Þjóðviljinn - 10.05.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 10.05.1986, Blaðsíða 16
Þóra Guðmundsdóttir skrifar „...eftiraðhafarœttmálin varðniður- staða okkar sú aðfull þörf vœri á nýju og sterku vinstra framboði. Undirtektirnar . ..hafa sýntað við erum að gera það sem rétt er.“ t komandi sveitarstjórnar- kosningum bjóða alþýðubanda- lagsmenn á Seyðisfirði fram í tvennu lagi. Nokkur okkar sem stöndum að S-listanum, lista al- þýðubandalagsmanna og óháðra, gengum til liðs við Alþýðubanda- lagið á síðustu mánuðum og vild- um með því efla vinstra starf í bænum sem verið hefur sáralítið f fjöldamörg ár. Til dæmis hafa sárafáir ungir liðsmenn gengið í flokkinn þrátt fyrir drjúgt fylgi G- listans í alþingiskosningum. Ástæðan fyrir þessum pólitíska doða er fyrst og fremst ágreining- ur sem ríkt hefur milli hópa, eða ætta, innan flokksins. Við reyndum að hefja pólitískt starf í þeirri von að hægt væri að Iíta framhjá þessum ágreiningi en það reyndíst tálvon. Deilur bloss- uðu upp og eftir nokkur átök sameinuðust hóparnir sem staðið hafa í deilum undanfarin ár en við hrökkluðumst út. Um tíma vorum við að því komin að gefast upp en eftir að hafa rætt málin varð niðurstaða okkar sú að full þörf væri á nýju og sterku vinstra framboði í bæn- um. Undirtektirnar sem við höf- um fengið síðan við tókum þessa ákvörðun hafa sannfært okkur enn frekar um að við höfum gert það sem rétt er. Þær undirtektir hafa ekki síst komið frá alþýðu- bandalagsmönnum á Seyðisfirði og annars staðar í fjórðungnum. Vanmetin verðmæti Grundvöllur okkar framboðs er sú tilfinning að þrátt fyrir þá staðreynd að lífskjör, atvinnu- umhverfi, samgöngur, félagsleg þjónusta og fleira standist ekki samanburð við það sem þekkist á höfuðborgarsvæðinu, þá viljum við búa á Seyðisfirði. Við eigum okkar eigin smábæjarmenningu sem að mörgu leyti er ríkari og skemmtilegri en „stórborgar- menningin“. Við erum svo stál- heppin að búa í einum fegursta og sérstæðasta kaupstað landsins, bæði hvað varðar náttúru, bygg- ingar og skipulag. Til dæmis eigum við mjög fallegan og af- markaðan miðbæ sem mörg yngri bæjarfélög geta ekki státað af. í bænum er ein heillegasta byggð gamalla timburhúsa á landinu, gömul og merkileg hafnar- mannvirki, hvort tveggja nátengt sögu og menningu staðarins. Auglýsing um aðalskoðun bifreiða, bifhjóla og léttra bif- hjóla í Seltjarnarneskaupstað og Kjósar-, Kjalarnes- og Mosfellshreppum 1986. Skoðun fer fram sem hér segir: Seltjarnarnes: Þriðjudagur 20. maí Miðvikudagur 21. maí Fimmtudagur 22. maí. Skoðun fer fram við félagsheimilið á Seltjarnar- nesi. Kjósar-, Kjalarnes- og Mosfellshreppur: Mánudagur 26. maí Þriðjudagur 27. maí Miðvikudagur 28. maí Fimmtudagur 29. maí. Skoðun fer fram við Hlégarð í Mosfellshreppi. Skoðað verður frá kl. 8.00 - 12.00 og 13.00 - 16.00, alla framantalda daga á báðum skoðunar- stöðunum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því að bifreiðagjöld séu greidd, að vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi og að bif- reiðin hafi verið Ijósastillt eftir 1. ágúst sl. Athygli skal vakin á því að skráningarnúmer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma ökutæki sínu til skoðunar á auglýstum tíma, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og ökutækið tekið úr umferð hvar sem til þess næst. Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi, Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu 7. maí 1986 Einar Ingimundarson. Fjórir efstu menn S-listans, frá vinstri: Þóra Guðmunds- dóttir arkitekt í 1. sæti, Jó- hanna Gísladóttir kennari í 3. sæti, Sigrún Ólafsdóttir hjúkr- unarfræðingur í 4. sæti og Jón Halldór Guðmundsson gjald- keri í 2. sæti. Frá Seyðisfirði. Okkur finnst þessi sérkenni og verðmæti ekki hafa verið metin sem skyldi og viljum beita okkur fyrir því í bæjarstjórn að þar verði breyting á. Við erum þeirrar skoðunar að fagur og snyrtilegur bær sé ekki síður verðmæti en loðnumjölið sem við framleið- um. Ekki síst í ljósi þess að Seyðisfjörður hefur með tilkomu Norröna skipað sér í röð helstu ferðamannabæja landsins. Loðnubræðslur á fornaldarstigi í firðinum eru tvær loðnu- bræðslur og báðar á hálfgerðu fornaldarstigi hvað varðar at- vinnuhætti og umgengni. Önnur þeirra, sú sem ísbjörninn á, er á miklu hættusvæði vegna snjó- flóða og tilvist hennar í rauninni stöðug ógnun bæði við líf þeirra verkamanna sem þar vinna og lífríki fjarðarins í heild. Þúsundir tonna af lýsi og svartolíu eru þar í tönkum á vertíðinni og svartolí- uslysið sem varð um síðustu jól er hreinn barnaleikur hjá því sem gerst gæti. Hvorug bræðslan er búin hreinsibúnaði svo mengun lofts og sjávar er gífurleg. Nýleg athugun Hollustuverndar ríkisins á rykmagni (mjöli) sem berst upp úr reykháfum bræðslunnar á Eskifirði leiddi í ljós að það nam 25 kílóum á klukkustund. Það jafngildir því að báðar bræðslurn- ar hér í bæ spúi hálfu öðru tonni af mjöli yfir bæinn á sólarhring. Auk þess eru báðar bræðslurnar reknar á takmörkuðum starfs- leyfum. Það er von okkar að eindregin afstaða íbúa bæjarins og bæjar- stjórnar bæði í garð stjórnvalda og bræðslanna verði til þess að þessum málum verði kippt í lag. Bræðslurnar eru nauðsynleg atvinnutæki í bænum. Við sjáum þeim fyrir frábærri höfn og dug- andi vinnuafli. f staðinn gerum við þá sjálfsögðu kröfu að þær mengi ekki umhverfi okkar. Á Seyðisfirði er atvinnulífið einhæft og það hamlar fólksfjölg- un. Ungt fólk fer burt og aflar sér menntunar á ýmsum sviðum en finnur svo ekki not fyrir hana hér í heimabyggðinni þótt það vilji helst búa hér. Það er því brýnt að hlúa að nýjum atvinnugreinum, bæði þeim sem tengjast fjöreggi okkar, sjávarútveginum, og öðr- um iðnaði og ferðamannaþjón- ustu. Eitthvað strax Á S-listanum eru konur í meiri- hluta en það er okkar skoðun að svonefnd hagsmunamál kvenna séu í raun hagsmunamál alls sam- félagsins. Við leggjum ríka áherslu á aðbúnað barna og ung- linga í stefnuskrá okkar og teljum nauðsynlegt að í vinnuþjökuðu samfélagi sé boðið upp á dagvist- un barna. En í bænum er aðeins starfræktur leikskóli án menntaðra fóstra. Málefni ung- linga eru í lítið betra lagi. Félags- heimilið hefur verið í lamasessi vegna rekstrarörðugleika í fjölda missera og skólinn ekki í stakk búinn að anna félagsþörf ungling- anna. Eldra fólkið hefur svo alveg gleymst, að frátöldum þeim sem dveljast á sjúkrahúsinu. Ekkert skipulegt starf eldri borgara er í bænum. Þessum félagslegum þáttum þarf auðvitað að sinna. Við ger- um ekki allt í einu en eitthvað strax. Þóra Guðmundsdóttir er arkitekt og skipar efsta sætið á S-listanum ó Seyðisfirði. Orðsending frá Fósturskóla íslands Innritun fyrir næsta skólaár er hafin. Um- sóknir um skólavist þurfa að berast skólan- um fyrir 6. júní nk. Nánari upplýsingar og eyðublöð, fást á skrif- sfofu skólans. Skólastjóri VEGAGERÐIN Útboð Vegagerð rfkisins óskar eftir tilboðum í slitlög 1986 í Reykjanesumdæmi. (Útlögn malbiks og olíu- malar). Verki skal lokið fyrir 15. ágúst 1986. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 13. þ.m. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 26. maí 1986. Vegamálastjóri. 16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Reykjavík Húsnæði - einstakt tækifæri Vantar sárlega húsnæði með góðri lóð á leigu. Um er að ræða heimili 20 prúðra barna, 5 þægi- lega starfsmenn og áreiðanlegra foreldra. Heimilíð hefur verið rekið í 13 ár í leiguhúsnæði, - og við verðum að vera komin í nýtt hús 1. sept- ember. Margs konar húsnæði í Reykjavík kemur til greina. Uppl. í síma 23277 frá kl. 8 til 17 virka daga. Barnaheimilið Ós Þess vegna sérframboð

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.