Þjóðviljinn - 14.09.1988, Page 6
þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkaiýðshreyfingar
Jarðgöngin - mál
allrar þjóðarinnar
Nýja brúin yfir Ölfusá er merkileg samgöngubót. Vonir
manna standa til þess aö brúin muni veita nýju lífi í atvinnu-
og félagsmál á því svæöi sem nýlega var byrjað aö kalla
Árborg, og tekurtil Ölfussins og Flóans. Það má ætla aö það
verði einkum Þorlákshöfn annarsvegar, Eyrarbakki og
Stokkseyri hinsvegar sem eiga nýja vaxtarmöguleika
tengda Oseyrarbrúnni, en bæöi sveitirnar umhverfis, Hverg-
erðingar og Selfossbúar gætu einnig notiö góðs af.
Fögnuður Ölfusinga og Flóamanna að lokinni brú-
arsmíðinni tengist auðvitað helst þeim séraðstæðum sem
felast í misjöfnum möguleikum til sjósóknar vestan ár og
austan. Að auki myndast þar hringur í vegakerfinu sem áður
voru blindgötur, -og strandþorpin eru allt í einu komin í
alfaraleið. Mestu varðar að brúin -sem barist hefur verið
fyrir áratugum saman- er í sjálfri sér tákn um þann vilja
heimamanna að ætla sér og sínum sveitum blómlega fram-
tíð með (dví að standa saman á héraðsgrunni og ekki höndin
ein og ein eftir gamalli skiptingu í einstök sveitarfélög.
Vegna nálægðarinnar hafa íbúar á höfuðborgarsvæðinu
margirfylgst með brúarsmíðinni af miklum áhuga og kynnst
þeim sjónarmiðum Árborgarmanna sem að baki liggja.
Og hver veit nema einmitt Óseyrarbrúin muni hjálpa til við
að tryggja stuðning á suðvesturhorninu við þær stórhuga
jarðgangaframkvæmdir á Austfjörðum og Vestfjörðum sem
margir heimamanna telja nánast skilyrði framhaldsbúsetu
þar um slóðir. Grunnhugmyndin er hin sama og við Ölfusá,
þótt vandinn sé ólíkur, -að rjúfa einangrun, tengja sveitirnar,
skapa héruð, mynda stærri heildir, og gefa þannig langt nef
þeim sem halda leynt og Ijóst að sögusvið 21. aldar á íslandi
verði einungis við Faxaflóann.
Þeir eru byrjaðir á göngunum gegnum Ólafsfjarðarmúl-
ann, og það eru til áætlanir um jarðgöng vestra undir Botns-
heiði og Breiðadalsheiði og mundu þau tengja Önundar-
fjörð, Súgandafjörð og ísafjörð saman í eitt svæði félagslega
og í atvinnutilliti. Fyrir austan eru í mótun tillögur um göng
sem tengi saman Seyðisfjörð, Neskaupstað og Fljótsdals-
hérað.
Það er hagur allrar þjóðarinnar að byggðakeðjan um
landið haldist sem allra sterkust. Að því má færa fjárhagsleg
rök, félagsleg, menningarleg, söguleg, -og þarf þó ekki, því
að það hefur komið í Ijós að mikill meirihluti landsmanna er
þessarar skoðunar. Jarðgöngin vestra og eystra eru eitt
mikilvægasta framlágið til að treysta byggð og efla eystra og
vestra þarsem aðstæður eru fyrir hendi til að skapa fjölbreytt
atvinnulíf og blómlega menningu á grunni undirstöðu-
atvinnuveganna ef dreifðum byggðum verður kleift að nota
sér samtakamáttinn.
Á barlómstímum miklum sjá menn ofsjónum þær fjárhæð-
ir sem um er að tefla við jarðgangagerðina. Vegna
miljarðanna sem til þarf hafa aðrir en héraðsmenn verið
tregir að taka undir um jarðgangagerð þótt allir geti skilið
þörfina á göngunum og þær tækniframfarir sem gera þau
möguleg.
Það er því hraustlegt af þingflokki Alþýðubandalagsins að
lýsa fullum stuðningi við jarðgöngin á fundi sínum á Hall-
ormsstaðfyrirnokkrumvikum,-og sú stuðningsyfirlýsing er
meira en orðin tóm, vegna þess að flokkurinn boðar laga-
frumvarp um göngin þarsem gert er ráð fyrir því að ganga-
gröftur verði samfelldur í tíu til fimmtán ár og verði kostaður
með sameiginlegri skattgreiðslu allra landsmanna af bens-
íni og díselolíu á bíla og á svartolíu annarri en til fiskiskipa, -
rætt um 125 aura á lítrann.
Þessar tillögur Alþýðubandalagsins eru bæði djarflegar
og ábyrgar. Og af því nú er öðru meir rætt um stjórnarslit,
kosningar og önnur stjórnarmunstur er vert að minna á að
pólitík snýst ekki einungis um útreikninga á efnahagsdæm-
um dagsins.
-m
__nn * Höðumf0*'. °öWrh Un,lurJ. Zá'*”*
KLIPPT OG SKORIÐ
Heitt í kolunum í hliðaranddyri Gamla bíós:
Látum " J '
- hrópuðu reiðir safnaðarmeðlimir sem ekki fengu inngöngu
Halelúja
í fyrradag var mikið um að vera
hjá verkalýðsfélögum. Bæði
BSRB og ASÍ héldu formanna-
fundi í Reykjavík. Drjúgur hluti
íslenskra launamanna átti því
fulltrúa á öðrum hvorum þessara
funda. Pað þótti tíðindum sæta
að bæði samtökin sendu frá sér
skýr skilaboð um að það yrði ekki
liðið að stjórnvöld færu eina ferð-
ina enn að krukka í kaupið. Því
var hafnað að stjómvöld leystu
efnahagsvandann með launa-
lækkun og bent var á aðrar og
skynsamlegri leiðir.
Ekki þótti þó öllum þessir
fundir jafnmerkilegir og í fréttum
dagblaðsins Tímans í gær má sjá
að sumum hefur þótt þetta vera
ósköp ómerkilegt stúss. Tíminn
kann að segja frá því að Ásmund-
ur Stefánsson forseti ASÍ og
Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Dagsbrúnar og jafn-
framt formaður Verkamanna-
sambandsins hafi skipst á föstum
skotum úr ræðustóli. Síðan segir
Tíminn:
„Guðmundi þótti auðsjáanlega
tíma sínum illa varið eftir að fund-
urinn hafði staðið íþrjá og hálfan
tíma,því þegar kom að því að af-
greiða mál, þágekk hann affundi
og sagði fréttamönnum að hann
œtlaði heim að grilla ístað þess að
taka þátt í halelújakór um ekki
neitt sem máli skipti. Ekki hefði
verið fjallað um neitt bitastætt á
fundinum og ekki tœkiþvíað taka
þátt í afgreiðslu slíkra mála. “
Meira fjör
Kannski hafa einhverjir Tíma-
lesendur velt því fyrir sér hvers
vegna Guðmundur J. rauk til að
kveikja upp í grillinu svona
snemma. En hafi þeir flett aftar í
blaðinu sínu, hefur þeim vanga-
veltum sjálfkrafa slotað. í frá-
sögn af safnaðarfundi Fríkirkj-
unnar f Reykjavík kemur í ljós að
Guðmundi J. og öðrum þeim,
sem þann fund sátu, hefur aldeilis
' ekki veitt af að borða kvöldmat-
inn snemma og vera úthvíldir og
með alla sansa í lagi. Á fundi frí-
kirkjumanna var nefnilega síður
en svo sungið samstillt halelúja
og þar var ekki verið að gauf a yfir
málum sem ekkert bitastætt var í.
Þar voru greitt um það atkvæði
hvort prestur fríkirkjusafnaðar-
ins, Gunnar Björnsson, ætti að
halda embætti sínu.
Áhugi á fundinum var geysi-
mikill og fundarsalurinn var troð-
fullur. I Tímanum má lesa að
fundurinn hafi enn staðið þegar
blaðið fór í prentun. Og ekki
virðast menn hafa hlaupist burt af
fundinum þeim, þvert á móti
komust færri að en vildu. Þess var
og stranglega gætt að engir
óverðugir sætu fundinn. Dyra-
verðir hleyptu engum inn nema
þeim sem sannanlega voru í
söfnuðinum. Og þar stóð hnífur-
inn einmitt í kúnni hjá mörgum
þeirra sem höfðu um það full-
mótaðar skoðanir hver syngja
skuli messur í Fríkirkjunni.
Gegnum
nálaraugað
í gær mátti einnig sjá frásögn af
þessari merku samkundu í DV.
Þar er sagt frá erfiðu starfi dyra-
varðanna sem þurftu líkt og
Lykla-Pétur að skoða
hnausþykka prótokolla og marg-
oft að vísa mönnum í annan stað.
Ekki er um það getið að ráðagóð-
ar kerlingar hafi þurft að tilgreina
innihald í skjóðum sínum og má
því vera að fleira hafi fokið inn en
skyldi.
Það virðist alls ekki vera einfalt
mál að komast inn í Fríkirkjuna í
Reykjavík og DV kann að segja
frá manni, sem vildi komast inn á
fundinn, en var veginn og létt-
vægur fundinn vegna þess að
hann hafði flust upp á Kjalarnes í
nokkur ár.
„Þessi maður var einn margra
sem af einhverjum ástœðum voru
ekki skráðir í söfnuðinn 1. des-
ember og voru sumir mjög ósáttir
við hlutverk Hagstofunnar í mál-
inu. Þar á meðal var Guðmundur
J. Guðmundsson og dóttir hans.
Guðmundur sagðist hafa reynt að
skrá sig sem Fríkirkjumeðlim síð-
ustu 30 árin en Hagstofan ekki
gert það. “
Og DV hefur orðrétt eftir
Guðmundi J:
yyAnnaðhvort vill Fríkirkjan
mig ekki eða þjóðkirkjan vill ekki
sleppa mér,“ sagði Jakinn og
bœtti við að hann hefði veriðfeng-
inn til að kveðja Þorstein Björns-
son á sínum tímafyrir hönd safn-
aðarins. “
En samkvæmt texta með mynd
af Guðmundi J. „komst mann-
skapurinn inn eftir mikið þref en
án atkvœðaseðla.“
Þeir, sem ekki greiddu atvæði í
kristalssalnum fyrr um daginn,
gátu ekki gengið að því vísu að fá
að greiða atkvæði í óperunni um
kvöldið.
Lúkas 23.34
Vísir sálugi, var í auglýsingum
sagður vera fyrstur með fréttirn-
ar. DV, skilgetið afkvæmi hans,
virtist við fyrstu sýn ekki nema
hátt í tvö þúsund árum of seint á
sér í gær. Þvert yfir forsíðu stóð í
tveimur línum. „Kristur bað
böðlum sínum fyrirgefningar“.
Hér mun vera vitnað til þeirra
tíðinda sem frá er sagt í 23. kafla
Lúkasarguðspjalls, krossfesting-
ar Krists. Við nánari skoðun kom
í Ijós að blaðið er að endursegja
orð fríkirkjuprestsins eftir að
safnaðarfundurinn hafði með 376
atkvæðum gegn 313 (55% gegn
45%) fellt að víkja honum frá
störfum.
Á forsíðu er mynd af prestin-
um og kemur á óvart að hann
fylgir klæðavenju margra ka-
þólskra presta og notar rómver-
skan kraga. Á myndinni sést ekki
neðri hluti prestsins og er því ekki
unnt að draga af henni þá ályktun
að hann sé í skósíðum kufli og
haldi á barðastórum hatti með
lágum kolli eins og sumir þjónar
Rómarkirkjunnar. Enda hefur
ekkert komið fram um að hann
aðhyllist ekki lútherskan rétt-
trúnað og í samtali við DV segir
hann:
„Ég vil bjóða öllum sættir sem
vilja sœttast við mig og ætla mér
að starfa í þeim anda framvegis.
Kristur bað böðlum sínum fyrir-
gefningar en hann sá þá með
augum guðs á himnum. “
Atburðirnir í fyrradag sýna að
fundir geta verið mismunandi
merkilegir og ekki er alltaf víst að
á þeim sé verið að fjalla um
eitthvað sem máli skiptir. Þau
sannindi hefðu þeir betur haft í
huga ýmsir formenn verkalýðsfé-
laga úti á landi sem fóru um
langan veg til að ræða efnahags-
og kjaramál á formannafundi.
ÓP
Siðumúla 6-108 Reykjavík
Sírini 681333
Kv&ldsími 681348
Útgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Mörður Ámason, Ottar Proppó.
Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson,
HjörleifurSveinbjömsson, KristóferSvavarsson, Magnfriður
Júlíusdóttir, Magnús H. Gíslason, Lilja Gunnarsdóttir, OlafurGíslason,
Páll Hannesson, Sigurður Á. Friðþjófsson, Sævar Guöbjömsson, Þor-
finnurómarsson (íþr.).
Handrita-og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
LJóainyndarar:EinarÓlason, JimSmart.
Útlitotelknarar: Kristján Kristjánsson, KristbergurÓ. Pótursson
Framkvæmda8tjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrtfstofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrlfstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir.
Auglýaingastjórl: Olga Clausen.
Auglýaingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir.
Símavarsla: Sigriður Kristjánsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Utbreiðslu- og afgreiðslustjórl: Bjöm Ingi Rafnsson.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumenn: Katrín Bárðardóttir, ÓlafurBjömsson.
Utkeyrsla, afgreiðsla, rltstjórn:
Sfðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasólu: 70 kr.
Nýtthelgarblað: 100kr.
Askrlftarverð á mánuði: 800 kr.
6 SÍÐA —
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 14. september 1988