Þjóðviljinn - 04.05.1980, Side 11
Sunnudagur 4. mal 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Einleikstónleikar
Peter Kowald, kontrabassi
Laugardaginn 26.4.1980
kl. 16.30
Djúpib
Galleri Suöurgata 7
Skammt er stórra högga
á milli í tónlistarlífi okkar
þessa dagana. Þaö er úr
ýmsu aö velja og nú fyrir
skömmu gistu tveir ólíkir
bassaleikarar landið á
vegum tveggja áhuga-
mannafélaga. Þetta eru
assa leikararnir Niels-
Henning örsted Pedersen,
sem héit tónleika ásamt
Töníu Maríu fyrir fullu
húsi 19. april sl., og Peter
Kowald, sem hélt tvegnna
tónleika 25. og 26. april í
Djúpinu við Hafnarstræti á
vegum Gallerísins Suður-
götu 7.
Peter
Kowald
BASSA-
SPUNI
Tónleikar þessara tveggja
bassaleikara voru mjög óllkir aö
öllu leyti. Niels-Henning seiddi
fram villtar sömbur ásamt hinni
brasilisku Töniu Marlu, en Peter
Kowald spann sólóa á kontra-
bassann I þröngum en vinalegum
húsakynnum Djúpsins, svo aö
svitinn draup af honum.
Övanalegur
bassaleikur
Peter Kowald, sem hér var I
boöi Gallerlsins Suöurgötu 7 á leiö
sinni til Bandarikjanna, er
vestur-þýskur kontrabassaleik-
ari, einn þeirra sem fremur kjósa
aö leika spunatónlist en hefö-
bundna jazzstandarda.
Llkt og Peter Brötzman og
Evan Parker, sem báöir hafa
leikiö einleik hér á landi, er Peter
Kowald þéttvaxinn.samanrekinn
maöur um fertugt, burstaklipptur
og meö skeggtopp. Hann virkaöi
frekar á mig sem hraustlega
byggöur verkamaöur,sem stritaö
hefur erfiöisvinnu alla slna
tlö, en kontrabassaleikari. Hnúa-
miklir fingurnir, sem gripu bass-
ann, virtust I fyrstu vanari aö
handleika slaghamar en strengi
kontrabassans.og þó svo aö fing-
urnir léku nokkuö létt um hálsinn
var spuninn fremur slitróttur I
fyrstu, einsog neistann vantaöi.
Aö visu er mjög erfitt aö byggja
upp tónleika þar sem kontrabass-
inn er eina hljóöfæriö. Vel má
vera aö seinkun tónleikanna um
hálftíma (vegna opnunarhófs I
sambandi viö málverkasýningu
Brians Pilkingtons) hafi haft ein-
hver áhrif á leik Peters Kowald til
aö byrja meö. Hvaö sem þvi liöur,
fannst mér spuni hans ekki sér-
lega áhrifamikill I upphafi. Upp-
byggingin var fremur ómarkviss,
það voru got I leiknum og jafnvel
einsog Kowald væri ekki alveg I
sambandi viö það sem hann var
að gera.
Hiti og sviti
Peter Kowald hefur leikiö meö
ýmsum þekktum spunamönnum
s.s. Evan Parker, Peter
Brötzman, Albert Mangelsdorff,
Karl Berger, Keith Tippet. Man-
'fred Schoff, John McLaughlin,
Carla Bley og Barre Phillips. Sé
tekið miö af bassaleikaranum
Barre Phillips, sem er góökunn-
ingi Peters Kowald, og hafa þeir
leikið nokkuö saman (m.a. inná
eina dúó plötu), átti ég von á mun
markvissari, og áhugaveröari
leik hjá Kowald heldur en hann
sýndi á fyrri hluta tónleika sinna I
Djúpinu. Kowald hóf leik sinn á
þvi aö plokka bassann af krafti,
strauk hann slöan meö boga á
mjög óvanalegan hátt og fram-
leiddi ýmis sérstæö hljóö sem
maöur heyrir bassaleikara vana-
lega ekki framleiöa. Krafturinn
sem hann lagði I tónleik sinn var
sllkur aö svitinn bogaöi af honum.
En allt kom fyrir ekki. Honum
tókst ekki aö heilla mig á neinn
hátt.
Eftir u.þ.b. 45 mln. leik tók
hann sér pásu. Fólk fékk sér
pilsner eöa kók og hver reykti
sem mest hann mátti. Nokkuð
fjölgaði I salnum og var all þétt
setiö þegar Kowald hóf leik sinn
aö nýju. 1 þetta sinn var greini-
legt aö hann var búinn aö finna
sig og leikur hans var öllu mark-
Peter spilar fyrir gesti „I djúpinu
vissari en áöur og uppbygging
spunans ákveðnari og jafnframt
áhugaveröari. Peter Kowald lék
aöallega meö boga, strauk
strengina á ýmsan hátt og notaöi
bogann bæöi til aö strjúka meö og
til aö plokka strengina. Kraftur-
inn sem Kowald lagöi I stroklist
slna var svo glfurlegur aö svitinn
rann I striöum straumum af and-
liti hans niöur á bassann sem
virtist um tlma lööra I svitabaöi.
Enda var hitinn og reykmettaö
loftiö i þröngum salnum á tima
mjög þrúgandi.
Andstæður
Margir þeirra sem saman-
komnir voru I Djúpinu laugar-
daginn 26. aprll voru einnig á tón-
leikum NHOP viku áöur. Trúlega
hafa einhverjir átt von á aö Peter
Kowald sýndi heföbundna bassa-
tækni, plokkaði bassann af krafti
og ryddi nokkrum taktskölum frá
sér af eldmóöi. Synd væri aö
segja aö eldmóöinn hafi vantað,
e.n Kowald lét hefðbundna frasa
alveg.fara lönd og leiö. Þess I staö
plokkaöi hann strengina á ólik-
legasta máta, ýmist meö fingrun-
um eöa meö einhverskonar klóru,
þegar á seinni hlutann leiö.
Þegar Peter Kowald haföi lokiö
seinni spuna sinum þakkaöi hann
fyrir sig og sagöist vel geta haldiö
svona áfram, en hér ætlaöi hann
aö enda og meö þaö þökkuöu
áheyrendur fyrir sig og héldu
siðan á braut.
Seinni helmingur tónleika
Peter-Kowald var aö mlnu mati
miklu áhugaveröari og skemmti-
legri áheyrnar en sá fyrri, þrátt
fyrir þaö snart leikur Kowald
mig engan veginn á likan máta og
saxófónleikur Evans Parker eöa
Peters Brötzman hér um áriö.
Engu aö síöur var fengur I aö fá
Kowald hingaö til lands og tón-
leikar hans voru skemmtilegt
mótvægi viö tónleika NHÖP, þvi
aö ýmsum hefur eflaust veriö
ókunnugt um þá hliö bassaleiks
sem Kowald sýndi okkur meö tón-
leikum þessum.
Gallerl Suöurgata 7 á þakkir
skyldar fyrir framtakiö og von-
andi er aö haldiö veröi áfram á
sömu braut.
— jg
Banna
rússneskt
vodka
Breska stjórnin ákvaö nýlega
aö banna neyslu rússnesks vodka
viö opinberar veislur I mótmæla-
skyni viö innrás Sovétrikjanna i
Afganistan.
Bresk vodka veröur þó enn á
boöstólum, en rússneska vodkað
hefur aö sjálfsögöu veriö mun
vinsælla og ætla má aö margir
veröi óánægöir meö þessa þurrö.
Talsmaöur rlkisstjórnarinnar
upplýsti I þessu sambandi að
stjórnin heföi greitt um 1.7
miljónir Isl. kr. fyrir vodka frá
árinu 1974. Þar af hafa um 620
þúsund krónur runnið til aö
greiöa rússneskt vodka. Hér er
þvi ekki um neinar stórupphæöir
aö ræða heldur táknræna aögerö I
mótmælaskyni.
Sjafnar-
lager
fluttur
Vöruafgreiösla Iönaöardeildar
SIS aö Hringbraut 119, Sjafnar-
lager, hefur flutt sig þaöan aö
Goöatúni 4 i Garöabæ. Þar eru af-
greiddar málningar- og hreiniæt-
isvörur frá Efnaverksmiöjunni
Sjöfn, kaffi frá Kaffibrennslu
Akrueyrar, Flóru-smjörllki frá
smjörllkisgerö KEA og efna-
geröarvörur frá Flóru á Akur-
eyri.
Sjafnarlagerinn opnaöi aö
Goöatúni 4 hinn 31. mars. Þar er
nýr slmi, 42000. Póstáritun er
„Pósthólf 70, 210 Garöabær”.
— mhg