Þjóðviljinn - 01.09.1984, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 01.09.1984, Blaðsíða 6
é jftcVcUar^eot.- . -^s ú 3“* Innritun í prófadeild Eftirtaldar prófadeildir veröa starfræktar á vegum Námsflokka Reykjavíkur í vetur: í LAUGARLÆKJASKÓLA: Hagnýt verslunar- og skrifstofustarfadeild. Viðskiptabraut: 1. og 3. áfangi hefjast á haustönn. Almenn menntadeild: íslenska, stærðfræöi, danska og enska, 1. og 3. önn á framhaldsskólastigi. í MIÐBÆJARSKÓLA: Forskóli sjúkraliða. Bóklegar greinar sjúkraliðanáms. Fornám. Samsvarar námi 9. bekkjar grunnskóla. Aðfaranám. Samsvarar námi 7. og 8. bekkjar grunn- skóla. INNRITUN í ALLAR PRÓFADEILDIR MUNU FARA FRAM 10. OG 11. SEPT. í MIÐBÆJARSKÓLA KL. 17 - 20. Innritun í almenna flokka mun fara fram 18. og 19. sept. Söngsveitin Fílharmónía 1960-1985 Hér færðu hljómgrunn Söngsveitin býður þeim sem áhuga hafa kór- menntanámskeið. Undirbúningsnámskeiðið hefst 10. sept. Framhaldsnámskeið að því loknu. Leiðbeinandi í kórmennt: SIGRÚN ANDRÉSDÓTTIR. Upplýsingar veittar í símum: 16034, 31628 og 28858. UTB0Ð Tilboð óskast í lagningu holræsis, gerð brunna og dæluþróar ásamt plötu dæluhúss vegna skolp- dælustöðvar við Gelgjutanga í Reykjavík. (Elliðavogsræsi 7. áfangi og dælustöð við Gelgju- tanga). Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkir- kjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 3000 skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 18. sept. nk. kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN r,® ,óskar að ráða verkamenn til starfa í nágrenni Reykjavíkur og úti á landi. Nánari upplýsingar verða veittar í starfsmannadeild. Við leitum að starfsfólki til eftirtalinna starfa: Skráningarstarfa Um getur verið að ræða heils- eða hálfsdagsstörf. Leitað er að fólki með starfsreynslu. Ritarastarfa Leitað er að ritara með góða vélritunarkunnáttu. Eftirlitsmann í vöruafgreiðslu og lagermenn með meirapróf Umsóknareyðublöð hjá starfsmannastjóra er veitir frekari upplýsingar. SAMBANDISL. SAMVINNUFEIAGA STARFSNIANNAHALD Lagerstörf Verslunardeild Sambandsins óskar eftir starfsmönn- um til lagerstarfa. Bónusvinna. Nánari upplýsingar hjá lagerstjóra á staðnum. 3. deild Fylkir upp! Reynir sigraði 1 -0 íArbœnum enþað var Sandgerðingum ekki nóg Fylkir er kominn í 2. deildina í knattspyrnu á ný eftir árs fjar- veru. I gærkvöldi iéku efstu liðin í SV-riðli 3. deildar, Fylkir og Reynir Sandgerði, í síðustu um- ferðinni á Árbæjarvellinum. Reynir náði að sigra, 0-1, en þurfti tvö mörk til viðbótar til að komast upp á betri markatölu en Fylkir. Liðin urðu jöfn og efst með 37 stig en Reynir leikur áfram í 3. deild. Strax í byrjun leiksins fengu Fylkismenn vítaspyrnu en mark- vörður Reynis varði skot Brynj- ars Jóhannessonar. Leikurinn var jafn og baráttan mikil, Reynismenn ívið hættulegri en Fylkir fékk heldur betri færi. Um miðjan síðari hálfleik fékk Reynir vítaspyrnu og úr henni skoraði Ómar Björnsson eina mark leiksins. Hans 17. mark í 3. deild í sumar. Fleiri urðu mörkin ekki - Fylkir fagnaði sigri þrátt fyrir tap og leikur nú tvívegis, 8. og 15. september, við Leiftur frá Ólafsfirði um meistaratitil 3. deildar. -VS 2. deild „Nú gerðum við Garðinn frægan!“ Víðir sigraði FH 2-0 í gœrkvöldi „Nú gerðum við Garðinn fræg- an!“ heyrðist í FH-ingi í gær- kvöldi eftir að Vlðir hafði sigrað 2. deildarmeistarana FH 2-0 I 2. deildinni í knattspyrnu í Garðin- um. Með þessum úrslitum eru Víðismenn einir í öðru sæti og hafa þriggja stiga forskot á næsta lið - hvað svo sem gerist I hinum ijórum leikjum deildarinnar í dag. FH-ingar, án Inga Björns Al- bertssonar og Dýra Guðmunds- sonar, voru betri aðilinn framan af. Þeir spiluðu vel en tókst ekki að opna vörn Víðis nema einu sinni er Pálmi Jónsson fékk send- ingu inní vítateiginn og skallaði Everton fékk í gærkvöldi sín fyrstu stig í 1. deild ensku knatt- spyrnunnar á nýhöfnu keppnis- tímabili. Bikarmeistararnir náðu að sigra nýliða Chelsea 1-0 á Stamford Bridge í London og skoraði Kevin Richardson sigur- markið á 58. mínútu. Chelsea hafði gífurlega yfir- að marki. Gísli Heiðarsson varði glæsilega. Upp frá því tóku Víðismenn að spila mjög vel, sýndu sitt besta í sumar og fengu nokkur færi fyrir hlé. Daníel Einarsson átti tvö þrumuskot, það fyrra í varnar- mann og til Guðjóns Guðmunds- sonar sem skaut framhjá af mark- teig, það síðara rétt yfir þverslá. Víðir átti allan síðari hálfleik og óð í færum. Strax á annarri mínútu skoraði Daníel fallegt mark, skaut hörkuskoti utan víta- teigs í hornið fjær, neðst niðri, 1-0. Á 60. mín. lék Grétar upp kantinn og sendi fyrir á Guðjón sem skallaði í netið, 2-0. burði í fyrri hálfleik! Kerry Dixon átti þrjú dauðafæri, þar af eitt stangarskot, og Pat Nevin var einnig nálægt því að skora. Þeim hefndist fyrir, Everton náði að stela stigunum þremur. Þetta var fyrsti leikur þriðju umferðar en hinir tíu fara fram í dag. -VS Skömmu síðar lék Daníel uppað vítateig FH, vippaði yfir mark- vörðinn til Guðjóns sem var í dauðafæri en skaut í mótherja. Á lokamínútunum björguðu svo FH-ingar á línu frá Ólafi Ró- bertssyni. Grétar og Sigurður Magnússon voru bestir Víðismanna. Lið FH saknaði greinilega Inga Björns og Dýra en Viðar Halldórsson átti einna bestan leik. Góður dómari var Ásbjörn Sveinbjörnsson. ÞBM/Suðurnesjum. 2. flokkur Valur bikar- meistari Valur varð bikarmeistari 2. flokks I knattspyrnu á miðviku- dagskvöldið, sigraði Þrótt 3-1 í úrslitaleik á grjóthörðum Mela- vellinum. Hneyksli að úrslita- leikur skuli yfirleitt vera látinn fara þar fram. Jón Grétar Jóns- son var hetja Valspiltanna, skoraði öll þrjú mörkin. England Everton vann! 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. september 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.