Þjóðviljinn - 13.04.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 13.04.1986, Blaðsíða 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. apríl 1986 Ragnar Ingólfsson: Kórinn hefur ávallt reynt að leggja raekt við íslenska tónlist. Mynd: Sig. Sigurður Þórðarson stofnandi Karlakórs Reykjavikur og stjórnandi hans í 38 ár (tv.) ásamt Stefáni Islandi við komuna til New York í fyrstu ferð kórsins vestur um haf árið 1946. ingu. Við höfum enga fasta styrki frá hinu opinbera en leitað til ríkis og borgar stöku sinnum og beðið um styrki til utanferða. Það hefur aldrei þurft neinar fortölur til að fá þá enda ekki beðið um mikið. Nú og erlendis fáum við oft greitt fyrir hljómleika." Meðan röddin endist Yfirleitt hefur kórinn talið 40- 46 félaga og nú eru í honum 42 söngmenn. Þeir eru á öllum aldri og af öllum stigum, „enda er hvorki spurt um stöðuheiti né stjórnmálaskoðanir,“ segir Ragnar. Hann bætir því við að oftast séu flestir kórfélagar á miðjum aldri en honum hafi alltaf gengið vel að ná til ungra manna. Ymsir stórsöngvarar þjóðarinnar hafa byrjað feril sinn í Karlakór Reykjavíkur og má þar nefna Stefán íslandi, Jón Sigurbjörns- son, Guðmund Guðjónsson, Þorstein Hannesson, Ketil Jens- son og Friðbjörn G. Jónsson. Ragnar segir að lífið í kórnum hafi ekki tekið miklum breyting- um á þeim tíma sem hann hefur verið með. „Verkefnin hafa held- ur ekki breyst mikið. Við höfum alltaf reynt að leggja rækt við ís- lensk lög og á söngferðum er- lendis reynum við að hafa allt að helmingi laganna íslensk. Við höfum lítið fengist við nútíma- verk en þó hefur stjórnandinn okkar, Páll Pampichler, samið nokkur verk fyrir okkur og þau hafa mælst vel fyrir. Við höfum lítið gert af því að láta semja verk sérstaklega fyrir kórinn. Samt höfum við frumflutt mörg lög því oft hafa tónskáld tileinkað kórn- um verk sín, td,- Sigurður Þórð- arsson og Björgvin Guðmunds- son,“ sagði Ragnar Ingólfsson og bætti því við að hann ætlaði að syngja með kórnum svo lengi sem röddin endist. —ÞH Karlakór Reykjavíkur heldur um þessar mundir upp á sex- tugsafmæli sitt. Af því tilefni er mikið um dýrðir, nú I vikunni voru árlegir hljómleikar kórs- ins fyrir styrktarfélaga í Lang- holtskirkju, í gær, laugardag, var tekin fyrsta skóf lustunga að nýju félagsheimili í norðan- verðri Öskjuhlíð og í vor verð- urfariðísöngferðtil Bretagne-skaga í Frakklandi. Karlakórinn var stofnaður 3. janúar árið 1926 fyrir tilstilli Sig- urðar Þórðarsonar tónskálds. Sigurður var lífið og sálin í kórn- um áratugum saman og stjórnaði söng hans fram til ársins 1964 að einu ári undanskildu sem Páll ísólfsson leysti hann af í veikind- um. Síðan hefur Páll Pampichler Pálsson stjórnað kórnum og má það teljast einsdæmi að á 60 ára ferli skuli aðeins tveir menn hafa verið fastir stjórnendur. Enginn skortur á söngmönnum En karlakór er meira en hljóm- leikar því á bak við þá leynast þrotlausar æfingar og heilmikið félagsstarf. Og menn virðast hafa gaman af þessu, annars væru þeir ekki kórfélagar áratugum saman eins og Ragnar Ingólfsson sem er annar af tveimur elstu kórfélög- unum, hefur sungið með kórnum í 35 ár og var formaður hans á árunum 1963-76. Hvað fá menn út úr þessu? „Það sem fær menn til að syngja í kór er eflaust þörfin fyrir að tjá sig með þessum hætti og ekki síður félagsskapurinn sem er mjög ánægjulegur. Þarna er tek- ist á við stórverkefni sem veita manni lífsfyllingu. Og þetta á ekki bara við Karlakór Reykja- víkur því það virðist aldrei skorta söngmenn. Hjá okkur eru allir prófaðir sem æskja inngöngu og langt frá því að allir komist að sem vilja,“ sagði Ragnar þegar Þjóðviljinn hitti hann að máli í vikunni. Á sextíu ára ferli kórsins hefur hann sungið út um allan heim, á Norðurlöndum, þrívegis í Amer- íku, í Mið-Evrópu, í löndunum við Miðjarðarhaf þar sem heilsað var upp á páfann í leiðinni og eitt sinn fór kórinn alla leið til Kxna. Það var árið 1979 og þá voru kon- urnar með sem oftar." Strembnar utanferðir „Það var mikil ferð, við fórum þúsundir kílómetra og sungum sex sinnum á hálfum mánuði, þar af tvisvar í Menningarhöllinni í Peking. Kínverjar eru miklir höfðingjar og móttökurnar voru framar öllum okkar vonum. Að- stoðarforsætisráðherrann hélt okkur mikla veislu á Hótel Pek- ing og svo var spurt hvað við vild- um sjá. Við sáum ma. Kínamúr- inn og Maó formann í glerkistu og margt fleira. Konunum var boðið í sérstaka reisu sem stóð í heila viku. Sumar ferðirnar hafa þó verið strangar. Árið 1946-fór kórinn til Bandaríkjanna og Kanada og hélt 56 hljómleika á hálfum þriðja mánuði. Árið 1960 fórum við aftur til Vesturheims og sung- um 40 sinnum opinberlega á tveimur mánuðum. Þetta var ein- um of mikið og við ákváðum að gera þetta ekki oftar að syngja svona oft. I þriðju ferðinni vestur um haf sem farin var árið 1981 létum við nægja 17 hljómleika,“ segir Ragnar. Rófnarœkt og mótahreinsun Það kostar sitt að halda uppi svo öflugu starfi sem Karlakór Reykjavíkur hefur gert. Auk hljómleika hér á landi hefur hann sungið 160 sinnum opinberlega á erlendri grund. Hvernig er fjár- öflun kórsins háttað? „Hún er með ýmsum hætti. Við erum að vísu hættiT að vera með happdrætti enda eru þau orðin svo mörg. En við höfum Ieitað til einstaklinga og félaga og nú eru styrktarfélagar kórsins 1.500 talsins sem leggja fram fé og fá 2 miða hver á árlega styrkt- arhljómleika. Það hefur verið gripið til ýmissa ráða til að afla fjár, eitt árið fengum við lánað land í Mosfellssveit og ræktuðum gríðarlegt magn af rófum. Sx'ðan fór her manns, kórfélagar, konur þeirra og börn og tók upp um haustið. Við höfum líka boðið í að rífa niður mót af húsum í bygg- Kórinn á æfingu árið 1965, stuttu eftir að Páll Pampichler Pálsson tók við stjórninni. Venjulega er æft tvisvar í viku en fyrir hljómleika og utanferðir eru æfingar tíðari. Að tjá sig í söng Rœtt við Ragnar Ingólfsson fyrrum formann Karlakórs Reykjavíkur í tilefni af 60 ára afmœli kórsins

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.