Þjóðviljinn - 01.10.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 01.10.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsfmi: 81348. Helgarsími: 81663. DJOÐVIUINN Þriðjudagur 1. október 1985 225. tölublað 50. órgangur Greiðslujöfnun Óklárt hjá Alexander Húsnœðisstofnun bíður eftir ákvörðun félagsmálaráðuneytis um túlkun laganna. 200 nýjar umsóknir bárust ígœr. Katrín Atladóttir: Bíðum eftir úrskurðum og svörumfrá ráðuneyti. Vantar skýra afstöðuréttraaðila Seinagangur og ráðaleysi fé- lagsmálaráðherra hefur ráðið mestu um hversu illa hefur gengið að gefa almenningi skýra mynd af því hvaða áhrif greiðslujöfnun húsnæðislána haii á greiðslu - byrði lántakenda. Þá hafa beinlínis villandi fréttir í ríkisfjöl- miðlum um rétt manna til greiðslujöfnunar ruglað marga í ríminu og því Ijóst að mun færri munu nýta sér möguleika greiðslujöfnunar en reiknað hafði verið með. Framlengdur umsóknarfrestur á greiðslujöfnun rann ut í gær og var mikið annríki hjá starfsmönn- um húsnæðisstofnunar. Alls bár- ust inn um 200 umsóknir í gær en áður höfðu borist um 500 um- sóknir. „Allar forsendur fyrir út- reiknum samkvæmt þessum lögum um greiðslujöfnun hafa verið óklárar til þessa og það hef- ur gert okkur mjög erfítt. Við bíðum eftir úrskurðum og svörum frá félagsmálaráðuneyti og víðar til að geta gert okkur ljósa mynd af því hvað þessi greiðslujöfnun mun þýða í ein- stökum tilfellum," sagði Katrín Atladóttir deildarstjóri hjá Hús- næðisstofnun í samtali við Þjóð- viljann í gær. Katrín sagði að þó væri ljóst að mjög skipti hvenær menn hefðu tekið verðtryggð lán hjá stofnun- inni. „Þeir sem hafa verið að greiða af lánum frá árunum 1982 og 83 eiga mest inni og við álítum að allt að 40-50% af næstu af- borgun sem færi í gjaldfrest af þeim lánum. Þeir sem tóku lán um áramótin 83-84 virðast hins vegar eiga mjög lítið inni. Annars er mjög erfítt að gefa nokkur skýr svör því það hefur vantað skýra afstöðu réttra aðila á því hvernig á að framkvæma þessi lög,“ sagði Katrín Atladóttir. -Ig. Kaupmátturinn Laun og lífeyrir hækka um 4,5% í dag, 1. október hækka öll laun hjá ASÍ og BSRB um 4,5% og sama hækkun verður á öllum bótum almannatrygginga. Lág- markslaun hjá BSRB í október verða 15.736 krónur og hjá ASÍ 16.433 krónur, en samanlagður ellilífeyrir, full tekjutrygging og heimilisuppbót verður 15.557 krónur til einstaklinga, 22.828 kr. til hjóna. Eflaust munar margan um þessar krónur en ekki er víst að þær standi lengi við því bensínið, bíómiðinn og taxtar vinnuvéla hækka líka í dag. Bensínið hækk- ar um tæplega 11,5% úr 31.40 hver lítri í 35 krónur. Bíómiðinn hækkar um 8% úr 120 krónum í 130 og dýrari miðar hækka hlut- fallslega jafn mikið. Loks hækka taxtar vinnuvéla um 7%. Georg Olafsson verðlagsstjóri sagði í gær að ekki lægju margar beiðnir fyrir hjá verðlagsráði núna, en búast mætti við beiðnum í framhaldi af kauphækkuninni, m.a. á útseldri vinnu. Verðlagsstofnun er nú að vinna úr stórri könnun á verðlagi matvöru og verður í framhaldi af henni lagt mat á það hvernig til hefur tekist með hina svokölluðu frjálsu álagningu verslunarinnar. -ÁI D V/skoðanakönnun Þorleifur Friðriksson Dagsbrúnarsagnfræðingur rýnir í forn skjöl og pergament sem frumkvöðull fólagsins, Pétur Guðmundsson reit í tölur og punkta á árunum 1906 til 1911. -Sig Sagnfrœði Tombóluskjölin fundin Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur Dagsbrúnar: Fengum skjöl Péturs Guðmundssonar fráfyrsta áratug aldarinnar í Ijósritifrá Ameríku svo hörð andstaða frá kaup- Alþýðubandalagið vinnurá Skoðanakönnun DV ígœr: AB bœtir viðsig. Sjálfstæðisflokkurinn vinnur einnigá. Allir aðrir tapafylgi. Jón Baldvin tapar4.5% „Það má segja að þessi saga sé nokkuð dæmigerð fyrir íslensk skjalamál og hvernig skjöl lenda oft á flakki og ekkert um þau hirt,“ sagði Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur hjá Dagsbrún, en nýlega fékk hann send ljósrit af skjölum sem farið höfðu til Amer- íku. „í þessu tilfelli endar sagan vel, en svo er einungis um fáein tilvik. Þessi skjöl koma frá Ásgeiri syni Péturs G. Guðmundssonar, eins af stofendum og formanns Dagsbrúnar, en Ásgeir hefur ver- ið búsettur í Ameríku og skjölin höfðu farið vestur um haf ásamt öðru erfðagóssi eftir Pétur. Þessi skjöl eru af þrennu tagi: Skjal um tombólunefnd Dagsbrúnar 1906, skrá yfir nefndir Dagsbrúnar 1910-11 og minnispunktar frá fundi stjórnar frá árinu 1907. Þar er verið m.a. að ræða at- vinnumál, um götulagningar og vatnslagnir í Reykjavík og rætt um hversu brýn verk þetta séu með tilliti til atvinnunnar. Þá er verið að ræða stofnun pöntunar- félags og þrennt nefnt sem standi í vegi fyrir slíku félagi: f fyrsta lagi fátæktin, þá landlæg tor- tryggni í garð pöntunarfélaga og monnum. Núna vantar illilega Árna Magnússon meðal vor. Það er ó- fremdarástand í skjalamálum og ekki síst þarf verkalýðshreyfingin að bæta úr. Menn þurfa líka að læra ákveðnar grundvallarreglur í þessu sambandi og að fylgja þeim. Hérlendis hugsa menn oft í pólitískum strategíum, - hvort ákveðin skjöl komi sér vel fyrir sig og sinn flokk. Þá er á ferðinni sá mikli misskilningur að sagan sé séreign einhvers eða einhverra. Þessi misskilningur leiðir að lok- um til þess að skjölin fara á ver- gang og týnast. Nú er MFA að koma upp vísi að skjalasafni, en ég veit til þess að það er mikil tregða, bæði hjá flokkum, verkalýðsfélögum og einstaklingum við að afhenda safninu gögn. Þetta gerir mönnum vitanlega mjög erfitt fyrir að rannsaka sögu verkalýðs- hreyfingarinnar og skoða hana sem heild, því það vantar til- finnanlega heimildir. Úr þessu þarf að bæta hið fyrsta,“ sagði Þorleifur Friðriksson að lokum. -pv Alþýðubandalagið er heldur á uppleið samkvæmt skoðana- könnun DV sem birtist í gær, og fær um 14.2% atkvæða þeirra sem taka afstöðu í könnuninni en var í júní sl. með 10.5% 41.8% eru óákveðnir eða um 10% fleiri en í júní sl. Alþýðuflokkurinn tapar samkvæmt könnuninni verulegu fylgi eða fer úr 19% í 14.5%. Sjálfstæðisflokkurinn vinnur á; fer úr 40.9% í 44.3%. Framsóknarflokkurinn fer úr 14.3 niður í 13.8% og kvennalist- inn fer úr 6.4% niður í 5.9%, Bandalag jafnaðarmanna úr 7.9% í 6.2%. Þannig tapa allir flokkar fylgi frá því í júnikönnun, nema Al- þýðubandalagið og Sjálfstæðis- flokkurinn. Könnunin byggir á 600 manna úrtaki, en samkvæmt yfirliti í DV í gær, hafa aldrei fleiri verið óák- veðnir en einmitt nú eða 41.8%. 10% svara ekki, þannig að könnunin byggir á svörum tæp- lega helmings úrtaksins. ________________________^óg SH Eyjólfur hættur Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson for- stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna óskaði í gær eftir lausn frá störfum frá og með næstu ára- mótum. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 1949. Voru honum færðar þakkir fyrir unnin störf á stjómarfundi SH í gær. Utvarpsmenn Fangelsishótun að tillögu Ragnhildar Samkvœmt lögum þarf ríkissaksóknari adfá umsókn og tillögur ráðherra áður en hann ákveður málssókn á hendur opinberum starfsmönnum. Svo virðist sem fangelsishótun ákæruvaldsins gagnvart starfsfólki Ríkisútvarpsins vegna vinnustöðvunarinnar sl. haust sé gerð með velþóknun Ragnhildar Helgadóttur menntamálaráð- herra auk ólöglegu einkastöðv- anna sem störfuðu í verkfaliinu á vegum Frjálshyggjufélagsins í Valhöll og Fréttaútvarps Frjálsr- ar fjölmiðlunar. I lögum nr. 74 frá 1974 segir svo: „Áður en ríkissaksóknari ákveður málshöfðun á hendur opinberum starfsmanni fyrir brot í starfí skal hann jafnan leita um- sagnar ráðuneytis þess, sem í hlut á. Ráðuneytinu ber að láta ríkis- um- rökstudda fljótt sem svo saksóknara í té sögn og tillögu verða má.“ Starfsfólkið fékk ekki greidd mánaðarlaun sín fyrirfram 1. okt- óber einsog lög gera ráð fyrir og ákváðu á fjölmennum fundum vinnustöðvun. Félag Frjáls- hyggjumanna og Fréttaútvarpið DV kærði starfsfólkið til ríkis- saksóknara og einsog segir í áð- urnefndri' lagagrein hefur hann samkvæmt lögum fengið umsögn og tillögur frá ráðherranum. -óg Sjá fréttaskýringu bls. 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.