Þjóðviljinn - 30.11.1988, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 30.11.1988, Blaðsíða 16
OMÓÐVILIINN Miðvikudagur 30. nóvember 1988 258. tölublað 53. örgangur SÍMI 681333 Á KVÖLDIN CQ40^0 ÁLAUGARDÖGUM 681663 Vera litla, mynd um kynslóðabilið, hefur vakið mikla umræðu í Sovét- ríkjunum á þessu ári. Kvikmyndir Glasnost í Regnboganum Sex nýjar og nýlegar kvikmyndir á sovéskri kvikmyndaviku í Regnboganum. „Glasnost ogperestrojka hafa líka haftáhrif á kvikmyndaiðnaðinrí‘ —SPURNINGIN— Hvað finnst þér að vextir eigi að lækka mikið? Hinrik Hallgrímsson fram- kvæmdastjóri: Sem mest bara. Vaxtastigið er alltof hátt núna. Ragnar Þór Bóasson upp- finningamaður: Ætli hæfilegir vextir séu ekki svona 6 - 7%. Ég veit reyndar ekki hvað dugar fyrir bankana, en vextir af sparifé mættu vera í kringum 4%. Soffía Bjarnleifsdóttir skrif- stofumaður: Mér sýnist ágætt að fá verulega vaxtalækkun. Sjálf er ég reyndar ekki með neinn sérstakan vaxta- kostnað á bakinu; við erum kom- in yfir þetta. Steinn Guðmundsson, fyrrv. rafverktaki: Mér finnst að menn eigi að fara varlega í að hrófla við vöxtunum, meðal annars vegna sparifjár- eigenda. Guðrún Guðjónsdóttir skrif- stofumaður: Vextirnir mega að ósekju lækka. Ekki kannski verulega, en tölu- vert. Sex kvikmyndir, gerðar 1986- 88, verða á dagskrá sovéskrar kvikmyndaviku sem hefst í Regn- boganum á morgun. Segja að- standendur kvikmyndavikunnar, sem nú er haldin í áttunda eða níunda sinn, að ertitt hafí verið að velja sex myndir úr öllum þeim fjölda kvikmynda sem framleidd- ar hafa verið í Sovétríkjunum undanfarin ár. Hundrað nýjar kvikmyndir munu vera gerðar á | ári þar í landi, og eru þá ekki taldar fræðslu- og sjónvarps- myndir, og leggja menn áhcrslu á að þær sex myndir sem fyrirval- inu hafa orðið séu mjög ólíkar, sýna ólíkar stefnur og strauma innan sovéskrar kvikmyndagerð- ar. Skipuleggjendur eru ekki í nokkrum vafa um góð áhrif þeirra glasnost og perestrojku á kvikmyndaiðnaðinn, og nefna sem dæmi kvikmyndina Veru litlu, sem hefði verið óhugsandi fyrir nokkrum árum. Reyndar benda þeir á að skoðanir um Veru séu mjög skiptar í Sovét- ríkjunum, myndin hafi vakið miklar umræður og sýnist sitt hverjum. Til að mynda haldi sumir því fram að myndin sé of illa gerð t'il að geta talist fulltrúi sovéskrar kvikmyndagerðar, á meðan aðrir séu fullir hrifningar yfir henni. Vera litla er gerð á þessu ári, fyrsta kvikmyndin sinnar tegund- ar í Sovétríkjunum, og er mál manna að hún muni duga leikstjóranum, Pichul, til frægð- ar, þó svo hann geri ekki fleiri myndir. Myndin tekur fyrir kyn- slóðabilið, fjallar um baráttu Veru við að fá fjölskyldu sína til að samþykkja unnusta sinn, Sergej. Til átaka kemur á heimil- inu vegna Sergej, faðir Veru ræðst að honum með hníf á lofti. Ung stúlka er einnig aðalpers- ónan í kvikmyndinni Ossu, sem er gerð árið 1987. Leikstjóri myndarinnar, Solovjov, mun vera einn af þekktari kviknrynda- leikstjórum Sovétríkjanna en af tólf kvikmyndum hans hafa tíu hlotið verðlaun af einhverju tagi. Alika heitir aðalpersóna myndar- innar, sem stendur frammi fyrir því að ef til vill sé sú trú hennar að allt sé til sölu, ekki á rökum reist, en þegar til þess kemur hafa al- varlegir atburðir gerst. Kalda sumarið 1953, eftir Prochkine, geíð árið 1987, tekur fyrir viðkvæmt tímabil í sovéskri sögu, eða þá atburði sem tóku að gerast eftir dauða Stalíns árið 1953. Sögusviðið er þorp í Síber- íu, sem hópur glæpamanna herj- ar á. Tveir útlagar, fórnarlömb ofsókna Stalíns, Bassarguine, fyrrverandi liðþjálfi í sovéska hernum og Kopalytch arkitekt, hafa að vísu misst trúna á rétt- lætið fyrir löngu, en rennur varn- arleysi þorpsbúa til rifja og snúast til varnar. Átök utangarðsmanna eru einnig viðfangsefni myndarinnar Kóngarnir á Krím eftir Kara, þó með nokkuð öðrum hætti sé. Myndin gerist á tímum þegar réttindi fólks voru fótum troðin, spilling og mútur daglegt brauð. Rita og Volodja dragast inn í uppgjör tveggja mafíuforingja. Viðbrögð manna sem verða að yfirgefa heimili sín því leggia á byggðarlagið undir vatn, er við- fangsefni Kveðju eftir Klimov, og hlaut myndin verðlaun á Ten- erife árið 1986. Bygging raforku- vers í Síberíu gerir brottflutning borga og byggðarlaga nauðsyn- legan og sýnist éðlilega sitt hverj- um um framkvæmdirnar; til að mynda eru þær harmleikur fyrir eldri íbúa staðarins. Annars konar harmleikur er efni Bréfs frá látnum manni, eftir Lopushanskí, sem var gerð árið 1986, og hefur vakið mikla at- hygli á kvikmyndahátíðum víða um heim. Hlaut myndin meðal annars verðlaun bæði í Mann- heim og í Vestur-Berlín. Bréfið er frá vísindamanninum Larson til ungs sonar hans, en Larson hefur farist af afleiðingum 3. heimsstyrjaldarinnar sem bilun í tölvu hefur komið af stað. Larson telur sig ábyrgan fyrir hörmung- unum þyí sjálfvirki tölvubúnað- urinn var uppgötvun hans. Kvikmyndin Herra hönnuður, eftir Tepcov, gerð árið 1987, er af nokkuð öðru tagi. Par segir frá kunnum hönnuði í St. Pétursborg sem árið 1908 fær það verkefni að skreyta glugga í gimsteinabúð. Hann gerir vaxmódel af Önnu, ungri og fátækri stúlku, dauða- dæmdri af berklum. Nokkrum árum síðar hittir hann Önnu/ Maríu aftur sem eiginkonu ríks kaupsýslumanns, og áttar sig á því sér til skelfingar að hún er ekki lifandi kona heldur vaxmód- el. Kvikmyndavikan hefst sem fyrr sagði á morgun, og er von skipuleggjenda að íslenskir áhorfendur muni gefa álit sitt á kvikmyndunum sem nú hafa ver- ið valdar, svo unnt verði að hafa skoðanir þeirra og smekk í huga þegar næst verður efnt til sov- éskrar kvikmyndaviku hér á' landi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.