Lyftingamennirnir okkar gera það gott um þessar mundir. Þrir þeirra kepptu um helgina á Evrópumeistara- móti i kraftlyftingum og stóðu sig frábærlega. Sér- staklega þó Skúli Óskarsson hinn sterki sem varð annar i sinum þyngdarflokki. Og ekki nóg með það. Hann setti nýtt Norðurlandamet og eig- um við tslendingar þvi tvo slika um þessar mundir. Hinn er Gústaf Agnarsson úr KR sem setti nýtt Norður- landamet hér heima fyrir stuttu i snörun. Orslit á mótinu urðu ann- ars þessi: Skúli sem keppti i léttasta flokknum varð aðlútai lægra haldi fyrir sjálfum heims- meistaranum en hann heitir Fiore og er frá Bretlandi. Skúli setti i raun og veru þrisvar sinnum Norður- landamet i hnébeygju. Bætti fyrst metið i 265 kg. siðan i 175 og loks setti hann metið frábæra 280 kg. 1 bekkpressu lyfti hann 130 kg en hann á við meiðsli aö striða og ef hann hefði gengið heill til skógar hefði hann örugglega sigr^ð. í rétt- stöðulyftu lyfti hann 290 kg og reyndi við nýtt heimsmet eftir að hafa lyft þeirri þyngd, 312,5 kg en missti það naumlega. Aðrir keppendur á mótinu frá Islandi vori þeir Ólafur Sigurgeirsson og Friðrik Jó- sefsson frá Vestmannaeyj- um. Ólafur stóð sig einnig vel lenti I 5. sæti i 90 kg flokki. Hann lyfti I réttstöðulyftu 255 kg. i bekkpressu 185 kg. og i hnébeygju 255 kg. Sigurvegari i þessum flokki varð bretinn Toal sem lyfti samtals 802 kg. ólafur lyftí samtals 695 kg. Þriðji keppandinn Friðrik Jósefsson setti íslandsmet i hnébeygju I sinum þyngdar- flokki (100) lyfti 300 kg. 1 Bekkpressu lyfti hann 200 kg og i réttstöðulyftu lyfti hann 290 kg og samtals 790 kg og þau nægðu honum til 4. sætis. Þetta er einnig nýtt Islands- met. Þessi ferð lyftingamann- anna sannar það enn að við eigum frábæra lyftinga- menn. Þeir eru á heims- mælikvarða þó að ráða- mönnum iþróttanna hér á landi gangi erfiðlega að skilja það. Það væri gaman að fylgjast með þeim bestu i þessari iþróttagrein og árangri þeirra þar ef þeir þyrftu að æfa við svipuð skil- yrði og islensku lyftinga- mennirnir verða að láta sér nægja. Það væri einnig gam- an að sjá Islenska landsliðið i handknattleik æfa i sal Barnaskólans á Patreksfirði. En hvað sem þvi liður þá verður að verða hér breyting á. Ráðamenn iþróttanna og þeir sem fara með stjórn landsins verða að gera sér grein fyrir þvi að við eigum orðið heimsins bestu lyft- ingamenn. Það hafa þeir sannað á siðustu mótum. Ráðamenn þjóðarinnar verðlaunuðu ekki heims- meistarann okkar I skák Jón L. Árnason það litið þegar hann hafði náð árangri sin- um að þeir ættu að geta séð eftir smá aðstoð við þessa menn sem æfa i þvottahúsi. SK. Skúli Óskarsson nann er Norðurlanda methafi í lyftingum Lið Víkings stendur nú mjög vel að vígi í baráttunni um is- landsmeistaratitilinn í hand- knattleik. Liöið lék á sunnu- dagskvöldið gegn Haukum sem voru í fyrsta sæti fyrir leikinn og sigruðu 23:19. Stað- an í leikhléi var 14:212 Vikingi í hag. Leikur þessi var mjög vel leikinn og örugglega einn sá besti í vetur. Björgvin Björgvinsson var mikið I sviðsljósinu og það var einmitt hann sem skoraði fyrsta mark Vikings. Haukarnir jöfnuðu siðan leikinn með fallegasta marki leiksins. Það skoraði Ingimar Haraldsson eftir frábæra linusendingu ólafs Jóhannessonar. Siðan var leikurinn nokkuð jafn eða þar til að síðari hálfleikur var tæplega hálfnaður að Vikingar tóku mikinn sprett og náðu fjögurra marka forskoti 7:3. En þá loksins var sem Haukarnir vöknuðu til lifsins eftir að hafa legið i dvala fyrri part hálfleiksins. Liðið skoraði fjögur næstu mörk leiksins og náði að jafna leikinn 7:7. En á lokasprettinum voru Vikingar harðari, og staðan i leikhléi var eins og áður segir 14:12 Vikingum i vil. I siðari hálfleik vaj þaft sama uppi á teningnum. Vikingar léku mun betri handknattleik en Haukarnir og sókn-^ arleikur þeirra var léttur. Þessu var öfugt farið hjá Haukum. Mestur munur á liðunum i siðari hálfleik og i leiknum var rétt fyrir leikslok, en þá var staðan 21:16 og út- séð um möguleika Hauka. Leiknum lauk siðan eins og áður sagði með sigri Vikinga 23:19. Árni Indriðason var hetja Vikings að þessu sinni. Harka hans og keppnis- skap samfara leikni er mikil og afar dýrmæt hverju liði. Hann skoraði einnig 4 mörk og þau á mikilvægum augnablikum. Hann var besti maður vallarins. Einnig léku þeir vel hjá Vik- ing, t.d. Björgvin Björgvinsson, en hann var nokkuð óheppinn að þessu sinni. Þá var Kristján Sigmundsson ágætur I markinu. Eru Haukarnir að dala? Þessari spurningu velta menn nú fyrir sér. Eftir frábæra byrjun i mótinu og mjög góða leiki um miðbik þess virðist nú sem liðið sé ekki það sama og það var. En þess verður þó að gæta að liðið leik- ur ætið ver i Laugardalshöllinni en það gerir i Hafnarfirði. Hlýtur það að hafa mikið að segja hjá liði sem leikur i toppbaráttunni að geta ekki leikið góðan handknattleik i hvaða iþrótta- húsi sem er. Haukaliðið var nokkuð jafnt i þessum leik, en það voru helst þeir Andrés Kristjánsson og Gunnar Einarsson sem stóðu upp úr þegar illa gekk. Þá var Elias Jónasson einnig friskur á köflum, en datt niður þess á milli. Rétt er að geta frammistöðu ungs leikmanns, Arna Hermannssonar i liði Hauka, en hann kom inn á á erfiðu augnabliki, en brást ekki. Hann skor- aði tvö afar falleg mörk úr hornunum og er greinilegt að hann á framtiðina fyrir sér á handknattleiksvellinum. Mörk Víkings: Björgvin Björgvins- son 5, Arni Indriðason, Viggó SigurCs- son, Þorbergur Aðalsteinsson allir 4 mörk, Skarphéðinn Óskarsson og Páll Björgvinsson 2 mörk hvor og þeir Siguröur Gunnarsson og Jón Sigurðs- son sitt markið hvor. Mörk Hauka: Andrés Kristjánsson 7, Elias Jónasson 4, Þeir Ingimar Haraldsson, Stefán Jónsson og Árni Hermannsson 2 mörk hver og Ólafur Jóhannesson og Þorgeir Haraldsson eitt mark hvor. Leikinn dæmdu þeir Jón Friðsteins- son og Gunnlaugur Hjálmarsson. SK Staðan er nú þannig: Vikingur 11 7 3 1 240:202 17 Haukar 12 6 4 2 247:218 16 Valur 11 6 2 3 221:204 14 FH 11 5 2 4 228:232 12 ÍR 11 3 3 5 214:213 9 Fram 11 3 3 5 228:259 9 KR 10 2 2 6 205:216 6 Ármann 11 2 1 8 203:242 5 staðan r.' CJ CJ a CJ A O O D D / ‘ jDD^téðð F (2 D [þtré'ÉGð EP Sigurganga Forest held- ur áfram 20-40% afsláttur EM í lyftingum Skúli varð annar og setti Norðudandamet Hinn Norðurlandamethafinn okkar, Gústaf Agnarsson. íslandsmótið í Handknattleik: ur

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.