Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 26
26 SÍÐ'A - ÞJÓÐVILJINN! He,g“» 31. mars - 1. apríl l‘98Í» JC Breiðholt um helgina ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Reykjavík Vorhappdrætti VORHAPPDRÆTTI Alþýðubandalagsins í Reykjavík Verð kr. 100.- VlNNlNGAfl Dregið 10.MAI I -3. fcróaVinnmgaf • tetgiiftiiQi msð Samvinnufeníum !.amJ:ivn aö verðt!UT?ti2D 000k;. frver .... fiOöOG 4. 6 FetAðvinningar í leiguflagi meö Safiivir.nuiiíröur:; - lcndvýn verðma!ti 15.000 kr. hvcr 4f».000. • Vinningar aiia fjnidi ir.iöa 6.325 AlbvöubamlalaqiÖ i Ravkiavtk: Hverftsöötu 105.101 Ruykiavik.Stmi. !f)1i 17500 Alþýðubandalagið í Reykjavíkgengstfyrirglæsilegu vorhappdrætti. Vinningar eru 6 ferðavinningar í leiguflugi með Samvinnuferðum - Landsýn að heildarverðmæti 105.000,- krónur. Dregið verður í happdrættinu 10. maí. Þess er vænst að félagar og stuðningsmenn Alþýðubandalagsins í Reykjavík bregði skjótt við og greiði heimsenda miða hið fyrsta í næsta banka/pósthúsi eða á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Hverfisgötu 105. Sláum saman! Stöndum saman í slagnum! Styrkjum baráttu Alþýðubandalagsins! Stjórn ABR Alþýðubandalagið ísafirði: Árshátíð Árshátíð Alþýðubandalagsins á ísafirði verður haldin í Góðtemplara- húsinu laugardaginn 31. mars og hefst kl. 20.30. Dagskrá: Borðhald, skemmtiatriði, leynigestir og dans. Miðapantanir og upplýsingar hjá Smára í síma 4017, og hjá Hallgrími í síma 3816. Allir stuðningsmenn Alþýðubandalagsins og gestir þeirra velkomnir. Alþýðubandalagið Vestmannaeyingar Garðar Sigurðsson alþingismaður verður til við- tals að Bárugötu 9. laugardaginn 31. mars frá kl. 16-19. Lítið inn. Kaffi á könnunni. Alþýðubandalagið í Reykjavík Spilakvöld Næst verður spilað þriðjudagskvöldið 3. apríl kl. 20.00 í Flokksmiðstöðinni Hvertisgötu 105. Guð- rún Ágústsdóttir kemur í heimsókn og fjallar um fólagsmál í borginni. Þetta er 2. kvöld í þriggja kvölda keppni. Spilað er bæði um heildarverðlaun og sérstök kvöldverðlaun og því er ekki nauðsyn- legt að hafa mætt á síðasta spilakvöldi. - Spila- hópurinn. Guðrún Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins Alþýðubandalagið ísafirði Stofnfundur Æskulýðsfylkingar AB á ísafirði Ólafur verður haldinn laugardaginn 31. mars kl. 16 í húsnæði Alþýðubandalagsins, Aðalstræti 42. Anna Hildur Hildibrandsdóttir og Ólafur Ástgeirsson frá ÆF í Reykjavík mætaáfundinn. Ungtfólker hvatttilað fjölmenna. Anna Hildur Vinsamlega sendið eða hringið inn auglýsingar í þennan dálk fyrir klukkan 16 daginn áður en þær eiga áð birtast og talið við Einar Karl eða Álfheiði. - Ritstjórn. VINNUEFTIRLIT RÍKISINS Síðumúla 13, 105 Reykjavík, Sími 82970 LAUS ER TIL UMSÓKNAR STAÐA Upplýsinga- og fræðslufulltrúa Viðkomandi skal hafa staðgóða menntun og starfs- reynslu á sviði upplýsinga- og fræðslumála eða hlið- stæðra starfa. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfs- reynslu skulu sendar Vinnueftirliti ríkisins, Síðumúla 13, Reykjavík, eigi síðar en 24. apríl nk. Vorgleði í Gerðubergi upplestur, skátaleiki og kórsöng Kórs Ölduselsskóla. Þá má nefna söng félaga úr kór SVR undir stjórn Skúla Halldórssonar tón- skálds. Á morgun, sunnudag munu lið- vagnar SVR vera í förum frá Lækj- artorgi upp í Gerðuberg á hálftíma fresti. Þess skal getið að ferðir með vögnunum og aðgangur að Gerðu- bergi á þessa miklu menningar- vöku eru ókeypis. -v. Það verður mikið um að vera í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi um þessa helgi því í dag hefst menningarvika þar á vegum JC Breiðholt. Aðaldagskráin verður í dag og á morgun en alla næstu viku mun svo standa yfir málverkasýn- ing 10 listamanna. Á þessari menningarviku sem JC stendur fyrir munu koma fram 4- 500 listamenn. Dagskráin hefst kl. 13.00 í dag með ávarpi Sigurðar S. Bjarnasonar formanns menning- arnefndar og síðan tekur við röð dagskrárliða af fjölbreyttasta tagi. Þar má nefna flautukonsert nem- enda Fellaskóla, hljómleika með hljómsveitinni Hrím, hljóðfæra- leik Jónasar Þóris, teiknimyndir, söng Ungs fólks með hlutverk, Það verður mikið um að vera í Gerðubergi um helgina en þá býður JC Breiðholt tll ókeypis menningarvöku og myndlistarsýningar alla næstu viku. 1 " SBB • , , Svavar Vllborg Sveinn Margrét E IHra | tllBÍÍm Helgi Hjörleifur Lára Jóna Öttar Magni Alþýðubandalagið Forystumenn ferðast um Austurland Dagana 4.-8. apríl munu Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins, Vil- borg Harðardóttir varaformaður og Margrét Frímannsdóttir gjaldkeri flokksins svo og alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson og Sveinn Jóns- son varaþingmaður ferðast til átta byggðarlaga á Austurlandi, halda þar almenna og opna fundi og hitta fólk, m.a. á vinnustöðum. Einnig verða með í ferðinni fulltrúar úr stjórn Æskulýðsfylkingar Alþýðubanda- lagsins, þau Lára Jóna Þorsteinsdóttir og Ottar Magni Jóhannesson og ræða þau við ungt fólk á stöðunum. Opnir fundir verða sem hér segir: Egilsstaðir: miðvikudag 4. apríl kl. 21 (Hús Slysavarnarfélagsins) Helgi, Vilborg og Sveinn verða á fundinum. Seyðisfjörður: fimmtudag 5. apríl kl. 20.30 (Herðubreið) Helgi, Vilborg og Sveinn. Neskaupstaður: fimmtudag 5. apríl kl. 20.30 (Egilsbúð) Svavar, Margrét, Hjör- leifur. Fáskrúðsfjörður: föstudag 6. apríl kl. 20.30 (Félagsheimilið) Helgi, Vilborg, Sveinn. Stöðvarfjörður: föstudag 6. apríl kl. 20.30 (Samkomuhúsið) Helgi, Vilborg, Sveinn. Breiðdalur: laugardag 7. apríl kl. 14.00 (Staðarborg) Helgi, Vilborg, Sveinn. Eskifjörður: laugardag7. apríl kl. 14.00 (Valhöll) Svavar, Margrét, Hjörleifur. Borgarfjörður eystri: sunnudag 8. apríl kl. 16 (Fjarðarborg) Helgi, Vilborg, Sveinn. Reyðarfjörður: sunnudag 8. apríl kl. 16.00 (Hús verkalýðsfélagsins) Svavar Margrét, Hjörleifur. Ein framsöguræða verður á hverjum fundi. Almennar umræður. Fundarboðendur sitja fyrir svörum. Fundirnir eru öllum opnir. Alþýðubandalagiö

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.