Þjóðviljinn - 01.08.1978, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 01.08.1978, Blaðsíða 15
Þriöjudagur 1. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 KA úr fall- hættu? Aöal fallkandidatarnir i 1. deild i ár KA frá Akureyri eru á góöri leiö meö aö gera allar hrakspár að engu. A laugardaginn unnu þeir afar mikilvægan sigur I falk baráttunni yfir Fram. Leiknum lauk 3:0, og sýna þær tölur á óyggjandi hátt að KA — menn eru til alls visir i þeim leikjum sem eftir eru i mótinu. Haldi KA sæti sinu i deildinni i ár og Þór endur- heimti sitt sæti i 1. deild væri hér um meiriháttar afrek aö ræöa hjá norðanmönnum. En heppnin er mikilvægur hluti ef árangur á að nást og hún var svo sannarlega á bandi KA i leiknum gegn Fram. Er aðeins var búið að leika i 3 minútur var staðan 2:0 KA i hag. Sigurbjörn Guðmundsson skoraði úr vita- spyrnu strax i upphafi og nokkr- um sekúndum siðar bætti óskar Ingimundarson öðru marki við. A 23. min skoruðu þeir svo sitt þriðja mark og þar var að verki Gunnar Blöndal markakóngur liðsins. Fleiri urðu mörkin ekki, enda Framarar algerlega að niður- lotum komnir eftir þessa hrika- legu byrjun. —hól. Lánleysi hjá Breiðabliki Breiöablik var svo til endan- lega sent niöur i 2. deild á sunnu- daginn þegar liöiö tapaöi fyrir Viking 2:1 á Kópavogsveliinum. Breiöabliksmenn sem hafa tap- aö næstum öllum sinum leikjum i deildinni i ár hafa veriö svo hrikalega óheppnir aö næstum grátlegt er á aö horfa. t leiknum gegn Viking gekk lánleysiö þó útfyrir allan þjófabálk. Eftir slakan fyrri hálfleik þar sem staðan var 1:0 fyrir Viking, en mark þeirra Vikingsmanna skoraði Viðar Eliasson, sóttu blikar mun meira. Attu þeir ófá tækifærin og snemma i hálf- leiknum skoraði Sveinn Ottósson. Vikingar voru þó ekki á þeim buxunum að gefa sig, og stuttu siðar skoraði Isfiröingurinn Jóhann Torfason með skalla eftir fyrirgjöf Viðars. Eftir markið sóttu blikar ákaft og uppskáru m.a. vitaspyrnu sem Diðrik gerö- ist svo djarfur að verja. Við þessi ósköp var blikum aö sjálfsögöu öllum lokiö) og þrátt fyrir hetjulegar tilraunir til aö harka af sér tókst þeim ekki aö jafna metin. —hól. ÍBK af hættu- svæðinu Keflvíkingar eru nú úr mestu hættunni i 1. deild. Þeir unnu á Þrótturum á Laugardaisvell- inum á sunnudaginn og enn er ekki örgrannt á möguleikum Þróttara til að pompa f 2. deild að ári. Sigurinn var verðskuldaður enda átti IBK — menn mestan part þeirrar knattspyrnu sem sást i leiknum. Sigurður Björg- vinsson kom Keflvikingum yfir á 26 min. með skalla eftir send- ingu ólafs Júliussonar úr auka- spyrnu. Þróttarar jöfnuðu meö marki Jóhanns Hreiöarssonar, og enn var höfuðiö að verki. Þegar jafnteflið blasti viö skoraði svo Einar A Ólafsson gott mark aðeins 4 minútum fyrir leikslok. Þar við sat, 2:1 sigur IBK. —hól. Staðan í 1. deild Crslit leikja I 1. deild: 1A — FH 2-0 KA — Fram 3-0 Valur — IBV 1-0 Þróttur — Keflavlk 1-2 Breiöablik — Vlkingur 1-2 Staðan I 1. deild er nú: Valur 13 13 0 0 35-5 26 Akranes 13 11 1 1 38-10 23 Fram 13 7 1 5 16-16 15 Vikingur 13 6 1 6 21-23 13 ÍBV 12 5 2 5 16-16 12 KA 13 3 4 6 12-25 10 Þróttur 13 2 5 G 16-20 9 Kefla vik 12 3 3 6 13-19 9 FH 13 2 4 7 17-27 8 Breiðablik 13 1 1 11 í 10-33 3 Pétur Pétursson er nú marka hæstur i 1. deild. Staðan i 2. deUd Úrslit leikja I 2. deild: Fylkir — Austri 1-2 tsafjörður — Þróttur 3-1 Reynir — Armann 2-0 Þór — Völsungur 2-1 Staðan i 2. deild er nú: KR 10 7 2 1 25-3 16 Þór 13 6 4 3 14-12 16 IBÍ 13 5 5 3 19-14 15 Austri 12 5 3 4 10-10 13 Reynir 14 5 3 6 15-18 13 Ilaukar 11 4 4 3 13-8 12 Árinann 12 2 6 14-17 10 Þróttur 12 3 4 5 13 20 10 Fylkir 12 4 1 7 11-17 9 Völsungur 11 2 2 7 10-24 6 íslandsmótið 1. deild: Valur — ÍBV 1:0 Ljósmyndari Þjóðviljans, Einar Karlsson, átti fótum sinum fjör aö launa er boltinn kom æöandi aö honum i leik Vals og IBV á inn, annars heföi þessi ágæta laugardaginn. Bæöi hann og mynd heldur ekki oröiö til. myndavélin sluppu meö skrekk- Valur er enn við það sama — og vann sinn 13. leik í röð. Sigurður Haraldsson hélt markinu hreinu Valsmenn héldu sínu striki með sigri yfir IBV á Laugardalsvellinum síð- astliðinn laugardag. Enn heldur því Valur fullu húsi stiga og nú hefur hvert metið fallið þeim i skaut : Þeir hafa unnið flesta leiki í röð í einu islands- móti. Þeir hafa haldið markinu hreinu í 7 leiki í röð og auk þess tvo bikar- leiki. Islandsmeistaratitill- inn er þó enn ekki öruggur. Skagamenn hafa ekkert gefið eftir í baráttunni og vist er að þegar þessi lið eigast við í síðasta leik mótsins i september verð- ur Islandsmeistaratitillinn undir, nema þá ef annað hvort liðið verður búið að tryggja sér sigur. Valsmenn voru þó langt frá að vera sannfærandi i leik sinum gegn IBV. Eftir tvo góða leiki i Eyjum, var sem leikmenn van- mætu hina harðskeyttu Eyja- menn sem voru án sins besta manns, Karls Sveinssonar. Slikt vanmat kann ekki góðri lukku aö stýra og vissulega voru menn heppnir að hljóta bæði stigin. Leikurinn á laugardaginn ein- kenndist mjög af góöum varnar- leik sem og varfærni beggja liða. Ef eitthvað var, þá sóttu Eyja- menn meira en komust litið áleiö- is gegn sterkri vörn Vals. Sigur- lás Þorleifsson olli þó nokkrum sinnum miklum ursla og a.m.k. varð Siguröur Haraldsson að taka á öllu sinu til að firra marki. Fyrri hálfleikur var annars hálf bragðdaufur og litið um skemmtileg atvik. Leikurinn fór að mestu fram á miðju vallarins en einstaka sinnum brá fyrir skemmtilegum samleiksköflum. 1 seinni hálfleik varð leikurinn hinsvegar snemma fjörugur, t.d. munaði engu aö Sigurlási tækist að skora á 2. min. er hann tætti vörn Vals i sig og skaut á markið en Sigurður bjargaði naumlega með fæti. Valsmenn reyndu að sækja en vörn IBV með Orn Óskarsson og Friðfinn Finnboga- son sem bestu menn gaf ekkert eftir. Það var ekki fyrr en Ingi Björn Albertsson var tekinn útaf um miöjan hálfleikinn að eitthvað fór að gerast. Ingi Björn sem varla hafði sést i leiknum skipti við Magnús Bergs sem strax kom friskleika i spil Vals. Og á 23 min. kom eina mark leiksins. Guð- mundur Þorbjörnsson gaf skemmtilega sendingu inni vita- teig IBV, boltinn hrökk fyrir fæt- ur Alberts Guömundssonar sem skoraði með glæsilegu þrumu- skoti, 1:0. Markiö kom á besta tima fyrir Valsmenn sem sóttu sig mjög i veöriö. Attu þeir nokkr- ar hættulegar sóknarlotur en ann- að mark kom ekki. Eyjamenn reyndu mikið að jafna metin en allt kom fyrir ekki, enda byggðust sóknir þeirra mest á að láta Siguriás böölast hvað mest hann mátti fyrir framan vitateig. Tóm- ast Pálsson þeirra hættulegasti sóknarmaður var farinn útaf nokkru áöur og munar um minna. Valsmenn unnu þennan leik fyrst og fremst á góðri vörn og markvörslu samfara allmikilli heppni. Sóknarmennirnir voru flestir frá sinu besta ef frá er skil- inn Albert sem var hreinlega alls- staðar á vellinum. Eyjamenn sýndu svo ekki verð- ur um villst aöþarna fer 3ja besta lið landsins. I liðinu eru margir frábærir einstaklingar en ein- hvern veginn virðist þjálfara þess ekki hafa tekist að fá eins mikið úr liðsmönnum og efni standa til. Dómari var Rafn Hjaltalin. Dæmdi hann þolanlega en mætti staðsetja sig betur á vellinum. —hól.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.