Þjóðviljinn - 06.04.1983, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 06.04.1983, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 6. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 RUV © 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun- orð: Magnús E. Guðjónsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Branda litla og villikettirnir“ eftir Robert Fisker í þýðingu Sigurðar Gunnarssonar. Lóa Guðjónsdóttir les (3). 9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forust- ugr. dagbl. (úrdr.). Sjávarútvegur og siglingar. Umsjónarmaður: Ingólfur Arnarson. 10.50 íslenskt mál. Endurt. þáttur Jóns Hilmars Jónssonar frá laugardeginum. 11.10 Lag og ljóð. Þáttur um vísnatónlist í umsjá Hreins Valdimarssonar. 11.45 Ur byggðum Umsjónarmaður: Rafn Jónsson. 12.00 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Dagstund í dúr og moll - Knútur R. Magnússon. 14.30 „Húsbóndi og þjónn“ eftir Leo Tol- stoj. Fýðandi: Sigurður Arngrímsson. Klemenz Jónsson les (5). 15.00 Miðdegistónleikar: Tónlist eftir Fré- déric Chopin. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregn- ir. 16.20 Útvarpssaga barnanna: „Hvítu skipin“ eftir Johannes Heggland. Ingólf- ur Jónsson frá Prestbakka þýddi. Anna Margrét Björnsdóttir les (10). 16.40 Litli barnatíminn Stjórnandi: Sigrún Björg Ingþórsdóttir. 17.00 Bræðingur Umsjón: Jóhanna Harðardóttir. 17.55 Snerting Þáttur um málefni blindra og sjónskertra í umsjá Gísla og Arnþórs Helgasona. 18.05 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Tilkynningar. Daglegt mál. Árni Böðvarsson flytur þáttinn. Tónleikar. 20.00 Afangar. Umsjónarmenn: Ásmund- ur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 20.40 Vínartónlist. Fflharmoníusveitin í Vínarborg leikur tónlist eftir Johann Strauss, Otto Nicolai og Emil Nikulaus von Reznicek; Willi Borskovsky stj. 21.40 Útvarpssagan: „Márus á Valshamri og meistari Jón“ eftir Guðmund G. Hag- alín Höfundur les (15). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.40 íþróttaþáttur Hermanns Gunnars- sonar. 23.05 Kammertónlist Leifur Þórarinsson kynnir. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. RUV 18.00 Söguhornið. Umsjónarmaður Guðbjörg Þórisdóttir. 18.10 Daglegt líf í Dúfubæ. Nýr breskur brúðumyndaflokkur. Pýðandi Óskar Ingimarsson. Sögumaður Sigrún Edda Björnsdóttir. 18.25 Palli póstur. Nýr breskur brúðu- myndaflokkur. Þýðandi Jóhanna Þrá- insdóttir. Sögumaður Sigurður Skúla- son. 18.40 Sú kemur tíð. Franskur teikni- myndaflokkur fyrir börn á öllum aldri og foreldra þeirra eftir sama höfund og „Einu sinni var“. Sagan segir frá ævin- týrum tveggja geimfara, sem heita Pési og Spá, og ferðafélögum þeirra, upp- finningamanninum Fróða og vélmenn- inu Gróða. Þýðandi Guðni Kolbeins- son, þulur ásamt honum er Lilja Berg- steinsdóttir. 19.05 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Nýjasta tækni og vísindi. Umsjónar- maður Sigurður H. Richter. 21.00 Mannkynið. Lokaþáttur. Forvitni og framtak. Fjallað verður urn framtíðar- horfur mannkynsins og hvort hug- kvæmni mannsins megni að afstýra ógn- unum á borð við offjölgun eða gjöreyð- ingarstyrjöld. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 22.05 Dallas Bandarískur framhaldsflokk- ur. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.55 Dagskrárlok frá lesendum Gunnar á sér engar hugsjónir S hringdi út af lesendabréfi frá Hábarði í Þjóðviljanum miðvikudaginn 23. mars þar sem Gunnari Thoroddsen var hælt á hvert reipi og látið í veðri vaka að hann mæti meira manngildi en auð. S sagðist hafa fylgst með Gunn- ari og íslenskum stjórnmálum frá því Gunnar kom fyrst fram á sjónarsviðið og sagðist þess fullviss að Gunnar ætti engar aðrar liugsjónir en eigin frama. Hann sagði að Gunnar ætl- aði nú að leika þann leik sem Gunnar Thoroddsen hann gerði í borgarstjórnar- kosningunum í fyrra að lýsa yfir stuðningi við framboð Sjálfstæðisflokksins í kom- andi kosningum og fá það orð á sig að hann væri maður sátta og samlyndis og það væri hon- um að þakka ef flokkurinn ynni sigur. Síðan ætlar Gunn- ar, sagði S, að bjóöa sigfram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir seinni kosningar í sumar og koma þá enn á ný fram sem sterki maðurinn í íslenskum stjórnmálum. Þetta er maður sem mælir fagurt en hyggur flátt. Hrútur með gleraugu Sú saga gengur á Suður- landi, að bóndi einn hafi þurft að hafa tal af búfjár- ræktarráðunauti en hann ekki verið heima. Næsta dag var hann ekki heim heldur og á þriðja degi var hann ekki heima. Bóndi spurði konu ráðunautsins að því hvar hann væri og hún svaraði því til að hann væri að keyra sæði út um sveitir. Þetta var í janúar og fengitími á sauðfé. Verður bónda nú ljóst, að þetta sé ekki réttur tími til að leita uppi mann önnum kaf- inn. En á heimleið fer svo, að hann mætir búfjárræktarráðu- nautnum. Er sá í bíl og ekki einn síns liðs, því með honum er Þorsteinn Pálsson, þá að undirbúa sinn prófkjörsslag í Sj álfstæðisflokknum. Þá verður bónda að orði: Gott eiga blessaðar ærnar. Búnar að fá hrút með gler- augu. Sumar eftir Sigurlaugu í 7. GE í Snœlandsskóla Á ,ljt. B Ji r-7 * i j í \\ M. Nú varð ég að fara að borða. Á eftir fór ég út með dúkkuna mína. Dúkkan mín á vagn sem ég keyri hana í. Dúkkan mín á kjól sem ég læt hana í þegar ég fer út. Ég var í sundi og ég tók dúkkuna mína með. Við böðuðum okkur vel og þegar ég var búin fór ég heim að sofa. Ég þurfti að svæfa dúkkuna mína þegar ég kom heim. Svo fór ég að sofa. nrrf T "TT illií lsv.vU' | | < : 1 F—E3 1 L" ‘5 t 1 r ;] g Ég var að ná í dúkkuna mína. Ég varð að ná í dúkkuvagninn og svo fórum við báðar út. Ég var að keyra dúkkuna mína úti í vagni og svo fórum við að borða og ég varð að rnata dúkkuna mína. Svo fórum við aftur út.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.