Þjóðviljinn - 26.07.1985, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTT1R
Jónsmálið
Ógilt
Dómstóll KSI kvað upp þann
úrskurð í gær að aganefnd KSÍ
hefði ekki haft lögsögu í kæru-
málinu sem reis vegna Jóns G.
Bjarnasonar.
Aganefnd hafði dæmt leikinn
tapaðan fyrir KR 3-0, en þar sem
sá dómur hefur verið ógiltur, hef-
ur KR fengið stigin til baka og 4
mörk í plús. Dómstóllinn á þó
eftir að dæma í sjálfu málinu og er
ekki útséð hver málalokin verða
fyrr en sá dómur hefur verið upp
kveðinn.
-gsm
Körfubolti
KR-ingar
eflast
Hópurinn stœkkar.
Tveir Guðmundar
jafnvel á leiðinni
og kannski Páll líka
Hópurinn hjá úrvalsdeildariiði
KR í körfuknattleik hefur stækk-
að að undanförnu og gæti blásið
enn meir út áður en keppnin hefst
í haust. Árni Guðmundsson er
kominh frá IS, eins og við höfum
áður sagt frá, og sömuleiðis ann-
ar gamall KR-ingur, Eiríkur Jó-
hannesson. Þá er Garðar Jó-
hannsson snúinn heim eftir árs-
dvöl í Englandi.
Fleiri bætast líklega í hópinn.
Guðmundur Jóhannsson, ísfirð-
ingurinn hávaxni sem leikið hefur
með ÍS undanfarið, íhugar fé-
lagaskipti yfirí KR og sömuleiðis
Guðmundur Björnsson, fyrrum
unglingalandsliðsmaður úr Þór á
Akureyri. Þá eru miklar líkur á
að Páll.Kolbeinsson, landsliðs-
bakvörðurinn snjalli, taki sér árs-
frí frá námi sínu í Bandaríkjunum
og leiki á ný í KR-búningnum
næsta vetur. Þegar við þetta bæt-
ist að KR hafði á að skipa einu
yngsta og efnilegasta liði landsins
sl. vetur er ekki við öðru að búast
en Vesturbæjarliðið láti til sín
taka á komandi keppnistímabili.
Ólafur Guðmundsson landsliðs-
maður er sá eini sem hverfur úr
hópnum en hann stundar nám í
Bandaríkjunum næsta vetur. Jón
Sigurðsson mun þjálfa KR-inga
áfram.
-VS
Kvennaboltinn
Víkingur og
Haukar upp?
Sæti í 1. deild blasir við
Hauksstúlkunum eftir 6-2 sigur á
Hveragerði í Hafnarfirði á þriðju-
dagskvöldið. Þær voru komnar í 2-0
eftir aðeins 2 mínútur og leiddu 5-0 í
hálfleik. Helena Önnudóttir 2,
Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Jóhanna
Pálsdóttir, Anna Guðmundsdóttir og
Sandra B. Runólfsdóttir skoruðu
mörk Hauka. Stjarnan og Fram eiga
þó enn möguleika á að komast upp-
fyrir Hauka, í efsta sæti B-riðils 2.
deildar og þar með í 1. deild.
Víkingur á einnig alla möguleika á
1. deildarsæti eftir 2-0 sigur á Aftur-
eldingu í fyrrakvöld. Víkingsstúlk-
umar þurfa þá 4 stig gegn Grindavík
og Grundarfirði til að tryggja sig
endanlega upp.
-HRAA'S
Handbolti
Fjölgar á Spáni!
Spánverjar sœkja um félagaskiptifyrir Guðmund Albertsson.
Fjórði Islendingurinn íspœnskul. deildinni.
Ekki enn sótt um rétta boðleið til HSÍ,
heldur ekkifyrir Hans og Einar.
Spænska handknattleikssam-
bandið hefur sótt um félagaskipti
til handa Guðmundi Albertssyni,.
úr Víkingi yfirí spænska 1.
deildarliðið Maritim Puerto
Club. Guðmundur, sem er bor-
inn og barnfæddur KR-ingur, lék
með GUIF í Svíþjóð sl. vetur en
skipti yfirí Víking sl. vor.
Állt bendir því til þess að fjórir
Islendingar leiki í spænsku 1.
deildinni næsta vetur. Sigurður
Gunnarsson og Einar Þorvarðar-
son með Tres De Mayo, Hans
Guðmundsson með Marlboro
Kanteras og Guðmundur með
Maritim.
Félagaskiptin eru þó ekki um
garð gengin. Samkvæmt reglum
HSI þarf leikmaðurinn sjálfur að
Handbolti
Þrettán
í 3. deild
24 leikir á lið!
Þrettán lið hafa tilkynnt þátt-
töku í 3. deiidarkeppni karla í
handknattleik næsta vetur, einu
fleiri en í fyrra. Sindri frá Horna-
firði hefur hætt þátttöku en í stað-
inn koma Völsungur frá Húsavík
og iið Hvergerðinga til leiks -
Völsungar hafa ekki leikið í
deildakeppninni í ein tólf ár en
Hveragerði hefur aldrei tekið
þátt.
Að þessu sinni verður ekki
leikið í tveimur riðlum, heldur
leika öll 13 liðin í einni deild, allir
við alla. Samtals 24 leikir! Liðum
af landsbyggðinni fjölgar hægt og
sígandi - Bolvíkingar og Höttur
frá Egilsstöðum höfðu einnig hug
á að vera með í 3. deild í vetur en
ekkert varð af því. Að vísu gæti
liðunum fækkað niður í 12 - verið
getur að Þórsarar frá Akureyri
dragi sig út, eins og fram kemur
annars staðar á síðunni.
-VS
sækja um leikheimild hjá HSI til
að leika erlendis og síðan þarf
nýja félagið að hafa samband við
íslenska félagið og HSÍ. Ekkert af
þessu hefur enn átt sér stað livað
Guðmund varðar - og reyndar
ekki heldur í sambandi við fé-
lagaskipti þeirra Hans og Einars.
Allir þrír teljast því ennþá leik-
menn með sínum íslensku fé-
lögum.
-VS
Handbolti
Sigurður í KA
Friðjón til Danmerkur
Hœttir Þór í3. deild?
Sigurður Pálsson, mesti markaskorari Þórsara í 2. og 3. deild
undanfarin ár, hefur tilkynnt félagaskipti yfir til crkifjendanna
á Akureyri, KA, og hyggst leika með þeim í 1. deildinni næsta
vetur. Þetta er kærkominn styrkur fyrir KA sem hefur misst
Friðjón Jónsson til Danmerkur þar sem hann verður við nám
næsta vetur.
Útlitið er ekki bjart hjá Þór þessa dagana. Líkur eru á að Nói
Björnsson markvörður og línumaðurinn skæði Árni Stefánsson
gangi einnig til liðs við KA. Enginn þjálfari hefur verið ráðinn í
stað Guðjóns Magnússonar sem er á förum frá Akureyri og
samkvæmt heimildum Þjóðviljans gæti farið svo að Þórsarar,
sem léku í 2. deild í fyrra, dragi sig útúr 3. deildinni í vetur og
einbeiti sér að 2. flokki.
-VS
Knattspyrna
Drengirnir til Noregs
Drengjalandslið fslands í knatt-
spyrnu, skipað leikmönnum 15 ára og
yngri, heldur til Noregs á morgun og
tekur þátt í Norðurlandamótinu sem
hefst á mánudag og lýkur annan laug-
ardag.
Lárus Loftsson þjálfari hefur valið
16 pilta til fararinnar og eru þeir eftir-
taldir:
Markverðir:
Karl Jónsson, Þrótti R.
Orri Ýrar Smárason, Selfossi
Aðrir leikmenn
Árni Þ. Árnason, Þór A.
Bjarni Benediktsson, Stjörnunni
Gísli Björnsson, Selfossi
Gunnlaugur Einarsson, Val
Egill Örn Einarson, Þrótti R.
Haraldur Haraldsson, Vikingi R.
Haraldur Ingólfsson, ÍA
Ólafur Viggósson, Þrótti N.
Páll V. Gíslason, Þór A.
Sigurður Bjarnason, Stjörnunni
Steinar Adolfsson, Víkingi Ó.
Rúnar Kristinsson, KR
Tryggvi Tryggvason, lA
Þormóður Egilsson, KR
ísland leikur við Svía á mánu-
dag, Dani á þriðjudag, Englend-
inga, sem eru gestir í mótinu, á
miðvikudag, Norðmenn á
fimmtudag og loks Finna annan
laugardag.
1. deild
Alltof stórt hjá KR
Lánlausir FH-ingar töpuðu 3-1. KR komið í4. sœti.
Það var ekki beint sanngjarnt
að KR skulu hafa unnið FH 3-1 á
KR-vellinum í gærkvöldi, en það
eru mörkin sem gilda og KR-
ingar voru duglegri að nýta sér
þau færi sem gáfust.
FH-ingar fengu fyrsta færið, en
Ingi Björn Albertsson var
eitthvað utan við sig og náði ekki
valdi á boltanum eftir að Börkur
Ingvarsson KR-ingur hafði gefið
á hann. Ingi Björn náði að skjóta
nokkru síðar, en framhjá. KR
fékk 3 færi í fyrri hálfleik og
skoraði 3 mörk. Ásbjörn Björns-
son átti skalla í slá og síðan var
gefið fyrir á Hannes Jóhannsson,
en hans skalla varði Guðmundur
Hilmarsson með hendi og því
dæmd vítaspyrna. Sæbjörn Guð-
mundsson tók spyrnuna, og
spyrnti beint á mitt markið og
skoraði þar sem Halldór mark-
vörður var kominn af stað í annað
hornið. Annað markið var hálf-
gert gjafamark. Guðmundur
Hilmarssson ætlaði að gefa á
Halldór, en hitti boltann illa svo
að Björn Rafnsson komst á milli
og átti ekki í vandræðum með að
senda hann í mark FH: Þriðja
markið skoraði Júlíus Þorfinns-
KR-FH 3-1 (3-0) **
Mörk KR:
Sæbjöm Guðmundsson 19. mín.
Björn Rafnsson 32. mín.
Júlíus Þorfinnsson 42. mín.
Mark FH:
Hörður Magnússon 67. mín.
Stjörnur KR:
Hannes Jóhannsson*
Björn Rafnsson *
Ásbjörn Björnsson *
Július Þorfinnsson *
Stjörnur FH:
Henning Henningsson •
Krlstján Hilmarsson *
Hörður Magnússon *
Þörður Sveinsson *
Dómari: Óli P. Olsen ***
son. Ásbjörn vann skallaeinvígi
og skallaði til Júlíusar sem var
óvaldaður. Hann lék upp að víta-
teig og skaut. Boltinn snerti Hall-
dór markvörð, en í netinu endaði
hann.
FH sótti nær látlaust fyrri
helming síðari hálfleiks og átti
Stefán Jóhannsson fullt í fangi
með að bjarga í ein 3 skipti. Fyrst
skot frá Janusi Guðlaugssyni, síð-
an skot frá Kristjáni Gíslasyni og
loks skalla Jóns Erlings. Eina
mark FH skoraði Hörður
Magnússon úr vítaspyrnu sem var
dæmd er honum var brugðið
innan vítateigs.
KR var ívið sterkara í fyrri hálf-
leik, en FH í þeim seinni. KR-
ingar nýttu sín færi og að vissu
leyti hefði verið ósanngjarnt ef
FH hefði náð stigi m.v. við þau
varnarmistök sem þeir gerðu sig
seka um. -gsm
1. deild kvenna
Óbreytt
I gærkvöldi voru leiknir 2 leikir
í 1. deild kvenna og er staðan á
toppi deildarinnar óbreytt, þar
sem bæði ÍA og UBK unnu sína
leiki og eru þessi lið nánast búin
að stinga af í deildinni.
ÍA-Valur 1-0 (0-0). Valsstúlk-
urnar, hressar eftir að vera ný-
búnar að slá Breiðablik út í bikar-
keppninni, voru öllu betri í byrj-
un. Þeim gekk þó illa að skapa sér
marktækifæri, en í því var Skaga-
liðið sleipara, en mistókst í þeim
2 færum sem til boða stóðu.
í síðari hálfleik réð ÍA gangi
leiksins og var mun betra. Þær
áttu 1 stangarskot áður en Laufey
Sigurðardóttir skoraði eina mark
leiksins. Þó sigurinn hafi verið
naumur, þá var hann öruggur og
ekki í hættu þar sem í A liðið var
einfaldlega betra.
UBK-KR 5-1 (3-1). Blikarnir
voru sterkari allan tímann eins og
tölurnar bera með sér. í fyrri
hálfleik skoruðu þær Ásta B.
Gunnlaugsdóttir, Erla Rafns-
dóttir og Ásta Reynisdóttir fyrir
UBK, en Kristín Heimisdóttir
fyrir KR, af löngu færi.
Erla Rafnsdóttir skoraði sitt
annað mark og 4. mark UBK í
síðari hálfleik er hún skaut úr erf-
iðri aðstöðu. Boltinn hoppaði á
ójöfnu á vellinum og í öxl mark-
varðar KR og inn í markið. Ásta.
B. skoraði aftur og nú eitt af sín-
um einkennandi mörkum. Fékk
stungu innfyrir vörn KR og sendi
boltann af öryggi í markið. Sigur-
inn var auðveldur og skoruðu
Blikastúlkur 6. markið, eftir
hornspyrnu, en það var síðan
dæmt af þar sem boltinn hafði
farið aftur fyrir í spymunni.
-SH/Akranesi/HRA
j'úlí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Staðan
( 1. deild karla eftir úrskurð dómstóls
KSÍ i gær.
Fram 11 8 1 2 26-17 25
ÍA 11 7 2 2 26-10 23
Valur 11 6 3 2 17-9 21
KR 11 6 3 2 24-17 21
ÞórA 11 6 1 4 18-15 19
IBK 11 5 1 5 16-14 16
Þróttur 11 3 1 7 14-23 10
FH 11 3 1 7 12-22 10
Víðir 11 2 3 6 12-24 9
Víkingur 11 1 0 10 11-25 3
Nú er frí framundan hjá 1.
deildarliðum og næsta umferð
hefst 10. ágúst.