Þjóðviljinn - 06.03.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 06.03.1985, Blaðsíða 6
Alþingi Námskeið í töh/unotkun fyrir fatlaða Helgi Seljan: Fá störf erufötluðum heppilegri en vinna við tölvur Helgi Seljan og Geir Gunnars- son hafa flutt á Alþingi tillögu til þingsályktunar um námskeið fyrir fatlaða í tölvufræðum- .Hljóðar tillagan þannig: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að beiti sér fyrir því að haldin verði námskeið fyrir fatl- aða í meðferð og notkun á tölvum til að auðvelda fötluðum að fá störf á vinnumarkaðnum. Fél- agsmálaráðuneytið standi fyrir þessum námskeiðum viðkom- andi að kostnaðarlausu." Helgi 5eljan talaði fyrir tillög- unni í síðustu viku og sagði m.a. „Tölvutækni og tölvunotkun ryðja sér æ meir til rúms í at- vinnulífinu. Til starfa við tölvur þarf ákveðna þekkingu, byggða á námi en augljóst er að tölva sem vinnutæki hentar sérstaklega vel fötluðum, m.a. hjólastólafólki. Fá störf munu þessu fólki þægi- legri viðfangs auk þess sem þau gefa betri tekjumöguleika en mörg önnur. Störf sem lúta að tölvum og notkun þeirra ná til æ fleiri þátta og svo mun verða enn frekar í náinni framtíð. Fatlaðir þurfa að eiga kost námskeiða til þess að geta orðið hlutgengir til þessara starfa. Upp á slík nám- skeið þarf að bjóða fötluðum, þeim að kostnaðarlausu til örv- unar og hvatningar til frekari at- vinnuþátttöku, en fjárhagur fatl- aðra almennt er slíkur, að nám- skeið getur verið þeim ofviða fjárhagslega.“ Þá fjallaði Helgi nokkuð um atvinnuþátttöku fatlaðra og sagði það dapurlega staðreynd að opin- berir aðilar stæðu sig miklu verr en einkaaðilar í því að sjá fötlu- ðum fyrir vinnu. Sagði hann að hið opinbera gerði eins lítið og unnt væri til að greiða fyrir at- vinnuþátttöku fatlaðra. Síðan sagði Helgi: „Ég sat fyrir skömmu - allt of skamman tíma þó - hluta af ráð- stefnu um atvinnumál fatlaðra. Sú ráðstefna var mjög fjölsótt. Ótrúlegur áhugi kom þar fram á öllum möguleikum hinna fjöl- mörgu hópa fatlaðra, sem þar voru saman komnir. Þar var m.a. rætt um vernduðu vinnustaðina og þeir taldir af hinu góða, þar sem þeir væru óhjákvæmilegir, en hins vegar tekið skýrt fram af öllum þeim, sem þar töluðu, að þeir væru vitanlega það úrræði sem síðast ætti að grípa til, hin almenna atvinnuþátttaka ætti að sitja fvrir.“ í ræðunni skýrði Helgi Seljan einnig frá því að mikið skorti á að nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir fjölda fatlaðra sem gætu unnið ýmis störf ef til boða stæðu. Lokaorð ræðunnar voru þessi. „Mikilvægi starfsins fyrir hvern og einn er ótvírætt og ekki síður fyrir þá fötluðu, sem oft hafa ekk- ert að gera og eru auk þess í of Með aukinni tölvunotkun skapast miklir nýir möguleikar á störfum fyrir fatlaða. Helgi Seljan og Geir Gunnarsson leggja til að ríkisstjórnin beiti sér fyrir tölvunámskeiðum fyrir fatlaða. mikilli einangrun. Hin nýja tækni á að skapa þeim möguleika. Þá möguleika þarf að nýta til fullnustu. Þar kemur tölvan sem tæki hinna fötluðu til þess að hasla sér völl á vinnumarkaðn- um. Því þarf hér aðgerðir sem duga, því er till. þessi flutt.“ hágé Bdkamarkaður Máls ogMermingar Út og suður- 20 ferðaþættir eftir 20 íslendinga á aðeins kr. 298.- Bókaveisla fjölskyldunnar Bókabúð LmALS &MENNINGAR J LAUGAVEG118-101 REYKJAVÍK SIMAR: 24240 - 24242 Alþingi SpurTum... Heilbrigðisráðherra hefur með leynd skipað nýja nefnd til að yfirfara tillögur um að leggja sjúkrasamlögin niður og sameina starfsemi þeirra Tryggingastofnun ríkisins. í nefndinni á m.a. sæti Friðrik Friðriksson framkvæmda- stjóri Sjálfstæðisflokksins. Þetta kom fram í umræðum sem spunnust á alþingi vegna fyrirspurnar Guðrúnar Helga- dóttur um hvort horfið hefði ver- ið frá hugmyndum um að sam- eina sjúkrasamlögin Trygginga- stofnun. Hún minnti á tillögu ríkisendurskoðanda þar um 1977 og sagði að óþarfa tvíverknaður væri í kerfinu eins og nú er, - sjúkrasamlögin væru nánast óþörf. Tryggingastofnun greiðir að mestum hluta reikninga fyrir þau, sem eru nú nær 40 talsins og sérstök stjórn yfir hverju. Kostir sameiningar væru m.a. þeir að einfalda stjórnunina, svæðaskipt- ing sem oft hefði óhagræði í för með sér yrði lögð niður og létt yrði á sjúkrahúsum og lyfjabúð- um sem gætu sent reikninga sína í einn stað en ekki 40. Guðrún átaldi nefndarskipun heilbrigðisráðherra og sagði al- geran óþarfa að fara nú að endur- vinna tillögur og athuganir nefndar sem skipuð var 1982 í sama tilgangi, en Guðrún átti sjálf sæti íþeirri nefnd. Hún sagði að sú nefnd hefði unnið verulega gott starf enda hefðu þar verið að verki menn sem vel þekktu til. Matthías Bjarnason heilbrigð- isráðherra, sagði meginverkefni nýju nefndarinnar að endur- skoða tillögur hinnar eldri með tilliti til tölvuvæðingar. Hann sagðist aðlokum ekki myndu hika við að sameina sjúkrasamlögin og Trygginga- stofnun ef það reyndist ódýrara, veitti betri þjónustu og minnkaði skriffinnskuna. 1X2 1X2 IX 27. leikvika - leikir 2. mars 1985 Vinningsröð: 121-1X1-122-X2X 1. vinningur: 12 réttir, kr. 300.010.- 15258 49820(4/11) 2. vinningur: 11 réttir, kr. 4.147.- 650 36199 44049+ 60332+ 85808 95701+ 1115 36702 45498 60439 87515 96487 5388 36937+ 47778 64387 88147+ 96492 8737+ 38207+ 48363 64832+ 90337 96817 11439+ 39197 49583+ 64972+ 91821 + 96905+ 15247 40899 53986+ 65969 92109+ 55910(2/11)+ 15255 41642 54317 66237+ 92585 91715(2/11)+ 36121 44046+ 59546 66612 94428 + 91835(2/11) 96974(2/11) 165836(2/11) úr 25. viku: 94716 úr 26. viku: 8171 55277 Kærufrestur er til 25. mars 1985 kl. 12.00 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eöa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK ÚTBOÐ Tilboð óskast í að endurnýja hitaveitulögn í steyptum stokk í Ljósvallagötu, Ásvallagötu og Bræðraborgar- stíg fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 13. mars n.k. kl. 11 fyrir hádegi. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 Simi 25800 ÚTBOÐ Tilboð óskast í að endurnýja hluta dreifikerfis í Fossvogi 2. áfangi fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000.- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 19. mars nk. kl. 14. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN INNKAUPASTOFNUNREYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 Simi 25800

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.