Þjóðviljinn - 10.08.1985, Blaðsíða 16
Engin þörf
að kvarta
Magnús bóndi á Skáldstöðum í
Reykhólasveittruflaður við sláttinn eina
morgunstund
Magnús á Skáldstöðum. Barmahlíð í baksýn. Ljósm.: GFr.
Reykhólasveit er ein fegursta
sveit á landinu. Fyrir botni Ber-
ufjarðar er bærinn Skáldstaðir á
fallegum stað uppi í hlíðinni en
beint á m'óti honum blasir við
Barmahlíð, vaxin skógi. f>að er
hlíðin sem Jón Thoroddsen orti
um kvæði sitt Hlíðin mín fríða.
Við renndum í hlað seinni hluta
júlímánaðar og komum þar að
sem Magnús bóndi Guðmunds-
son á Skáldstöðum var að slá með
orfi og ljá upp á gamlan máta.
Hann býr þar ásamt systkinum
sínum: Kristjáni, Jóni og Ingi-
björgu. Fimmta systkinið er Jens
á Reykhólum. Við spyrjum
Magnús hvort við megum trufla
hann augnablik við sláttinn.
Hann svaraði svo:
- Bændur hafa nógan tíma.
Sveitafólk er yfirleitt ekki svo
nákvæmt með tímann.
- Hvernig gengur slátturinn?
- Hann hefur yfirleitt gengið
vel þó að það hafi verið ákaflega
kalt og veðrasamt á tímabili.
Margir bændur hér eru að ljúka
heyskap.
- Hvernig er meö ykkur hér á
Skáldstöðum?
- Það er nokkuð mikið enn því
að hér er eiginlega allt þurrkað,
við heyjum lítið í vothey. En við
erum búin að ná inn þó nokkru af
heyjum og það góðum heyjum.
- Hvað eruð þið með stórt bú?
- Við erum með um 200 kindur
og tvær kýr.
- Hvernig er afkoman?
- Ég veit ekki hvað ég á að
segja um það, hún hefur verið
heldur erfið með köflum. Tíðar-
farið undanfarin sumur hefur
verið slæmt. Samt er engin þörf
að kvarta.
- Það er býsna búsældarlegt hér
um slóðir?
- Frá náttúrunnar hendi er
ekki verra að búa hér en annars
staðar. Hér er ákaflega gott sauð-
land.
- Hefur trjágróður aukist eða
minnkað síðan þú manst fyrst?
- Hann hefur stóraukist hér í
landi Skáldstaða. Sumir telja að
sauðfé sé bölvaldur skóganna og
það var rétt meðan fé var að þræl-
ast í hagleysum á veturna, algjör
jarðbönn og ekkert nema sprotar
upp úr. Nú er það liðin tíð.
Skógarmaðkurinn eyddi skógum
miklu meira þó að hans hafi ekki
orðið vart síðari ár. Þá sást ekki
lauf á tré og hætt var við fúa og
eyðileggingu á eftir. Mín reynsla
er sú að sauðfé bíti ekki skóginn
að nokkru marki.
- Hvernig stendur á þessu
nafni, Skáldstöðum?
- Þess er einhvers staðar getið í
fornsögum að bærinn sé kenndur
við Vaða skáld og Vaðalfjöll beri
hka nafn af honum en mér finnst
það ekki trúlegt. Tel líklegra að
fjöllin beri nafn af Þorskafjarðar-
vaðli.
- Hefur Þórhallur Vilmundar-
son kannski komið hér og skýrt
nafnið eftir náttúrunafnakenn-
ingunni?
- Hann kom hér fyrir nokkuð
mörgum árum og þuldi upp úr
Þorskfirðingasögu.
- Nú hafið þiðfengið sjálfvirk-
an síma. Hefur það ekki breytt
svolitlu í sveitinni?
- Sumir fella sig ekki við
breytinguna og telja það skapa
einangrun að sveitasíminn sé
horfinn. Ég er ekki sammála
þeim. Mér finnst betra að reka
erindi mín í síma eftir að hann
varð sjálfvirkur, maður er meira
sjálfbjarga að geta hringt hvert á
land sem er án milligöngu sím-
stöðvar.
- Hefur kjaftasögum kannski
fækkað?
- Hér eru aldrei kjaftasögur.
Fólk talar saman. Frá hvaða blaði
ert þú annars?
- Ég er frá Þjóðviljanum.
- Einmitt það, ég hallast að
þeirri stefnu eins og ástandið er
núna.
- Að lokum, Magnús. Slærðu
mikið með orfi og Ijá ennþá?
- Nei, ég er bara að snyrta til.
-GFr
aukneclit
Fjárfesting í framtíðar öryggi
í nútíma eldhús þarf nútíma búnað. Stílhreinan,
hagkvæman, ódýran í rekstri og öruggan. Kaup á
heimilistækjum er Ijárfesting í framtíðar öryggi.
Bauknecht kæliskápar eru háþróuð þýsk gæða-
vara, þrautreynd á íslenskum markaði og rómaðir
fyrir ótrúlega lága bilanatíðni. Þess vegna sjást
Bauknecht kæliskápar sára sjaldan á verkstæði
Rafbúðarinnar.
Bauknecht leiðir rannsóknir og framfarir í fram-
leiðslu heimilistækja, þess vegna eru Bauknecht
kæliskáparnir bæði öruggir í rekstri og ótrúlega
ódýrir.
Ef þú kaupir Bauknecht þarftu ekki að spyrja um
sjálfsagða hluti eins og sjálvirka afþíðingu, eða
gúmmílista með segulþynnum því tækninýjungar
eru sjálfsagður hlutur hjá Bauknecht.
Við höfum oft sagt að þú keyptir
Bauknecht gæðanna vegna
og getum hæglega bætt við að ekki sé
það síður verðsins vegna.
Verð frá kr. 21.149
Tæknilegar upplýsingar
Gerð: PD 2614 Gerð: SD 2304 Gerð: PD 3014
Hæð: 142 cm. Hæð: 140 cm. Hæð: 160 cm.
Breidd: 55 cm. Breidd: 55 cm. Breidd: 59,5 cm.
Dýpt: 60 cm. Dýpt: 58.5 cm. Dýpt: 60 cm.
Verð: 23.145 krónur Verð: 21.149 krónur Verð: 27.983 krónur
Við spjöllum saman um
útborgun og greiðsluskilmála
— og komumst örugglega að samkomulagi.
■* “T UIáH#ar
SAMBANDSINS
ARMULA3 SIMAR 681910 ~ 812 66
3