Þjóðviljinn - 11.09.1987, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 11.09.1987, Blaðsíða 6
MYNDLISTIN Listasaf n ASÍ og Verka- mannafélagiö Dagsbrún standa í sameiningu aö sam- sýningu fjögurra f rístunda- listamanna úr Dagsbrún. Sýnd eru verk eftir Birgi Nurmann Jónsson, EggertMagnússon, Jón Haraldsson og Pétur Hraunfjörð. Sýningin veröur opin virka daga kl. 16-12, en 14-22umhelgartil 13. sept. Kristján Kristjánsson sýnir 20 collage-myndir í gallerí Hallgeröi, Bókhlöðustíg 2,29. ágúst-13. sept. Sýningin ber heitið „Dreams That Money Can Buy“, og er ef ni myndanna sótt í heim draums og veruleika. Sýningineropinkl. 14-18sýn- ingardagana. Listasafn Einars Jónssonar sýnirgipsmyndirog málverk Einars. Opiö alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16.00. Höggmyndagarðurinn opinn alladagakl. 11-17. Ásmundarsafn við Sigtún sýnirabstraktskúlptúraeftirÁs- mund Sveinsson. Opið dag- legakl. 10-16. Listasafn Háskóla ísiands sýnir úrval verka sinna í Odda, húsi Hugvísindadeildar Há- skólans. Opið daglega kl. 13.30-17.00. íslensk skinnhandrit, þar á meðal handrit að Eddu- kvæðum, Flateyjarbók og Njálu eru til sýnis í Árnagarði þriðju- daga, fimmtudaga og laugar- dagakl. 13.30-17. Árbæjarsaf n er opið alla daga nema mánudaga kl. 10-18. Gallerí Sigtún, sem er í Hótel Holliday Inn, sýnirolíumálverk og pastelmyndir eftir Torfa Harðarson. Sjóminjasafn íslands, Vestur- götu 8 í Hafnarfirði, hefursýn- ingu um árabátaöldina á (s- landi. Jafnframt er sýnd heim- ildamyndin „Silfur hafsins". Opið 14-18 alla daga nema mánudaga. Gallerí Grjót við Skólavörðu- stíg hefursamsýningu á verk- um meðlima gallerísins. Opið virkadaga kl. 12-18. Gallerí List, Skipholti 50c, sýnir verk eftir yngri og eldri listamenn. Opið á verslunar- tíma. Galleí Islensk list, Vesturgötu 17, sýnir verk eftir 14 félaga í Listmálarafélaginu. Opið mánud.-föstud. kl. 9-17. FÍM-salurinn, Garðastræti 6. Samband íslenskra lista- manna, SÍM, hefuropnað sýn- inau á verkum félaga innan SIM, sem hafa gefið verk til sýn- ingarinnar til styrktar starfsemi félagsins. Öll verkin eru til sölu. Sýningin stendurtil 27. sept. n.k. Menningarsamtökin Norð- lendinga, MENOR, og Al- þýðubankinn á Akureyri kynna myndlistarkonuna Kristínu Guðrúnu. Húnerfædd á Akureyri og lauk þaðan stúdentsprófi.Á listkynningunni eru 7 verk, 4 unnin með olíu á striga og 3 mónógrafískverk. Listkynningin er í útibúi Alþýðu- bankans á Akureyri, Skipagötu 14 og lýkur 16. október. Listasafn íslands er lokað vegna f lutninga í nýja húsnæð- ið, sem væntanlega verður opnað7. nóv. n.k. Gallerí Gangurinn, Reka- granda 8. Wolfgang Stengt hef- ur opnað sýningu í Ganginum, en hann er einn af hinum svo- kölluðu ungu geómetrísku lista- mönnumAusturríkis. Fjallað er um list hans í nýlegu Kunstfor- um, hefti sem helgað er austurrískri list. Sýning hans er eitt verk, eins konar installation og gæti einnig fallið undir min- UM HELGINA imalisma. Wolfgang hefur unn- ið þessa sýningu sérstaklega fyrirGalleríGanginn. Norræna húsiö. Danskir gull- smiðir í Reykjavík. Gullsmiðirnir Henrik Blöndal Bengtson og Ul- rik Jungersen halda sýningu á verkum sínum frá 5. sept. til 4. okt. í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, stendur nú yfir sýning á verk- um Gests og Rúnu. Á sýning- unni sýnir Gestur höggmyndir, unnar á síðustu þremur árum. Rúna sýnir veggmyndir úr brenndum leirog blekteikning- arájapanskan pappír. Sýningin eropin virkadagafrákl. 10-18. Þetta er síðasta sýningarhelgin. Sýningunni lýkur þriðjudaginn 15. september. Nýlistasafnið. Ragna Her- mannsdóttir sýnir bækur, grafík, málverkog klippimyndir 12. til 17. september, að báðum dögum meðtöldum. Ragna lauk námi frá Myndlista- og handíða- skóla íslands 1983 og hefursíð- an dvalið að mestu erlendis, eitt ár í New York og síðustu þrjú árin í Hollandi. Sýningin opnar föstudag 11. sept. kl. 8e.h. Slunkaríki á ísafirði. Margrét Árnadóttir Auðuns opnar sýn- ingu á verkum sínum í Slunka- ríki á ísafirði laugardaginn 12. september kl. 16. Margrét stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands frá 1970- 74, og í Écoles des BeauÍArts í T oulose og París á árunum 1974-79. Þetta er fyrsta sýning Margrétar, en hún hefur áður tekið þátt í samsýningum, heimaog í Frakklandi. Sýningin stendurtil mánaðamóta. Kjarvalsstaðir. Helgi Þorgils Friðjónsson er með sýningu i austursal Kjarvalsstaða á olí- umálverkum. Sýningineropin alla daga frá 2-10 til 20. sept- ember. Kjarvalsstaðir. Septem- hópurinn er með myndlistar- sýningu í vestursal Kjarvals- staða. Þau sem sýna í þetta sinneru:GuðmundaAndrés- dóttir, GuðmundurBenedikts- son, Hafsteinn Austmann, Jó- hannes Jóhannesson, Kristján Davíðsson og Valtýr Péturs- son. Sýningin er opin daglega frá 2-10 til 20. september. Kjarvalsstaðir. Eydís Lúðvíks- dóttir er með myndlistarsýningu á Kjarvalsstöðum. Á sýning- unni eru 40 verk sem hún hefur unnið, stórar skálar og vegg- myndir. Norræna húsið. Vilhjálmur Bergsson sýnir 47 verk í kjallara Norræna hússins. Þar af eru 23 olíuverk, 15 vatnslitamyndir og 9 blýants- og kolateikningar. Sýningin er opin daglega f rá 14-22, fram til 20. september. Gallerí Svartá hvítu. Helgi Þorgils Friðjónsson er með sýningu á grafík og vatnslita- myndum. Opin frá 14-18 til 20. september. TÓNLISTIN Norræna húsið. Dagana 13,- 19. sept. verður haldin samnor- ræn tónlistarhátíð ungs fólks undir merkjumUNM- samtakanna. Á hverjum degi verða tónleikar með verkum eftirog íflutningi þátttakenda. Alls verða flutt verk eftir 42 nor- ræn tónskáld undir þrítugu, þar af 11 íslensk. Þá verða haldin námskeið og fyrirlestrar í tengslum við hátíðina og góðir gestir mæta á svæðið. Nánar er sagt frá hátíðinni í Þjóðviljanum íhelgarblaði. Nýlistasafnið. Madrigalarnir verða með söngtónleika í Ný- listasafninu á sunnudagskvöld kl. 20.30. Á efnisskrá eru m.a. lög eftir Phillipe Verlot, Thomas Morley, Ivan Ponce, John Farmer, Josquin des Pres, Hans Leo Hassle. Madrigalarn- ir eru sérstök tegund tónlistar frá endurreisnartímum, e.k. popplög þeirra tíma, þar sem tónlistin er kirkjuleg, en textarn- ir veraldlegir og segja frá sorg- um og gleði í daglegu lífi. Ma- drigalarnir er hópur ungs fólks sem flest er við nám eða kenns- lu erlendis eða hér á landi. Það telst nýlunda að tónleikar séu haldniríNýlistasafninu. Gerðuberg. Ljóðatónleikarfrá óperu- og Ijóðanámskeiði Svanhvítar Egilsdóttur og Wassilis Kotulas sem staðið hefurs.l. tværvikuríTónlistar- skólanum, verðuríTónverka- miðstöðinni að Gerðubergi laugardaginn 12. sept. kl. 17. Samstilling. Söng- og skemmtifélagið Samstilling byrjar vetrarstarf sitt með kaffi- samsæti á Hótel Borg, kl. 16 á sunnudag 13. sept. Félagið verður fimm ára í vetur. Félagar munu koma saman á mánu- dögum í allan vetur að Hverf is- götu 105. Samstillingerfélag þeirra sem hafa áhuga á söng og gaman af því að syngja og hittafólk. Heiti potturinn. Jazz í heita pottinum í Duus-húsi í Fisc- hersundi, sunnudags- og mán- udagskvöld. Jón Páll Bjarna- son gítarleikari leikur ásamt Pétri Grétarssyni átrommurog Tómas R. Einarssyni á kontra- bassa. Sérstakirgestireru Frið- rik Karlsson gítarleikari og söngvarinn FriðrikTheodórs- son. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 bæði kvöldin. Rithöfundasambands íslands, einleikur á flautu Robert Aitken, Kanada. Bókmenntadagskrá kl. 20.30. Þarkomafram Johan Bargum Finnlandi, Dorrit Will- umssen Danmörku, Jon Miche- let Noregi, Einar Már Guð- mundsson ogsÞórarinn Eldjárn. Á mánudaginh 4. sept. eru um- ræður um norræna skáld- sagnagerð. Bók- menntakynning í framhalds- skólum kl. 12. Franski rithöf- undurinn A. Robbe Grillet held- ur fyrirlestur á frönsku sem nefnist: „Le nouvel roman et l’autobiographie" - Nýja skáld- saganog ævisagan. Gamla bíó. Bókmenntadag- skrá. Þarkomafram Fay Weld- on Bretlandi, Erwin Strittmatter A-Þýskalandi, Poul Borum Danmörku, Kaari Utrio Finn- landi og Einar Kárason. Dag- skráin hefst kl. 20.30. HITT OG ÞETTA Viðeyjarferðir Hafsteins Sveinssonar hefjast um helgar kl. 13. KirkjaníViðeyeropinog veitingar fást í Viðeyjarnausti. Bátsferðin kostar 200 kr. Grasagarðurinn í Laugardal er opinn almenningi virka daga frá 8-22 og 10-22 um helgar. Þar er að f inna allar jurtir sem vaxa villtar á íslandi og fjölda annarrategunda. Torfhleðslunámskeið verður haldið í Vatnsmýrinni fyrir neð- an Norræna húsið á laugardag og sunnudag kl. 10-18 með matarhléi kl. 13-14. Kenntverð- ur að rista klömbru og streng og hlaða vegg með sama hætti og tíðkast hefurá (slandi frá land- námstíð. Leiðbeinandi er T ryggvi Gunnar Hansen. Þátt- takendum er bent á að hafa með sér stígvél, regnföt og stunguspaða. Nánari upplýs- ingarísíma 75428. Ferðafélag íslands. Dagsferð til Þórsmerkursunnudaginn 13. sept. og sunnudaginn 20. sept. Verð 1000.- kr. Dvalið um 31/2 klukkustund í Þórsmörk og farið ígönguferðir. Upplýsingarhjá Fl, Öldugötu 3. Sjálfstyrking og ákveðni- þjálfun. Námskeið þar sem þátttakendurfám.a. þjálfun í samskiptum við börn sín, eða í ákveðni og sjálfstyrkingu. Leiðbeinendureru Hugo Þóris- son og Wilhelm Norðfjörð, og hafa þeir hlotið þjálfun hjá „Eff- ectivenessTraining lnc.“ í Bandaríkjunum til að standa fyrir þeim. Enn eru laus pláss á fyrstu námskeið haustsins. Hægt er að fá allar upplýsingar og skrá sig í símum 621132 og 82804 e.h. alla virka daga. Norræna húsið. Bók- menntahátíð verður opnuð kl. 16 á sunnudag 13. sept. Ávörp flytja Knud ödegaard forstjóri, Birgir ísl. Gunnarsson menntamálaráðherra, sænski rithöfundurinn Sara Lidman, Sigurður Pálsson, formaður r NAMSAÐSTOÐ Fyrir þá sem viCja ná Cengra í skóía. ísíenska, stœrðfrœðij enska, danska, eðCis- og efnafrceði og margarfCeiri SókCegar greinar grunnskóCa, framhaCdsskóCa og háskóCa. Smáhópar (2-4 manna) og einstakdngskennsCa. Misserisnámskeið (14 vikna) jyrir 9. Sekkjar nemendur sem viCja ná varanCegum árangri í ísCensku, stcerðfrceði, ensku og dönsku. Styttra námfyrir þá sem þurfa minni aðstoð. Ráðgjöf fyrir þá sem ekki eru vissir um hvað þeir viCja eða geta. Við erum nú á tveimur stöðunv ÞangSakka 10, Mjdíítímni (aftan við Bíó- höCíina) og Einhoíti 2 3 fueð (ncesta hús ofan við DV). INNRITUN ER HAFIN í EINHOLTI 2, kC. 14 -18 sími: 624062 ] 1® LEIÐSÖGN SF.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.