Þjóðviljinn - 22.06.1986, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 22.06.1986, Blaðsíða 8
Sport og veiðifatnaður SEXTIU OG SEX NORÐUR Fisfatnaöurinn loftræsti er vindþéttur og vatnsfráhrindandi. Laufléttur og lipur. Litir: Rauöur, appelsínugulur. brúnn. blár og grænn. Einnig hentugur klæönaður fyrir hestamen Vatnsþéttur meö loftræstingu. • Síkkanlegur faldur á jakka. • Innfeld hetta í kraga. • Rennilás á buxnaskálmum. Sjóbúðin Grandagarði 7 - Reykjavík sími 16814 - Heimasími 14714 Höfum opnað stærstu sérverslun lands- ins með sportveiðivörur. Valin merki — Vönduð vara — Kynningarverð Eitthvad fyrir alla, konur sem karla. Veiðivon vonin sem bregst. Verslunin Langholtsvegi 111 104 Reykjavík ) 687090 VEIÐI Alveg á við tveggja vikna frí að fara einsamall í veiði að kvöldlagi. Mynd Sig. Sigurður Sigurjónsson leikari og veiðimaður Það er stutt í villimanninn Fer aðallega í silung, en stelst í laxinn endrum og eins.Til hábor- innar skammar hvað það er dýrt að veiða lax hér á íslandi Ég er búinn að stunda þetta í býsna mörg ár og það er eins og þessi veiði- della aukist með árunum, maður espist upp, sagði Sigurður Sigurjónsson leikari í samtali við Þjóðvilj- ann, en hans aðaláhugamál utan leikaraskapur er sil- ungsveiði. „Ég fer nær eingöngu í silung, hef bara ekki ráð á því að fara í lax, þótt ég reyni að stelast í það endrum og eins. Það er bara svo svívirðilega dýrt að veiða lax á íslandi. Það er tii háborinnar skammar. Yfirleitt fer ég í veiðivötnin í nágrenni Hafnarfjarðar, Meðal- fellsvatn, Gíslholtsvatn, Hlíðar- vatn og Kleifarvatn. Svo fer ég svolítið um landið, hef gert tals- vert af því að veiða urriða í Laxá í Laxárdal. Það verður líklega hápunkturinn í sumar. En það er auðvitað yfir allt annað hafið þegar maður kemst í lax.“ Hvað er það sem dregur þig út í þetta? „Ja, ef ég gæti nú útskýrt það, þá væri þetta nú ekki svona. Það er náttúrlega útiveran og kannski einveran, sem ég þarf mikið á að halda. Maður er ekki alveg í friði alls staðar í starfi, svo það er gott að komast burt frá því um stund og slappa af. Líklega er þetta ekkert annað en afslöppun, en það er líka stutt í villimanninn í okkur." Ertu fluguveiðimaður? „Ég þykist nú vera kominn alfarið út í fluguna. Maðkurinn er á undanhaldi og ég stefni ótrauð- ur að því að útrýma honum innan tveggja ára. Það er nú allur gangur á því hvort það bítur á hjá mér. Þetta svona kemur í gusum. Mér hefur gengið býsna vel í vor með sjó- birtinginn, en ég er varla byrjað- ur á silunginum í sumar. Ég fer að leggja í hann svona hvað úr hverju. Ég á mér mína veiðifélaga og til allrar hamingju hefur konan áhuga á þessu líka og fer með mér. Stundum fer ég einn að nóttu til eða að kvöldlagi. Það er alveg ógleymanlegt að standa við þetta að kvöldlagi í góðu veðri. Alveg á við tveggja vikna sumar- frí.“ Svoþú ert ekkert að leggja þetta á hilluna? „Nei, ég er sko hreint ekki á leið með að hætta. Þetta er mitt aðaláhugamál,“ sagði Sigurður og virkaði sannfærandi. —gg Sérverslun fyrir flugu- veiðmenn 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.