Þjóðviljinn - 29.08.1981, Blaðsíða 27

Þjóðviljinn - 29.08.1981, Blaðsíða 27
um helgina Helgin 29.-30. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 27 Atriöi úr Sorglausa konungssyninum. Nemendaleikhús Leiklistarskóla íslands: Enn á fjalimar Ljóðalestur í Rauða húsinu á Akureyri Jón Óskar, skáld, mun lesa upp i Rauða húsinu á Akureyri á sunnudagskvöld þann 30. ágúst. Jón óskar er löngu kunnur fyrir ljóö sin og ljóöaþýöingar. A seinni árum hefur hann birt endurminn- ingar sinar. Upplesturinn hefst kl. 21. Jón óskar les Akureyringum ljóö. Fjóröi bekkur Leiklistarskóla Islands, hefur nú starfsemi sina meö nokkrum sýningum fyrir al- menning á lokaverkefni siöasta árs, barnaleikritinu „SORGLAUS konungsson” eftir Suzanne Osten og Per Lysander, byggt á sögu eftirEvu Wigström. Leikstjóri er Þórunn Siguröardóttir. Sýningar veröa á sunnudögum og fyrsta sýning veröur á sunnu- daginn kemur kl. 15.00 i Lindar- bæ. Miöasala veröur viö inngang- inn og geta hópar pantaö miöa i sima 25020 i L.l. Miöaverö er aö- eins 20 kr. Sýningin er einkum ætluö börnum á skólaaldri. Æfingar eru nú aö hefjast á fyrsta verkefni Nemendaleik- hússins, leikriti um JÓHÖNNU AF ORK, eftir önnu Seghers. Leikstjóri veröur Maria Kristjánsdóttir, en um leikmynd og búninga sér Guörún Svaya Svavarsdóttir. Ný kirkju- tónlist í Dóm- kirkjunni Ný kirkjutónlist verður flutt i Dómkirkjunni i Reykjavik á morgun, sunnudaginn 30. ágúst kl. 18.00. Gunnar Reynir Sveins- son er höfundur tónlistarinnar en flytjendur Halldór Vilhelmsson bariton og Gústaf Jóhannesson, organleikari. A efnisskránni eru Toccata og Miserere fyrir orgel, hugleiöing um sálmalagiö Jesú min morgun- stjarna, og fjórar Postlúdiur fyrir baritónrödd og orgel, sem tón- skáldiö Gunnar Reynir tileinkar biskupnum yfir Islandi, herra Sigurbirni Einarssyni. Flest tón- verkin eru frumflutt og er að- gangur ókeypis. Um hádegisbil: Tískusýning á Torfunni t hádeginu á laugardag kynnir verslunin Sonja vörur merktar Young Dean á Torfunni viö Lækjargötu. Það er Karon, Samtök sýn- ingarfólks sem sér um fjöriö. Sýning Kristinar Lýkur um helgina Um helgina lýkur i Rauöa hús- inu á Akureyri sýningu Kristinar Jónsdóttur frá Munkaþverá. A sýningunni eru 30 verk sem gerö eru úr ýmiskonar efni, svo sem ull, hör, hrosshári, pappir o.fl. Þetta er fyrsta einkasýning Kristinar, en hún hefur áöur tekiö þátt i samsýningum heima og erlendis. Kristin stundaöi nám i Handiða- og myndlistarskólanum i Reykjavik og Kunsthflnd- værkerskolen i Kaupmannahöfn. Auk þess var hún um skeiö viö nám i Frakklandi og á Italiu. Sýn- ingin er opin um helgina frá kl. 3 til 9 eftir hádegi. —ekh Ljóðadagskrá í Norrænahúsinu Gestur Norræna hússins um þessar mundir er sænska ijóö- skáldiö og rithöfundurinn JAN mArtenson. Laugardaginn 29. ágúst kl. 17.00 les hann upp eigin ljóö i Norræna húsinu. Einar Bragi og Þorsteinn frá Hamri koma einnig fram og lesa úr Ijóöabókum sinum. Jan MSrtenson er fæddur 1944 i Tidaholm i Sviþjóð. Hann er þekktastur sem ljóðskáld og kom fyrsta ljóöabók hans Dikter nu út 1968. Siðan komu tvær ljóðabækur en segja má að hann yrði fyrst þekktur er ljóðabókin Jag erövr- ar vSrlden tillsammans med Karl och bröderna Marx kom út árið 1973. Úrval úr þessum fyrstu ljóðabókum kom út 1975 undir heitinu Mellan Tidaholm og vSrlden. Nýjasta ljóöabók Jan Mártensons GenvSgar till galen- skapen kom út 1979. Auk ljóöageröar hefur hann fengist við skáldsagnagerð og nú er væntanleg 10. bók hans, Skilda, og fjallar hún um uppvaxtarárin á 6. áratugnum. Er hún fyrsti hluti af þrileik (trilogi). 1 bókum sinum og ljóðum lýsir Jan Mártenson oft þeim heimi smábæjarins, sem hann óx upp i. Hann skrifar um utangarðsmenn þjóðfélagsins, en þeim hefur hann kynnst og hefur samúð með. Jan Mártenson hefur starfað sem blaðamaður frá 1961 og skrif- ar nú fyrir dagblaðið Arbetet i Malmö. Einnig skrifar hann greinar um menningarmál i ýmis timarit. Jan Mártenson hefur tvivegis gist Norræna húsiö, 1973 er hann las upp úr ljóöum sinum og 1977, en þá talaöi hann um sænskar bókmenntir. Sænska Ijóðskáldiö Jan Márten- son. Stúdentakjallarinn: Jass öll sunnu- dagskvöld Jasskvöld verða framvegis á sunnudagskvöldum i Stúdenta- kjallaranum og tónlistarmenn sannarlega ekki af verri end- anum; Viöar Alfreösson, Guð- mundur Steingrimsson, Guö- mundur Ingólfsson og Richard Korn hefja leikinn kl. 9 vikulega i vetur. mánudagur tíl mæðu ekki aldeilis á mánudaginn kemur setjum við á rymingar- sölu hjónarúm, skrif- borð og raðskápa. Það gætí borgad sig að hinkra fram á mánudag Húsgagnaverslun Guðmundar Smiðjuvegi 2 Sími 45100

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.