Þjóðviljinn - 12.09.1981, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 12.09.1981, Blaðsíða 19
Helgin 12.—13. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 19 Fegurðin er guð Norður i Kajaana er leikhús sem ekki aðeins þjónar þeim 30,000 manna bæ heldur einnig vibáttumiklu dreifbýli i kring. Þar er verið að sýna Sölku Völku um þessar mundir, en á hátiðina i Tampere kom þetta leikhús með sýningu á leikgerb skáldsögu eftir einn af bestu höfundum Finna, Paavo Rintala, sem ber heitið Jumala on kauneus og fjallar um málara og leit hans að fegurðinni. Þetta er einföld en áhrifamikil saga um leit listamannsins að hinni sönnu list og ekki siöur að einhverjum sem kunna að með- taka hana. Málarinn Vilho stendur fullur angistar gagnvart auöum strig- anum. Hvernig á hann að fylla hann og fyrir hvern? A hann að mála íyrir kýrnar? Fyrir fávisa bændurna? Fyrir borgaralega listelskendur sem eru þegar allt kemur til alls skilningslausir? Verkið fjallar um þetta sigilda efni á sannfærandi hátt og dregur upp sterka mynd af rómantiskum listamanni, sem reyndar er frá- bærlega túlkaður af leikaranum Raimo Grönberg. Sviösetningin var skemmtilega stilfærð, leik- myndin byggð á auðum mynd- strigum sem varpaö var á skyggnum annað veifið. Hamlet og Ödipus A hátiðinni i Tampere gafst kostur á að sjá tvo frægustu harmleiki i heimi, Hamlet og Odipus. Og reyndar var Fást á feröinni lika, en gafst mér ekki kostur að skoða. Það sem þessar sýningar áttu sameiginlegt (Hamlet frá Tampere og ödipus frá Lahti) var annars vegar að sýningarnar reyndu mjög ákveðið að tengja þessi gömlu verk veruleik nútimans og hins vegar að i báðum tilvikum var lögð rik áhersla á að þeir Hamlet og ödipús eru mjög ungir menn. Þetta er ekki aðeins i algeru samræmi við texta þessara leik- rita og gleðileg tilbreting frá þeim miðaldra leikurum sem oft fá þessi hlutverk til meðferðar, heldur er hér beinlinis verið að höfða til þess vanda sem ungt fólk stendur frammi fyrir ef það vill átta sig i þessum kolruglaöa heimi. Eins og ég hef þegar drepið á tókst þetta nokkuð vel i Hamletsýningunni, en hins vegar fór þetta ekki eins vel i ödipúsi. Þar var þó ekki um að kenna, aö ég held, að leikstjórinn væri ekki á réttri braut, heldur skorti hann nægilega ögun i útfærslu, eða þá nægilega hæfan leikendahóp til þess aö koma áformum sinum i framkvæmd. Að lokum Þá er lokið að segja frá þeim sýningum sem fyrir augu min bar i þessari Finnlandsferð. Af óvið- ráðanlegum ástæðum gat ég ekki verið i Tampere siðasta dag hátiðarinnar og missti þvi af tveimur sýningum sem ég hefði mjög gjarnan viljað sjá, annars vegar Maratontanssit (eftir sögu Horace McCoy, They Shoot Horses, Don’t They) i uppfærslu KOM-leikhússins og hins vegar sýningu finnska Þjóðleikhússins á Caligula eftir Camus, en sú sýn- ing hlaut verðlaunin á hátiðinni. En það sem ég sá færöi mér heim sanninn um aö finnskt leik- hús er forvitnilegt og kraftmikið og þar er sitthvað að gerast sem við getum dregið lærdóma af. Sverrir Hólmarsson Firring velferðarrlkis I Armoton Idylli. sannindum. Þetta var i sannleika sagt djarft leikhús, leikhús sem þorir að taka áhættu, leggja allt undir. Og endanlega þótti mér dæmið ganga upp, áhættan borga sig. Það er athyglisvert að þetta verk skuli verða til i smábæ á hjara veraldar, eins og Lappeen- ranta er. Rokkhljómsveitin sem lék er af staðnum og tónlistin er heimatilbúin. Leikritshöfundur- inn er einnig innfæddur Lappeen- rantabúi sem sjálfur var atvinnu- laus i tvö ár, þannig að hann skrifar út frá djúpri reynslu, en komst sfðan fyrir einhverja stór- fenglega tilviljun inn I Leiklistar- skólann i Helsinki. Kari Paukkunen Eftir þessa sýningu átti ég þess kost að ræða um stund við leik- stjórann, Kari Paukkunen, sem jafnframt er leikhússtjóri i Lappeenranta. Hann sagði að með þessari sýningu hefði verið reynt að ná til nýs hóps leikhús- gesta og það hefði sannarlega tekist, eins og merkja mætti af þvi aö á hverri sýningu væri ævinlega fjöldi ungs fölks að spyrja hvar klósettið væri. Ég spurði hann hvort sýningin hefði vakið hneykslun eða and- stöðu, og hann svaraöi þvi til að það hefði hún gert. Margir hefðu skrifað harðorð bréf til blaöanna um þetta siðlausa hneyksli, eink- um þaö atriði, aö ungur maður leysir niður um sig buxurnar. Hins vegar hafi deilurnar beinst inn á nýja braut þegar gagnrýn- andi nokkur skrifaði mjög vin- samlega um sýninguna og það kom i ljós að hann var prestur. Þá byrjuðu allir að ausa sér yfir prestinn fyrir að hæla þessum ófögnuði. Kari sagði að næsta verkefni leikhússins væri nýtt verk eftir Jussi Kylatasku, Synir Grakk- usar. Hann sagöist búast viö þvi að þaö mundi vekja svipuö við- brögö, en vonaöist til að fólk væri búið að fá útrás yfir Armoton idylli. Kari Paukkunen er nýkominn til starfa við Lappeenrantaleik- húsiö, hefur aðeins verið þar i eitt ár, en var áður kennari viö leik- listarskólann. Hann hefur mikinn hug á aö greiða götu ungra finnskra leikskálda og segir aö sér sé meira i mun aö verk þeirra hafi eitthvað raunverulegt að segja en að þau séu fullkomin að byggingu. Þetta urðum við sam- mála um aö sannaöist af Armoton idylli. Samskipti kynjanna — Kona kúgaðs eiginmanns cftir Maria Jotuni. Kópavogskaupstaður UTBOÐ Tilboð óskast i að fullgera 3. áfanga dag- heimilis við Hábraut i Kópavogi, sem nú er tilbúið undir tréverk. Um er að ræða tréverk, innréttingar, dúka- og raflagnir. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings i Felagsheimilinu, Fannborg 2, gegn 580 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 11 þriðjudaginn 22. september n.k. og verða þau, þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendur, sem þar mæta. Bæjarverkfræðingur. Tilkynning frá veitingahúsinu Ártúni Þar sem að ákveðið hefur verið, að húsið verði ekki leigt til opinberra dansleikja, verður það eftirleiðis leigt út alla daga, til veislu- og fundarhalda og hverskyns mannfagnaðar. Dansgólf i efri sal hefir verið stækkað og er nú hið stærsta á Reykjavikursvæðinu. Vinsamlegast hafið samband við okkur i sima 85010 og eftir skrifstofutima i sima 19100. VEITINGAHÚS VAGNHÖFDA 11 REYKJAVÍK Þýskukeiuisla fyrir börn 7-13 ára Þýskukennsla fyrir börn 7—13 ára hefst laugardaginn 19. sept. 1981 kl. 10—12 i Hliðarskóla (inngangur frá Hamrahlið). —Innritað verður sama dag frá kl. 10. Innritunargjald er kr. 100,- Germania Þýska bókasafnið Ferðamálaráó íslands efnir til námskeiðs fyrir verandi leiðsögu- menn ferðafólks veturinn 1981—1982, ef næg þátttaka fæst. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Ferðamálaráðs, Laugavegi 3, Reykjavik. Umsóknarfrestur rennur út 21. sept. n.k. FERÐAMÁLARÁÐ ÍSLANDS Frúin hlær I betri bíl frá Bílasölu Guðfinns BÍIASAIA 1 GUDF1NNS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.