Þjóðviljinn - 17.11.1984, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 17.11.1984, Blaðsíða 15
BÓKMENNTIR Eiöistorgi 11. S: 622200. híngað til hefur rauði þráðurinn lífi mínu hángiö á blá þræði nú er þráðlaust samband í undirbúníngi Gyrðir Elíasson. Tvíbreitt (svig)rúm. Mál og menning 1984. Ef iesandinn er inntur eftir fyrstu heildaráhrifum af þessari nýju ljóðabók Gyrðis Elíassonar má svarið verða eitthvað á þessa leið: Hér fer skáid sem lætur mjög á því bera, að hinn sýnilegi heimur er því mikils virði, á hon- um vill Gyrðir ná tökum, festa hann niður á innra augað með nákvæmni íhuguls málara. Og er reyndar vitnað öðru hvoru beint til myndlistar í þessum textum. Þessu sjónarspili fylgir svo greini- . leg óbeit á mælgi, virkur vilji til að forðast troðnar slóðir, magna eigin raddstyrk til stórra átaka. Sem er erfitt eins og menn vita, því um allt hefur verið ort og um margt dável. Það gerist oftar en ekki í þess- um ljóðum að reynt er að láta hversdagslega hluti standa fyrir sínu umbúðarlaust, nagaða blýanta, kaffi í bláum dúnki og fleira - en það getur svo komið á daginn í næstu andrá að kaffiket- illinn sé sóttheitur, pípan útlifuð, að hjarta morsi dulmál í fótnettu húmi og einfarinn á malbikinu má bera harm sinn í skóhljóði. Það er einatt gaman að fylgjast með þessum leik að þanþoli orð- Hinn synilegi heimur ÁRNI BERGMANN f. anna. Sem er oftar ep ekki f bandalagi við leik að sjálfu prent- verkinu: bókstafirnir gera bæði að mynda orð um leið flugunnar á rúðunni og raða sér upp og niður á þeirri leið sem hún fer. Og er hér aftur komið að þeim tengsl- um við myndlist sem fyrr voru nefnd: tónarnir deyja um síðir (sem aðr- ir) á hljóðskrafið stígur & fléttast í krans œða stíflur brostnar vonir & þrár undir krosstrénu. Þeim kvæðum sem lesandinn kynnist af vafalausum áhuga fjölgar þegar á líður lesturinn og það er góðs viti eða að minnsta kosti skynsamlegt. í þeim beitir höfundurinn ótvíræðri gáfu sinni til þéttingar gjarna tii háðs, - stundum í léttari dúr (dagur ei meir), stundum í bland við nokk- ' uð marksækna grimmd: Gyrðir Elíasson. óneitanlega hefði verið þœgilegra fyrir alla aðila hefðu þeir (á því herrans krossfestingarári) haft naglabyssu við höndina. Og mest verður skáldskapar- fjörið undir lokin í kvæði á „hálf- íslensku" sem er nógu öflugt til að skrúfa í bili fyrir hreintungutil- hneigingar þessa miðaldra lesara hér. En þar eru meðal annars þessi tíðindi sögð: spooky andrúmsloftið í gras- grænu partýanna rokkið sokkið í mjúkmælgi sandhvítra gólfteppa pípulagningarmaðurinn kemur eftir helgina weekendsexið útspýtt undir rúm- unum saurblaðið á sínum stað í skó- svartri vasabiblíunni uppí bókaskápn- um. Gyrðir hefur girt sér reit og þar sprettur takk bærilega. ÁB Ljosmynd er vinsœl jolagjöf. Ungir sem aldmr eru alltaf velkommr í myndatöku. Lítið inn og kynnist hinum ýmsu valkostum. Við bjóðum verð við allra hæfi. Pantiö myndatöku timalega. V7SA gefurréttamynd LAUGAVEG1178 SÍMI81919 Kvæði er í bókinni sem heitir ,4tonsert“. Það er svona: í sama bili & hljómarnir fella storminn dynur klappið yfir á sviðinu alt svart nema andlitið & skyrtubrjóstið & hendurnar & njótnaborðið mestalt hvítt Og við þennan texta og ýmsa aðra fer gagnrýnismórinn í les- andanum á kreik og snýr upp á sig. Allt er það nú í lagi, segir hann, þetta er mynd, hún er skýr, en hvað er sagt, hvað hefur unn- ist, af hverju lærir maðurinn ekki að mála eða eitthvað? Mikið rétt, það má vel spyrja sem svo. En svo kemur næsta kvæði, sem er einnig tengt því að tónar heyrðust og þar er strax eitthvað meira á ferð, einhver ókyrrð, orðin eiga stærra erindi við menn: A/ Lotte Haveman Besog i et supermarked UnderetkortbeMgieta byens supermarkwier V* maerkede jeg, at dt _taf Dy»rkede" jeg at'der 8et’ roTjgr var endog SsSstsfÆ setomater U V og lammekedet va sentligt bilhgere. Især blev v, l«»ciMr« over bvdende fisk og skaiayr var smukt arrangeret p| is. Men der var ogf jh udsk&retfiskmarmereti hhv.karry-, papnka g hvidvinslager tilsat for nfát nSCfSMSí syv*forskellige slags h; Ki'lisáiorbrug. bvis 18 fískehandlere var v°At mereopfindsomme lldtA« var ipisk fisk at koiÍ i supermarkederne. og lammekoaer » — hhv.karry-, pap“-“ nd> 90de kokken„ , Qerlínske Tidende e«T (Or grein L°tte ^J'v'öruinarkaöinn hf. heimsókn hennar i voru. ^

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.