Þjóðviljinn - 25.02.1984, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 25.02.1984, Blaðsíða 17
i-fcvl •feiii'H: d£—.!;£ fústaít '■>'/!, *í\'íV}’,'í - Helgin 25.-26. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 17 Erum við afkomendur þræla? Víkingarnir voru vanir að berjast fyrir sínu, segir Jóhann Geirharðsson hafnarverkamaður og stjórnarmaður í Dagsbrún Samningar hafnarverkamanna Væ.gi umsamins álags minnkar Þjóðviljinn hefur skýrt frá því hvernig hinn nýi samningur ASÍ og VSÍ kæmi út gagnvart verkakonum í fískvinnu sem vinna samkvæmt bónus- kerfi. Dagsbrúnarmenn við höfnina eru heldur ekki ánægðir með sinn hlut og telja sig hlunnfarna. Ástæðan er sú að sérstakt álag á grunntaxta, sem þeir hafa haft frá 1974, og nemur samtals um 22% á lágmarkslaun, er nú að mestu fallið inn í þann ramma sem lágmarkslaun nýja samningsins mynda. Þannig hefur hafnarverkamaður í 10. launaflokki 10.774.- kr. grunnlaun, en með umsömdum kaupauka vegna hagræðingar, námskeiða o.s.frv. fara þau upp í 13.123.- kr. sem er aðeins 463 krónum yfir þeim lágmarkslaunum sem nýi samningurinn gerir ráð fyrir. Þar sem kaupauki hafnar- verkamanna var upphaflega mið- aður við gildandi lágmarkslaun telja þeir nú að eðlilegt sé að sér- samningur þeirra sé tekinn til endurskoðunar. Þjóðviljinn tók nokkra Dagsbrúnarverkamenn tali niðri við höfn fyrir fundinn á fimmtudag og leitaði álits á nýju samningunum. -ólg. gildandi lágmarkslaun, 12.660,- kr, er miðað við taxta sem er undir lágmarkslaununum og nemur 10.958,- kr. Þannig verður útkom- an sú samkvæmt nýju samningun- um að núgildandi dagvinnukaup hækkar upp í 14.419,- í stað 15.419,-. Þarna er verið að hafa af okkur 1000 krónur á mánuði og draga úr vægi þess kaupauka sem hafnarvinnan hefur haft fram yfir lágmarkslaun. Þannig fela nýju samningarnir það í sér að tekið er af sérsamningi okkar hér við höfn- ina. Við vonumst til þess að fá leiðréttingu á þessu og vonumst jafnframt til að ASÍ og VSÍ hugsi sig um áður en þeir láta svona hluti fara frá sér aftur. Þá veit ég að um hliðstæða skerðingu er að ræða hjá þeim Dagsbrúnarmönnum sem vinna hjá borginni. Annað atriði sem okkur finnst fráleitt í þessum samningi eru þessi nýju aldursákvæði. Þeir sem eru 16 - 18 ára eru settir á sérstakan ung- lingataxta. Þetta er niðurlæging fyrir þennan aldursflokk, sem þarf sitt lífsviðurværi eins og aðrir, og er ekki ofgóður af hinum umsömdu lágmarkslaunum. Þá kemur þessi samningur einnig mjög illa við þá sem eru að skipta um atvinnu, og það atriði, að menn skuli þurfa að vera 6 mánuði í vinnu til þess að vera gjaldgengir fyrir lágmarks- launin er hreint út sagt fáránlegt. En hefur samningurinn ekki líka jákvæðar hliðar? Jú, þarna er margt jákvætt. Það er rétt að tryggja lágmarkskjör þótt sú trygging mætti vera hærri, og þarna er brugðist rétt við vanda einstæðra foreldra, sem hefur verið þjóðfélaginu til hneisu. Þolir þjóðarbúið að greidd séu hærri laun? Já; ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta þjóðfélag er nógu ríkt til þess að framfleyta okkur öllum, spurningin er bara hvernig þjóðar- tekjunum er skipt. Það bendir margt til þess að unnið sé markvisst að því að koma upp 2. flokks þjóð- félagsþegnum hér á landi, fólk þarf að vinna myrkranna á milli til þess að hafa í sig og á og gengur samt illa. Þegar réttlát skipting þjóðart- eknanna er komin á er ekkert sjálf- sagðara en að tekjur fylgi þjóðar- tekjum og þjóðarframleiðslu, en á meðan þetta misrétti er látið við- gangast í þjóðfélaginu verður það ekki hægt. Hafa áhrif verkalýðshreyfingar- innar farið þverrandi á síðari árum? Já, ég er ekki frá því, og ég er ekki viss hverju er um að kenna. Forystumenn verkalýðsféláganna hafa undanfarna daga flykkst hing- að suður til þess að lýsa því yfir að þeir geti ekki staðið í neinni bar- áttu, þeir virðast ætla að ná þessu öllu upp í næstu samningum. En það sem einu sinni hefur verið selt næst ekki svo auðveldlega aftur. Við erum að vona að okkar leið veki áhuga fólks, en við höfum skipulagt okkar baráttu með vinn- ustaðafundum og skipun samning- anefnda á vinnustöðum. Menn spyrja okkur í Dagsbrún gjarnan: hvað ætlið þið að gera? en Dags- brún er ekkert apparat sem öllu bjargar. Við erum ekki annað en fólkið á vinnustaðnum og við reiðum okkur á samstöðuna, því án hennar næst ekkert fram. Hvað tekur nú við hjá ykkur? Ég á ekki von á því að við sam- þykkjum þessa samninga og ég vonast til þess að málstaður okkar fái skilning og hljómgrunn og að ekki verði gengið á okkar hlut með þessum hætti. Hvaða rök eru til dæmis fyrir því að sumir hópar í þjóðfélaginu fái eftirvinnu borgaða sem hundraðshluta af mánaðar- launum, en aðrir ekki? Híenurnar hafa nú hlaupið heim með lafandi skottið. Þar verður væntanlega hent í þær einhverjum aukaprós- entum eins og tíðkast hefur undan- farin ár. Launamismunurinn í þjóðfélaginu er enn að aukast og ég fæ ekki séð að þessir kjarasamning- ar breyti því. En það sem úrslitum ræður hjá okkur er samtakamátt- urinn og samstaðan. Án hennar mun enginn árangur nást. -ólg. Höfum lagt mikla vinnu í undir- búning sérkrafna okkar, segir Gestur Guðmundsson. Strikað yfir sérkröfur segir Gestur Guðmundsson Mér sýnist á öllu að með þessu samkomulagi sé verið að slá striki yfir allar okkar sérkröfur, sagði Gestur Guðmundsson Dagsbrún- arverkamaður hjá Eimskip í gær. - Ég hef starfað hér í starfsnefnd sem hefur lagt mikla vinnu í að undirbúa sérkröfur okkar hafnar- verkamanna fyrir þessa samninga. Sérsamningar okkar eru orðnir 10 ára gamlir og þarfnast endur- skoðunar vegna margvíslegra breytinga sem hér hafa orðið á þessum tíma. Ef það er rétt skilið, að ekki verði tekið tillit til sér- krafna okkar í þessum samningum, þá eru fyrstu viðbrögð okkar þau, að þetta séu vondir samningar. segja Hermann og Gunnar Ef það er rétt að við eigum ekki lengur að fá fullorðinskaup þá erum við á móti þessum samning- um, sögðu þeir Hermann Guð- mundsson og Gunnar Einarsson, þar sem við hittum þá við störf á hafnarbakkanum hjá Eimskip í gær. Við skiljum ekki hvers vegna verið er að búa til sérstakan ung- lingataxta og finnst okkur vera mis- boðið. Ætlið þið á Dagsbrúnarfundinn í kvöld? Já sannarlega, sögðu þeir félagar og voru þar með roknir. ólg. íslendingar hæla sér stund- um af því að vera komnir af víkingum, en maðurgæti haldið að þeir séu frekar komnir að þrælum. Víking- arnir voru vanir að berjast fyrir sínu. En manni finnst stundum að það séu eintóm- ir þrælar sem byggja þetta land. Það hvarfiaði að minnsta kosti að mér við að heyra tóninn í sumum þeim verkalýðsforingjum sem komu hingað suðurtil þess að samþykkja kjarasamning ASÍ og VSÍ á dögunum. Sérsamningur okkar hafnarverkamannanna hefur verið skertur með samningi ASÍ og VSÍ óbreyttum, segir Jóhann Geirharðsson. Ljósm. ólg. Þannig komst Jóhann Geir- harðsson verkamaður við upp- skipun hjá Eimskip og stjórnar- maður í Dagsbrún að orði í viðtali við Þjóðviljann á fimmtudag. Við- talið fór fram áður en hinn sögulegi fundur Dagsbrúnar var haldinn í Austurbæjarbíói. Við spurðum Jóhann hvernig Dagsbrúnarmenn við höfnina hefðu undirbúið sig undir þessa samninga og hvaða umbætur þeir teldu brýnastar. Við höfum haft sérstakan starfs- hóp hér við höfnina sem er búinn að leggja á sig mikla vinnu við að undirbúa okkar sérkröfur. Við höf- um hér sérsamning sem er orðinn 10 ára gamall og okkur finnst knýj- andi nauðsyn á að honum verði breytt til samræmis við þær tækni- breytingar sem orðið hafa hér á hafnarsvæðinu. Hér hefur orðið talsverð fækkun á fólki samfara því að hér um höfnina fer meira vöru- magn á styttri tíma. Við höfum ein- faldlega ekki fengið okkar hlut í þeirri hagræðingu sem hér hefur átt sér stað. Hvernig er vinnutíma háttað hér við höfnina? Vinnutíminn hefur heldur styst við þessar breytingar, en þó ekki nógu mikið, enda hefur þetta verið algjört brjálæði undanfarin ár. Menn vinna hér að jafnaði 2-3 kvöld á viku til klukkan 10 á kvöld- in. Þessi mikla yfir- og næturvinna hefur bjargað mörgum við það að komast af, þar sem dagvinnulaunin eru jafn lág og raun ber vitni, en þetta er ekkert líf með þessum vinnutíma. Einn ágætur félagi okk- ar hér á staðnum benti okkur á að frá því að hann tæki strætisvagninn á morgnana og þar til hann færi heim með sama vagni á kvöldin hefðu orðið þrjú vaktaskipti á vagninum. Hvernig horfir samningur ASI og VSÍ við ykkur hér? Við höfum í sérkröfum okkar farið fram á flokkatilfærslur og lag- færingar vegna þess að við höfum misst hópa yfir til Verslunar- mannafélags Reykjavíkur sem hef- ur betri samninga á starfssviðum þar sem mörk eru óljós á milli fé- laganna. Þá erum við óánægðir með að eftirvinnan, næturvinnan og sú álagningarprósenta sent sér- kjarasamningur okkar gerir ráð fyrir skuli ekki koma á lágmarks- launin, heldur á taxta sem er undir þeim. Sú álagningarprósenta sem við höfum fyrir hafnarvinnuna er tilkomin vegna sérstakra aðstæðna og hagræðingar og er 5% og 16% ofan á lágmarkslaun. í stað þess að leggja þessar prósentur ofan á nú- Erum á móti samningunum, segja þeir Hermann Guðmundsson og Gunn- ar Einarsson, sem eru undir 18 ára aldri og fá því 11.509.- kr. tekjutrygg- ingu, sem er 1151 kr. lægra en „fullorðinstaxtinn“. Unglingataxti niðurlæging

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.