Þjóðviljinn - 20.05.1983, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.05.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN, Föstudagur 20. maí 1983 Bridge Mikil spenna ríkti í síðustu umferð Islands- móts í tvimenning. Fyrir setuna leiddu Þórarinn og Guðmundur Páll mótið og áttu 16 stig á Jón og Savar. Þeir fyrrnefndu spiluðu við Hermann og Ólaf, en sveitarfélagar Þórarins, Þorgeir og Guðmundur, fengu það örðuga hlutverk að varna Jóni og Sævari vegar að titlinum. Spilið I dag átti drýgstan þátt I að það tókst ekki. V gefur, A-V á hættu. Norður S G9742 H KD7 T 102 L 1096 Vestur S KD108 HG108543 T 4 LK4 Suöur S A H 92 T AG853 L AG872 Pörin sem kepptu um titilinn sátu bæði N-S. Á móti Þórarni og Guðmundi vakti Ólafur á 2 hjörtum, 10-12 HP. og 4-5 I hálitunum. Tvö pöss fylgdu og Þórarinn kaus aö fylgja ekki „salnum", og passaði, þrátt fyrir hagstæöar hættur. 110 i A-V og 21/22 mögulegum til A-V. Vafalaust hefðu 3-lauf norðurs, eftir 2- grönd frá suöri (lálitir) verið dobluö, en 100 í A-V hefðu nægt þeim félögum, og titillinn verið þeirra. Vik|um nú að hinni viðureigninni. Þar böröust Jón og Sævar upp á 3. sagnstig og Guðmundi Sveins. leist illa á vörn, á vestur- spilin og sagöi 3 hjörtu, sen Norður, Sæv-1 ar doblaði, taktískt, til að vernda „bútinn" og 200 var uppskeran. Þvi miður veit ég ekki hvernig úrspilið gekk fyrir sig, en það er Ijóst, aö unnt er að koma samningnum heim, nema útspilið sé tigull. Sagnhafi leggur af stað með tromp og gosa og pikkar upp niu suðurs, gefur einn slag á hvorn lit. 200 gaf Jóni og Sævari vitanlega topp- skor. Eina útspilið sem hnekkir á spilinu, á opnu boröi er tigull á ás og tigull til baka. Sagnhafi trompar heima og spilar hjarta- gosa, lagt á ás. Hjarta 6,9,10 og drottning og nú er tromp-sjö norðurs stórveldi. Lauf á ás og tígull i þriöja sinn tryggir þaö. En vörn sem þessi er illfinnanleg viö borðið, enda fannst hún ekki. Austur S 653 H A6 T KD976 L D53 Skák Karpov að tafli - 141 Karpov varð að sætta sig við jafntefli úr hagstæöari stöðu gegn Jan Timman i 14. umferð skákmótsins í Skopje. Það gerði Uhlmann kleift að saxa á forskotið þannig aö þegar siðasta umferð rann upp var munurinn aðeins 'h vinningur. Karpov var með 11 'h vinninga, en Uhlmann með 11 vinning. Þaö jók á spennuna að þeir mætt- ust I síðustu umferð og stýrði Uhlmann hvítu mönnunum. En Karpov hélt ró sinni og tefldi af miklu öryggi. Eftir 20 leiki bauð Uhlmann jafntefli - en Karpov hafnaði, jafnvel þó svo jafnteflið dygði til sigurs i mótinu. Eftir 40. leik svarls kom þessi staða upp: 40. .. Rg4! (Með einfaldri hótun: 41. - Hb1 mát.) 41. g3 Re3 42. Kh1 Kg6 43. Hb7 (En ekki 43. Re8 Kf5! 44. Rxg7+ Kg4 O-S frv.) 45 g4 Rxh4 43. .. Hd2 46 Kg1 44. Rxb5 Rf5 (Svartur hótaði 46. - Rf3.) 46. .. Hg2+ 49- a4 h5 47. Kf1 Hxg4 59- a5 h4 48. Ha7 Rf5 51. Ha8 h3 - og Uhlmann gafst upp. Eftir 52. Hh8 Rh6 er leið h-peðsins upp í borð greið. Loka- staðan í Skopje varð þessi: 1 Karpov 12'/ 2 v. (af 15) 2. Uhlmann 11 v. 3. Timman 10'/2 v. 4.-5. Kurajica og Tarjan 9 v. 6. Velimirovic 8V2 v. 7 Adorjan 8 v. 8.-9. Ivkov og Matanovic 7'h v. 1 Wrp P S- Wm m i í H t v - -mm (li 1 J\x\{l L L. „ . »4:1 \\ ÍH 'fáuÉi Krakkarnir í unglingavinnunni. F.v.: Hildur Bernder, Jón Þorsteinsson, Ásgeir Þór Ásgeirsson, Hlín Sveinbjörnsdóttir, Rósa Bjarnadóttir og Kristín Kristjánsdóttir. Þokkalega borgað í unglingavinnunni Á síöustu dögum þegar menn hafa hreinlega séð og heyrt grasiö spretta fyrir augum sér, mann- fólkið hefur unnvörpum hrist af sér slen og flensur vetrarins og skólarlokadyrumnæstum ósjálf- rátt, þá er eins og lífið öðlist nýja merkingu. Jafnvel krían, sem er komin í hólmann og er tekin við að gera hreiður sín, má vera að því að líta upp og bjóða góðan daginn, því hún veit að það er ekki fyrr en síðar í sumar að hún brýnir gogginn og tekur koll- steypur sínar í átt að þeim sem rekja slóðina að hreiðurstæðinu. Það er þá sem að golfleikararnir úti á Nesi fá sér hjálma og biðja bænirnar sínar áður en þeir leggja inná braut níu. Hvað sem því líður þá slapp undirritaður út í góða veðrið einn daginn og með í förinni var ljósmyndari vor Einar Karlsson. Haldið var upp í Breiðholt og unglingar í bæjar- vinnunni.nýsloppnir úr skólan- um, teknir tali. Ofar í brekku þar sem er Kópavogur hittum við þrjá hesta og börn að leik og þeg- ar lengra var haldið, inn í Hafn- arfjörð og upp til fjárhúsa sem þar eru í næsta námunda hvar telpur tvær léku sér við lömbin smá. Og meðfram Keflavíkur - veginum eiga menn og konur sér kartöflugarða. Það horfir verr í ár með suniar- vinnu skólafólks heldur en í fyrra. Unglingar þyrpast þúsundum saman út á vinnumarkaðinn og í Rcykjavík a.m.k. reynist erfitt að útvega öllum vinnu. Hjá atvinnu- miðlun stúdenta voru í lok síðustu viku komnir á lista um 300 manns, en þar eru ótaldir þeir námsmenn aðrir sem ekki hafa fengið vinnu. Við Breiðholtsbrautina í Reykjavík hittum við að máli nokkra unglinga, þrír þeirra voru við nám í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, tveir í Menntaskólan- um við Sund og einn í Fjöl- brautaskólanum í Árbæ. Hlín Sveinbjörnsdóttir flokks- stjóri Ekki kváðust þau hafa átt í miklum erfiðleikum með að fá vinnu enda sum þeirra búin að vinna hjá Reykjavíkurborg áður. Kaupið? Unnið eftir Dagsbrún- artaxta frá kl. 9 á morgnana til kl. 17 á daginn - og í öllum veðrum. Ef rignir, þá er gamli regngallinn tekinn fram, sagði æskufólkið. Þau undu glöð við sitt ehda veður með allra besta móti. Samkeppni um gerð plakats fyrir Listahátíð 1984: „Heilög Sesselja“ hlaut 1. verölaun Hannes Sigurðsson nemandi í Myndlista- og handíðaskólanum hlaut 1. verðlaun í samkeppni um veggspjald fyrir Listahátíð 1984 sem framkvæmdastjórn Listahát- íðar 1984 efndi til þann 14. febrú- ar síðastliðinn. Framkvæmda- stjórnin ákvað að nemendur í Myndlista- og handfðaskólanum skyldu spreyta sig á þessu verk- efni og skiluðu 23 nemendur inn 40 tillögum um veggspjöld. Þrenn verðlaun voru veitt, 1. verðlaun voru 30 þúsund krónur, 2. verðlaun sem komu í hlut Búa Kristjánssonar voru 20 þúsund krónur og 3. verðlaun 10 þúsund krónur. Höfundar Birgir Björns- son og Þorvaldur Ó. Guð- laugsson. Hannes Sigurðsson hlaut 1. verðlaun fyrir plakat sem hann nefnir „Heilög Sesselja" og lýsir það þeim áhrifum sem gróandinn í listalífinu í Reykjavík hefur á kviknakinn himnaríkiskroppinn Sesselju. Búi skilaði inn plakat- inu „Flaututónninn" og 3. verðlaunahafar sem voru tveir, Birgir Björnsson og Þorvaldur Ó. Hannes Sigurðsson höfundur verðlaunaplakatsins „Heilög Sesselja“. Sesselja stekkur hæð sína í loft upp af einskærri ánægju yfir blómstr- andi listalífi höfuðborgarinnar. Guðlaugsson skiluðu inn hug- myndinni „Myndir úr listinni“. Þeir tveir eru úr auglýsingadeild skólans, en Hannes og Búi eru í málunardeild þriðja árs. 5 manna dómnefnd valdi úr til- lögum til úrvinnslu, en lokadóm- nefnd var skipuð þeim Þorkeli Sigurbjörnssyni, Þóru Kristjáns- dóttur, Hrafni Gunnlaugssyni, Torfa Jónssyni, Árna Páli Jó- hannssyni og Eddu Óskarsdótt- ur. Þrjú þau fyrstu voru fulltrúar Listahátíðar ’84 í nefndinni en hin fulltrúar Myndlista- og hand- íðaskólans. Framkvæmdastjóri Listahátíðar ’84 er Bjarni Ólafsson. _ hól

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.