Þjóðviljinn - 14.12.1978, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 14.12.1978, Blaðsíða 20
PJODVIUINN Fimmtudagur 14. descmber 1978 AAalsimi Þjóftviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9 — 12 og 5 — 7 á laugardögum. Utan þessa tima er hægtaö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaös- ins i þessum Simum: Ritstjörn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. Skipholti 19, R. 1 BUOIIM simi 29800, (5 linurr^^^ , Verslið í sérvershm með litasjónvörp og hljómtœki Loðnuveiðibann í gildi á miðnætti: Loðnuveiðarnar hejjast ekki aftur fyrr en 10. janúar á nœsta ári A miðnætti gengur í gildi loðnuveiðibann það, sem sjávarútvegsráðuneytið setti fyrir nokkrum vikum og er þá lokið mestu loðnu- vertíð, sem nokkru sinni hefur komið á íslandi, heildaraflinn í ár orðinn fast að einni miljón lestum. Nákvæma tölu er ekki hægt að fá fyrr en á morgun, þar sem fáeinir bátar voru enn á loðnu- miðunum í gær og geta hafa fengið einhvern afla sl. nótt og jafnvel í dag, þótt veðurútlit hafi verið heldur slæmt fyrir miðin í Á slöustu vetrarvertiö veiddust 468 þúsund lestir af loönu og á þeirri sumar og haustvertiö, sem nú er aö ljúka hafa veiöst alveg fast aö 500 þúsund tonn, vantar kannski fáein tonn til aö ná þeirri tölu. Þar meö er ljóst aö heildar- afli Islendinga er alveg viö miljón lestir. Þar viö bætist svo, aö Færeyingar veiddu 35.000 lestir af loönu hér viö land sl. vetur og Norömenn 150 þúsund lestir viö Jan Maýen sl. sumar, en sú veiöi var úr þeim loönustofni, sem viö tslendingar eignum okkur. Þaö er þvi ljóst aö nærri 1200 þúsund lestir hafa verið veiddar af islenska loönustofninum I ár, sem er meira en fiskifræöingar telja óhætt; þeir hafa miðaö viö miljón lestir. Borgin keypti Vesturgötu 18 á eina krónu Happdrætti her- stöðvaandstœðinga: Dregiö á morgun Á morgun, 15. desember, verður dregiö I happdrætti Samtaka herstöövaandstæöinga Vinningar eru tiu talsins, mynd- listarverk eftir Hring Jóhannes- son, Steinþór Sigurösson, Ásgeröi Búadóttur, Magnús Á. Árnason, Sigurö Thoroddsen, Sigurö örn Brynjólfsson, Steingrim E. Krist- mundsson, Messfönu Tómas- dóttur, Guörúnu Svövu Svavars- dóttur og Ragnheiöi Jónsdóttur. Aö sögn Björns Brynjúlfs Björnssonar, starfsmanns samtakanna, hefur gengiö treg- lega aö fá fólk til aö skila af sér. Vildi hann minna menn á aö láta þaö nú ekki dragast lengur. Happdrættiö er glfurlega mikil- vægt fyrir allt okkar starf á næsta ári, sagöi Björn. Þá veröa liðin 30 ár frá inngöngu Islands I Nató og er þegar hafinn undirbúningur aö aögeröum af þvl tilefni. En fjár- hagurinn stendur og fellur meö happdrættinu. Skrifstofa SHA aö Tryggvagötu 10 veröur opin kl. 1-8 fram aö helgi, en slmanúmer þar er 1 79 66. Póstglrónúmer SHA er 30 309-7. Þeim sem ekki hafa tryggt sér miöa ennþá er hérmeð bent á aö gera það hiö snarasta og leggja þar meö sinn skerf til starfsins á næsta ári. ih Lesið „Vatn á myllu kölska" eftir Ólaf Hauk Símonarson og dæmið sjálf. Er sjónvarpið að drepa sálina í fólkinu? Mál og menning Vildu ekki gefa húsið Eins og skýrt var frá i Þjóðviljanum i gær hefur borgin keypt húseignina Vesturgötu 18 á eina krónu. Kaupin voru gerð með þeim skilmálum að húsið yrði fluttaf ióðinni fyrir 1. júlí næsta ár og var borgarverkfræðingi í sam- ráði við skipulagsyfirvöld falið að finna lóð undir húsið fyrir þann tíma. Seljendur eru Sturlaugur Jóns- son og Co, Vesturgötu 16, og bréf þeirra meö sölutilboöinu er svo- hljóöandi: Æruverðugu borgarfeöur, Hinn 7. nóvember 1972 keypt- um vér hús óg lóö Vesturgötu 18 I þeim tilgangi aö selja hiö fagra hús til brottflutnings og hagnýta oss lóöarskikann til viöbyggingar viö atvinnuhúsnæöi vort aö Vesturgötu 16. Vér auglýstum húsiö til sölu til brottflutnings strax 10. desember 1972 og slöan ööru hvoru árin þar á eftir og hefur f jöldi manns sýnt málinu mikinn áhuga. Oss var þvl ánægjuefni, þegar forstööumaöur Árbæjarsafns, frú Nanna Hermannsson, heimsótti oss, kynnti sér húsiö og sögu þess, kom enn I heimsókn skömmu siðar meö sérfræöinga sina i húsaflutningum og endurnýjun sögulegra bygginga. Meö þvi aö vér erum kaupmenn þykiross eigi sama aö gefa húsiö, en bjóöum yöur þaö til kaups og stillum veröinu i hóf, nánar til- tekiö eina krónu 1 samræmi viö ofanritaö send- um vér yöur „Kaupsamning, gildir sem afsal” og vonumst tii aö þér getiö afgreitt máliö fyrir 10. desember næstkomandi (vegna jólafria hjá oss). Meö vinsemd og viröingu, F.h. Sturlaugur Jónsson og Co, sf. Jón Sturlaugsson Þóröur Sturlaugsson. Eins og vel sést á þessari mynd er Vesturgata 18 snoturt og skemmti- legt hús, en þaö er illa fariö aö utan og aöþrengt. Innviöir eru heilir og búiö hefur veriö i húsinu fram til þessa tfma. Vestmannaeyj ar: Þrú* bátar seldir Stefnt að fundi útvegsmanna, ráðherra og þingmanna Sjálfsagt hafa flestír, sem sáu auglýsingu frá útvegsbændafélagi Vest- mannaeyja í blöðunum í fyrradag, tekið hana sem brellu til að vekja athygli á málefnum útvegsmanna í Eyjum, heldur en alvöru um að bátafloti Vest- mannaeyja væri til sölu. „Vissulega var þessi auglýsing sett fram til aö vekja athygli á okkar málum fyrst og fremst, en þó veit ég aö allir værum viö til- búnir til aö selja bátana ef öruggt tilboð fengist og ég get sagt þér þaö, aö nú þegar er búiö aö selja héöan 3 báta, og sá siöasti var seldur sl. mánudag”, sagöi Daniel Traustason hjá Útvegs- bændafél. er við ræddum viö hann i gær. Daniel sagöi aö engar fyrir- spurnir heföu borist um bátakaup vegna auglýsingarinnar. Daniel sagöi ennfremur aö unniö væri aö þvi nú, aö koma á fundi meö útvegsmönnum, alþingismönnum kjördæmisins og sjávarútvegsráöherra og sagöist Daniel hafa heyrt aö ráö- herra væri tilkippilegur til aö koma og ræöa málin I Eyjum nk. iaugardag. Sagöist Daniel vonast til aö af þessum fundi yröi, þar sem máliö væri mjög brýnt og þyldi ekki neina hiö. —S.dór Heildaraflinn í ár er nær miljón lestir —S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.