Þjóðviljinn - 21.02.1986, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 21.02.1986, Blaðsíða 13
HEIMILIÐ fermetra veislu- og fundarsalur og er lítið eldhús við hlið hans. Er salur þessi mjög hentugur til að halda stórafmæli eða fermingar- veislur í, auk þess sem húsféiagið getur þingað í salnum. Þá er einn- ig að finna stórar sólarsvalir sem snúa í hásuður á efstu hæðinni. íbúðirnar eru allar með svalir og snúa þær allar í suður. -Sáf —i—I ;ki utum gengur hugmyndin upp eða ekki. Þá er alltaf gott að geta lagt hana til hliðar og snúið sér að öðru. Þetta er sjálfsagt svipað og hjá rithöfundum eða öðrum lista- mönnum. Það er stundum nauðsynlegt að geta lagt hug- mynd í salt í ákveðinn tíma og þá getur maður séð hvort hún er ein- hvers virði eða hvort rétt sé að gefa hana alveg frá sér.“ Valdimar hefur bara unnið í 3 ár sjálfstætt sem arkitekt en er þó orðinn mjög þekktur á þessum skamma tíma. „Sóley opnaði margrar dyr fyrir mig og nú orðið er mjög auðvelt fyrir mig að koma hlutum frá mér á framfæri. En það má ekki gleyma því að þó nafnið sé orðið þekkt í faginu þá eru það verkin sem ráða úrslitum. Sjálfs- krítik er nauðsynleg í þessu sem öðru. Ég hef reynt að vara mig á þessu. Það er betra að veifa öngu tré en röngu. Það hefur verið mitt lán að vera ekki að veifa lélegum hlutum. Á alþjóðlegum húsgagna markaði er samkeppnin það hörð að hlutirnir verða að vera mjög úthugsaðir til að það borgi sig að markaðssetja þá. Með- göngutími Sóleyjar var mörg ár og velgengni hennar þakka ég fyrst og fremst því að hvergi var kastað til höndunum. Það var með þessu sama hugarfari, sem ég réðst í hönnun Búsetablokkar- innar.“ -Sáf Búseti eygir glufu Lánaflokkur úr tíð Svavars Gestssonar sem félagsmálaráðherra getur kannski bjargað Búsetablokkinni Hönnun Búsetabiokkarinn- ar og forsendur fyrir bygging- arkostnaði miðuðust við að húsið yrði byggt í einum áfanga og var áætlaður bygg- ingatími um eitt ár. Á þeim for- sendum sótti Búseti um lán úr Byggingarsjóði verkamanna á sínum tíma. Svarið við láns- umsókninni fékkst svo sl. haust og var þá aðeins heimil- að lán til 15 íbúða í stað 46, eins og koma til með að vera í húsinu. Forsvarsmenn Búseta hafa sagt að ekki sé hægt að hefja framkvæmdir við húsið nema lán fáist til allra íbúðanna á kjörum, sem viðráðanleg séu fyrir félagið. Málið horfir þvf þannig við nú að fáist ekki lán til að byggja allar 46 íbúðirnar, þá verður að hætta við húsið og skila lóðinni aftur. En félagsmenn Búseta eru ekki af baki dottnir og þykjast nú eygja glufu á húsnæðislöggjöfinni til að fá lán til byggingar þrjátíu og einnar íbúðar til viðbótar. 1981, í tíð Svavars Gestssonar sem félagsmálaráðherra, var opnaður nýr lánaflokkur F-lána úr Byggingarsjóði ríkisins, en samkvæmt honurn er leyfilegt að veita ián til byggingar leiguíbúða, sem reistar eru á vegum sveitarfé- laga, félagasamtaka og sjálfs- eignastofnana og verða í þeirra eigu. Hefur Búseti nú sótt um þessi lán og er beðið viðbragða yfirvalda við umsókninni. Byggingarsjóður ríkisins lánar í dag um 29% af byggingarkostn- aði til einstaklinga. Meginþorri þeirra tekna tekur jafnframt líf- eyrissjóðslán en slíkt geta húsn- æðissamvinnufélögin ekki gert, því telja forsvarsmenn Búseta rétt að lánshlutfall til leiguíbúða sé hærra en til íbúða í einkaeign. Þá er bent á að sjóðurinn kemur aðeins einu sinni til með að lána til þessara íbúða. Málið er nú í höndum Alex- anders Stefánssonar, félagsmála- ráðherra, og hefur hann leitað lögfræðilegs úrskurðar í þessu máli, en að sögn mun hann per- sónulega vera hlynntur þessari lausn á málinu. Fari svo að svarið verði jákvætt og Búseti fái úthlut- að úr Byggingarsjóði ríkisins geta framkvæmdir hafist í vor og fyrstu íbúarnir með Búsetarétt flutt inn í full frágengna Búseta- blokk vorið 1987. -Sáf / ELDHUSIÐ ER H)ARIA HEIMIUSINS Eldhúsið er sannarlega hjarta heimilisins. Það er í senn vettvangur matseldar, og alls sem því fylgir, og mótsstaður fjölskyldunnar. IKEA hefur gert drauminn um óskaeldhúsið að veruleika. IKEA býður margar gerðir eldhúsinnréttinga á óviðjafnanlegu verði. Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 108 Reykjavík. Sími 686650. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.